Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Síða 28
MIÐVKUDAGUR 16. APRlL 2003
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003
Rafpostur: dvsport@dv.is
keppni í hverju orði
A efdp að sakna Guðna
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri
Bolton, er opinskár í viðtali við Bolton
Evening News þar sem hann segir að
hann vilji af öllum mætti njóta krafta
Guðna Bergssonar að þessu tímabili
loknu. Hann segist þó eiga erfitt með að
sjá að ákvörðun hans um að snúa alfar-
inn heim til íslands verði breytt.
Allardyce segir að Guðni hafi verið
mjög sterkur í vetur og raunar sjaldan
séð hann leika jafn vel. Það verði mikil
eftirsjá í Guðna en hann hafi tekið
ákvörðun um að fara til íslands, i faðm
fjölskyldu sinnar. -JKS
Atli vill að
Árni Gautur
spili meira
I norska dagblaðinu
Adressaavisen í gær lýsir Atli
Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í
knattspymu, áhyggjum yfrr því
að Ámi Gautur Arason lands-
liðsmarkvörður fái ekki að spila
meira með Rosenborg en raun
ber vitni. í viðtalinu kemur fram
að Atli hafi hvatt Áma Gaut til
að skipta um félag en Ijóst er að
hann á erfitt uppdráttar hjá fé-
laginnu eftir að hafa átt fast sæti
í liðinu á síðasta keppnistíma-
bili. Atli segist ekki vera sáttur
við þetta ástand þvi nauðsynlegt
sé fyrir landsliðið að Árni Gaut-
ur sé í sínu besta formi en það sé
hann ekki meðan hann fái ekki
að spila.
Árni Gautur hefur misst sæti
sitt til Espen Johansen en þeir
hafa barist um sætið í liðinu
allnokkra hríð. Ámi Gautur
gekkst undir aðgerð á olnboga í
byrjun mars og á meðan fór Jo-
hansen í markið og hefur haldið
stöðu sinni síðan. Ámi Gautur
hefur neitað að skrifa undir nýj-
an samning og það hefur ekki
auðveldað honum að komast í
liðið á nýjan leik.
Atli Eðvaldsson sagðist í sam-
tali við DV í gær hafa áhyggjur
og hann væri enn fremur hissa á
því hvernig þeir hefðu með-
höndlað meiðsli Áma Gauts.
„Tímasetningin vegna
aðgerðarinnar í olnboga er
skrýtin en við vissum af þessum
meiðslum í fyrra. Af hverju fór
hann ekki þá í aðgerðina,“ sagði
Atli Eðvaldsson.
-JKS
Fyrsti knattspyrnuleikur ársins á grasi fór fram í gærkvöld:
Stórsigup Skagamanna
- slakir Mosfellingar réöu ekkert viö drengina hans Ólafs Þóröarsonar
1-0 Baldvin Hallgrímss., sjm. (17.)
2- 0 Stefán Þórðarson ..(41.)
3- 0 Garðar Gunnlaugsson .. (75.)
4- 0 Helgi Magnússon....(80.)
5- 0 Garðar Gunnlaugsson . . (90.)
Skagamenn vora ekki í miklum
erfiðleikum með Aftureldingu er
liðin mættust í fyrsta grasleik árs-
ins á Tungubökkum í Mosfellsbæ í
gær. Þeir tóku völdin í leiknum
strax í byrjun og þrátt fyrir erflðar
aðstæður tókst þeim að koma bolt-
anum fimm sinnum í mark Mosfell-
inga.
Það er oftar en ekki álitamál
hvenær byrja eigi að spila á grasi
hér á landi og þótt ekkert væri að
grasinu á Tungubökkum þá hefði
þessi leikur betur verið spilaður
innan dyra, eins og upphaflega stóð
til, því strekkingsvindur, sem stóð
beint á .annað markið, gerði leik-
mönnum afar erfitt um vik að spila
knattspymu. Munurinn á liðunum
lá fyrst og fremst í því að Skaga-
menn hafa getuna til þess að leika
við slíkar aðstæður en Mosfellingar
ekki enda sköpuðu þeir sér afar lít-
ið í þessum leik.
Skagamenn léku gegn vindinum í
fyrri hálfleik og náðu strax góðum
tökum á leiknum. Mikil barátta var
um hvern einasta bolta en Mosfell-
ingar voru alltaf skrefi á eftir og
þegar blásið var til leikhlés voru
þeir tveim mörkum undir og orrust-
an nánast töpuð.
