Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 Áttunda rimma KR og Keflavíkur Úrslitakeppni 1. deildar kvenna í körfuknattleik hefst á morgun í íþróttahúsinu í Kefla- vík þar sem heimasætur taka á móti KR-ingum. Þetta er fyrsti leikurinn í úrslitarimmunni og það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki stendur uppi sem íslandsmeist- > í þeim fjórum viðureignum sem liðin hafa mæst í vetur hef- ur Keflavík unnið þrjá leiki en KR einn. KR-stúlkur eru núver- andi íslandsmeistarar en þær báru sigurorð af ÍS í fyrra. Eins og áður sagði fer leikur- inn fram í Keflavík á morgun og hefst kl. 17.30. -PS Grindavík-Hndastóll 92-77 0-2, 7-4, 13-10, 18-14, 21-19, (21-27), 29-36, 36-38, 3fr42, 41A4, (47^4), 47-46, 51-50, 55-54, 62-56, (66-60), 72-65, 74-72, 80-72, 91-74, 92-77 Stig Grindavík: Helgi Jónas Guðfinnson 24, Darrel Lewis 23, Páll A. Vilbergsson 18, Guðmundur Bragason 15, Guðlaugur Eyjólfsson 8, Predraq Pramenko 2, Guðmundur Ásgeirsson 2. Stig Tindastóll: Clifton Cook 22, Michail Antropov 15, Kristinn Friðriksson 13, Axel Kárason 10, Óli B. Reynisson 9, Einar Ö. Aðalsteinsson 5, Helgi R. Viggósson 2. Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson og Sigmundur Herbertsson (9) Gœöi leiks (1-10): (6). Áhorfendur: 350. A |jj| Maður leiksins: Guðmundur Bragason, Grindvík Fráköst: Grindavík 41 ( 10 í sókn. 31 1 vörn, Guðmundur B. 18), Tindastóll 31 (9 i sókn, 22 í vörn, Antropov 7). Stoösendingar: Grindavík 23 (Lewis 11), Tindastóll 16 (Oli S. 6). Stolnir boltar: Grindavík 10 (Helgi J. 4) Tindastóll 7 (Cook 4). Tapaóir boltar: Grindavik 15, Tindastóll 15. Varin skot: Grindavík 6 (Lewis 4), Tindastóll 1 (Axel). 3ja stiga: Grmdavik 8/20 (40%), Tindastóll 5/23 (22%). Vfti: Grindavík 14/18 (78%), Tindastóll 10/13 (77%). Gníndavík—Tmdastóll 2-1 0-1, 4-3, &-5, 8-7, 10-8, (11-11), 12-11, 12-14, 13-18, 17-19, 19-20, 19-22, 21-23, 23-24 ÍR: Mörk/viti (skot/viti): Einar Hólmgeirsson 9 (15), Sturla Ásgeirsson 6/4 (9/5), Kristinn Björgúlfsson 2 (4), Ingimundur Ingimund- arsson 2 (6), Fannar Þorbjarnarsson 1(1), Ragnar Helgason 1 (2), Bjami Fritzson 1(2), Ólafur Sigurbjömsson 1 (6), Júlíus Jónasson (1), Guölaugur Hauksson (1), Tryggvi Haraldsson (3). Mörk úr hradaupphlaupum: 2 (Einar Hólmgeirsson 2) Vitanýting: Skoraö úr 4 af 5. Fiskuö víti: Fannar 2, Ragnar 1, Sturla 1, Bjami 1 Varin skot/viti (skot á sig): Hallgrímur Jónasson 11 (35/3, hélt 3,31% 2 víti yfir). Brottvisanir: 12 mínútur. Dómarar (1-10): Hlynur Leifsson og Anton G. Pálsson (5). Gœöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 300. Ma&ur leiksins: Jónatan Magnússon, KA KA: Mörk/víti (skot/víti): Andrius Stelmokas 7 (9), Amór Atlason 5 (10/1), Jónatan Magnússon 5 (11), Einar Logi Friöþjófsson 3 (5), Hilmar Stefánsson 2 (3), Ámi Bjöm Þórarinsson 1 (2), Baldvin Þorsteinsson 1/1 (2/2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 1 (Stelmokas). Vítanýting: Skoraö úr 1 af 3. Fiskuö viti: Stelmokas 2, Hilmar 1 Varin skot/viti (skot á sig): Egedijus Petkiavicius 22/1 (43/3 , hélt 6, 49 %), Hans Hreinsson 0 (2/2, hélt 0,). Brottvisanir: 22 mínútur. Þorvaldur Þorvaldsson og Stelmokas báöir útilokaðir vegna þriggja brottvísana. Tindastólsmenn sóttu Grindvíkinga heim í undanúrslitum Intersportdeildarinnar: Ánægður með varn- arleik minna manna - sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir leikinn Sport Hér ræðast við þeir Guðmundur Bragason og Darrel Lewis. Guðmundur átti frábæran dag í gær og þá átti Darrel Lewis mjög góðan síðari hálfleik. DV-mynd E.