Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Síða 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003
Litlu mátti muna að illa færi
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRÍTSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRÍTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar:
auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Akureyrl: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
SLÖKKVIUÐ: Eldur kom upp á
veitingastaðnum Hróa hetti við
Hringbraut rétt fyrir klukkan níu
í gærkvöld. Að sögn slökkviliðs-
ins kviknaði í út frá grilli í eld-
húsinu og var ástandið mjög
tæpt um tíma. Litlu mátti muna
að illa færi en starfsmenn veit-
ingastaðarins brugðust þó rétt
við og voru búnir að slökkvað
mestan eldinn þegar slökkvilið-
ið kom á staðinn. Vel gekk að
ráða niðurlögum eldsins en
töluverðar skemmdir urðu á
staðnum vegna mikils reyks.
Þá var slökkviliðið kallað út í El-
liðaárdalinn í gær þar sem eldur
hafði komið upp í bílflaki sem
stóð upp við hús. Slökkviliðinu
tókst að slökkva eldinn áður en
illa fór en glóð hafði komist í
húsið.
Ók kantanna á milli
ÖLVUNARAKSTUR: Lögregl-
unni á (safirði barst í gærtil-
kynning frá vegfarendum
sem kvörtuðu undan því að
ölvaður ökumaður æki kant-
anna á milli í Súðavíkurhlíð
sem er á milli ísafjarðar og
Súðavíkur. Lögreglan ók á
móti honum og beygði hann
þá inn á flugvöllinn á (safirði.
Lögreglan náði þó að stöðva
hann og var tekin af honum
blóðprufa sem er nú í rann-
sókn. Að sögn eins sjónar-
votts var mikil mildi að ekki
varð stórslys þar sem maður-
inn hafði í tvígang næstum
því ekið út af veginum og
niður í fjöruna.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. DV greiðir ekki
viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir
myndbirtingar af þeim.
EFNI BLAÐSINS
Gósentíð innbrotsþjófa
- frétt bls. 4
Samkeppnisyfirvöld á
fund ríkislögreglustjóra
- frétt bls. 6
Á (slendingaslóðum í
Vesturheimi
- Ferðir bls. 8
Loch Ness skrímslið
finnst ekki
-frétt bls. 10
Lýsir eftir gönguvinum
-Tilvera bls. 16-17
Daninn banabiti Vals
- DV Sport bls. 30-31
DV Bingó
Nú spilum við alit
\ spjaldið og ætti
) ekkiaðlíðaá
lönguáðuren
einhverfær bingó.
Verðlaun fyrir bingó á
allt spjaldið eru afar glæsileg,
vikuferð til Portúgals með Terra
Nova Sól. Athugið að samhliða
einstökum röðum hefur allt
spjaldið verið spilað í sumar
þannig að tölurnar sem dregnar
hafa verið út í bingóleik DV til
þessa gilda á allt spjaldið.
Sextánda talan sem kemur upp
er 69. Þeir sem fá bingó láti vita i
síma 550 5000 innan þriggja
daga. Ef fleiri en einn fá bingó er
dregið úr nöfnum þeirra.
Robertson lávarður fjallar um varnarmálin í kveðjuheimsókn á íslandi:
Ræddi mál íslands við Bush
Metsölubækur
um víöa veröld
JEAN
AUEL
Bækur Jean M. Auel
um stúlkuna Aylu
hafa farið sigurför
um heiminn. Nú eru
þrjár þeirra
fáanlegar í kilju.
Ekki láta þessar
hrífandi
metsölubækur
framhjá þér fara!
VAKA-HELGAFELL
SEGÐU SlS: George Robertson var hress við komuna til landsins í gærmorgun. Þegar Ijós-
myndari DV kom aðvifandi ákvað lávarðurinn að svara í sömu mynt, greip myndavél sína
og tók mynd af Ijósmyndaranum við mikla kátínu Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra. DV-mynd G VA
Á ÞINGVÖLLUM: Davíð Oddsson, George Robertson og Halldór Ásgrímsson ræddu við
fréttamenn eftir fund sinn í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum í gær. DV-myndÞÖK
Framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, George Ro-
bertson lávarður, sagði eftir
fund með Davíð Oddssyni og
Halldóri Ásgrímssyni á Þing-
völlum í gær að hann hefði rætt
við George Bush Bandaríkjafor-
seta á skrifstofu forsetans um
stöðu varnarsamnings íslands
og Bandaríkjanna.
Robertson vildi ekki gefa nánar
upp hvað honum og Bandaríkjafor-
seta hefði farið á milli en eins og
fram kom í frétt Washington Post
íyrir viku hafa bandarískir embætt-
ismenn sagt að Robertson hafi
fengið Bandaríkjamenn ofan af því
að flytja herþotumar af landi brott í
júní eins og til stóð. Hann vildi hins
vegar meina að fullur vilji væri hjá
Bandaríkjaforseta til að leiða málið
til lykta á farsælan hátt.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var eftir fund Robertsons og
ráðherranna, steig lávarðurinn var-
Robertson sagöi að
innan NATO væri fylgst
vel með málinu þar sem
ísland væri mikilvægur
aðili að bandalaginu.
Þjóðirnar tværyrðu hins
vegar að útkljá
viðræður.
lega til jarðar þegar hann var
spurður út í viðræður fslands og
Bandaríkjanna um framtíð varnar-
samningsins. Hann sagðist ekki
hafa persónulega skoðun á málinu
því að hann kæmi fram fyrir hönd
Atlantshafsbandalagsins en hann
sagði að innan NATO væri fylgst vel
með málinu þar sem ísland væri
mikilvægur aðili að bandalaginu.
Þjóðirnar tvær yrðu hins vegar að
útkljá viðræður um tvíhliða samn-
ing sinn áður en NATO kæmi að
málinu.
Ekki beðinn um hjálp
Davíð Oddsson sagði jafnframt í
gær að ráðherrarnir hefðu ekki
beðið Robertson að beita sér sér-
staklega íyrir málstað íslendinga í
viðræðunum um varnarsamning-
inn, en Robertson flaug til New
York eftir heimsókn sína til íslands.
Robertson sagðist ætla að ræða við
bandaríska embættismenn um
málið.
Robertson minntist á starf ís-
lendinga innan NATO og sagði það
vera merki um að lítil þjóð gæti lagt
sitt af mörkum f heiminum. Sér-
staklega sagði hann að íslendingar
ættu að vera stoltir af starfi sínu í
Pristina, höfuðborg Kosovo, þar
sem þeir sinna flugumferðarstjórn.
Þetta er síðasta heimsókn Robert-
sons sem framkvæmdastjóri NATO
til íslands, en hann lætur af því
starfi f vetur. kja@dvJs
NATO REIÐUBÚIÐ TIL AÐSTOÐAR: Fram kom á fundi George Robertsons, framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalagsins, á fundi með Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni á
Þingvöllum í gær að bandalagið væri reiðubúið til aðstoðar en Islendingar og Bandaríkja-
menn yrðu að útkljá sín mál vegna varna Islands. Robertson sagði að fylgst yrði með
hvort bandalagið gæti á einhverjum tímapunkti lagt sitt af mörkum. DV-mynd ÞÖK