Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003
Tilvera DV
DV MYND E.ÓL
Lið Menntaskóians við Sund
Ásbjörn Jónasson, Hjördís Alda Hreiöarsdóttir og Úlfur Einarsson.
DV MYND HARI
Lið Menntaskólans í Reykjavík
Oddur Ástráösson, Snæbjörn Guömundsson og Atli Freyr Steinþórsson.
Spurt spjöruium úr
Úrslitakeppnin í hinum vinsæla spumingaþœtti Gettu betur verður háð í kvöld, í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Eins og á síðasta ári
mœtast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund í lokaviðureigninni og fimm keppendanna af sex eru þeir sömu og í
fyrra. Hér kynna ungmennin sig og svara nokkrum áleitnum spurningum, hvert með sínum hœtti.
Sjaldan rímunni neitaö
aFullt nafn: Atli
Nöfn foreldra og
húsmóðir.
Áhugamálin: Fjölmörg.
Áttu kærustu? Nei.
Uppáhaldsljóðið: „Þegar danski
fáninn var týndur við Öxará“.
Trúir þú á drauga? Já.
Stundarðu íþróttir og þá hverjar?
Engar.
Hvað finnst þér um rímur og
rapp? Sjaldan hef ég rímunni neitað
- en oftar rappinu.
Hvert langar þig mest til að ferð-
ast? Til Vestfjarða, sérstaklega
Hornstranda.
Á að leyfa sölu kannabisefna hér
á landi? Ég hef ekki myndað mér
skoðun á því.
Finnst þér erótískar nuddstofur
eiga rétt á sér? Málið snertir mig
afar lítið.
Ertu hlynntur árás Bandaríkj-
anna á írak? Ekki get ég sagt það.
Ástin er eins og ... L’amour est un
oiseau rebelle.
Hvað ætlarðu að verða? Háskóla-
stúdent.
Mósambík lokkar mest
Nafn: Snæbjörn
Guðmundsson.
Aldur: 19 ára í dag.
Nöfn foreldra og
störf: Anna Frið-
riksdóttir lyfjafræð-
ingur og Guðmund-
ur Guðmundsson
matvælafræðingur.
Áhugamálin: Pólitík, tónlist, bakst-
ur og almennur fróðleikur.
Áttu kærustu? Já.
Uppáhaldsljóðið: „Mynd eftir
barn“ eftir Dag Sigurðarson.
Trúir þú á drauga? Nei, því miður.
Stundarðu íþróttir og þá hveijar?
Tjah, íþróttaiðkun er af skornum
skammti. Verð þó í utandeildarliði í
fótbolta í sumar og fer stöku sinn-
um í sund.
Hvað frnnst þér um rímur og
rapp? Mikilvægur hluti íslenskrar
menningar.
Hvert langar þig mest til að ferð-
ast? Draumastaðir á íslandi eru
Fjörður og Homstrandir. Utan ís-
lands stórborgir Evrópu, t.d.
Barcelona og París, en þó lokkar
Mósambík mest.
Á að leyfa sölu kannabisefna hér
á landi? Nei, auðvitað hlýtur það að
vera markmiðið að minnka neyslu
vímuefna eins og mögulegt er,
hvaða nafni sem þau nefnast og oft
er kannabisneysla undanfari harð-
ari neyslu.
Finnst þér erótískar nuddstofur
eiga rétt á sér? Nei, þar sem menn
telja að vændi viðgangist þar tel ég
þær engan veginn eiga rétt á sér.
Ertu hlynntur árás Bandaríkj-
anna í Irak? Að sjálfsögðu ekki.
Árás Bandaríkjanna mun leiða
hörmungar yfir nú þegar hrjáð
land. SÞ hafa áætlað að ailt að hálf
milljón manna muni deyja í
árásinni og ég trúi ekki að nokkur
búi yfir rökum sem réttlæti slík
dráp. írakar hafa mátt þola
langvarandi viðskiptabann af hálfu
SÞ sem hefur leitt til dauða um
háifrar milljónar bama. Nær væri
að aflétta viðskiptabanninu og
reyna að byggja upp landið í stað
þess að ganga endanlega frá þvi og
íbúum þess.
Ástin er eins og ... Altjent, ekki
eins og sinueldur, það er alveg ljóst.
Hvað ætlarðu að verða? Við sjáum
til...
Allsherjar mentor pöpulsins
Fullt nafn: Oddur
Ástráðsson.
