Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Page 25
LAUGARDAGUR 5. JÚU2003 DV HELGARBLAÐ 25
DV-myndir E: Ól.
Þórður veltir humarhala upp
úr muldum chilihnetum. Hann
gætir þess að hylja alveg
humarhalann með mylsnunni
en hún gefur skarpt og
skemmtilegt bragð sem
passar vel við humarinn.
Humarinn er steiktur í heitri
olíu í um hálfa mínútur á
hvorri hlið.Gæta verður þess
að hafa pönnuna ekki of heita
þvi þá er hætt við að
hneturnar brenni.
Humarhalarnir eru lagðir hvor
á annan og festir með pinna,
gjarnan með íslensku
klettasalati á milli.Froðunni er
sprautað heitri úr
rjómasprautunni og
mangósalsað sett (snyrtilegan
hrauk. Þetta er algjört lostæti.
Chardonnay og Zinfandel
frá Ernest & Julio Gallo
- er val Ágústs Guðmundssonar hjá víndeild Globuss
Humaruppskriftin hér til hliðar
fær munnvatnið sjálfsagt til að
renna í stríðum straumum hjá
flestum lesendum. En það gerir
vínið frá bandaríska vínrisanum
Ernest & Julio Gallo ekki síður.
Ný lína vína frá Ernest & Julio Gailo
heitir Sierra Valley, kennd við sam-
nefndan fjallgarð sem umlykur vín-
ekrurnar og verndar þær íyrir óveðri. í
þessari nýju línu Ernest & Julio Gallo
eru rauðvínin Zinfandel, Cabernet
Sauvignon, Merlot og Ruby Cabernet.
Hvítvínin eru hins vegar unnin úr
Chardonnay, Colombard og Sauvignon
Bianc. Þá er einnig að finna í þessari
línu létt og skemmtiieg rósavín, unnin
úr Grenache, og hins vegar White Zin-
fandel. Við framleiðslu þessara vína er
stuðst við gamlar og grónar hefðir í vín-
gerð en um leið er notuð nýjasta og
besta tækni sem völ er á, en víngarðar
Gallo-fýrirtækisins eru einmitt með
þeim tæknivæddustu sem til eru.
Ágúst Guðmundsson hjá víndeild
Globuss mælir með tveimur vínum
með humarréttinum, annars vegar
Sierra Valley Chardonnay og hins vegar
Sierra Valley Zinfandel en þar er á ferð
léttur og ferskur Zinfandel sem er tilval-
inn íyrir þá sem vilja prófa rauðvín með
humrinum. Því ekki að prófa eitthvað
nýtt?
Kjörið vín með grilluðu
nauta- og lambakjöti en
það er einnig tilvalið með
bragðmeiri pastaréttum
þarsem hvítlaukur, ólíf-
ur, sólþurrkaðir tómatar
og annað bragðmikið
hráefni kemur við sögu.
Sierra Valley Chardonnay 2001 hefúr
tæran og fallegan strágulan lit og greina
má ferska ávaxtatóna á borð við græn
epli og perur í bland við mjúka sítrusá-
vexti. Vínið hefur nýjan en mjög fínleg-
an eikarkeim og er í mjög góðu jafn-
vægi. Sierra Valley Chardonnay ætti að
falla vel að flestu fersku sjávarfangi,
eins og rauðsprettu, karfa, rjómalöguð-
um pastaréttum og léttari kjúklinga-
réttum. Geymslutími vínsins er 12-18
mánuðir. Sierra Valley Chardonnay
fæst í verslunum ÁTVR og kostar um
990 krónur.
Sierra Valley Zinfandel 2001 hefur
nokkuð djúpan ryðrauðan lit. í nefi má
greina dökk ber, skógarber og sólber en
í munni má greina mildan kryddaðan
ávöxt og nokkuð þétta vanilluríka eik.
Sierra Valley Zinfandel er kjörið vín
með grilluðu nauta- og lambakjöti en
það er einnig tilvalið með bragðmeiri
pastaréttum þar sem hvítlaukur, ólífur,
sólþurrkaðir tómatar og annað bragð-
mikið hráefni kemur við sögu. Sierra
Valley Zinfandel er best til drykkju á
næstu 12 mánuðum en flaskan kostar
um 990 krónur í ÁTVR.