Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 13
Laugardagur 17. MAÍ 2003
13
> ti’l BÍLAR
BÍLAVARAH LUTIR
Viltu vernda bílskúrsgólfið?
Framleiðum renninga úr gúmmíi á bílskúrsgólf: Hlífa flísum og
lökkuðum gólfum við nöglum, tjöru og öðrum óhreinindum.
ww.gummimotun.i
Motturnar okkar eru frábærar í sendibíla.
Framleiðum einnig mottur í hesta- og vélsleðakerrur. Erum líka
með aurhlífar fyrir allar gerðir bifreiða, merktar og ómerktar.
Erum með mottur fyrir vinnustaði - mjög góðar fyrir fólk í
stöðuvinnu.
OSvarahlutir
567 6744 - 898 2128
nuioco
BÍLAVARAHLUTIR
587 5700 - 898 4192
Bíldshöfða 14,
110 Reykjavík
Gabríel-höggdeyfar, Asco-kúplingssett, Tridon-
stýrisendar, spindilkúlur, drifliðir, öxulhosur
o.fl. Ökuljós i flestar gerðir. Sætaáklæði.
Við getum útvegað boddíhluti fflestar gerðir,
m.a. í VW, Opel, BMW, Peugeot, Renault, Ford,
Fiat, Alfa Romeo, Mercedes Benz, Toyota,
Mitsubishi, Nissan, KIA o.fl. Einnig notaðar
vélar, gfrkassa og sjálfskiptingar f margar
gerðir japanskra og evrópskra bíla.
Opnun fyrstu vetnisstöövarinn-
ar á íslandi 24. apríl sl., sem
stendur viö Vesturlandsveg, hefur
vakiö umtalsverða athygli, bæöi
hérlendis og erlendis. Stöðin er í
eigu Skeljungs og íslenskrar
NýOrku og er hluti af svokölluðu
ECTOS strætisvagnaverkefni sem
íslensk NýOrka stendur aö og er
styrkt af Evrópusambandinu til
aö rannsaka kosti vetnis sem vist-
væns orkugjafa framtíðarinnar.
Þær María Hildur Maack hjá ís-
lenskri NÝOrku og Margrét Guð-
mundsdóttir hjá Skeljungi voru
inntar svara viö því hvort þessi
vetnisstöð væri fyrir almenning
og þar með gæti hver sem er kom-
ið og keypt þar vetni eða hvort
stöðin væri aðeins fyrir 3 strætis-
vagna sem teknir verða í notkun í
ágústmánuði nk.
Þær María og Margrét segja aö
vetnisstöðin sé byggð sem hluti af
verkefni þar sem þátttökuaðilarn-
ir eru Shell Hydrogen, Norsk
Hydro, DaimlerChrysler og
Vistorka. Verkefnið sé stutt af
Evrópusambandinu. Tilgangur-
inn sé sá aö hún þjóni þeim 3
strætisvögnum sem eru hluti af
verkefninu og munu aka á götum
Reykjavíkur frá september nk.
Stöðin sé hins vegar byggö á
venjulegri bensínstöð og hafi öll
tilskilin leyfi til aö þjóna almenn-
ingi. Það sem þó skipti máli
sé að þeir sem hyggist fjárfesta
í vetnisfarartæki þurfi að vera ör-
uggir um að átöppunartæknin
henti því farartæki sem sé í sigti.
Til dæmis geti þessi stöð ekki af-
greitt fljótandi vetni.
- Hver er gjaldskráin, hvað kost-
ar hvert kg?
„Þar sem þetta er tilraunaverk-
efni til að byrja með og ekki aðrir
viðskiptavinir en Strætó þá er of
snemmt að setja upp gjaldskrá."
- Ef verð hefur verió ákveöiö,
hvernig er þaö reiknaö miöað viö
áþekkt orkumagn í bensíni eöa
dílsilolíu. Hvert er framleiöslu-
veröið hérlendis?
„Eins og sagt var hefur verðið
ekki verið reiknað út enn. Sá
kostnaður sem liggur í verkefn-
inu og byggingu stöðvarinnar er
mjög hár og óraunhæft að láta þá
takmörkuðu framleiðslu sem
verður í stöðinni eins og hún er í
dag vera mælikvarða á verð. Þeg-
ar litið er til lengri tíma og að
eðlilegur „infra struktur" mynd-
ast mun verð á rafmagni verða
ráðandi sem kostnaðareining í
verði vetnisins. Sá infrastrúktúr
gæti í eðli sínu verið ódýrari en
það sem við þekkjum í dag þar
sem allt of margar bensínstöðvar
eru t.d. á höfuðborgarsvæðinu.
