Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 16. APRtL 2003
Fréttir
Lífeyrissjóöur Austurlands:
Átta ára iðgjöld virðast
Höfubvígiö
Aöalstöövar Lífeyrissjóös Austurlands eru í Neskaupstaö. Hætt er viö aö
hraustlega veröi tekist á um framtíö sjóösins á næstunni.
Lífeyrissjóður Austurlands hefur
að öllum líkindum tapað mun
meira á umliðnum árum en þeim
milljarði sem talað hefur verið um
til þessa. í ársreikningum og öðrum
gögnum sjóðsins, sem m.a. má finna
á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins, virð-
ist sem tapið eða lækkaðar íjár-
magnstekjur án verðbreytinga hafi
verið margfalt meiri, eða um sex
milljarðar króna síðan 1998 og jafn-
vel meira. Það getur þýtt að nær all-
ar tekjur af lífeyrisgreiðslum launa-
fólks og hlutar atvinnurekenda tU
sjóðsins i átta ár séu glataðar. Þá
skUaði sjóðurinn lélegustu rauná-
vöxtun af almennu lífeyrissjóðun-
um að meðaltali á árunum
1997-2001, eða 1,50% og var með nei-
kvæöa, eða -9,7% hreina raunávöxt-
un árið 2001.
Hlutabréfakaup í óskráðum fé-
lögum voru veruleg hjá Lífeyris-
sjóði Austurlands áður en Kaup-
þing kom að rekstri hans á miðju
ári 2000. Vandamálin virðast því
hafa verið tU staðar og fylgt pakk-
anum þegar Kaupþing tók að sér að
annast ávöxtun á fjármunum sjóðs-
ins. Virðist sem bréf hafl verið of-
metin og því niðurfærð tU þess sem
menn töldu eðlilegt. Því má ætla að
þetta hafi gefið ranga mynd af
raunávöxtun Lífeyrissjóðs Austur-
lands á umliðnum árum. Þó að telja
megi nær öruggt að þama sé um
glatað fé að ræða þá getur í ein-
hverjum tilvikum enn verið um að
ræða skráða eign í sjóönum þar tU
dæmið er endanlega gert upp við
sölu bréfanna eða hreinlega að þau
eru afskrifuð.
í nýrri þjóðhagsspá fjármála-
ráðuneytisins er því spáð að hag-
vöxtur verði um 2,75% á þessu ári
eða heUu prósentustigi meiri en
gert var ráð fyrir í síðustu spá. Á
næsta ári er spáð 3,75% hagvexti.
Þetta myndi marka upphafið á
nýju hagvaxtartímabUi þar sem
virkjunar- og álversframkvæmdir
verða fyrirferðamiklar fram til
ársins 2010, segir í frétt frá ráðu-
5,9 milljarðar í tap
Samkvæmt þessum gögnum tap-
aði Lífeyrissjóður Austurlands (LA)
1.115 milljónum króna milli áranna
1997-1998 eða tæplega 1,7-fóldum árs
iðgjöldum sjóðfélaga eins og þau
voru árið 1998. í ársreikningi heitir
það að fjárfestingatekjur án verð-
breytinga hafi verið lækkaðar um
1.115 mUljónir króna. Það ár voru
iðgjöldin 686,8 mUljónum króna.
Árið 1999 var ekki framkvæmd slík
niðurfærsla eða afskriftir og er sjóð-
urinn þá skráður með hreina raun-
ávöxtun upp á 8,4%. Á mUli áranna
1999 tU 2000 virðist sjóðurinn hins
vegar samkvæmt ársreikningi hafa
tapað 1.688 milljónum króna, eða
2,4-földum ársiðgjöldum sem voru
697 miUjónir króna árið 2000. Árið
2001 námu þessar tölur um 2.119
neytinu. Gengið er út frá því að
auk byggingar álvers á Reyðar-
flrði veröi ráöist í stækkun ál-
verskmiðju Norðuráls á Grundar-
tanga.
Taliö er að atvinnuleysi verði
að jafnaði um 3% af mannafla í ár
en fari lækkandi þegar líður á
árið og fari niður í 2% á því
næsta.
Gert er ráð fyrir að laun hækki
mUljónir króna eða um 2,7 fóld árs
iðgjöld vegna allra sjóðfélaga. Ársið-
gjöldin árið 2001 voru 777,7 miUjón-
ir króna. Samtals eru þetta 4.922
mUljónir króna á þessum árum, eða
6,8 föld heildariðgjöld tapáranna.
Við þetta bætist 1.000 miUjónir
króna sem sagðar eru tapaðar fyrir
árið 2002 og komið hafa fram í frétt-
um. Reikningar sjóðsins fyrir síö-
asta ár eru þó enn ekki komnir fram
svo ekki er ljóst hver endanleg tala
það ár verður. Þama er því verið að
tala um ríflega 5,9 mUljarða króna í
hugsanlega glötuðu fé sjóðsins síðan
1998.
Fjármálaeftirlitinu var gert við-
vart með ítarlegu erindi í mars 2002
um vandræði sjóðsins. Aftur var
Fjármálaeftirlitinu gert viðvart í
október 2002 uni vafasöm viðskipti
að meðaltali um 5% í ár og um 6%
á því næsta. Miðað við verðbólgu-
spá felur þetta í sér að kaupmátt-
ur launa haldi áfram aö aukast,
um 3% í ár og 3,5% á því næsta.