ÓI. Grindavík komst 2-1 yfir í viöur- eign sinni við Tindastól í undanúr- slitum Intersport-deiidarinnar í gærkvöld með góðum sigri, 92-77, og var það góður vamarleikur sem gerði gæfumuninn. Þá spmngu Stól- amir á limminu í lokin og leikur þeirra hrundi á lokakaflanum þegar ballið var rétt að byrja en leikurinn hafði verið jafn og spennandi fram að því. Grindavík kláraði leikinn með 18-5 kafla síðustu fjórar mínút- umar og því gefa lokatölur leiksins ekki rétta mynd af leiknum sjálfum. Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur, var ánægður með vamarleikixm hjá sinum mönnum en Friðrik lofaði því eftir síðasta leik að vömin yrði betri í þessum leik og óhætt að segja að Friðrik hafi staðið við þá yfirlýsmgu. Hann var þó ekki að sama skapi jafh ánægöur með sóknarleik liðsins. „Þetta var rosalegur bamingur og mikil stöðubarátta megnið af leiknum. Við spiluðum miklu betri vöm núna en við höfum verið að gera en að sama skapi datt sóknar- leikurinn niður. Við þurfum að finna þetta jafnvægi en svona getur þetta verið. Það var ákveðin barátta og elja sem skilaði þessum sigri en við náðum aldrei að losa okkur við þá fyrr en í lokin. Tindastóll er með sterkt lið þar sem jafnvægið í sókn- inni hjá er mjög gott og hlutverka- skipting er mjög skýr. Eftir leikinn fyrir norðan lögðum við mikla áherslu á að bæta vömina og skor- uðum hver á annan fyrir þennan leik að spila fantavöm og ég held aö það hafi tekist ágætlega. En eins og ég sagði var sóknin ekki upp á sitt besta hjá okkur í þessum leik og þurfum við að bæta hana fyrir þann næsta. Stólamir hafa mikla ógnun fyrir utan í Kristni Friðrikssyni og Clifton Cook en þeir tveir hafa farið mikinn í úrslitakeppninni. Þá átti Andropov stórleik á móti okkur fyr- ir norðan. Við höfum náö að halda Cook þokkalega niðri og síðan höf- um við reynt að halda Andropov við efnið í vöminni því hann er mikil ógn vamarlega þegar hann er fyrir framan körfuna og við skoram ekki svo auðveldlega nálægt körfunni þegar svo er.“ Mikið jafnræði var með liðunum til að byija en Stólamir náðu sex stiga forskoti í lok fyrsta leikhluta með þremur 3ja stiga körfum á skömmum tíma. Stólarnir héldu áfram að leiða í öðrum leikhluta en þá var Helgi Jónas Guðfinnsson orð- inn leiður á þófinu og tók til sinna ráöa. Þegar flautað var til leikhlés var Grindavík komiö þremur stig- um yfir, 47-44. Grindavík leiddi síð- an allan seinni hálfleikinn en heimamenn áttu erfitt með að losa sig frá baráttuglöðum gestunum. Spennan var mikil í fjórða leikhluta og munurinn aðeins tvö stig, 74-72, þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. Þá vora Stólamir búnir á því og heimamenn gengu á lagið og skoruðu hveija körfuna af annari á meðan ekkert gekk hjá gestunum. Kristinn Friðriksson og Axel Kára- son hvíldu mikið i fjórða leikhluta en liðið hefði getað notað krafta þeirra á þessum kafla þar sem lítið gekk sóknarlega. Eins og áður segir var það vöm Grindavíkur sem skilaði sigrinum en Stólamir lentu í miklum vand- ræðum þegar heimamenn vora að skipta um vamarmann í hindrun- um. Helgi Jónas átti nokkra góða spretti og Guðmundur Bragason barðist vel allan tímann og skilaöi toppleik. DarreO Lewis