Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Page 12
12
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003
BNA dpaga úr orða-
skakinu gegn Sýrlandi
Colin Powell, utanríkisráöherra
Bandaríkjanna, reyndi í gær aö
draga aðeins úr ótta manna í
Mið-Austurlöndum um að Banda-
ríkjamenn ætluðu sér að ráðast
til atlögu gegn Sýrlandi og íran, í
kjölfar auðunnins sigur í barátt-
unni við íraksher.
„Það er ekki til neinn listi, það
eru ekki uppi nein áform um að
ráðast á annað land, hvorki til að
steypa stjórnvöldum né til að
koma á lýðræðisskipulagi," sagði
Powell við fréttamenn.
Bandarískir ráðamenn hafa
undanfama daga verið óþreyt-
andi að hafa í hótunum við Sýr-
lendinga sem þeir segja að séu að
reyna að koma sér upp gjöreyð-
ingarvopnum.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Bjólfsgötu 7,
Seyðisfirði, sem hér segir á eft-
________irfarandi eign:____
Múlavegur 6, Seyðisfirði, þingl. eig.
Björn Björgvin Halldórsson og Jón-
borg Valgeirsdóttir, gerðarbeiðendur
Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Vá-
tryggingafélag íslands hf., miðviku-
daginn 23. apríl 2003 kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN Á SEYÐISFIRÐI
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
______um sem hér segir.____
Árskógar 20, Austur-Héraði, fastnr.
217-5461, þingl. eig. Emil Jóhann
Árnason, gerðarbeiðendur Austur-
Hérað og íbúðalánasjóður, þriðjudag-
inn 22. apríl 2003 kl. 14.00.
Miðvangur 1-3 hl. 02.02, Austur-Hér-
aði, þingl. eig. Karl Gústaf Davíðsson
og Davíð Jóhannesson, gerðarbeið-
andi Austur-Hérað, miðvikudaginn 23.
aprfl 2003 kl. 11.00,______
Skálar, Vopnafirði, þingl. eig. Ægir
Kristinn Sævarsson, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður Austurlands, þriðjudag-
inn 22. aprfl 2003 kl. 16.30.
SÝSLUMAÐURINN Á SEYÐISFIRÐI
. REUTERSMYND
Ulfaldinn hvílir sig í skjóli dáta
Úlfaldargeta líka oröið þreyttir. Aö minnsta kosti þurfti úlfaidinn á þessari mynd aö leggjast á malbikiö viö gaddavírs-
giröinguna sem bandarískir hermenn hafa sett upp nærri einni af höllum Saddams í Bagdad.
Sex féllu í átökum gærdagsins
á Gaza ng Uesturbakkanum
- Sharon boðar viðræður við nýkjörinn forsætisráðherra Palestínu
Aö sögn talsmanns Israelska hers-
ins féllu þrír ísraelar og þrlr Palest-
ínumenn I átökum á Gaza-svæðinu
og Vesturbakkanum I gær og þar á
meðal liðsforingi úr ísraelska hern-
um.
Liðsforinginn mun hafa fallið þeg-
ar til skotbardaga kom milli ísra-
elskar hersveitar og þriggja palest-
ínskra liðsmanna Al-Qassam-her-
deildarinnar snemma í gærmorgun,
en ísraelska hersveitin hafði um-
kring hús þeirra og skipað þeim að
gefast upp. Þegar Palestinumennirn-
ir gengu út úr húsinu dró einn
þeirra upp byssu og skaut liðsfor-
ingjann til bana auk þess sem hann
særði annan ísraelskan hermann.
Eftir skothríðina tókst honum að
flýja inn I nálæga byggingu þar sem
hann var loks yfirbugaður og skot-
inn til bana eftir nokkurra klukku-
stunda umsátur. Tveir palestínskir
borgarar munu einnig hafa særst í
átökunum.
Á Gaza-svæðinu féllu tveir ísra-
elskir verkamenn þegar palestínskur
byssumaður hóf skothríð við ísra-
elska varðstöð en að sögn sjónar-
votta mun honum einnig hafa tekist
að kasta handsprengjum að varð-
stöðinni áður en ísraelskir öryggis-
verðir skutu hann tO bana.
Annar Palestínumaður var skot-
inn til bana í bænum Rafah á Gaza-
svæöinu í gær og að sögn talsmanns
ísraelska hersins var þar um að
ræða háttsettan liðsmann hinna her-
skáu Jihad-samtaka.
Annars staðar í Nablus handtók
ísraelsk hersveit Kamil Abu Hnesh,
helsta foringja hinnar herskáu Al-
þýðufylkingar, PFLP, á Vesturbakk-
anum.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, sagði í blaðaviðtah í gær að
hann stefndi að því að bjóða
Mahmoud Abbas, nýkjörnum forsæt-
isráðherra palestínsku heimastjórn-
arinnar, til viðræðna strax og Abbas
hefði formlega tekið við embætti.
