Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 6
6 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLl2003 Olvun og reiðhjólaþjófnaðir LÖGREGLAN: Mikið var að gera hjá lögreglunni í Hafnarfirði um helgina. Mikii ölvun var í bæn- um og hafði lögreglan í nógu að snúast við að stilla til friðar í samkvæmum. Að sögn lögregl- unnar var aðallega um að ræða samkvæmi í heimahúsum og áttu bæði ungmenni og full- orðnir hlut að málum. Þá voru tveir erlendir sjómenn hand- teknir í Hafnarfirði aðfaranótt laugardags en þeir voru grun- aðir um þjófnað á reiðhjólum. Við yfirheyrslur viðurkenndu þeir að hafa stolið tveimur hjól- um.Talsvert hefur borið á reið- hjólaþjófnuðum í Hafnarfirði að undanförnu og vill lögreglan benda reiðhjólaeigendum á að gæta hjóla sinna og helst að taka þau inn yfir nóttina. Stal brúðkaupsmyndunum ÞJÓFNAÐUR: Fram kemur í dagbók lögreglunnar að brúðhjón sem héldu brúð- kaupsveislu á hóteli hér í borg á laugardag urðu fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að óboðinn gestur laumaði sér í veisluna. Þrátt fyrir að vera ítrekað vísað frá náði gesturinn að stela farsíma brúðgumans og síðar kom í Ijós að hann hafði einnig tek- ið myndavél og myndbands- upptökutæki úrveislunni. Þessi tæki höfðu að geyma allt myndefni úr brúðkaupinu og var því nýbökuðu hjónun- um mikið í mun að endur- heimta tækin. Eftir mikla leit á hótelinu fannst þýfið og minningunum var bjargað. Saksóknari fer með samskipti við stofnunina FUNDUR: Georg Ólafsson, Haraldur Johannessen, Ásgeir Einarsson og Jón H.B. Snorrason við upphaf fundar ríkislögreglustjóra og Sam- keppnisstofnunar í gær. DV-mynd ÞÖK Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri og Jón H.B. Snorra- son, yfirmaður efnahagsbrota- deildar embættisins, funduðu í gær með Georg Ólafssyni, for- stjóra Samkeppnisstofnunnar, og Ásgeiri Einarssyni, lögfræð- ingi stofnunarinnar, um með- ferð Samkeppnisstofnunar á málefnum sem varða meint samráð olíufélaganna. Á fundinum var rædd sú staða sem upp er komin í málinu þar sem Samkeppnisstofnun telur að ýmis- legt, sem fram sé komið við athug- un stofnunarinnar, bendi til atvika sem ætía megi að geti varðað refs- ingu og beri að fara með sam- kvæmt lögum um meðferð opin- berra mála. Staða Samkeppnis- stofnunar hefur verið talin óljós hvað varðar kærur og tilkynningar til lögreglu og var á fundinum farið yfir þau lög og reglur sem um slíkt gilda. Samkeppninsstofnun hefúr bent á að í gildandi lögum um stofnunina og starfsemi hennar sé ekki kveðið á um það með hvaða hætti stofnunin eigi að gera lög- reglu grein fyrir því sem hún verði áskynja um í athugunum sfnum og kunni að varða einstaklinga og/eða lögaðila refsiábyrgð. Þá hafi heldur ekki myndast hefð eða verklag um framsendingu mála frá stofnun- inni. Horft til annarra stofnana Jón H.B. Snorrason benti á að rétt væri að taka mið af starfsað- ferðum og löggjöf annarra stofnana sem gegndu eftirlitshlutverki líkt og skattayfirvöld og Fjármálaeftirlitið. í grundvallaratriðum vísuðu þessar stofnanir málum til efnahagsbrota- deildar ríkislögreglustjóra með formlegum hætti samkvæmt máls- meðferð sem mælt væri fyrir um í lögum og reglugerðum. I báðum tilvikum væri gerð grein fyrir kæru eða tilkynningu í skriflegum erind- um og með greinargerð sem fjallaði um hina ætluðu refsiverðu hátt- semi. Staða Samkeppnis- stofnunar hefur verið talin óljós hvað varðar kærur og tilkynningar til lögreglu. Þá benti hann einnig á mikilvægi þess að fram kæmi hvaða þýðingu það hefði fyrir meðferð málsins hjá Samkeppnisstofnun að tilkynnt hefði verið til efnahagsbrotadeild- arinnar. Fram