Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Side 24
24 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 9HESSIZSS9 85 ára________________________________ Þormóöur Jónsson, Skálabrekku 19, Húsavik. 75 ára________________________________; Brynhlldur J. Bjarnarson, Klapparstíg 5a, Reykjavík. Einar Valmundsson, Suöurbyggö 10, Akureyri. Heiöur Jóhannesdóttir, Ægisgötu 8, Akureyri. Hrafnkell Helgason, Móaflöt 23, Garðabæ. Þórdís Todda Guömundsdóttir, Skaftahliö 13, Reykjavík. 70 ára________________________________ Ásbjörg Jónsdóttir, Faxastíg 41, Vestmannaeyjum. Hreiöar Jósteinsson, Ketilsbraut 13, Húsavík. 60 ára________________________________ Ágústa Baldvinsdóttir, Meistaravöllum 27, Reykjavík. Jónas H. Guðjónsson, Bifröst, Borgarnesi. Lilja Ólafsdóttir, Kleppsvegi 94, Reykjavík. 50 ára________________________________ Friöjóna Hiimarsdóttir, Fannafold 183, Reykjavík. Katrín Lilja Haraldsdóttir, Hlíöarbergi, Höfn i Hornafirði. Kristinn Sófus Pálmason, Langholtsvegi 49, Reykjavík. Sigríöur Þórhallsdóttir, Uröarstekk 7, Reykjavík. Siguröur Ari Elíasson, Suöurholti 15, Hafnarfirði. Valgeröur H. Valgeirsdóttir, Stigahlíö 18, Reykjavik. 40 ára________________________________ Auöur Helga Skúladóttir, Mýrarvegi 120, Akureyri. Baldur Þór Sveinsson, Noröurbraut 27b, Hafnarfirði. Rnnur Loftsson, Markholti 13, Mosfellsbæ. Hákon Vlðar Sigmundsson, Stórhölsvegi 7, Dalvík. Hulda Einarsdóttlr, Háaleiti 38, Keflavík. Ingibjörg H. Baldursdóttir, Smyrlahrauni 10, Hafnarfiröi. Jóhanna Sigfúsdóttir, Árnesi, Hvammstanga. Katrín Ragna Rögnvaldsdóttir, Grundarbraut 20, Ólafsvík. Kolfinna Snæbjörg Magnúsdóttir, Túngötu 19, Grindavík. Kristjana S. Kristjánsdóttir, Laufengi 92, Reykjavík. Mekkín ísleifsdóttir, Starmóa 11, Njarövík. Ragnhelöur A. Haraldsdóttir, Blikaási 38, Hafnarfiröi. Slgríður Margrét Hlööversdóttir, Miðvangi 1, Bakkafiröi. Slgurður Þórisson, Skólatúni 4, Bessastaöahreppi. Andlát Margrét Guöleifsdóttir andaöist á Sjúkrahúsi Siglufjaröar mánud. 24.3. Páll S. Árdal, prófessor emeritus, lést í Kingston, Ontario, þriöjud. 25.3. Þóröur Levi Björnsson, fyrrv. bifreiöarstjóri, Rofabæ 27, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugard. 15.3. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Hrund Kristjánsdóttir lést aðfaranótt miövikud. 26.3. :M1 Útför Margrétar Kr. Meldal veröur gerö frá Háteigskirkju föstud. 28.3. kl. 13.30. Hallbjörn Siguröur Björnsson frá Súg- andafiröi, til heimilis í Austurbergi 12, Reykjavík, verður jarösunginn frá Ás- kirkju föstud. 28.3. kl. 15.00. Útför Elínar Þorbjarnardóttur, Nesvegi 58, Reykjavík, fer fram frá Fossvogs- kirkju föstud. 28.3. og hefst athöfnin kl 10.30. Jóna Svanfríöur Ingibergsdóttir Svana. Freyjugötu 45, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 28.3. kl. 13.30. Jakob Gunnar Pétursson kennari veröur jarösunginn frá Stykkishólmskirkju laug- ard. 29.3. kl. 14.00. Jón Sæmundur Kristinsson frá Brautar- hóli í Biskupstungum, Árvegi 8, Sel- fossi, veröur jarðsunginn frá Skálholts- kirkju laugard. 