Skagamenn styrktu tak sitt enn
frekar í síðari hálfleiknum og bættu
við þremur mörkum í honum og
unnu öruggan og sanngjaman sig-
Stefán Þóröarson lék vel meö Skagamönnum á grasinu í Mosfellsbænum í gær - skoraði mark og var sífellt ógn-
andi. Hann sést hér leika á ísleif Sigurösson, leikmann Aftureldingar. DV-mynd Sigurður Jökull
ur. Stefán Þórðarson lék vel i fram-
línu Skagamanna - var duglegur, sí-
fellt ógnandi og augljóslega að nálg-
ast sitt fyrra form. Gunnlaugur
Jónsson var öflugur sem fyrr i
hjarta Skagavamarinnar og stöðv-
aði flestar sóknarlotur Afturelding-
ar og Grétar Rafn vann vel á miðj-
unni. Fátt var um fina drætti hjá
Mosfellingum en Sturla Guðlaugs-
—
son, fyrrum Skagamaður, gafst þó
aldrei upp og sýndi ágæta takta á
köflum.
Maður leiksins: Stefán Þórðar-
son, ÍA -HBG
Tillögur aö breyttu keppnisfyrirkomulagi í úrvalsdeildinni í körfuknattleik:
Tillögup lagðar fyrir ársþing KKI
Körfuknattleikssamband ísland
skipaði nefnd á sínum tíma til að
leggja fram tillögur að breyttu
keppnisfyrirkomulagi í úrvals-
deildinni í körfuknattleik og verða
tillögumar lagðar fram á ársþingi
sambandsins um aðra helgi. Ef
þessar tillögur fá samþykki munu
þær taka gildi keppnistímabilið
2004-2005. Tillögumar hljóða svo.
Keppni úrvalsdeildar fer fram í
tveimur hlutum; deildarkeppni og
úrslitakeppni. Fyrstu drög að
leikjaniðurröðun skulu liggja fyrir
eigi siðar en í lok júní.
(A) Deildarkeppni
Úrvalsdeildin skal skipuð 10 lið-
um sem leika í tveimur riðlum
sem auðkenndir era sem A og B.
Liðin innan riðlanna skulu leika
fjórfalda umferð innbyrðis, þ.e.a.s.
hvert lið leikur tvisvar sinnum
heima og að heiman gegn hverju
hinna. Jafnframt skulu liðin leika
tvöfalda umferð heima og heiman
gegn liðunum í gagnstæðum riðli.
Lið raðast í lokastöðu riðlanna
samkvæmt reglum FIBA, ef reglu-
gerð um körfuknattleiksmót kveð-
ur ekki á um annað.
Liðið í efsta sæti A-riðils að lok-
inni keppninni hlýtur titilinn
deildarmeistari og skal fá afhentan
farandbikar og eignarbikar.
Tvö (eitt??) neðstu lið B-riðils
úrvalsdeildar að lokinni deildar-
keppni falla í 1. deild og leika þar
næstu leiktíð.
Neðsta lið A-riðils skal leika í B-
riðli leiktíðina á eftir. Efsta lið B-
riðils skal leika i A-riðli leiktiðina
á eftir.
Sérstakt ákvæöi
Þau félög sem lenda í 5 efstu sæt-
um úrvalsdeildar eftir deildar-
keppnina 2003-2004 skulu skipa A-
riðil tímabilið 2004-2005. Félög sem
lenda í 6., 7., 8. og 9. sæti skulu
skipa B-riðil. Liðið í 10. sæti úr-
valsdeildar skal leika einn leik við
sigurvegara úr úrslitakeppni 1.
deildar karla um laust sæti í B-
riðli. Leikurinn skal fara fram á
heimavelli 1. deildar liðsins. Skal
1. deildar liðið bera allan kostnað
af leiknum og hirða allar tekjur af
honum. Útiliðið greiðir sinn ferða-
kostnað.
Liðin í 11. og 12 sæti falla i 1.
deild. Að lokinni deildarkeppni
hefst úrslitakeppni með þátttöku
liðanna í 4 efstu sætum A-riðils og
tveimur efstu sætum B-riðOs.
(B) Úrslitakeppni
í úrslitakeppninni skiptast and-
stæðingar í hverri viðureign á að
leika á heimavelli og ávallt er byrj-
að á heimavelli þess liðs sem ofar
varð í deildarkeppninni. Liðin í A-
riðli teljast ofar í deildarkeppninni
en liðin í B-riðli. í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar skal lið í þriðja
sæti A-riðils A3 leika við liðið í 2
sæti B-riðils B2 (Viðureign nr. 1)
og liðið í 4 sæti A-riðils við liðið í
1. sæti í B-riðli B1 (Viðureign nr.
2). Það lið sem fyrr sigrar í tveim
leikjum kemst áfram. Fyrsti og ef
með þarf þriðji leikur skal fara
fram á heimavelli liðanna í A-riðli.
