Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Page 14
14 Menning________________ Islenskt þotulið Krassandi viöfangsefni og vel viö hæfi í sápu Rúnar Freyr Gíslason í hlutverki fótboltakappans Frikka og Inga María Valdimarsdóttir í hlutverki Röggu, eiginkonu hans. Áhugi á ríka og fræga fólkinu virðist síst minni hér en annars staöar í heiminum og er dyggilega viðhaldið af slúður- og glanstíma- ritum. Reyndar má ganga lengra og segja að „fræga“ fólkið sé nánast búið til af slíkum miðlum enda pínlega fáir með þann stimpil hér í fásinninu. Andlit sem birtast oft á skjánum eru vitanlega þekkt og sama má segja um knattspyrnumenn sem þéna vel í at- vinnumennsku úti í heimi. í Rauða spjald- inu, leikriti Kjartans Ragnarssonar og Sigríð- ar Margrétar Guðmundsdóttur, hverflst at- burðarásin um slíkt fólk því í forgrunni eru knattspyrnuhetjan Frikki (Rúnar Freyr Gíslason) og bróðir hans Hallur (Hilmir Snær Guðnason) sem er dagskrárstjóri sjón- varpsstöðvar. Sá síðarnefndi er í sambúð með Svaný (Elva Ósk Ólafsdóttir) sem er ein helsta stjarna stöðvarinnar en Frikki er hins vegar giftur Röggu (Inga María Valdimars- dóttir) diplómatadóttur sem stundar nám í sagnfræði auk þess að annast heimiliö og soninn Bangsa. Leiklist Á yfirborðinu er allt í lukkunnar velstandi en ekki er allt sem sýnist. Fljótlega kemur í ljós að samband Halls og Röggu er mun nán- ara en gengur og gerist hjá mægðu fólki og á það eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar. Bára (Nanna Kristín Magnúsdóttir), sautján ára dóttir Svanýjar, leikur stóra rullu í þessu fjölskyldudrama og er til að mynda notuð sem tálbeita þegar Frikki ætlar að ná sér niðri á bróður sínum. Nanna Kristín sýndi dæmalaust sannfærandi takta í hlutverki þessa villuráfandi unglings og átti í litlum vandræðum með að túlka geðsveiflumar sem eru óhjákvæmilegur fylgifiskur eiturlyfja- neyslu. Það er engu að síður frammistaða Rúnars Freys sem stendur upp úr í þessari sýningu og óhætt að fullyrða að með túlkun sinni hafi honum tekist að skipa sér á bekk með fremstu skapgerðarleikurum yngri kyn- slóðarinnar. Honum lætur jafn vel að koma til skila lífsgleðinni sem er Frikka eðlislæg og reiðiblandinni örvæntingunni sem grípur hann þegar hann uppgötvar að þeir sem eru honum nákomnastir hafa svikið hann. Inga María stóð sig með prýði í hlutverki Röggu sem leikur tveimur skjöldum og fær kikk út úr því að leika sér að eldi í eiginlegri og óeig- inlegri merkingu. Persónusköpun Hilmis Snæs var trúverðug að vanda og sama má segja um Elvu Ósk þótt Svaný sé ekki sérlega vel úr garði gerð af hálfu höfundanna. Þá er ógetið Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur sem leikur þrjú hlutverk og nýtur sín langbest í kómískri rullu sminku. Rauða spjaldið er afar hefðbundið að bygg- ingu og uppsetning Kjartans Ragnarssonar í sama anda. Ljós- og kvikmyndir sem er varp- að á stóran skerm auka vissulega fiölbreytni og kallast skemmtilega á við leikmyndina en eru alls ekki nauðsynlegar fyrir framvind- una. Leikmynd Axels Hallkels er að mörgu leyti vel lukkuð og í upphafi fæst ágætis til- finning fyrir rúmum húsakynnum hjá Röggu og Frikka þótt húsgögnin hefðu að ósekju mátt vera enn smartari. Lýsing Björns Berg- steins Guðmundssonar var listilega hönnuð og annað sem viðkemur umgjörð er vel leyst. Sagan sem þau Kjartan og Sigríður Mar- grét bera á borð í þessu verki minnir um margt á sápuóperu. Villtar ástríður (blandað- ar masókisma), framhjáhald, nauðgun, of- beldi og eiturlyfiafíkn eru óneitanlega krassandi viðfangsefni og vel við hæfi í sápu en verða dálítið yfirþyrmandi í einu og sama leikritinu. Leiknum lýkur í miðjum klíðum eins og hverjum öðrum framhaldsþætti en munurinn er sá að mér vitanlega verður ekk- ert framhald á leikritinu og áhorfendur því engu nær um afdrif persónanna. Mér er enn ekki ljóst hverju höfundarnir vilja koma á framfæri með þessari sögu nema ef vera skyldi að líf fræga og ríka fólksins er síst auðveldara en okkar hinna! Halldóra Friðjónsdóttir Þjóöleikhúsiö sýnir á stóra sviöinu Rauöa spjaldiö eftir Kjartan Ragnarsson og Sigríöi Margréti Guö- mundsdóttur. Tónlist: Siguröur Bjóla. Myndbands- gerö: Jón Karl Helgason. