Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Blaðsíða 10
10
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003
DV
Hringdn i sima 881-0700
efta scnilii okkur
M loiuiipósta
askrtUunolf díqesi iw
Tugip ósamþykktra
íbúða kortlagðir
Forvarnardeild slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu, heilbrigðis-
yfirvöld í Kópavogi og byggingar-
fulltrúinn í Kópavogi hafa undan-
farið verið aö reyna að kortleggja
íbúðir í Kópavogi sem eru ekki
samþykktar, en þær munu nema
nokkrum tugum. Sigurður Geir-
dal, bæjarstjóri í Kópavogi, segir
það rangt að til standi eftir páska
að heimsækja fólk sem búi í ósam-
þykktum íbúðum og því einfald-
lega gefinn kostur á að flytja út.
Bæjarstjóri segir að oft sé talað í
sömu andránni um ósamþykkt
húsnæði og ólöglegt húsnæði en
það sé alls ekki það sama.
„Hér í Kópavogi eru til íbúðir
sem fólk hefur búið í til fjölda ára
Hafnarsvædiö í Kópavogi er eitt
þeirra svæöa þar sem fólk býr í
ósamþykktum íbúöum. íbúöirnar
sjálfar eru þó í flestum tilfellum ekki
ólöglegar, margar hinar bestu aö
gæöum.
og eru mjög flnar en ekki sam-
þykktar sem íbúðarhúsnæði. Þær
eru þá venjulega í hverfi sem skil-
greint er sem iðnaðarhverfí sam-
kvæmt deiliskipulagi og munu því
ekki fást samþykktar. Þessar íbúð-
ir eru hér og þar úti um allan bæ,
s.s. á hafnarsvæðinu og inni í
Smiðjuhverfi. Þess eru dæmi að
slökkvilið hefur verið kallað að
iðnaðarhúsnæði sem kviknað hef-
ur í og þá fyrst komið í ljós að
búið væri í húsnæðinu. Það er því
bráðnauðsynlegt að slökkviliðið
skrái allt húsnæði í samræmi við
byggingarfulltrúa og heilbrigðis-
fulltrúa og setji jafnframt fram
kröfur um t.d. brunastiga sé hann
ekki fyrir hendi. Að öðrum kosti
verður viðkomandi íbúð tæmd.
Það stendur alls ekki til að bera
neinn út nema áður hafi farið
fram margs konar aðgerðir. í sum-
um tilfellum er fólk í þessu hús-
næði tímabundið, er að bíða eiftir
eigin húsnæði, og þegar um þreng-
ist á húsnæðismarkaðnum, eins
og nú, er oft leigt húsnæði sem er
alls ekki nógu gott.
Það er í sjálfu sér ekki bannað
að innrétta herbergi í iðnaðarhús-
næði og búa þar. Ef þú átt bíla-
verkstæði eða blikksmiðju getur
ekki nokkuð maður bannað þér að
leggja þig þar á skrifstofunni, en
Kópavogsbær getur ekki ekki
samþykkt það sem íbúð. Hins veg-
ar hefur verið samþykkt íbúð í
iðnaðarhúsnæði sem húsvarðarí-
búð,“ segir Sigurður Geirdal bæj-
arstjóri. -GG
Skólafélag MS
biðst afsökunar
Stjóm Skólafélags Menntaskólans
við Sund hefur sent frá sér eftirfar-
andi tilkynningu vegna háttsemi
nokkurra nemenda skólans við
dimission efstubekkinga á fóstudag-
inn:
„Stjórn Menntaskólans við Sund
harmar þá leiðu atburði sem ákveðn-
ir nemendur skólans urðu valdir að í
miðbæ Reykjavíkur þann 11. apríl,“
segir m.a. í yfirlýsingu stjómar. Þá
segir jafnframt að framferði nokk-
urra nemenda hafi verið skólanum
og nemendum hans til skammar.
„Stjómin vill hins vegar árétta að
einungis örfáir einstaklingar innan
skólans vora að verki og þessi atvik
lýsa á engan hátt almennum nemend-
um Menntaskólans við Sund. Okkur
þykir leitt að ímynd skólans hafi beð-
ið hnekki. Stjómin hefúr ákveðið að
leita leiða með skólayfirvöldum til að
koma í veg fyrir að slíkir atburðir
endurtaki sig. Hún mun og styðja all-
ar ákvarðanir skólayfirvalda hvað
varðar þá sem hlut áttu að máli. Að
lokum vill stjórnin biðja aila sem
uröu fyrir ónæði eða eignatjóni inni-
lega afsökunar fyrir hönd allra nem-
enda skólans." -EKÁ
DV-MYND GVA
Veöurblíða í páskafríinu
Þessar ungu stúlkur í ísaksskóla nutu þess aö vera komnar í þáskafrí og léku sér á skólalóöinni I góöa veörinu.
Ný nálgun á föstudaginn langa:
Ihugunarstöðvar sem minna
á þjáningu og valdbeitingu
Sr. Örn Bárður Jónsson, sókn-
arprestur í Neskirkju, hefur
bryddað upp á alveg nýrri nálg-
un við þema fóstudagsins langa.
Þennan dag verður í Neskirkju
dagskrá um þjáningu og lausn.
Kynnt verður starfsemi Hjálpar-
starfs kirkjunnar og Amnesty
Intemational og sýnt stutt skeið
úr kvikmynd um ævi Jesú Krists
sem byggð er á Lúkasarguð-
spjalli.
Lesið verður úr Passíusálmum
séra Hallgríms Péturssonar, eins
mesta skálds íslendinga fyrr og
síðar, en þennan dag minnist
kristin kirkja þjáningar Jesú.
Enn þjáist fólk í heiminum og
því er verk að vinna fyrir vak-
andi fólk. Samstarf við framan-
greinda aðila, þ.e. Hjálparstarfs
kirkjunnar og Amnesty Inter-
national, á að minna á að leitað
er lausna á böli og þjáningu
heimsins.
Steingrímur Þórhallsson org-
anisti mun leiða
söngkvartett og
verður sungin
tónlist m.a. eftir
Orlando Di
Lasso. Engin ljós
verða tendruð í
kirkju eða á alt-
ari en sr. Örn
Bárður Jónsson,
leiðir dagskrána.
í kirkjunni verð-
ur komið fyrir
hlutum (tólum
Sr. Örn Báröur
Jónsson, sóknar-
prestur í Nes-
kirkju, fyrir altari
kirkjunnar.
Engin Ijós veröa þó
tendruö þar á
föstudaginn langa.
og tækjum) sem minna á þján-
ingu og valdbeitingu. Þátttak-
endur geta gengið um kirkjuna
og skoðað þessa hluti og íhugað.
Á einum stað verður vatn og
brauð til neyslu.
Að lokinni framangreindri
dagskrá verða Bibertónleikar en
þar flytja þeir Martin Frewer
fiðluleikari, Dean Ferrell bassa-
leikari og Steingrímur Þórhalls-
son orgelleikari sónötur eftir
Biber sem var tónskáld á 17. öld.
Rósakranssónötur hans þykja
meistaraverk og fjalla um ævi
Krists. Þær sem fluttar verða
fostudaginn langa eru um þján-
ingu hans og krossdauða. Flytj-
endurnir hafa þegar leikið sónöt-
urnar fyrir Ríkisútvarpið og fóru
upptökurnar fram í Neskirkju á
vordögum. Sr. Öm Bárður Jóns-
son les ritningarlestra á milli
sónatanna.
-GG