-20%
afsláttur af dekkjum
Ef þú lætur umfelga hjá okkur fyrir Páska þá færðu
-20% afslátt af dekkjum. Líttu við, það borgar sig.
Allra augu beinast að
Chirac og Blair í dag
Þegar leiðtogar Evrópuríkja
hittast í Aþenu á Grikklandi í
dag, í fyrsta skipti frá því Banda-
ríkjamenn og Bretar réðust inn í
írak, munu allra augu beinast að
þeim Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, og Jacques
Chirac Frakklandsforseta til að
sjá hvort þeir hafi grafið stríðsöx-
ina vegna ágeinings um stríðið.
„Handaband eða að minnsta
kosti góð líkamstjáning þegar
þeir hittast fær okkur alia til að
anda léttar," sagði grískur emb-
ættismaður í gær.
Ýmislegt þykir benda til að vel
muni fara á með þeim Blair og
Chirac í dag. Þar skal fyrst telja
að í gær töluðust þeir Chirac og
Bush Bandaríkjaforseti við í
síma, í fyrsta sinn í tvo mánuði.
Níu manns létust í
Hong Kong í gær
Alls níu manns létust úr SARS-
lungnabólgunni i kínversku borg-
inni Hong Kong í fyrradag og hafa
dauðfóll á einum sólarhring ekki
verið fleiri í borginni tU þessa.
Þrjú hinna látnu voru ungar
konur innan við þrítugt og að sögn
heUbrigðisyfírvalda voru þær áður
við góða heUsu. Ein þeirra var
ófrísk og mun hafa gengist undir
keisaraskurð eftir að hafa greinst
með flensuna tU þess að bjarga
baminu. Yfirvöld hafa af því
miklar áhyggjur að mun yngra
fólk smitast nú af SARS-vírusnum
en áður.
Slettumenn enn í steininum
Mennirnir tveir
sem slettu rauðri
málningu á And-
ers Fogh Rasmus-
sen, forsætisráð-
herra Danmerkur,
fyrir skömmu
hafa verið úr-
skurðaðir í áfram-
haldandi gæsluvarðhald næstu
fjórtán daga I héraðsdómi Kaup-
mannahafnar.
Kjarnopkuviönæöun ettip páska
Sendimenn Bandaríkjanna,
Norður-Kóreu og Kína munu hitt-
ast í Peking í næstu viku til að
ræða meint kjarnorkubrölt Norð-
ur-Kóreumanna.
Öl og peykup tæma buddup
Bjór og sígarettur eru þeir
vöruflokkar sem Norðmenn eyða
mestum hluta tekna sinna í, að
sögn blaðsins Nationen.
Vantap fé til matvælakaupa
Matvælaaðstoð SÞ hefur þegar
keypt mikið af matvælum handa
írökum en stofhunina bráðvantar
meira fé til kaupanna.
Mopöinginn fékk 18 áp
Morðingi hollenska stjórnmála-
mannsins Pims Fortuyns var
dæmdur til 18 ára fangelsisvistar
í rétti í Amsterdam í gær.
Bush á leið í páskafpí
George W. Bush
Bandaríkjaforseti
heldur til búgarðs
síns í Crawford í
Texas í dag til að
eyða þar páskafrí-
inu. Áður en hann
heldur af stað
mun hann þó und-
irrita og gera að iögum fjárveit-
ingu til stríðsins í Irak upp á 79
milljarða dollara.
Njésnafopingi í Sýplandi
Fyrrum yfirmaður írösku
leyniþjónustunnar er talinn hafa
leitaö hælis í Sýrlandi, að því er
bandarískur embættismaður
greindi frá í gær.
Rumsfeld hyggup á ípaksfepð
Donald Rums-
feld, landvarna-
ráðherra Banda-
ríkjanna, hyggst
leggja land undir
fót og heimsækja
írak á næstunni
til aö kanna að-
stæður af eigin
raun. Ekki hefur þó enn verið
ákveðið hvenær farið verður.
Danadpottning í beinni
Margrét Þórhildur Danadottn-
ing hélt upp á afmæli sitt í morg-
un með því að koma fram á sval-
ir Marselísborgarhallar til að
taka á móti kveðjum almennings.
Athöfnin verður í beinni útsend-
ingu í sjónvarpi.
Blix spáip í fpamtíðina
Hans Blix, yfirmaður vopnaeft-
irlits SÞ í írak, gengur á fund Ör-
yggisráðsins í næstu viku til að
reifa þar framtíö vopnaeftirlits-
ins. Margir stjórnarerindrekar
vilja ólmir að eftirlitsmenn fari
aftrn- til íraks.