29.3. kl. 13.30. Jarðsett verður á Torfastöðum. Útför Guðbjargar Erlínar Guömundsdótt- ur frá Fáskrúðsfirði, Þórufelli 16, Reykja- vik, fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugard. 29.3. kl. 14.00. Útför Sigurbjargar Kristínar Elíasdóttur, Norðurbrún 1, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjud. 1.4. kl. 10.30. FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 x>v Sjötug Valgerður Jona Hoskuldsdottir hjúkrunarkona í Garöabæ Jóna Valgerður Höskuldsdóttir hjúkrunarkona, Smáraflöt 18, Garðabæ, er sjötug í dag. Starfsferill Jóna Valgerður fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hún var í Bama- og Gagnfræöaskóla ísafjarðar, lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgar- skóla, útskrifaðist frá Hjúkrunar- skóla Islands 1955, og lauk próíl sem hjúkrunarkennari frá KHÍ. Jóna Valgerður hóf störf við hjúkrun við Odense Amts- og Bys Sygehus í Óðinsvéum í Danmörku, starfaði lausráðin við Landspítala, Sólvang og Vífilsstaðaspítala 1964-75 og var í hálfu starfi sem skólahjúkrunarkona í Garðabæ 1970-80. Hún kenndi jafnframt heil- brigðisfræði viö Gagnfræðaskólann í Garðabæ, við Kvennaskólann í Reykjavík og sinnti lausum helgar-, kvöld- og næturvöktum á Vífils- staðaspítala. Jóna Valgerður var fastráðin í fullu starfi á lungnadeild Vífils- staðspítala sem almennur hjúkrun- arfræðingur, aðstoðardeildarstjóri og deildarstjóri til 1993. Þá fór hún á eftirlaun en vann við sérverkefni tengd rannsóknum og meðferð kæfisvefns 1996 er hún hvarf frá hjúkrunarstörfum utan heimilis. Jóna Valgerður kenndi meðfram öðrum hjúkrunarstörfum á fjöl- mörgum námskeiðum við Náms- flokka Reykjavíkur og Hafnarfjarð- ar aðfaranám sjúkraliða og i sam- starfi Námsflokka Reykjavíkur og Starfsstúlknafélagsins Sóknar starfsfólki Sjúkrahúsa í aðhlynn- ingu. Jóna Valgerður rak umfangsmik- ið heimili árin 1955-2002 en síðan fá- brotnara húshald. Jóna Valgerður var dagmamma fimm barnabama 1965-2002 eftir þörfum en stundar nú lítils háttar leigurekstur og ræstingar að hluta. Jóna Valgerður samdi og gaf út bæklinginn Ég er að verða stór mamma, um kynþroskabreytingar stúikna. Hún þýddi og staðfærði bókina Langar þig að léttast, eftir Hjördis Björvell, útg. hjá Mál og menningu, og samdi og þýddi fjöl- breytt kennslu- og fræðsluefni tengt bæði kennslu og fræðslu innan og utan sjúkrastofnana. Þá flutti hún fjölmarga fyrirlestra á ýmsum heil- brigðisstofnunum og víðar, sat um tíma í stjórn Hjúkrunarfélags ís- lands, var forseti Soroptimistasam- bands íslands 1968 og 1969. Hún hefur verið búsett í Garða- hreppi og síðan Garðabæ frá 1964. Fjölskylda Jóna Valgerður giftist 1.1. 