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Búningar: Axel Hallkell og Margrét Sig- uröardóttir. Leikmynd: Axel Hallkell Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Unaöslega þykkar Sannfærandi Bartók Túlkun Peters Maté á píanókonsert nr. 3 eftir Bartók var fyHiiega í anda tónskátds- ins. Myndin er tekin á æfingu fyrir tónleikana. Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, sem haldnir voru í Háskólabíói í gær- kvöld, hófust á Stiklum eftir Jón Nordal. Þetta er gamalt verk á mælikvarða nú- tímatónlistar, það var samið árið 1970. Sessunautur minn, sem heyrði frumflutning þess fyrir rúmum þrjátíu árum, sagði að það hefði elst vel, og víst var að tónlistin hljómaði sérlega áhugaverð. Verkið var í einum þætti sem skiptist niður í marga litla hluta, en þó var heildar- svipurinn sterkur. Maður hafði á tilfinningunni að tón- skáldið hefði verið að segja einhverja merkilega sögu, því allt mögulegt átti sér stað í tónlistinni. Vissulega er þetta ekki eins magnþrungin tónsmíð og ýmislegt sem Jón hefur samið á síðari árum, en grunnhugmyndirnar eru góöar, tónlistin samsvarar sér vel og hún er markvisst byggð upp. Sérstaklega var gaman að kadensunni sem Anna Guðný Guðmunds- dóttir lék listavel á píanóið og annað var einnig afar fallega spilað. Næst á dagskrá var píanókonsert nr. 3 eft- ir Béla Bartók sem hann samdi nánast á banabeði sínum. Eftir því er konsertinn inn- hverfari og friðsælli en sá á undan, sem hljómar eins og heimsendir sé í nánd. Ein- leikari var Peter Maté og var túlkun hans fyllilega í anda tónskáldsins, þó hugsanlega hefði leikur hans verið dálítiö varfærnisleg- ur í fyrsta kafla. Annar þátturinn var af- slappaðri, og stígandin alveg eins og hún átti að vera í þróttmiklum lokakaflanum. Tæknilega var spilamennska Peters fram- úrskarandi, erfið hlaup og alls konar stökk pottþétt, ennfremur var fingraspil jafnt og glitrandi. Óneitanlega var þetta sannfærandi Bartók, enda voru áheyrendur greinilega yfir sig hrifiiir. Síðasta atriði efnisskrárinnar var af öðr- um toga, hin rómantíska þriðja sinfónía Tsjaikovskís. Hún er að mörgu leyti ágæt, sumt er voða sætt en í það heila er hún dálítið langdreg- in. Ótrúlegur gæðamunur er á henni og þeirri fiórðu, sem óhætt er að telja með mestu snilldarverkum tónbók- menntanna. Ástæðan er ein- fold: Stefin þar eru svo falleg að þegar maður hefur heyrt þau einu sinni þá gleymast þau aldrei. Ég hefði miklu frekar vHjað hlýða á þá sin- fóníu á tónleikunum í gær- kvöld því hljómsveitarstjórn Rumon Gamba var sérdeilis llfleg, tilfinningaþrungin, óhamin og kraftmikil; alveg eins og Tsjækovskí á að vera. Gamba var hér mun yfirveg- aðri en þegar hann stjórnaði Berlioz fyrir tveimur árum síðan, enda eins gott og skH- aði það sér í nákvæmum leik hljómsveitarinnar þrátt fyrir allar tilfinningarnar. Heild- arhljómurinn var óvenju þéttur, fiðlurnar voru unaðs- lega þykkar og aðrir hljóð- færahópar fóru á kostum. Bestur var loka- spretturinn, en þar tók Eggert Pálsson æði á pákurnar. Sem sagt geggjaður Tsjaikovskí en mætti ég biðja um fióröu sinfóníuna með Gamba næst? Jónas Sen Tónleikar meö Sinfóníuhljómsveit íslands í Háskóla- bíói í