Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Side 6
Bílar Reynsluakstur Gcir Guðsteinsson w 3 :0 '-5 ■OÍD CC u T3 c >. S > Q Ferðalagið verður algjör draumur Kostir: Hliðarspeglar, miðstöð, vélar- og veghljóð, innfelldir barnastólar, snúanleg framsœti Gallar: Aðalljósarofi, klukka, baksýnisspegill Vaxandi fjölda svokaUaðra fjölskyldubíla má nú sjá á bílamarkaðnum hérlendis. Þetta eru sjö sæta bílar sem flestir eru með miklum möguleik- um á breytingum á sætum, jafnvel snúningi á þeim um 180°, gott rými og möguleikum á flutn- ingi á miklum farangri ef því er að skipta. Hægt er að fella miðsætin saman þannig að þau mynda eins konar borð í miðjum bílnum og er þá setið í öftustu röð. Ef framsætum er síðan snúið 180°, sem er búnaður í dýrari tegimdum, myndast frá- bært pláss til þess að nærast, t.d. á ferðalögum ,eða einfaldlega halda fund þar sem nýta þarf pappíra og fleira. Borðið, sem miðjuröð stólanna, myndar skapar þá ásættanlegt borð. Einnig er hægt að fella bak öftustu sætaraðar niður, þá myndast þar borð, eða að fella sætin alveg fram að miðsætarööinni og þá myndast alveg frábært geymslurými í Galaxy-bilnum. Sætin eru þægileg, án alls íburðar, en armpúðar góðir, frábært að geta stillt þá. Þessi lýsing á við Ford Galaxy sem nú er kynnt- ur hjá Brimborg og er sérlega eigulegur bíll, ekki síst fyrir ferðafíkla sem vilja hafa nánast ailt sem nöfnum tjáir að nefna með sér í ferðalagið. Bíll- inn sinnir þar með þörfum allrar fjölskyldunnar í mjög víðtækri merkingu þess orðs. Þannig er bíll- inn búinn innfelldum barnabílstólum í bak tveggja baksæta sem nýtist fyrir böm á aldrinum 9 mánaða til 6 ára. Annað sætanna er þó auka- búnaður og þegar þeir yngstu sitja þar er setunni kippt upp með einu handtaki og sérstökum höfuð- púöa smellt ofan á bakið.Það er mjög heppilegt að hafa bílstóla innfellda í sætisbakið, ekki síst þeg- ar fullorðnir fylla bílinn. Þá þarf ekki að taka barnastól úr og setja í farangursgeymslu. Klukka í fjarlægð Bílnum sem var reynsluekið er Ford Galaxy Trend sem er m.a. með upphitanlega framrúðu, lesljós fyrir farþega í 2. og 3. röð. Allgott rými er milli bílstjóra og farþega í framsæti og eins er mjög gott stillanlegt pláss fyrir fætur bílstjórans þar sem bílstjórasætið er hæðarstillanlegt auk mjóbaksstillingar og það er auk þess búið stillan- legum hita. Stýrið er fjórarma, og í því eru m.a. fjarstýringar fyrir útvarp og miðstöð sem er Q Gott farangursrými sem eykst ef stólar eru felldir frain að miðsætaröðinni. Fundaraðstaða eða t.d. fin aðstaða til þess að borða nesti þegar ekki viðrar nógu vel í ís- lenskri náttúru. □ vélin er 115 hestafla dísilvél. Nægilega öfl- ug fyrir þennan bíl. □ Stílhreint mælaborð án nokkurs sérstaks aukabúnaðar. Q Innbyggður barnastóll er frábær viðbót. Ilægt er að snúa framsæti aftur eins og sést á niyndinni og þjónusta t.d. þá yngstu án þess að það krefjist þess að staðar sé numið. FORD GALAXY Vél: 1,9 lítra díselvél Rúmtak: 1896 rúmsentímetrar Ventlar: 16 Þjöppun: 11,0:1 Gírkassi: Sjálfskiptur, fimm þrepa UNDIRVAGN: Fjöðrun framan:________MacPherson, qasdemparar Fjöðrun aftan: MacPherson gasdemparar, þríarma, dempari oq qormur sambyqqður Bremsur: Diskar/diskar, ABS/EBD Dekkjastaerð: 195/60 R16 YTRI TOLUR: Lengd/breidd/haeð: 4641/1810/1759 mm Hjólahaf/veghaeð: 2835/162 mm Beygjuradíus: 11,1 metrar INNRI TÖLUR: Farþegar m. ökumanni: 7 Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 7/7 Farangursrými: 330 til 2600 lítrar HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 7,4 lítrar Eldsneytisgeymir: 70 lítrar Ábyrgð/ryðvörn: 6 ár Grunnverð: 2.495.000 kr. Verð reynsluakstursbíls: 3.350.000 kr. Umboð: Brimborq Staðalbúnaður: Fjarstýrðar samlæsingar; ABS- hemlalæsivörn með EBD hemlajöfnun; 4 öryggis- púðar, stillanlegur hnakkapúðar á öllum sætum; geymsluvasar aftan á sætum; hæðarstillanlegt bíl- stjórasæti; þvottakerfi á aðalljósum; lesljós í 2. og 3. sætaröð; framstólar með 180° snúning; innbyggt SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 115/4000 Snúningsvægi/sn.: 310 NM/1900 Hröðun 0-100 km: 15,1 sek. Hámarkshraði: 178 km/klst. Eigin þyngd: 1650 kq Heildarþyngd: 2475 kq

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.