Aldur: 18 ára.
Nöfn foreldra og
störf: Svandís
Svavarsdóttir tákn-
málsfræðingur og
Ástráður Haralds-
son lögmaður.
Áhugamálin: Pólítík og lestur
góðra bóka.
Áttu kærustu? Ekki í augnablik-
inu, en það stendur til bóta.
Uppáhadds ljóðið: Áfangar Jóns
Helgasonar.
Trúir þú á drauga? Glætan.
Stundarðu íþróttir og þá hverjar?
Eitthvað lítið um það.
Hvað finnst þér um rímur og
rapp? Gegt kúl bara, hef mjög gam-
an af íslenskri rapptónlist.
Hvert langar þig mest til að ferð-
ast? Mest langar mig að feröast um
það svæði sem fer undir Hálslón
áður en því verður sökkt.
Á að leyfa sölu kannabisefna hér
á landi? Persónulega er ég á móti
lögleiðingu kannabisefna því aö fé-
lagslegur vandi sem því fylgdi
myndi ekki að mínu viti helga með-
aliö. Annars em bæði rök sem
hníga með og móti lögleiðingu. En
ég er á móti.
Finnst þér erótískar nuddstofur
eiga rétt á sér? Nei, erótískar
nuddstofur era, eftir því sem ég
kemst næst, staðir þar sem kvenlík-
amar era seldir. Það er mansal og
ég er aifarið á móti slíku.
Ertu hlynntur árás Bandaríkj-
anna á írak? Ég er afskaplega and-
vígur árásarstríði Bandaríkjamanna
og bandalagsríkja þeirra í írak.
Þetta er stríð sem þjónar bandarísk-
um hagsmunum fyrst og fremst og
er engan veginn til þess gert að
stuðla að friði eins og Kaninn vill
láta líta út fyrir.
Ástin er eins og ... Að mínu viti
er ástin lífið sjálft, hún er frumskil-
yrði.
Hvað ætlarðu að verða? Kennari,
rithöfundur og stjórnmálamaður.
Ailsherjar mentor pöpulsins.
og súkkulaði
Fullt nafn: Hjördís
Alda Hreiðarsdóttir.
Aldur: 16 ára ... 17
eftir 10 daga!
Nöfn foreldra og
störf: Sigurrós Er-
lingsdóttir heitir
móðir mín og hún
er kennslustjóri.
Pabbi heitir Hreiðar Sigtryggsson,
Vestfjarðavíkingur með meira, en
starfar sem skólastjóri í Reykjavík.
Áhugamálin: Margvísleg, Gettu bet-
ur er auðvitað stærsta áhugamálið
núna. Svo finnst mér gaman að
dansa, lesa og leika mér.
Áttu kærasta? Já. Hann heitir Atli
Kristófer Pjetursson.
Uppáhaldsljóðið: Gunnarshólmi
eftir Jónas Haligrímsson. Var að
lesa það rétt í þessu í Skólaljóðun-
um - frábær bók.
Trúir þú á drauga? Já, þegar ég er
ein í myrkri allavega.
Stimdarðu íþróttir og þá hverjar?
Já, æfi jassballett og fer reglulega í
World Class.
Hvað finnst þér um rímur og
rapp? Ekkert á móti því! Erpur er
sætur og Eminem lika ... En rim-
umar frá í gamla daga era bestar.
Hvert langar þig mest til að ferð-
ast? Um sveitir á meginlandi Evr-
ópu, í Þýskalandi, Austurríki, Ung-
verjalandi og Frakklandi.
Á að leyfa sölu kannabisefna hér
á landi? Nei, aiis ekki, þá er auð-
veldara fyrir aiia að ná í þau. Ég
skil ekki af hverju það er einu sinni
umræöa um þetta mál!
Finnst þér erótískar nuddstofur
eiga rétt á sér? Já, ef fólk vill fara
þá leið en þetta er samt ekki
draumastarfið mitt.
Ertu hlynnt árás Bandaríkjanna
á írak? NEI NEI NEI!!! Ég er á móti
þessu stríði sem öðrum, stríð er svo
gamaldags og vanþróað, Saddam og
Bush ættu bara að heyja sitt einvígi
og þá væri málið leyst. Nei, þetta er
víst miklu flóknara en það, en stríð-
ið á engan rétt á sér! Ég er á því aö
fleiri konur hefðu átt að stjórna í
heiminum frá byrjun því þá væri
kannski ekki svona mikið um átök.
