Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Page 4
i •.k*: 1 bílar
4
-f
Laugardacur 17. maí 2003
Nýr fjölnotavagn
frá Mitsubishi
Verið er að setja nýjan fjölnota-
vagn frá Mitsubishi á markað í
Japan. Bíllinn hefur fengið nafnið
Grandis en útlit hans svipar nokk-
uð til MMC Colt sem vænta má á
markað á næsta ári en hér er um
meiri fjölnotavagn að ræða. Bíll-
inn er lægri og sportlegri en
helstu keppinautar sínir en mun
þó ekki taka við af MMC Space
Wagon. Hann verður boðinn hér í
Evrópu sem 6 eða 7 sæta en vagn-
inn er 4755 mm langur. Hann er
byggður á sínum eigin undirvagni
og fær sjálfstæða fjöðrun allan
hringinn. Meðal véla sem verða í
boði er alveg ný 2,4 lítra bensínvél
með MIVEC-ventlastýribúnaði.
Þessi vél verður einnig fáanleg i
Outlander með haustinu en hún
skilar um 160 hestöflum. Búast má
einnig við dísilvél í Grandis. Bíll-
inn verður frumsýndur í Evrópu á
bílasýningunni í Frankfurt í haust
en sala á honum hefst næsta vor í
Evrópu. -NG
Corvette verður yfir 400 hestöfl
Myndir náðust af sjöttu kyn-
slóð Chevrolet Corvette við próf-
anir á dögunum, en bíllinn mun
koma á markað seint á næsta ári
í Bandaríkjunum. Billinn er kall-
aður C6 í augnablikinu og verður
líklega frumsýndur í Detroit í
janúar næstkomandi. Hann verð-
ur áfram með 5,7 lítra V8-vélinni
en afl hennar verður aukið í yfir
400 hestöfl. Verður hann annað-
hvort fáanlegur með sex gíra
beinskiptingu eða fimm þrepa
sjálfskiptingu. Hlutar af undir-
vagni bílsins eru þeir sömu og í
hinum nýja Cadillac XLR sportbíl
en Corvette verður mun ódýrari
en Cadillac-sportbíllinn. Hjólahaf-
ið er meira en áður en bíllinn er
samt styttri. Búast má við fleiri
íhlutum úr XLR, eins og
skrikvörninni. -NG
Nýtt sætisáklæði frá
Nissan
Nissan er um það bil að fara að
setja á markað nýtt sœtisáklœði sem
á að vera nokkurs konar leðurlíki elns
og Alcantara. Þetta efni á að vera
mun sterkara og auðveldara að
þrífa. Efnið er þegar komið í sœti
Nissan Teana sem er bíll sem keppir
við Saab 9-5 og Volvo S80 í Japan,
en hér í Evrópu munum við líklega
fyist sjá það í Nissan 350Z og Primera.
Nlssan hefur mikið samstarf vlð
franska bílaframleiðandann Renault
og mun hann hafa mikinn áhuga á
að fá efnið I sœti bíla sinna.
Betra loft í Volvo
Volvo er að hanna loftfriskunarbún-
að í bíla sína sem á að verða bylting
miðað við þann búnað sem fyrir-
finnst í bílum í dag. Búnaðurinn á ekki
aðeins að hreinsa loftið betur heldur
einnig að friska það, jafnvel þegar
bíllinn er ekki í gangi. Það er einnig
sjálfhreinsandi og þarf þess vegna
ekkl sama viðhald og önnur kerfi.
Notuð er svipuð tœkni og í nýjustu
tegundum gasgrima og á kerfið
meðal annars að ráða við níturagnlr
frá dísllbifreiðum. Á tveggja daga
fresti eru síurnar hitaðar í akstri og
loftinu siðan hleypt saman við út-
blásturinn frá vélinni. í hvarfakútum
þéttast síðan mengandi efni í vatn,
nítrógen og koltvíoxíð. Kerfið þarf
nýja innréttingu svo að ekki er hœgt
að búast við því fyrr en í einhverri
nýrri kynslóð Volvobíla á nœstu
árum.