! undanúrslitum mætir sigur-
vegari A-riðils A1 sigurvegaranum
úr fyrstu umferð úrslitakeppninn-
ar sem telst neðar í deildarkeppn-
inni (Viðureign nr. 3). Liðið í öðru
sæti A-riðils A-2 mætir sigurvegar-
anum úr fyrstu umferðinni sem
telst ofar í deildarkeppninni
(Viðureign nr. 4). Það lið sem fyrr
sigrar í þrem leikjum kemst áfram
í úrslit. Fyrsti, þriðji og ef með
þarf fimmti leikur skal fara fram á
heimavelli A1 og A2.
í úrslitum mætir sigurvegari úr
viðureign nr. 3 sigurvegara úr
viðureign 4. Þaö iið sem fyrr sigr-
ar í þrem leikjum telst íslands-
meistari í körfuknattleik og skal fá
afhentan farandbikar og eignar-
bikar. Fyrsti, þriðji og ef með þarf
fimmti leikur skal fara fram á
heimavelli þess liðs sem ofar varð
í deildarkeppninni.
Um tekjuskiptingu gOda reglur
um tekjuskiptingu í íslandsmóti.
Heimalið ber aOan kostnað vegna
dómara (komi tO oddaleiks). AOur
annar útlagður kostnaður sem lið-
in verða fyrir greiða þau sjálf.
Gestalið í úrslitakeppni skal ávalt
eiga rétt á að kaupa 30% af seldum
aðgöngumiöum á hvern leik, enda
nýtir það þennan rétt a.m.k. 24
klst. fyrir leik.
Breyting á 21. gr. um mót
1. deOd karla skal skipuð 10 iið-
um. Leika skal tvöfalda umferð,
heima og heiman. Tvö neðstu lið 1.
deOdar faUa í 2. deOd og leika þar
næsta keppnistímabO.
Að lokinni deOdarkeppninni-í 1.
deOd hefst úrslitakeppni með þátt-
töku fjögurra efstu liða í deOdinni.
Efsta liðið leikur gegn liði númer
Qögur og næstefsta liðið leikur
gegn liði númer þrjú. Þau lið sem
fyrr sigra í tveimur leikjum leika
tO úrslita. Þau leika einn leik, á
heimaveUi þess liðs sem ofar varð
í deOdarkeppninni og telst sigur-
vegarinn íslandsmeistari í 1. deOd
karla og færast bæði (sigurvegar-
inn??) liðin upp í úrvalsdeOd. Um
tekjuskiptingu gOda sömu reglur
og gilda í oddaleikjum úrslita-
keppni úrvalsdeOdar.
Sérstakt ákvæöi
KeppnistímabOið 2003-2004 skal
sigurvegari í úrslitakeppni 1.
deOdar karla leika einn leik við
liðið í 10. sæti úrvalsdeOdar tíma-
bOið 2003-2004 um sæti í úrvals-
deOd 2004-2005. Sjá reglugerð um
úrvalsdeOd. KeppnistímabOið 2004
-2005 skal deOdin skipuð á eftirfar-
andi hátt: Tapliðinu úr leiknum
um lausa sætið í úrvalsdeOd.
Tapliðinu úr úrslitaleik úrslita-
keppni 1. deOdar 2003-2004. Taplið-
unum tveimur úr undanúrslita-
keppni 1. deOdar 2003-2004. Þeim
þrem liðum sem enduðu í sæti 5, 6
og 7 í 1. deOd 2003-2004.
Sigurvegara úr leik liðsins sem
lenti í 8. sæti 1. deOdar 2003-2004
og þess liðs sem sigraði í úrslita-
keppni 2. deOdar karla 2003-2004.
Skal leikurinn fara fram á heima-
veOi 2. deOdar liðiðsins og skal það
bera aOan kostnað af leiknum og
hirða aOar tekjur af honum. ÚtOið-
ið greiðir sinn ferðakostnað. Liðin
í 9. og 10. sæti 1. deildar keppnis-
tímabOið 2003-2004 faUa í 2. deOd
Breyting á 22. grein mót
í 2. deOd karla komi inn sérstakt
ákvæði. Sigurvegari í úrslita-
keppni 2. deOdar karla
keppnistímabOið 2003-2004 skal
leika einn leik við liðið sem lenti í
8. sæti 1. deOdar karla keppnis-
tímabOið 2003-2004 um laust sæti í
1. deOd. Skal leikurinn fara fram á
heimaveUi 2. deUdar liðiðsins og
skal það bera aUan kostnað af
leiknum og hirða aUar tekjur af
honum. ÚtUiðið greiðir sinn
ferðakostnað.