Gangi þetta eftir yrði árið 2004 tí-
unda árið í röð sem kaupmáttur
launa eykst og væri það einsdæmi
í íslenskri hagsögu að því er fram
kemur í frétt ráðuneytisins.
í frétt frá greiningardeild ís-
forráðamanna sjóðsins um meint
ólögmæt viðskipti með fjármuni
sjóðsins. Þá var lögð inn hjá ríkis-
saksóknara kæra og krafa um opin-
bera rannsókn þann 9. apríl sl.
í kærunni sem undirrituð er af
fjórum sjóðsfélögum Lífeyrissjóðs
Áusturlands eru stjórnarmenn LA,
framkvæmdastjóri og endurskoð-
andi kærðir fyrir meint brot á lög-
um nr. 129/1997, lögum nr. 18/1997
og almennum hegningarlögum við
ólögmæta meðferð fjármuna Lífeyr-
issjóðsins. Endurskoðun sem er
ekki sögð uppfylla kröfur laga og
krafist er opinberrar rannsóknar á
störfum stjómarinnar og endur-
skoðanda, jafnframt því að krefjast
refsingar að lögum reynist um brot
að ræða. Eru þar talin upp Hrafn-
kell A. Jónsson, Hjördís Þóra Sig-
urðardóttir, Magnús Bjamason, Ei-
ríkur Ólafsson, Jón Guðmundsson,
fyrrum stjórnarmaður, Gísli Mart-
einsson, framkvæmdastjóri sjóðsins
og endurskoðandinn Sigurður
Tryggvi Sigurðsson.
í kærunni eru nefnd dæmi um
ólögmætar ráðstafanir fjármuna.
Þar er um að ræða hæstaréttardóm,
nr. 245/2001 um lánveitingar LA til
Handsals hf. upp á ríflega 80 milljón-
ir króna í viðskiptaskuldir og víkj-
andi lán. Kaup LA á hlutabréfum í
óskráðu hlutafélagi Stoke City Hold-
in SA upp á 36 milljónir króna (upp-
haflega 56 milljónir árið 2000). Þá
eru harðar ásakanir á endurskoðand-
ann sem ekki er sagður hafa gert at-
hugasemdir við framangreind atriði
né annað í rekstri sjóðsins.
hefjast
landsbanka í gær segir að sú
aukning á þorskkvóta sem forsæt-
isráðherra hefur boðað auki líkur
á að hagvöxtur í ár verði rétt und-
ir 3% og að á næsta ári verði hann
nokkuð yfir 3%. Hins vegar hafi
tíðindin valdið því að krónan hafi
heldur styrkst; styrking krónunn-
ar dragi úr þeirri hagvaxtaraukn-
ingu sem ella yrði vegna aukins
afla. -ÓTG
Eigið fé RÚV
senn uppurið
Eigið fé Ríkisútvarpsins verður
uppurið á næsta ári í ljósi taps fé-
lagsins á sl. þremur árum. Skuldir
hafa aukist um 1.600 milljónir króna
síðan 1998 og eigið fé lækkað úr liö-
lega einum milljarði króna í um 400
milljónir króna. Eiginfjárhlutfallið
var 27,5% í árslok 1998 en var 8,7%
um síðustu áramót. Greiðslustaða
stofnunarinnar hefúr hríðversnað.
Vandséð er að aðrar aðgerðir en
hækkun afnotagjalda komi stofnun-
inni til bjargar en síðasta hækkun
var í ársbyrjun 2001, 7%, og þar
áður 5% árið 1998. Á síðustu 10
árum hefur afnotagjaldið hækkað
um 12,4% meðan verðlag hefur
hækkaö um 35,3% og launavísitala
um 72,4%. Ef hækkun afnotagjalds
hefði verið í takt við hækkun verð-
lags hefði reksturinn skilað 200
milljóna króna hagnaði á sl. ári í
stað 188 milljóna króna taps. -GG
Nýtt afl fær
listabókstafinn N
Stjórnmálasamtökunum Nýju
afli hefur verið úthlutað listabók-
stafnum N við komandi alþingis-
kosningar 10. maí. Samtökin hafa
birt framboðslista í tveimur kjör-
dæmum, Reykjavík norður og
suður. Þessu til viðbótar munu
framboöslistar í tveimur kjör-
dæmum, Norðausturkjördæmi og
Suðvesturkjördæmi, verða birtir í
dag. Valdimar Jóhannesson mun
eiga að leiða lista Nýs afls í Norð-
austurkjördæmi. -GG
Frjálslyndir gefa
fisk í snðið
Frjálslyndi flokkurinn opnar
kosningaskrifstofu í Rafha-hús-
inu í Hafnarfirði í dag og af því
tilefni er fólki boðið að þiggja
fisk í soðið. Einnig verður boðið
upp á kaffiveitingar.
Undanfarna daga hafa kosn-
ingaskrifstofur verið opnaðar á
Siglufirði, Reykjavík, Sauðár-
króki og Selfossi og í dag verða
einnig opnaðar kosningaskrifstof-
ur á ísafirði, Akureyri og Húsa-
vík. Trillukarlar, útgerðarmenn
og fiskverkendur um allt Reykja-
nes eru núna að veiða fisk og
gefa alla vinnu og aflaverðmæti.
-GG
-HKr.
Ný þjóöhagsspá gerir ráö fyrir aö hagvöxtur taki verulega við sér í ár:
Nýtt hagvaxtarskeið að
Leigcm í þínu hverfi