Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003 DV Fréttir Unniö aö rannsókn á notkun Ijósabekkja og áhættu á sortuæxlum: 94 ppósent kvenna í Ijós lyrir tvftugt Rétt 54% karla og 94% kvenna 20 til 29 ára hafa farið í ljósa- bekki fyrir tvítugt, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem unn- in hefur verið um notkun ljósa- bekkja og áhættu á sortuæxlum. Það er Elín Anna Helgadóttir læknanemi sem vinnur könnun- ina í samvinnu við Læknadeild HÍ, húðdeild Landspítala Há- skólasjúkrahúss og Rannsóknar- stofu í heilbrigðisfræöi HÍ. í inngangi könnunarinnar segir að undanfarin ár hafi tíðni sortu- æxla aukist meðal hvíta kyn- stofnsins um allan heim. Hér hafi þessi aukning veriö mest hjá ungu fólki, sérstaklega ungum konum, og sé sortuæxli nú algengasta krabbameinið í þessum aldurs- hópi. Hugsanlega megi skýra þetta út frá breyttu hegðunarmynstri. Elín Anna sagði við DV að til- gangur rannsóknarinnar hefði verið að kanna Ijósabekkjanotkun almennings og bera saman við sjúklinga með sortuæxli. Kannað- ur var hópur sjúklinga, samtals 551 einstaklingur, 164 karlar og 387 konur. Samanburðarhópurinn samanstóð af 1653 einstaklingum, völdum af handahófi í sama ald- urs- og kynjahlutfalli og sjúklinga- hópurinn. Ekki hefur tekist að afla upplýsinga frá nægilega mörgum sjúklingum til að saman- burður hópanna sé raunhæfur. Því er eingöngu skýrt frá hegðun- armynstri viðmiðunarhópsins varðandi ljósabekkjanotkun. Nið- urstöður sýna að 70% kvenna hafa notað ljósabekki en 35% karla. Notkunarmynstur kynjanna er þó svipað. Ljósabekkjanotkunin er mikil meðal ungs fólks, eins og að ofan greinir. Notkunin minnkar með aldrinum hjá báðum kynjum, 39% karla og 70% kvenna 20 til 29 ára hafa farið í ljós síðustu 12 mánuði á móti 15% karla og 50% kvenna 40 til 49 ára. Yngri konur fara í fleiri ljósatíma en eldri kon- ur. 30% karla og 42% kvenna sem farið hafa í ljós hafa brunnið í ljósabekk. Af þessum niðurstöðum má draga þá ályktun að Ijósabekkja- notkun íslendinga sé mikil, aðal- lega meðal ungs fólks og þá sérsta- lega kvenna. Þetta samræmist aukinni tíðni sortuæxla í þessum hópum en ekki sé hægt að fullyrða endanlega um þessi tengsl fyrr en viðmiðunarhópurinn hefur verið borinn saman við hóp sjúklinga sem greinst hafa með sortuæxli. Elín Anna sagði við DV að nú ynni hún að því að bera almennt notkunarmynstur ljósabekkja saman við sjúklingahópinn. Mjög hefði komið á óvart hversu mikil notkun væri á ljósabekkjum. Ekki síst ætti þetta við um ungt fólk sem jafnframt væri í hvað mestri áhættu vegna viðkvæmrar húðar. -JSS Tími nagla- dekkjanna liðinn Tími nagladekkjanna er liðinn frá og með deginum í dag, 16. apríl. Það þýðir að allir eiga að vera komnir á sumardekkin þegar þessi dagur er liðinn. Margir hafa þegar skipt yfir á sumardekkin og nokk- uð er um að ökumenn hafi aldrei skipt yfir á vetrardekkin vegna veðurblíðunnar sem ríkt hefur lungann úr vetrinum. En árleg töm á dekkjaverkstæðunum er hafin og eins gott að drífa sig. En þrátt fyrir reglur um dekkja- skipti er lögregla ekki vön aö grípa til aðgerða aki menn um sinn á vetrardekkjunum. Páskar eru að fara í hönd og óvíst hvort öku- mönnum gefst ráðrúm til að skipta yfir á sumardekkin fyrir hátíðar. Almennt tekur lögregla mið af að- stæðum. En vegna langvarandi veð- urblíðu og góðrar færðar víðast. hvar má búast við að lögreglan fari fljótlega eftir páska að ræða við menn sem aka þá enn um á nagla- dekkjum. Kostnaður við skiptingu og jafn- vægisstillingu hjólbarða á fólksbíl virðist svipaður og í fyrra eða á bilinu 4-5 þúsund krónur. Þá má víða fá afslætti. -hlh DV-MYND E.ÓL. Vasklega gengiö til verks Heföbundnar annir eru á dekkjaverkstæöum landsmanna og fyrir vikiö hverfa naglahljóöin brátt af rásóttum götunum. Sjaldan ef nokkurn tíma hafa sömu naglar kynnst jafn litlum snjó og á vetrinum sem brátt kveöur. Rúmlega tvítugur maður hlaut skilorðsbundinn dóm fyrir líkamsárás: Rannsókn lögreglu dróst óhæfilega Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítugan mann í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás við Gauk á Stöng aðfara- nótt laugardagsins 2. júní 2001. Hann hafði slegið mann með hnef- anum í andlitið með þeim afleiðing- um að gleraugu hans brotnuðu og glerbrot stakkst í vinstra