Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 5
Laugardagur 17. maí 2003 5 |í »Vv] Bílar Mondeo er á leið inn í framtíð- ina með nýju mælaborði en fjöl- skyldubill Ford hefur verið notað- ur sem tilraunabíll fyrir nýtt mælaborð sem verið hefur í þróun í fjögur ár. Mælaborðið er í raun stafrænn tölvuskjár sem sýnir all- ar helstu upplýsingar en með ein- földum skipunum frá stýri er hægt að skoða betur hluti eins og leiðsögukerfi. Reynt hefur verið að hafa kerfið eins einfalt í notk- un og hægt er. Sem aukabúnað verður hægt að fá kerfið með gjaldmæli fyrir bílastæði og er þá Minnkandí sala þýskra bíla í BNA Sala þýskra bíla hefur dregist verulega saman í Bandaríkjun- um og hefur samdrátturinn ekki verið meiri síðan í desember- mánuði 2001. Bandaríska frétta- stofan Reuter veltir vöngum yfir því hvort ástæðunnar sé að leita til veikrar stöðu dollarsins eða andstöðu Þjóðverja við innrás Bandaríkjamanna og Breta í írak. í aprílmánuði dróst salan á BMW og Mercedes mest saman, 10% á BMW en 6,8% á Mercedes Benz, en markaðshlutdeild Volkswagen minnkaði einnig umtalsvert. Allir þrír bílaframleiðendurn- ir hafa viðurkennt að hafa fengið póst og e-mail frá Bandaríkjun- um, þar sem andstöðu Þjóðverja við stríðið í írak er mótmælt, en segja líklegra að veik staða dollarans gagnvart evrunni skipti meira máli í sölu á evr- ópskum bílum í Bandaríkjunum, sérstaklega þýskiun, sem hækk- ar verð þeirra umtalsvert. Allt fram til aprílmánaðar voru lúx- us-útgáfur af BMW og Mercedes Benz þær tegundir sem mest seldust og höfðu aukið hraöast markaðshlutdeild sína. í apríl dróst salan svo saman þegar sala lúxusútgáfu af öðrum innfluttum bílategundum var að aukast þó ekki væri um neina söluspreng- ingu að ræða. Fleiri kauphallarsérfræðingar hallast þó að því að það sé frem- ur sterkari staða evrunnar sem dragi úr sölu þýskra bíla en and- staða þýskra yfirvalda gegn stríðinu í írak með Schröder kanslara í broddi fylkingar. Muni sú staða vara í umtalsverð- an tíma kann það að þrýsta þýsku bílaframleiðendunum til þess að lækka verð bíla sinna á bandaríska markaðnum til að koma í veg fyrir alvarlegra ástand. Veik staða dollars kann nefnilega að vara mun lengin- en dvöl bandarískra og breskra herja í írak. Paul Taylor, efna- hagsfræðingur bandaríska bíl- greinasambandsins, segir það sérstaklega athyglisvert og und- irstrika þá skoðun að ástæðunn- ar sé að leita til veikrar stöðu dollars, að sala á Volkswagen-bíl- um hafi verið stöðugt vaxandi meðan dollarinn var að styrkjast en hún hafi dottið umtalsvert niður strax og hann fór að veikj- ast, sérstaklega gagnvart evr- unni. Sú breyting tengdist vissu- lega ekki Íraksstríðinu. -GG hægt að kaupa og panta bílastæði fyrirfram í gegnum skjáinn. Til að sýna að viðkomandi hafi keypt að- gang að stæðinu sýnir lítill skjár það í sólskyggninu. Leiðsögukerf- ið verður af fullkomnustu gerð og getur meðal annars sýnt umferð- arhnúta og þess háttar. Einnig verður hægt að láta flytja upplýs- ingarnar yfir í lófatölvu eigandans þegar hann er ekki í bílnum. -NG SlMI 0ALSHRAUNI EYRARVEGII SMIÐJUVEGI 555 1019 SlMI SlMI 520 8000 29 483 1800 SKEIFUNNI SÍMI SlMI BlLDSHÖFÐA 1300 68 544 8800 16 577 Dráttarbeisli og kerruhlutir Vatnskassar ehf. Vagnhöfða B * 110 Reykjavík Sími 577 S090 - Fax 577 6095 Eigum tií vatnskassa/bensíntanka og miðstöðvar, ásamt aukamiðstöðvum ætluðum bifreiðum/bátum og vinnuvéium. Einnig intercoolera í vörubíla og vinnuvélar. Tölvuskjár í mælaborð Mondeo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.