Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Síða 32
FRETTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. sefur 550 55 55 SIMIIXIIM SEM ALDREI rjuíj kuf/i uð hu/idi 5Í/JU//J £Ji:6/5JÖ5uðu//j /ju//j hsifi v-íriö //ji£jpyr//jr ÍJiyr/zji^JeyEj srr hunduri/j/j /jú ^úrþjúður ú varJíjíiJyfJdhj. FRETT BLS. 8 Vinningsbíllinn Þessi glæsilegi Opel Corsa frá Bíl- heimum, aö verömæti 1.390.000 krónur, veröur dreginn úr áskrifenda- potti DV fimmtudaginn 3. apríl. Sjá má bílinn á stalli viö DV-húsiö. Áskrifendaleikur DV og Bílheima: Heppinn áskrifandi færnýjan Ope! Corsa Áskrifendur DV hafa aldeilis tækifæri til að detta í lukkupottinn næstu viku en spiunkunýr Opel Corsa frá Bílheimum, að verðmæti 1.390.000 krónur, verður dreginn úr áskriftarpotti DV á fimmtudag. Heppinn áskrifandi mun hreppa Opel Corsa eins og þann sem veriö hefur til sýnis á stalli við DV-húsið undanfarnar vikur. Nýr Opel Corsa er af þriðju kyn- slóð eins allra vinsælasta smábíls heims. Fram til þessa hafa rúmlega 9 milljónir Opel Corsa selst í yfir 80 löndum. Nýr Opel Corsa hefur stækkað talsvert frá því sem var og fengið nýtt útlit. Bíllinn hefur gott innanrými, sérstaklega er gott pláss fyrir olnboga og axlir, en auk þess hefur hann líka lengst nokk- uð. Er hjólahafið í nýjum Opel Corsa það mesta i bíl i þessum stærðarfiokki. Það má því segja að vel fari um mann í nýjum Opel Corsa. Bíllinn er með 1,2 1, 75 hestafla vél. Hann er ríkulega búinn en í bilnum er ABS-hemlakerfi, raf- knúnar rúður og spegla, geislaspil- ari með fjarstýringu í stýrinu, upp- hitaðir speglar og fiarstýrðar sam- læsingar með þjófavöm, svo eitt- hvað sé nefnt. Til að eiga möguleika á að vinna þennan glæsilega bíl þarf viðkom- andi að vera áskrifandi að DV. Nafn heppins áskrifanda verður dregið úr áskriftarpotti DV fimmtudaginn 3. apríl. Áskrift borgar sig. -hlh Steingpímup aftup í ÍBV Steingrímur Jóhannesson. Steingrímur Jóhannesson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við ÍBV í Simadeild karla í knattspyrnu og mun hann þvi snúa aftur heim til Eyja eftir tveggja ára dvöl í Árbænum. Fylkir og ÍBV hafa náð samkomulagi um kaupverð sem ekki er gefið upp. Steingrímur er markahæsti leikmaður ÍBV frá upphafi í efstu deild og hefur alls gert 71 mark í efstu deild sem gerir hann að 10. markahæsta leikmanni sögunnar. Steinrímur varð Islandsmeistari með ÍBV 1997 og 1998 og markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar 1998 og 1999 og skoraði alls 37 mörk á síðustu þremur árum sínum með liðinu en fann sig ekki eins vel í Fylki þar sem hann skoraði aðeins níu mörk í 32 leikjum. -ÓÓJ Tveir fyrrum bókarar og skrifstofustjóri RSÍ vitna um óuppgefin laun: Foraienn aMldarfélaga á svörtum greiBslum Þrír fyrrum starfsmenn Rafiðnaðar- sambandsins hafa vitnað fyrir rétti í Héraðsdómi Reykjavíkur að launa- greiðslur sem ekki voru taldar fram tU skatts hafi viðgengist hjá RSÍ. Réttar- höld í máli Endurmenntunar rafeinda- virkja gegn Jóni Áma Rúnarssyni, fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðar- skólans, héldu áfram í gær, þar sem m.a. var spurt um þessar launagreiðsl- ur. I fyrradag kom fyrrverandi bókari RSÍ fyrir rétt og staðfesti að tíðkast hefði að gefa ekki upp allar greiðslur tU skatts. I gær kom annar íyrrverandi bókari ásamt fyrrverandi skrifstofu- stjóra fyrir réttinn og vitnuðu báðir að- Uar um launagreiðslur sem ekki hefðu verið gefnar upp. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiönaöarsambandsins, ritaði um málið á vefsíðu RSÍ í gær en hann hef- ur ekki vUjað ræða við blaðamann um þessar þungu ásakanir á forystu sambandsins. Á vefsíðunni segir: „Það hefur ætíð tíökast að endurgreiða kostnað sem starfsmenn og félagsmenn verða fyrir vegna starfs fyrir Rafiðnað- arsambandið og aðUdarfélög.“ I gær var fyrrverandi bókari sér- staklega spurður hvort ekki væri um endurgreiddan kostnað að ræða og svaraði bókarinn því neitandi og að þetta hefðu verið launagreiðslur. Fyrrverandi skrUstofustjóri starfaði hjá RSl frá 1984 og varð þar skrifstofu- stjóri 7 eða 8 árum seinna, lét af störf- um hjá RSÍ í júní 2002. Hann staðfesti við DV í morgun að umfjöUun DV um greiðslur undir borðið hjá RSÍ væri „ótrúlega nákvæm og rétt“. „Þetta var greinUega svipað og þar kemur fram. Það nam aUa vega að minnsta kosti einum mánaðarlaunum á ári.“ - Var ekki bara um að ræða endur- greiddan kostnað ems og Guðmundur heldur fram? „Nei, guð minn ahnáttugur. Um slíkt var þó að ræða líka, eins og t.d. á fundum og fyrir vinnutap á virkum dögum, bUapeninga, dagpeninga og slíkt. Það var reyndar ekki gefið upp. Hitt er, að það voru formenn aðUdarfé- laga á reglubundnum greiðslum árum saman, með einhverjar 40 tU 50 þúsund krónur á mánuði svart. Og fastir starfsmenn með þetta sem nemur aUa vega rúmum mánaðarlaunum. Svo „slumpa“ ef mikið álag var, þá var það bara greitt svart. Ég get staðfest grein DV i gær, hún er að öUu leyti kórrétt," sagði skrifstofustjórinn fyrrverandi. -HKr. Ertu ó leið til útlanda? Afnemum 24,5% vsk. viö kaup á gleraugum gegn frnmvísun á farseðli GieraiJ 588-9988 CSlTl Kringlunni >jcn Sjálfvírk slökkvítæki fYrir sjónvörp Sími 517-2121 H. Blöndal ehf. Audbrekku 2 * Kópavogi Innflutningur og sala - www.hbiondal.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.