auga hans. Hlaut hann skurð á augnlok og í gegnum homhimnu augans og blæð- ingu í forhólf augans. Hlaust af þessu varanleg sjónskerðing. Málavextir voru þeir að lögreglu var tilkynnt að maður lægi óvigur eftir slagsmál fyrir utan Gauk á Stöng og að dyraverðir staðarins héldu árásarmanninum sem reyndist vera ákærði í málinu. Lögreglan handtók manninn en hann var mjög ölvaður og sýndi mótþróa við hand- töku. Vitni voru á staðnum og voru þau sammála um að hann hefði geng- ið að fómarlambinu sem hefði setið á gangstéttinni og slegið það í andlitið •með fyrmefhdum afleiðingum. Maöurinn bar svo fyrir dómi að hann myndi ekkert um atburði næt- urinnar sökum ölvunar og fikniefna- neyslu. Hann kvaðst ekki muna eftir því aö hafa slegið manninn en játaði þó sök í málinu. Hann sagði að fljót- lega í kjölfar atviksins hefði hann ákveðið að snúa við blaðinu og ná tökum á lífi sínu. Hann kvaðst búinn að vera í harðri vímuefhaneyslu um nokkurra ára skeið en væri nú í námi, í sambúð og ætti von á bami. Hann hefði nú haldið sig frá vímuefn- um tæp tvö ár. í niðurstöðu dómsins sagöi að sam- kvæmt framburði vitna hefði árásin verið algjörlega tilefnislaus og fólsku- leg þar sem fómarlambið heföi setið og átt sér einskis ills von. Hins vegar væri árásarmaðurinn ungur að árum og hefði ekki áöur gerst sekur um lík- amsárás. Með þessu broti hefði hann þó rofið skilorð tólf mánaða fangelsis- dóms og þætti tólf mánaða fangelsi því hæfileg refsing. Dómarinn tók hins vegar fram að rekstur málsins hefði dregist úr hömlu hjá lögreglunni og ekki hefði verið fengin viðhlítandi skýring á því. Maðurinn hefði lagt fram gögn í málinu sem sýndu verulegan vilja hans til að ná tökum á lífi sínu eins og að ffaman greinir og með hhðsjón af því þótti rétt að fresta fullnustu refsingarinnar héldi hann almennt skilorð. Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp dómixm.. -EKÁ DV-MYNDIR NJÖRÐUR HELGASON Um borð í bílinn. Georg Ottósson ð Flúöum sendir fyrsta paprikubrettiö á markaö í gær. Innlend paprika í búöir í dag: íslenska paprikan sérpökkuð „Varan er að koma á markaðinn á svipuðum tíma nú og síöustu ár. Þaö sem við leggjum aftur á móti enn meiri áherslu á er að neytendur geti gengið að íslenskri vöru vísri. Við erum farnir að sérpakka henni, bæði hjá framleiðendum og í dreif- ingarmiðstöðvunum,“ sagði Georg Ottósson á Jörfa á Flúðum í gær- morgun þegar hann var að senda fyrsta brettið af íslenskri papriku sem kemur á markaðinn á þessu ári. Fyrstu vikumar verður það græna paprikan sem kemur í búðir en litaða paprikan er væntanleg eft- ir 3-4 vikur. Georg segir að gæðin og vistvæn- ar framleiðsluaðferðir séu aðal inn- lendu framleiðslunnar. „Það sem við erum að senda á markað nú verður eflaust eilítið dýrara en það sem kemur utanlands frá. En þar erum við líka að keppa við framleiðslu sem er af niðurgreiddum markaði Evrópusambandsins sem ver um 80 til 90% af sínum útgjöldum til að greiða niður landbúnaðarvörur,“ sagði Georg. Hann er líka með tölu- verða tómataframleiðslu. Yfir dimmasta tímann ræktar hann við raflýsingu en á næstu vikum fara að koma tómatar frá Jörfa, ræktaðir án lýsingar. Georg segir að paprikan standi ekki undir því verði sem þurfi að fá fyrir hana til að hægt sé að rækta hana við raflýsingu. -NH Fræðslustjóri á förum Þorlákur Helgason, fræðslustjóri Árborgar, hættir störfum hjá sveit- arfélaginu nú um miðjan mánuðinn. Samkvæmt heimildum blaðsins hef- ur verið uppi meiningarmunur milli aðila um störf og áherslur í skóla- málum. í samtali við DV í morgun sagðist Þorlákur hins vegar ekki vilja „blása málið út“ og segir uppsögn sína vera með eðlilegum hætti. Hann vilji skipta um starfsvettvang til þess að „halda sveiflunni" eins og hann komst að oröi. Tímabært sé að snúa sér að öðrum verkefhum. Hann hafi því sagt upp og vinni ekki út uppsagnarfrestinn. Einar Njálsson, bæjarstjóri Ár- borgar, staðfesti við DV í morgun að Þorlákur væri á förum „... en ég get ekki farið að ræöa hér um einstaka starfsmenn,“ sagði hann. Hann sagði að Þorlákur hætti störfum nú um miðjan mánuðinn. Um starfslokin heföi náðst gagnkvæmt samkomulag milli aðila og uppgjör yrði i sam- ræmi viö starfssamning. -sbs Panta á netinu: www.smaar.is dv %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.