Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Síða 13
13
FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003
DV
Henmenn brenna
Útlönd
rnyndir og bréf að heiman
Breskum hermönnum 1 írak er
mörgum gert að eyðileggja alla per-
sónulega hluti sem þeir eru með í
fórum sínum.
Þannig tóku liðsmenn 7. fallhlíf-
arsveitar breska hersins sig til í
gær og brenndu fjölskyldumyndir
og bréf að heiman. Auk þess er her-
mönnum gert að losa sig við sjúkra-
skírteini, peninga og hvaðeina er
getur gefið upplýsingar um þá per-
sónulega.
Tilgangurinn er að tryggja öryggi
verði þeir teknir til fanga af írösk-
um hersveitum. Persónulegir mun-
ir eru taldir gefa óvininum dýrmæt-
ar upplýsingar - upplýsingar sem
þeir geta nýtt sér við yfirheyrslur.
„Ef hermaður lendir í óvina-
höndum og sá sem annast yfir-
heyrslu hefur upplýsingar um fjöl-
skyldu og einkalíf á takteinum
verða yfirburðir viðkomandi of
miklir. Aukinheldur eykur það til
muna álagið á hermanninn; hann
Breskir hermenn í írak
Þeim ergert aö farga öllum
persónulegum munum.
er hugsanlega minntur á þá sem
bíða hans heima," sagði Rich Pi-
ercy, lautinant í breska hernum, í
samtali við BBC í gær.
Ewan Andrews liðþjálfi var einn
þeirra sem þurftu að sjá á eftir fjöl-
skyldualbúminu. Honum var gert
að brenna mynd af 10 mánaða göml-
um syni sínum. „Þetta tekur mjög á
mig. Herinn setur hins vegar reglur
og þeim ber að fylgja," sagði
Andrews.
Hann ítrekaði hversu mikils
virði væri að fá bréf að heiman og
félagar hans væru sama sinnis.
Eins og staðan er nú fá þeir að lesa
bréfm en þeim er síðan fargað.
„Það er fátt meira upplífgandi en að
fá fréttir að heiman. Það er skelfi-
legt að geta ekki haldið upp á bréf-
in. Þetta hvetur okkrn- hins vegar
til að standa okkur vel og Ijúka
stríðinu hið fyrstu - þannig að við
komust heilir á húfi heim,“ sagði
Pete Bryce,
■
REUTERS
Allar hendur á lofti
Breskir fótgönguliðar dreifa matvælum í borginni Basra í írak í gær. íbúar tóku matargiöfunum fagnandi en matar- og
vatnsskortur hefurgert mörgum erfitt fyrir i borginni frá því stríösátök hófust fyrir rúmri viku.
Mótmæli gegn stríðinu í írak halda áfram í Bandaríkjunum:
Lögðust í götuna og hindruðu bílaumferð
Átök urðu á fjölmennum mót-
mælafundi gegn stríðinu í írak á
Manhattan í New York í gær. Lög-
regla handtók ríflega 200 manns.
Fundurinn fór fram á 5. tröð og
hafði lögregla komið upp grindum
til að halda fólki af götunni. Fram-
an af virtu fundarmenn þetta en
þegar leið á fundinn tóku um 150
manns upp á þvi að fara yfír grind-
umar og leggjast flatir i götuna. Þar
með stíflaðist umferð og lögregla
skarst í leikinn. Mótmælendur þótt-
ust vera „dauðir.“
Til nokkurra átaka kom og þurftu
lögreglumenn að bera hvem og einn
mann af götunni. Margir mótmæl-
enda héldu uppi myndum af fómar-
lömbum stríðsins og á gangstéttinni
var haldin táknræn útfor fyrir þá
hermenn, bandaríska sem íraska,
sem látist af í stríðinu. Hinum meg-
Á móti stríól
Ríflega 200 voru handteknir á
mótmælafundi í New York í gær.
in götunnar stóöu svo fylgismenn
stríðsins og hrópuðu til mótmæl-
endanna að þeir vissu ekki hvað
þeir væru að tala um.
Mótmæli á Manhattan hafa verið
tíð að undafömu og raunar víðar í
Bandaríkjunum. Um liðna helgi
gengu 250 þúsund manns í mót-
mælagöngu sem endaði við höfuð-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna. Til
átaka kom við lögreglu og var 91
handtekinn.
í San Francisco í Kalifomíu hafa
tvö þúsund verið handteknir á hin-
um ýmsu mótmælafundum í borg-
inni undanfama daga.
Mótmælafundir hafa einnig verið
haldnir víða um Evrópu en þeir
hafa verið fámennari nú en áður en
striðið hófst. Víða hefur skorist í
odda milli mótmælenda og lögreglu
og handtökur fylgt í kjölfarið.
PQcd-rom
Bíómiði á Final
Destination
fylgir með 500
fyrstu leikjunum
CHAMPIONSHIP MANAGGR
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í
Reykjavík.
Víðidalur Fákur.
Tillagan gerir ráð fyrir að nýr reiðstígur komi sunnan við
Brekkuás, reiðstígur norðan við hesthúsin færist ofar í
brekkuna, ný reiðgata komi sunnan við byggð í D-tröð og
ný reiðgöng komi undir Breiðholtsbraut, sunnan núver-
andi ganga sem verða eingöngu fyrir göngu- og hjólreiða-
fólk.
Einnig gerir tillagan ráð fyrir að leyfðar verói ofaná-
byggingar húsa með takmörkunum sem skilgreindar eru í
skilmálum og skýringarmyndum og einnig hvað varðar
taðþrær. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir fyrir hverfið,
vestan við A-tröð og norðan hesthúsa milli B og C- traðar.
Handan Brekkuáss er lóð fyrir bílastæði fyrir reiðhöll og
gert er ráð fyrir áframhaldandi rekstri á dýraspítala við
Brekkuás.
Tillagan liggur frammi á skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, virka daga kl. 10.00 -
16.00 frá 28.03 2003 til 09.05. 2003. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillög-
urnar. Kynningargögn er einnig að finna á heimasíðu
skipulags- og byggingarsviðs, skipbygg.is. Ábendingum
og athugasemdum við þær skal skila skriflega til Skipu-
lags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi
síðar en 09.04. 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 28. mars 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.
UPPBOÐ
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á starfsstöð gerðarþola að Ný-
býlavegi 24-26, Kópavogi, föstudaginn 4. apríl 2003, kl. 10.00:
Ýmiss konar æfingatæki, s.s. (250 E hjól 1219, hlaupabrautir, 310 seated chest
press 31113, 500 Adductor, 562 seated cure 31150, 577 seated leg press 31078, BF
Master nr. 0298-00340, BF Slave, nr. 0198-00317, stigavél, þrekstigi 18856), bað-
bekkur, Ergo-snyrtistólar, gufuhjálmur, Ionto Profi 199-60, Ionto Profi 298-10,
Profi-lampar, Thalaform-nuddbaðkar 300, ljósabekkir, Ionto-hitalampar, Ionto-
hitateppi, Ionto-Profi vinnustöð, vinnustólar, S.H.L Expo-med Lasar, Golden eye
vél og vinnuvörur, Ionto-fótaborð-vatn, Silhouette tone bekkir, hitapottur, T.N.S-
tæki, nuddbekkur, Vichy shower sturta, hljóðbylgjutæki, æfingalóð, þvottavél,
þurrkarar, make-up-stólar, naglaborð o.fl.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshaldara
eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI