Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Side 2
ETSMbúar
2
Laucardacur 17. maí 2003
„OffRoad Challenge" á Klaustri:
Þolaksturskeppnin „OfiRoad
Challenge", sem verður á
Kirkjubæjarklaustri 24. maí, hef-
ur vakið mikla athygli hér
heima sem erlendis. Að sögn
Kjartans Kjartanssonar keppnis-
stjóra eru skráðir 200 keppend-
ur, þar af fjórir erlendir, og með-
al þeirra er heimsfrægur öku-
maður úr París-Dakar-rallinu,
Per-Gunnar Lundmark. Það eru
184 keppendur sem aka tveir
saman í liði og 16 einstaklingar
sem ætla að aka einir allan tím-
ann.
Þrír frægir motocross-öku-
menn
Allir erlendu ökumennirnir
sem keppa aka með íslendingum
í liði. Með keppnisnúmer 72 eru
þeir Þórir Kristinsson og Sean
Lawless, sem er ritstjóri breska
mótorhjólablaðsins „Dirt Bike
Magazine", en þeir óku einnig
saman á síðasta ári. Með Ragn-
ari Inga Stefánssyni, sem er
margfaldur íslandsmeistari í
motocross, ekur breskur
motocrosskappi, Tony Marshall,
en Tony þessi hefur náð langt í
motocrossíþróttinni í heima-
landi sínu. Þeir aka á Hondu
CRF. Meö Gunnari Sölvasyni á
KTM keppir Breti að nafni
James Marsh sem ekur TM-hjóli
og hefur getið sér gott orð í
motocrossi. James þessi er verð-
andi tengdasonur Pierres Kars-
makers sem var einn af fræg-
ustu motocrossmönnum heims
fyrir 25-30 árum.
Varð sjötti í París-Dakar
Frægastur í þolaksturskeppni
er þó eflaust sá keppandi sem
ekur á móti Karli Gunnlaugs-
syni, en það er Svíinn Per-Gunn-
ar Lundmark. Lundmark var í
sjötta sæti í Paris-Dakar-rallinu
2003 og ók hann þá KTM 660-
hjóli. Hann var tæpum tveimur
klukkutímum á eftir sigurvegar-
anum í 17 daga keppninni en af
þessum 17 sérleiðum vann hann
þá tíundu, sérleið og þá síðustu.
Lundmark keppir á KTM 525-
hjóli en tekur með sér sérstaka
keppnisdempara til landsins af
Öhlins-gerð. Hann er samnings-
bundinn demparaframleiðand-
anum Öhlins en það er íslenska
umboðið fyrir Öhlins sem flytur
inn þessa dempara til landsins,
S-Baldursson Kattarbúðir á Ak-
ureyri, sem stendur að komu
Svíans til landsins. Það er svo
KTM-umboðið sem skaffar
keppnishjólið.
Barnakeppni um morguninn
Einnig verður barna- og ung-
lingakeppni um morguninn und-
ir stjóm Torfa Hjálmarssonar og
hefst hún klukkan tíu um morg-
uninn. Að sögn Torfa er þetta
meira til gamans gert fyrir ung-
lingana. í þeirri keppni verða
unglingar sem eru fæddir frá
1988-1991 og keppa þeir í 40 mín-
útur í sérstakri braut sem lögö
verður fyrir þá rétt hjá aðal-
keppnisbrautinni. í þeirri
keppni má búast við allt að 15
keppendum. -HJ
Per-Gunnar Lundmark varð efstur í París Dakar-rallinu á þessu ári af
þeim sem ekki höfðu stuðning framleiðenda á bak við sig.
Lundmark lenti í óhappi í Dakar-
rallinu árið 2001 og braut á sér
nefið en hélt sarnt áfrain keppni.
Lundmark þykir skemmtilegur
ökumaður og óhræddur við að
taka áhættu.
Heimsfrægur keppandi úr París-
Dakar tekur þátt
Mitsubishi Outlander frumsýndur um helglna
Mitsubishi Outlander verður
frumsýndur hjá Heklu hf. um helg-
ina. Til að byija með verður þessi
nýi jepplingiu- í boði með tveggja
lítra, 136 hestafla bensínvél.
Outlander er búinn sídrifsbúnaði
og verða tvær útfærslur í boði,
Sport og Comfort. Báðar gerðir eru
búnar ABS-hemlakerfi með EBD-
hemladreifikerfi, fiórum öryggis-
loftpúðum, 16 tommu álfelgum, lit-
uðum rúðum, hita í framsætum og
þokuljósum og Isofix festingum
fyrir barnabílstóla, svo helsti bún-
aður sé upptalinn. Sportútfærslan
er til viðbótar búin leðurinnrétt-
ingu, sóllúgu, vindskeið að aftan
og loftkælingu. Að sögn Jóns
Trausta Ólafssonar, kynningar-
stjóra Heklu, verður fáanlegt mik-
ið úrval aukahluta á Outlander
sem framleiddur er hjá Mitsubishi
Motors. „Verðið á Mitsubishi
Outlander er 2.490.000 krónur fyrir
beinskiptan bíl í Comfort-útfærslu
en í sportútfærslunni er verðið
2.780.000 krónur. Outlander verður
fáanlegur síðar á árinu sjálfskipt-
ur og þá með 2,4 lítra, 160 hestafla
bensínvél," sagði Jón Trausti.
Lexus RX 300
frumsýndur
Áhugamönnum um lúxusbíla
býðst tækifæri til að skoða nýjan
Lexus RX 300 um næstu helgi,
17.-18. maí. Bíllinn verður kynntur
í Lexus-umboðinu við Nýbýlaveg i
Kópavog, á laugardag frá kl. 12-16
og á sunnudag frá kl. 13-16. Með-
fylgjandi er mynd sem var tekin
þegar verið var að undirbúa
myndatöku af nýja bílnum í Bláa
lóninu.Til að undirstrika þá vellíð-
an sem fylgir Lexus í akstri verður
Bláa lónið í smækkaðri mynd sett
upp við Nýbýlaveginn á meðan á
sýningunni stendur. Meðal nýj-
unga í bílnum, sem kynntur verð-
ur um helgina, má nefna fimm
þrepa sjálfskiptingu með hand-
skiptimöguleika, sex diska. geisla-
spilara í mælaborðið, níu öryggis-
púða í stað fiögurra og svo mætti
lengi telja. Bíllinn er líka stærri og
breiðari en fyrri kynslóð en hefur
samt betri eldsneytisnýtingu.