Ástin er eins og ... súkkulaði...
ummmmm...
Hvað ætlarðu að verða? Kokkur
og forsætisráðherra.
Kellingar og bílar
Fullt nafn: Úlfur Einarsson, oftast
kallaður ÚIli Wu.
.Aldur: 20.
Nöfn foreldra og
störf: Einar versl-
unarmaður og Her-
dís bankastarfsmað-
ur.
Áhugamálin: Aðal-
lega kellingar og
bílar. Ég veit ekkert
skemmtilegra en að vera með fjór-
um skonsum í gulu Hondunni
minni og blazta græjurnar í botn
með JLo.
Áttu kærustu: Ég hef verið í nánu
sambandi við Cameron Diaz, en hún
er meiri bólfélagi en kærasta.
Upphaldsljóðið: Árni Larsson er í
miklu uppáhaldi en ég hafði gaman
af því að setja saman stöku þegar ég
var yngri og hef hér með ákveðið að
koma mér á framfæri: Sumarið er
eins og sólin / og sólin er hlý. /
Þeir sem komið hafa á Norðurpól-
inn / vita að þar er mý.
Trúir þú á drauga: Mér finnst afar
mikilvægt að fólk skoði drauga út
frá heildarmyndinni. Einstakir þætt-
ir geta ráðið miklu varðandi sam-
svöranina.
Stundar þú íþróttir og þá hveij-
ar? Ég hef alltaf veriö talinn gríðar-
legt efni í knattspyrnu og fyrir þetta
tímabil var ég keyptur til FC Hjör-
leifs sem ætlar að gera það gott á
komandi sumri.
Hvað finnst þér um rímur og
rapp? Ég veit ekki alveg hver þessi
Rímur er en mér finnst Ripp og
Rupp miklu skemtilegri en Rapp.
Hvert langar þig mest til að ferð-
ast? í fyllirísferð til Fílabeinsstrand-
armnar.
Á að leyfa sölu kannabisefna hér
á landi? Nei, það er miklu skemmti-
legra að skreppa til Amsterdam og
fá sér feita jónu þar löglega.
Finnst þér erótískar nuddstofur
eiga rétt á sér? Já, og hef margoft
fariö á svoleiðis, en á þeim tíma var
þetta ekki kallaö nuddstofur. Það er
mjög gott fyrir keppni.
Ertu hlynntur árás Bandaríkj-
anna á írak? Já, það var löngu
kominn tími til að sprengja þessa
araba upp og stela af þeim olíunni.
Til hvers líka að hafa stærsta her í
heimi ef hann má ekki buffa nokkra
heiðingja, það væri eins og að
banna Tyson að kýla þá í klessu
sem fara í taugarnar á honum.
Ástin er eins og ... heitur sinueld-
ur sem breiðist hratt út.
Hvað ætlarðu að verða? Halda
áfram í ljóðagerðinni, auk þess
verður FC Hjörleifur farinn að spila
í meistaradeildinni eftir ijögur ár,
það er fullt af peningum í því.
Trúi ekki á drauga
Fullt nafn: Ásbjörn Jónasson.
Aldur: Verð 20 í
ágúst.
Nöfn foreldra og
störf: Jónas Sig-
urðsson, deildar-
stjóri hjá Landssím-
anum, og Ragnhild-
ur Ásbjörnsdóttir,
stuðningsfúUtrúi á
Áhugamálin: Vinna í Gettu betur,
bækur, tölvuleikir, fótbolti.
Áttu kærustu? Nei.
Uppáhalds ljóðið: Les ekki ljóð ótil-
neyddur.
Trúir þú á drauga? Nei.
Stundarðu íþróttir og þá hverjar?
Nei.
Hvað finnst þér um rímur og
rapp? Hvoratveggja fín tónlistar-
form.
Hvert langar þig mest að ferðast?
yeit það ekki.
Á að leyfa sölu kannabisefna hér
á landi? Nei, þau eru fíkniefni.
Finnst þér erótískar nuddstofur
eiga rétt á sér? Því ekki?
Ertu hlynntur árás Bandaríkj-
anna á írak? Nei. Þó fínt að losna
við Saddam.
Ástin er eins og... Ha?
Hvað ætlarðu að verða? Sigurveg-
ari í Gettu betur.
-Gun
Astin er eins