1955 Gísla Hildibrandi Guðlaugssyni, f. 15.3. 1933, d. 10.6. 1997, tæknifræð- ingi og framkvæmdastjóra eigin fyr- irtækis. Hann var sonur Guðlaugs Ásgeirssonar matsveins og Valgerð- ar Hildibrandsdóttur húsmóður sem bæði eru látin. Böm Jónu Valgeröar og Gísla: Höskuldur Hildibrandsson, f. 28.2. 1956, d. 14.11. 2000, vélvirki, búsettur í Garðabæ, en kona hans var Blanka Astrid Barrero og eignuðust þau eitt bam en hann átti fyrir þrjú börn og eitt bamabam; Valgerður Hildibrandsdóttir, f. 9.8. 1957, fram- kvæmdastjóri í Garðabæ, en maður hennar var Sigurþór Hafsteinsson tæknifræðingur en þau skildu og eiga þau saman þrjú böm en Val- gerður býr nú með Sigbirni Jónssyni verk- fræðingi og á hann fyrir tvö böm; Anna Hild- ur Hildibrands- dóttir, f. 8.12. 1962, umboðs- maður og kynn- ingarfulltrúi í Lundúnum, en maður hennar er Gísli Þór Guð- mundsson, graf- iskur hönnuður, og eiga þau tvær dætur; Þórlaug Hildibrandsdóttir, f. 9.12.1967, nemi á útstillingabraut Iönskólans í Hafn- arfirði, en maður hennar er Sigurð- ur Haukur Svavarsson rekstrar- stjóri og eiga þau tvö börn en hann á eina dóttur fyrir; Auður Rún Hildibrandsdóttir, f. 7.6.1969, nemi í grafiskri hönnun i Design Seminari- et, Hejer í Danmörku, en maður hennar er Andrew Timothy Fogarty byggingaverkamaður og eiga þau þrjú böm. Hálfsystur Jónu Valgerðar, sam- feðra: Amheiður Elín, f. 21.11. 1925, d. 1992, húsmóðir i Kópavogi; Valdís Hildur Valdemars, f. 17.12. 1930, d. 1964, húsmóðir í Reykjavík. Albræður Jónu Valgerðar: Filip Þór Höskuldssson, f. 10.9. 1931, skip- stjóri í Garðabæ; Ámi Höskuldsson, f. 30.3. 1934, gullsmiður í Reykjavík. Hálfsystkini Jónu Valgerðar, samfeðra: Davíð Amdal, f. 22.12. 1946, málarameistari í Kópavogi; Anna, f. 26.9. 1948, hjúkrunarfræð- ingur á Akureyri; Guðjón Halldór, f. 25.1.1950, málarameistari á ísafirði; Gunnhildur Inga, f. 29.8. 1951, sjúkraliði í Reykjavík; Auður Ama, f. 4.9. 1956, sjúkraliði og launafull- trúi hjá ísafjaröarbæ, búsett á ísa- firði; Brynhildur Rebekka, f. 29.1. 1960, húsmóðir, Reykjavík. Foreldrar Jónu Valgerðar voru Höskuldur Árnason, f. á ísafirði, gullsmiður á ísafirði, en auk þess í Hafnarfirði, á Akureyri og í Dan- mörku, og Anna Jónsdóttir, f. í Höfðahverfi, starfaði lengi á Krist- neshæli en bjó síðan á ísafirði. Afmælisbamiö situr yfir sýningu sinni, Bútað & tálgað, í Garðabergi, Garðabæ, á opnunartíma. Engin frekari veisluhöld verða á afmælis- daginn. Beðist er undan afmælis- gjöfum en langi einhvem að styðja afmælisbamið til áhalda- og tækja- kaupa handa Ellismellaskólanum í Garðabæ er vel þegið að það sé lagt inn á bankareikn. 