var seinn í gang og átti prýðis seinni háifleik eftir að hafa hitt illa í þeim fyrri. Páll Axel Vilbergsson skoraði 18 stig en var nokkuð mistækur á köfl- um. Pramenko fann sig engan veg- inn í leiknum og þarf að hysja upp sig buxurnar fyrir næsta leik ef hann á að nýtast liðinu. Hjá Stólunum var Cook bestur en Kristinn þjálfari hitti ekki vel úr skotunum sínum í þessum leik. Mörg þeirra voru frekar slæm og spuming hvort hann mætti ekki temja sér betra skotval. Hann á þó til að hitta úr ómögulegum færum á góðum degi en því var ekki að skipta í gær. Andropov var þokka- legur og Axel byrjaði leikinn mjög vel sóknarlega en lét lítið fara fyrir sér eftir það. Hann barðist vel í vöminni að vanda og hefði mátt fá stærra hlutverk í fjórða og siðasta leikhluta. -Ben ÍR-ingar tóku á móti KA í Essodeild karla í Austurbergi í gærkvöld: Vonbrigöi að tapa - sagöi Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR, eftir ósigur gegn KA, 23-24 KA sigraði ÍR, 23-24, í næstsíð- ustu umferð Essodeildar karla í handknattleik sem leikin var í gær- kvöld. Leikurinn sem spilaður var í Austurbergi var harður og spenn- andi, taugamar voru þandar og greinilegt að úrslitakeppnin er ekki langt undan. ÍR-ingar sem fyrir leik- inn vora í þriðja sæti, jafnir Hauk- um og Val, gátu með sigri haldið möguleikanum á sigri í deildinni opnum, en það gekk ekki eftir. ÍR- ingar komu mjög ákveðnir til leiks og vora yflr mestallan hálfleikinn en gestimir náðu að jafna á lokamínútu hálfleiksins, 11-11. Á upphafsmínútum síðari hálf- leiks gekk hins vegar ekkert upp hjá ÍR-ingum og KA-menn náðu fimm marka forastu, 13-18. Þá var eins og heimamenn vöknuðu af vondum draumi og með góðri bar- áttu náðu þeir að vinna sig aftur inn í leikinn. ÍR-ingar höfðu tæki- færi til að jafna í stöðunni 19-20 þegar um tíu mínútur voru eftir en Egedijus Petkiavicius várði þá vítakast frá Sturlu Ásgeirssyni. KA- menn náðu að auka forskot sitt í þrjú mörk en þrátt fyrir að ÍR-ingar reyndu hvað þeir gátu var tíminn of naumur og KA hafði sigur, 23-24. í liði ÍR-inga átti Hallgrímur Jón- asson ágætiskafla i markinu, varði 11 skot í leiknum. Einar Hólmgeirs- son spilaði á ný meö liðinu, en hann hefur verið frá í langan tíma vegna ökklameiðsla, hann átti góðan leik sem og Sturla Ásgeirsson sem var öruggur á vítalínunni en misnotaði hins vegar vítakast á öriagaríku augnabliki. Hjá KA átti Egedijus Petkiavicius stórleik í markinu, varði 22 skot, og hélt sínu liði inni í leiknum í fyrri hálfleik. Vamarleik- ur liðsins var sterkur og þar var fyrirliðinn Jónatan Þór Magnússon í forastu, hann barði sina menn áfram og sýndi góð tilþrif jafnt í sókn sem vörn. Amór Atlason átti líka góðan leik sem og Andrius Stelmokas en þeir voru atkvæða- mestir i liði KA ásamt Jónatan. „Það eru alltaf vonbrigði að tapa en svona er þetta, maður verður að taka því. Við spiluðum illa í fyrri hálfleik og í upphafi síðari hálfleiks en komum sterkir inn í þetta síð- ustu tuttugu mínútumar, en það dugir ekki á móti liði sem er af þessum styrkleika. Síðasti leikur- inn á móti Haukum og við þurfum að setjast niður og búa okkur imdir þann leik, það heföi verið gaman að fara í síðasta leik sem hreinan úr- slitaleik en svona er þetta,“ sagði Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR, að leik loknum. -ÞAÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.