Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 9
8
Laugardagur 17. maí 2003
Bílar
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
O
DAEWOO KALOS SE
Vél: 1,4 lítra bensínvél
Rúmtak: 1399 rúmsentlmetrar
Ventlar: 8
Þjöppun: 9,5:1
Glrkassi: 5 qíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan:__________________MacPherson
Fjöðrun aftan:______________________Gormabiti
Bremsur:___________Loftkældir diskar/skálar, ABS
Dekkjastærð:_______________________155/80 R13
YTRI TOLUR:
Lengd/breidd/haeð:_______3880/1670/1495 mm
Hjólahaf/veghæð:______________2480/180 mm
Beygjuradíus:____________________9,8 metrar
INNRI TOLUR:
Farþegar m. ökumanni:_________________5
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða:_______4/4
Farangursrými:__________________175 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 7,5 lítrar
Eldsneytisqeymir: 45 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn: 3/6 ár
Grunnverð: 1.189.000 kr.
Umboð: Bilabúð Benna
Staðalbúnaður: Rafdrifnar framrúður og hægri hliðarspegill, hæðarstilling á ökumannssæti, 4 öryggispúðar, samlæsingar, ræsivörn, útvarp og segulband, glasabakki, snúningshraðamælir, rúðuþurrka á afturhlera.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 82/5600
Snúningsvægi/sn.: 125 Nm/3000
Hröðun 0-100 km: 13,3 sek.
Hámarkshraði: 170 km/klst.
Eigin þyngd: 995 kq
Heildarþyngd: 1490 kq
Rásfastur og hljóðlátur smábíll
Kostir: Hljóðlátur, verð
Gallar: Búnaður, stýri
Nýjasti bíUinn í Bílabúð Benna heitir Kalos og
kemur frá hinum endurreista framleiðanda Da-
ewoo sem risið hefur eins og fuglinn Fönix upp úr
öskustó gjaldþrots. Það var bílarisinn GM sem rétti
Daewoo hjálparhönd í fyrra og síðan hefur hvert
módelið af öðru birst, bæði framleiðslu- og tilrauna-
bílar. Kalos er dæmi um það en nafnið stendur fyr-
ir fegurð í fomgrísku. Fegurð er reyndar afstætt
hugtak og sitt sýnist hverjum en bíllinn er nokkuð
sportlegur af smábíl að vera í útliti, að mati undir-
ritaðs.
Einfaldur að innan
Að því sögðu skulum við litast aðeins um innan
dyra, en innanrými smábíla er það sem máli skipt-
ir í þessum flokki bíla. Það sem maður tekur fyrst
eftir er einfaldleikinn, næstum fátæklegt mæla-
borð. Ekki er þar með sagt aö hann sé neitt ljótur
að innan - minna er oft meira í hönnun og allt er á
sínum rétta stað. Þaö eina sem hægt er að kvarta
yfir í hönnun hans að innan er að stýri er frekar
nálægt mælaborði og aðeins með hallastillingu
þannig að þegar ökumaður er búinn að koma sér
vel fyrir í sætinu, sérstaklega ef hann er meðalmað-
ur eða stærri, verður dálítið langt að teygja sig í
það. Sætin eru nokkuð þægileg og ekki of lítil eins
og þau verða stundum í smábílum, og það er hæð-
arstilling á ökumanssæti. Rými í bílnum er nokkuð
gott. Fótarými aftur í er þokkalegt og höfuðrými
einnig þótt það setji engin ný viðmið í þessum
flokki. Helst mætti kvarta yfir plássleysi í skotti en
á móti kemur að það er aðgengilegt og alltaf hægt
að fella niður sæti, 40-60% eða jafnvel bæði. Örygg-
Laugardagur 17. maí 2003
9
1X0 Bílar
isatriði eru flest i góðu lagi. Fjórir
öryggispúðar eru staðalbúnaður
og það er þriggja punkta belti í öll-
um sætum, en þó vantar þriðja
höfuðpúðann í aftursæti.
Hljóðlátur í akstri
í akstri kemur bíllinn nokkuð á
óvart fyrir aðallega tvö atriði:
hversu hljóðlátur hann er og rás-
festu, en bíllinn er einungis á hefð-
bundinni gormafjöðrun sem er á
tíðum seinvirk. Stýri er fullseint
að taka við sér fyrir smábil en
hann liggur vel i gegnum beygj-
urnar og hendist lítið til. Á möl-
inni er hann stöðugri en búast
mátti við af bíl í þessum stærðar-
flokki. Vél og gírkassi eru kannski
ekki neitt til að hrópa húrra fyrir
en einfaldleiki getur verið líka ver-
ið kostur. Vélin er átta ventla og
frekar gamaldags en hefur sæmi-
legt upptak og er hljóðlát. Hennar
helsti galli er eyðsla sem er í
hærri kantinum fyrir smábíl. 16
ventla vél myndi líklega gera sig
betur í þessu tilliti. Sú vél er 94
hestöfl og með henni er hægt að fá
bílinn með sjálfskiptingu. Gírkassi
er frekar stífur í vinnslu og bakk-
gír er frekar hávær.
Á besta verðinu?
Helsti kostur Kalos er þó verðið,
en 1.189.000 kr. fyrir nýjan flmm
dyra bíl í þessum flokki gerist ekki
betra. Hann er kannski ekki eins
vel búinn og keppinautamir en
ekki vilja heldur allir þann búnað
sem er farinn að vera í boði í dag,
jafnvel í minnstu 'flokkunum.
Hans helsti keppinautur í verði er
líklega nýr Hyundai Getz sem
kostar Funm dyra, með 1,3 lítra
vélinni, 1.250.000 kr. Aðrir keppi-
nautar geta verið Toyota Yaris á
1.399.000 kr. í sömu stærð og Opel
Corsa með 1,2 lítra vél kostar
1.490.000 kr. Eini bíllinn sem er
ódýrari er Kia Pride, sem kostar
aðeins 799.000 kr., en þar er um
mjög gamalt módel að ræða. -NG
EjJ Farangursrými er aðgengilegt
en mætti vera aðeins stærra.
(3 Átta ventla 1,3 lítra vélin er
einföld að uppbyggingu og hefur
sæmilegt afl á snúningi.
Q Pláss aftur í er þokkalegt en
þriðja höfuðpúðann vantar.
ÍJ Stefnuljósin undirstrika
framljósin sem er nokkuð
óvenjulegt.
Q Mælaborðið er frekar snautt
að búnaði en um leið einfalt og
snoturt.