0318-13-906002, kt. 280333-2989. Kirstín Lára Sigurbjörnsdóttir "■..Reykjavik húsfrú i Kirstín Lára Sigur- bjömsdóttir húsfrú, Ási, Sólvallagötu 23, Reykja- vík, er níræð í dag. Starfsferill Lára fæddist í Ási á Sólvöllum í Vesturbæn- um í Reykjavík. Hún lauk prófum frá Kvennaskól- anum 1930, stundaði handavinnunám hjá Heimilisiðnað- arfélagi íslands 1932-33 og handa- vinnukennaranám við Industri- skolen í Haslev í Danmörku 1933-34. Lára var handavinnukennari viö Húsmæðraskólann á Hallormsstað 1934-35, hjá Heimilisiðnaðarfélagi íslands 1935-37, við kvöldskóla KFUM 1941-49 og við félagsstarf eldri borgara í Reykjavík 1969-93. Lára var hótelstjóri á Hótel Eddu að Eiðum sumrin 1965-75 og farar- stjóri í ferðum eldri borgara til sól- arlanda á vegum Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar 1977-84. Lára sat í stjórn Kvenréttindafé- lags íslands frá 1949, var ritari þess 1949-53, varaformaöur 1953-64, for- maður félagsins 1964-71, sat aftur i stjórn 1973-75 og er heiðursfélagi KRFÍ frá 1983. Hún sat í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna 1952-55, gekkst að tilhlut- an KRFÍ fyrir stofnun Foreldraráðs Melaskólans í Reykjavík, var formaöur þess frá stofnun 1955-61, stóö að stofnun Verndar, 1959, var ritari Verndar 1959-80, sat i stjómskip- aðri nefnd um endurskoðun náms- efnis á skyldunámsstigi 1953-54, sat í stjóm sjálfstæðiskvennafélagsins Hvatar 1954-61, í stjóm Bamavemd- arfélags Reykjavíkur frá stofnun 1949 sem ritari og gjaldkeri 1951-86 og sat í stjóm Landssambandsins gegn áfengisbölinu 1958-60. Lára flutti á árum áður mörg út- varpserindi, flest um daginn og veg- inn, og sat í ritstjórn 19. júní, ársrits KRFÍ, 1972-74. Fjölskylda Lára giftist 12.8. 1937 Ásgeiri Ólafsson Einarssyni, f. 21.11.1906, d. 4.4.1998, héraðsdýralækni á Austur- landi 1934-40 og í Gullbringu- og Kjósarsýslu frá 1950 en síðustu starfsárin heilbrigðisfulltrúi við Heilbrigðiseftirlit rikisins. Foreldr- ar hans vom Einar Ólafsson, f. í Leirárgörðum í Leirársveit 8.1.1984, d. 28.9. 1955, matsveinn og verka- maður, og k.h., Þórstína Björg Gunnarsdóttir, f. á Djúpavogi 15.8. 1882, d. 13.1. 1950, húsfreyja. Böm Láru og Ásgeirs era Guðrún Lára, f. 14.11. 1940, skólasafnskenn- ari i Hagaskóla, búsett í Reykjavík, gift Ágústi Sigurössyni, fyrrv. sókn- arpresti á Prestsbakka í Hrútafirði, en þau eiga tvö böm og sex bama- böm; Einar Þorsteinn, f. 17.6.1942, arkitekt og hönnuður, búsettur í Berlín í Þýskalandi, kvæntur Manu- elu Gudrunu Loeschmann og á Ein- ar tvö böm af fyrsta hjónabandi og tvö bamaböm; Sigrún Valgerður, f. 19.10. 1944, sérfræðingur í fjármála- ráðuneytinu, búsett í Mosfeflsbæ, gift Pétri Guðgeirssyni, héraðsdóm- ari í Reykjavík, en þau eiga þrjú böm og eitt bamabam; Þórdís, f. 16.11. 1948, kennari og djákni viö grunnskólana í Mosfellsbæ og djákni í Lágafellssókn, búsett í Mos- fellsbæ, gift Hirti Ingólfssyni fram- kvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn og Hjörtur á bam af fyrra hjóna- bandi og eitt barnabarn; Áslaug Kirstín, f. 13.2. 