í stað þess að ræða um kíló af
vetni og lítra af bensíni er miklu
nær að bera saman þjónustuein-
ingarnar. Þú veist hve langt þú
kemst á einum lítra bensíns. Segj-
um sem svo aö það vetni sem
nægir til að komast sömu vega-
lengd, sem er örfá grömm, eink-
um ef þú notar rafalatæknina sem
er 100% sparneytnari en
brennsluhólfavél og skilar miklu
meiri orku út til hjólanna og
miklu minni hita út í andrúms-
loftið, verði verðlagt í samræmi
við það. Þannig mun samanburð-
urinn að öllum líkindum verða
gerður. Framleiðsluverðið fer
nær því algjörlega eftir því raf-
magnsverði sem okkur býðst.
Þetta er svipað og með aðra kaup-
endur i þjóðfélaginu. Þeir greiða
mismunandi hátt verð eftir því
hve mikið þeir kaupa. Ef t.d. verð-
ið er á stóriðjuverði þá er verðið
þeim mun lægra.“
- Ef vetniö er eöa veröur selt und-
irframleiöslukostnaöi, hver greiðir
þá kostnaðinn og hversu lengi?
„Ef sala verður til einkaaðila á
þessu tímabili mun það verða
ákvörðun eigenda stöðvarinnar.
Skeljungur mun bera rekstrartap
ef um slíkt verður að ræða.“
- Hvaö kostar vetnisstööin og
hvaö áœtlar Skeljungur aö hún
verói lengi aö borga sig - hversu
lengi aö fá upp í byggingarkostn-
aðinn?
„Stöðin er hluti af vetnisverk-
efhinu og er ekki talið að hún
muni borga sig, enda er um til-
raunaverkefni að ræða þar sem
allir þátttakendur eru að taka á
sig ákveðinn þróunarkostnað.“
- Hvað um sprengihœttu í nœsta
nágrenni? Hvaö gerist ef skotiö er
meö sæmilega kraftmiklum riffli á
stööina? Springur allt i loft upp?
„Kútarnir í stöðinni eru undir
miklum þrýstingi. Hins vegar eru
þeir gerðir þannig úr stáli og kol-
trefjum að þeir rofna, svipað og
berggrunnurinn í jarðskjáiftum,
og vetnið lekur þá út um raufar og
dreifist afar hratt út í andrúms-
loftið því það er léttasta frumefnið
á jörðinni. Það lekur ekki niður,
það festist ekki í fótum, það safn-
ast ekki saman nema í lokuðu
rými; þess vegna er t.d. ekki sett
þak á stöðina. Auðvitað er vetni
eldfunt og þess vegna er það nátt-
úrlega notað sem eldsneyti eða
orkuberi. Vetnið er þó ekki sjálfl-
kviknandi eins og bensín í sólar-
ljósi. Því þyrfti að kveikja í því
sérstaklega. Tankarnir eru prófað-
ir fyrir 700 til 1200 bara þrýsting
en á þessari stöð verður þrýsting-
urinn um 440 bör í geymslutönk-
unum. Allar varúðarráðstafanir
eru innbyggðar í tæknina - ann-
ars hefði hún ekki verið vottuð af
vinnu- og öryggiseftirliti í Þýska-
landi og Noregi.“
- Er von á fleiri vetnisbílum til
landsins en þessum 3 strœtisvögn-
um?
„Ekki okkur vitanlega, en við
erum auðvitað til viðræðu ef ein-
hver hefur áhuga á að fjárfesta í
slíkum bíl,“ segja þær María Hild-
ur Maack og Margrét Guðmunds-
dóttir. -GG
ÍGÖ MMÍMÓTUN
Kaldsbakgötu 8 - 600 Akureyri
Sími 453 6110 - Fax 453 6121
Opið frá 8-16
Netfang:
gummimotun@gummimotun.is
Jeppi i besta skilningi þess orðs.
SUZUKI BILAR HF
Grand Vitara 3ja dyra verð fríi 2.145.000
Grand Vitara 5 dyra verd frá 2.435.000
Grand Vitara XL-7 verö frá 3.090.000
&SUZUKI
bMlunni l/. Smu 568 51 UQ,
• www.su2ukibilar.is
SMARETT/NGAR
EINFÖLO OG FUÓTIEG RÉTTINGAÞJÓNUSTA
\
Er bíllinn dældaður?
Fjariægjum dældir - lagfærum á staðnum
• Lægri vidgerðarkostnaður
• Engín fyllíefni
• Engin iökkun
• Gerum föst verótilboö
Þú hringir - við komum 898 4644 • 895 4644
Hverfandí sprengihætta af vetnísstöðinni:
Vetnið lekur hratt út í and-
rúmsloftið rofni tankarnir