þyrfti að koma hvort þau atvik sem tilkynnt væri um yrðu áfram til frekari meðferðar hjá Samkeppnisstofnun. Greiða úr óvissu Ríkislögreglustjóri hefur falið Jóni H.B. Snorrasyni að fara með samskipti við Samkeppnisstofnun varðandi aðgerðir sem grípa þurfi til svo að hefja megi opinbera rann- sókn svo fljótt sem verða megi eftir því sem tilefni kunni að gefast til. Jón sagði í samtali við DV í gær að þær aðgerðir fælust fyrst og fremst í því að greiða úr þeirri óvissu sem væri á stöðu Samkeppnisstofnunar til þess að menn gætu að áttað sig á því f hvaða farveg málið ætti að fara. Hann sagði hins vegar of snemmt að segja til um það hvort embætti ríkislögreglustjóra tæki yfir einhverja þætti málsins og hæf! opinbera rannsókn á þeim. -EKÁ Burðarás, Sjóvá-Almennar tryggingar og Kaupþing Búnaðarbanki í viðræðum: Tekist á um yfirtöku Skeljungs YFIRTAKA: Viðræður eiga sér nú stað um yfirtökutilboð á Skeljungi en að þeim standa Burðarás, Sjóvá-Almennar og Kaupþing-Búnaðarbanki. Burðarás, Sjóvá-Almennar tryggingar og Kaupþing Bún- aðarbanki eiga nú í viðræðum um hugsanlegt yfirtökutilboð á hlutabréfum í Skeljungi. Yfir- tökutilboðið yrði á genginu 15,9. Stefnt er að því að viðræð- um um yfirtöku verði lokið inn- an viku. Útlit er fyrir að langvinn barátta um hið rótgróna fyrirtæki Skeljung sé að komast á lokastig. Öðrum megin borðsins sitja fúlltrúar Burðaráss og Sjóvár-Almennra en fulltrúar Kaupþings-Búnaðarbanka hinum megin. f gær var gefin út til- kynning um að hlutabréf Skeljungs hefðu verið færð á athugunarlista Kauphallarinnar þar sem hluthafar sem eiga 87,57% eignarhlut f fyrir- tækinu ættu í viðræðum um hugs- anlegt yfirtökutilboð. Þeir sem gerst þekkja telja að smærri hluthafar geti vel við unað að selja hluti sína á genginu 15,9. Mikil viðskipti áttu sér stað í Skelj- ungi um mánaðamótin á genginu 15 en síðasta viðskiptaverð var 14,7. Nokkrar sviptingar urðu í Skelj- ungi hf. um síðustu mánaðamót þegar Shell Petroleum Company Ltd., sem átti 20,69% eignarhlut f félaginu, seldi Sjóvá- Almennum og Burðarási sinn hlut. Salan fór fram á genginu 12 en önnur viðskipti þann dag fóru fram á genginu 15. Vakti nokkra umræðu og grun- semdir um innherjaviðskipti að um þrjár klukkustundir tók að koma tilkynningu um sölu Shell International inn í fréttakerfi Kaup- hallarinnar, að sögn vegna tafa við gjaldeyrisyfirfærslu. Á meðan áttu sér stað töluverð viðskipti með Skeljungsbréf á genginu 15 en kaupandi var Kaupþing-Búnaðar- banki. Fjármálaeftirlitið hafði þessa töf á tilkynningu til rann- sóknar. Samkvæmt lista yfir stærstu hlut- hafa í Skeljungi á Kaupþing-Bún- aðarbanki 39,2% í félaginu, Sjóvá- Almennar rúm 25,02% og Burðarás 23,35%. Saman eiga þessi þrjú félög 87,57% í Skeljungi. Innherjar Samkvæmt fréttum Kauphallar- innar teljast eftirtaldir aðilar inn- herjar vegna viðskipta með hluta- bréf Skeljungs: Benedikt Jóhannesson, þar sem hann er stjórnarformaður Burðar- áss og Skeljungs; Friðrik Jóhanns- son, þar sem hann er fram- kvæmdastjóri Burðaráss og vara- maður í stjóm Skeljungs; Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, en hann er stjórnarmaður í Sjóvá-Al- mennum; Hörður Sigurgestsson, þar sem hann situr í stjórn Burðar- áss og Skeljungs, og loks Guðný Björnsdóttir, lögfræðingur hjá Sjó- vá-Almennum, þar sem hún situr í stjórn Skeljungs. Samkvæmt mögulegu yfirtöku- gengi er verðmæti fyrirtækisins um 12 milljarðar króna. Skeljungur los- aði sig við ítök í alls óskyldum rekstri þegar öll hlutabréf í Hans Petersen voru seld til Sjafnar á Ak- ureyri fyrir um mánuði. hlh@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.