1952, kennari í Mos- fellsbæ, búsett þar, gift Halldóri Bjamasyni framkvæmdastjóra en þau eiga þrjú börn og Halldór á þrjú böm af fyrra hjónabandi og sjö bamaböm. Systkini Láru: Lárus, f. 22.5. 1903, d. 5.8. 1974, cand. phil., skjala- og minjavörður Reykjavíkurborgar, búsettur í Reykjavík; Halldór Ást- valdur, f. 30.1. 1905, d. 20.4. 1983, verslunarmaður í Reykjavík; Krist- ín Guðrún, f. 15.3. 1906, d. 15.11. 1908; Gísli Sigurbjöm, f. 29.10. 1907, d. 7.1. 1994, forstjóri Elli- og hjúkr- unarheimilisins Grundar í Reykja- vík; Kristín Sigurbjörg, f. 17.10. 1909, d. 2.2. 1919; Friðrik Baldur, f. 14.7.1911, d. 15.6.1988, stórkaupmað- ur í Reykjavík; Guðrún Valgerður, f. 26.10. 1915, d. 20.8. 1938, húsfrú í Reykjavík; Sigrún Kristín, f. 12.2. 1921, d. 20.8. 1938, menntaskólanemi í Reykjavík; Gústaf, f. 10.8. 1924, d. 26.2. 1925. Foreldrar Lám voru Sigurbjöm Ástvaldur Gíslason, f. 1.1. 1876, d. 2.8. 1969, kennari, ritstjóri og heimilisprestur á Elli- og hjúkrun- arheimilinu Gmnd, og k.h., Guðrún Lárasdóttir, f. 8.1. 1880, d. 20.8. 1938, rithöfundur og alþm. Lára tekur á móti gestum í Safn- aðarheimili Frikirkjunnar í Reykja- vík við Laufásveg, laugard. 29.3. kl. 15.00-18.00. Hún biður þá sem hefðu viljað gleöja hana með gjöfum eða blómum að láta andvirðið renna til Kristniboðssambands íslands, á banka 0117-26, reikn. 2818. Attræöur Svavap Kristinsson úrsmiöur á Siglufiröi Svavar Kristinsson úrsmiður, Hvanneyrarbraut 50, Siglufirði, er áttræður í dag. Starfsferili Svavar fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hann lærði úrsmíði hjá Bjarna Jónssyni, úrsmið á Akur- eyri, og lauk prófi frá Iðnskólanum á Akureyri 1946. Fyrsta árið starfaði Svavar hjá lærifoður sin- um og einnig á Siglufirði þar sem hann hafði verk- stæði, ásamt foður sínum og bróður, en þeir voru báðir gullsmiðir. Eftir það var hann á Siglufirði þar sem þeir ráku úra- og gullsmíðaverkstæði, ásamt verslun. Eftir frá- fall þeirra var Svavar einn með reksturinn til 1998. Svavar býr nú á ellideild Heilbrigðisstofnunar Siglu- fjarðar. Fjölskylda Systkini Svavars: Jón Sveinsson Kristinsson, f. 31.12. 1924, d. 5.4. 1955, gullsmiður á Siglufirði, var kvæntur Guðmundu Júlíusdóttur, f. 12.3. 1922, d. 7.9. 1995, húsmóður en börn þeirra eru Júlíus, f. 3.2. 1951, Jóhann, f. 1.6. 1952, Jónina Kristín, f. 12.11. 1955, en fyrir átti Guðmunda Hafdísi, f. 13.3. 1942; Guðrún Krist- insdóttir, f. 5.5. 1909, d. 8.12. 1992, verkakona á Siglufirði. Foreldrar Svavars voru Kristinn Björnsson, f. 19.4. 1879, d. 6.12. 1952, gull- og silfursmiður á Siglufirði, og Ragnheiður Jóhanna Jónsdóttir, f. 17.12. 1884, d. 17.1. 1969, bústýra. Ætt Kristinn var sonur Bjöms Þor- leifssonar, Jónssonar og Soffiu Sig- urlaugar Grímsdóttur, Grímssonar. Ragnheiður Jóhanna var dóttir Jóns Sveinssonar, Jónssonar og Guðrúnar Jóhannsdóttur, Sigfús- sonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.