gærkvöld. Á efnisskránni voru verk eftir Jón Nordal, Béla Bartók og Pjotr Tsjaikovskl. Einleikari var Peter Maté; stjórnandi Rumon Gamba. FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 DV Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttír silja@dv.is Tríó Reykjavíkur og gestir Taliö frá vinstri: Elín Ósk Óskarsdóttir, Áskell Másson, Richard Simm, Gunnar Kvaran og Guðný Guðmundsdóttir. Söngur með og án orða Fjórðu og síðustu tónleikar í tónleikaröð Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar verða haldnir í Hafiiarborg sunnudaginn 30. mars og hefjast kl. 20. Flutt verða pianótríó eftir Áskel Másson og hið frasga d-moU tríó eftir Mendelssohn. Elin Ósk Óskarsdóttir óperu- söngkona verður gestur tríósins og mun flytja nokkrar glæsiaríur, m.a. eftir Mascagni, PonchieHi, Lehár, Boito (Mefi- stofeles) og Verdi. Elín Ósk hefur verið sí- vaxandi söngkona og sló nú síðast rækilega í gegn í óperunni Macbeth. Annar sérstakur gestur á tónleflumum verður Richard Simm píanóleikari sem mun leika með tríóinu að þessu sinni. Ric- hard Simm hefur starfað á íslandi um ára- bH og komiö fram með mörgum helstu tón- listarmönnum landsins. Landvinningar Braga Samið hefúr verið um útgáfu á skáldsögunni Gæludýrunum eftir Braga Ólafsson á Spáni. Það er réttindastofa bókaforlags- ins Bjarts, í samvinnu við umboðsskrifstofuna Roger, Coleridge & White í Bretlandi, sem séð hefúr um það. Bókin kemur út hjá hinu virta for- lagi Emece, sem er hluti af spænska út- gáfurisanum Planeta. Gæludýrin komu út í Danmörku í byrjun árs og hefur bókin fengið skínandi góða dóma. Kristian Ditlev Jensen, ritdómari Berlingske Tidende, seg- ir að sagan sé rífandi skemmtHeg, vel skrif- uð og þaulhugsuð og bætir við að langt sé síðan hann hafi lesið jafn skemmtflega og athyglisverða bók frá Norðurlöndunum. Ritdómari danska vikuritsins Woman fer einnig lofsamlegum orðum um Gæludýrin og hrósar meðal annars frábæru skopskyni höfundarins. Tónleikar helgaðir Kristjáni Eldjárn Minningartónleikar, helgaðir Kristjáni Eldjám, verða haldnir í Óperunni á annan í páskum (21. aprH). Tónleikamir verða stórir í sniðum með fiölda tónlistarmanna og mikilli breidd - aHt frá klassískum gít- arleik (Kristinn Ámason) tfl einsöngs (Finnur Bjamason), jazz (Jóel Pálsson), popps (Stuðmenn), rokks (Bubbi Morthens) og raftónlistar (Hilmar Öm Hilmarsson), auk þess sem þar verður einnig sýnd stutt- mynd. Tónleikunum tengjast auk þess tveir viðburðir sem teljast fréttnæmir: Annars vegar útgáfa hljómdisks sem var tekinn upp skömmu áður en Kristján veiktist, þar sem hann leikur frumsamda tónlist undir lestri Þórarins Eldjáms á eigin ljóðum. Hins vegar verður við þetta tækifæri form- lega stofnaður Minningarsjóður Kristjáns Eldjáms til styrktar efnilegum tónlistar- mönnum og afreksmönnum á sviði tónlist- ar, en allur ágóði af tónleikunum rennur einmittt í þennan sjóð. Húnvetnskt bros Húnvetnskt bros í augum er bók sem geymir lausavís- ur og nokkur ljóð eftir Rögn- vald Rögnvaldsson. Bókinni er skipt í kafla eftir efni. Rögnvaldur fæddist 1912 og var einn af þeim sem settu svip á samfélagið, meðal annars á Akureyri. Rögnvaldur lést árið 1987 en fiöl- skylda hans ákvað að gefa út umrædda bók með úrvali af því mikla safhi kveðskapar sem hann lét eftir sig og er ekkja hans, Hlín Stefánsdóttir, skráður útgefandi. Formála ritar Ragnar Ingi Aðalsteinsson, skáld frá Vaðbrekku. Vísu sem hann velur þar til birtingar orti Rögnvaldur eftir að honum hafði verið bjargað frá bráðum bana vegna blóðtappa. Hún er svona: Letin slappar líkamann leikni er kappans prýði. En æöatogatapparann ég teldi happasmíói.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.