Citroén C2
kemur á markað í haust
Nýr smábíll frá Citroen er vænt-
anlegur á markaö í vetur, en þaö er
þriggja dyra C2, ætlaður fyrir
fjóra. Honum er ætlaö að flytja far-
þega sína á þægilegan hátt og bjóða
upp á nýjungar í aðgengi smábíla,
meðal annars í farangursrými. Aft-
ursætið er tvískipt og er hægt að
renna hvorum hluta fyrir sig á
sleða. Á einfaldan hátt má fella þau
niðm- til að auka farangursrými.
Afturhleri opnast í tveimur hlut-
um á þann hátt að hægt er að opna
það jafnvel við þrengstu aðstæður.
Hægt er að opna gluggann með
fjarstýringu sem auðveldar hleðslu
þegar bílnum hefur verið lagt í
þröngt stæði.
Vel búinn miðað við stærð
Þrjár vélar verða í boði í C2,
tvær bensínvélar og 1,4 lítra dísil-
vél. Bensínvélarnar eru 1,1 lítra, 61
hestafl, og 1,4 sem skilar 75 hestöfl-
um. Hægt verður að fá bílinn með
gírkassanum SensoDrive sem ný-
lega var kynntur í C3. Mikið af
staðalbúnaði sem venjulega er að-
eins í stærri bílum verður í boði í
C2. Má þar til dæmis nefna rafað-
stoð á stýri, loftræstingu,
bakkvörn og skriðstilli. Einnig
verður öryggisbúnaður í lagi og
verða ESP-skrikvörn, hjálparað-
stoð á bremsur og sex öryggispúð-
ar meðal búnaðar. Bfllinn er
byggður á sama undirvagni og C3
en er samt minni um sig, en hjóla-
haf er aðeins 2310 mm. Búast má
við VTR-útgáfu þar sem C2 er lík-
lega grunnurinn að næsta rallbíl
Citroén sem taka mun við af Xs-
ara. Sá bíll fær 1,6 lítra bensínvél
sem hefur 110 hross í vélarrýminu.
C2 mun keppa við bíla eins og Fiat
Gingo og Peugeot 107 sem báðir
Innréttingin er nokkuð sérstök í C2 og er aðeins fyrir fjóra sem geta þá í
staðinn látið fara vel um sig.
eru væntanlegir snemma á næsta sölustjóra Citroén, er C2 væntan-
ári. Að sögn Þórðar Jónssonar, legur hingað um áramót. -NG
Ný Opel Astra á markað 2004
Opel-bílar eru á mikilli siglingu
á bflamarkaðnum, framleiðendur
eru að koma með bíla á markað-
inn sem vekja mikla eftirtekt, en
áður fyrr voru þeir kannski frem-
ur þekktir fyrir að vera lítt spenn-
andi ferðabílar, þar sem hag-
kvæmni var fremur látin ráða en
fagurkerasjónarmið við hönnun.
Opel hefur haft að leiöarljósi að
fötin skapi manninn, eða að bíll-
inn bæti ímynd eigandans. Það
nýjasta er að nú hafa hönnuðirn-
ir hjá Opel haft á teikniboröinu
nýja gerð af Opel Astra, sem er
bæði stílhreinn og hentar vel á
hraðbrautum. Þaö síðastnefnda
skiptir að vísu ekki máli hérlend-
is, en það er gott að vita af því!
Þessi nýja Astra hefur til þessa
verið algjört hemaðarleyndarmál,
en vökul augu ljósmyndara fundu
einn Astra-bfl nýlega á akstri í
Norður-Svíþjóð, en þar var verið
að reynsluaka bílnum við norð-
lægar aðstæður, frost óg snjó.
Eitt af því sem vekur einna
mesta athygli við þessa nýju út-
færslu er hin flata framrúða sem
er eins og framhald af flatri vélar-
hlífinni og gerir það að verkum
að vindmótstaða minnkar til
muna. Hjólabil eykst og farþega-
rýmið verður rýmra en á núver-
andi gerð. Auk þessa eru aðalljós
bílsins mjög stór og áberandi og
grillið breytir nokkuð um svip.
Þessar breytingar eiga að gera bíl-
inn sparsamari í akstri, þannig
var lagt upp með það þegar hönn-
uðir hófust handa, en vélin verð-
ur svipuð nema að ýmsar nýjung-
ar, sem hafa séð dagsins ljós und-
anfarin misseri, verða nýttar við
vélina.
Astran verður kynnt á Frank-
furt-bílasýningunni í haust um
leið og Volkswagen kynnir nýjan
Golf. -GG
H