Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 12
72 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚÚ2003 Útlönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón: Erlingur Kristensson / Kristinn Jón Arnarson Netfang: erlingur@dv.is / kja@dv.is Sími: 550 5828 Átta látast í Saudi-Arabíu ALQAEDA: Sex skæruliðar múslímskra öfgasamtaka og tveirlögreglumenn létust þeg- ar yfirvöld réðust á öfgamenn- ina á bændabýli í gær. Fjórirtil viðbótar voru handteknir, sak- aðir um að fela hina grunuðu, og mikið magn vopna og sprengiefna var gert upptækt. Talsmenn yfirvalda tilkynntu síðar að öfgamennirnir sem ráðist var á hefðu flestir hlotið þjálfun á vegum hryðjuverka- samtakanna al-Quaeda. Árásin var sú þriðja sem yfirvöld í Saudi-Arabíu hafa skipulagt frá því þau hófu herferð gegn öfgasamtökum eftir sjálfs- morðsárásir þeirra í Ryadh þann 12. maí sl. Þá létust 35 manns, þar af níu sjálfs- morðsárásarmenn. Hittu Suu Kyi BÚRMA: Fulltrúum Rauða krossins var í morgun í fyrsta sinn leyft að hitta Aung San Suu Kyi, baráttumann fyrir lýð- ræði í Búrma, frá því hún var handtekin af yfirvöldum fýrir um það bil tveimur mánuðum. Sögðu þeir eftir heimsóknina að Suu Kyi hefði verið hress og við góða heilsu, en nokkuð hafði verið óttast um hana. Leitin að Saddam heldur áfram: Lífvörðurinn handtekinn Talsmenn Bandaríkjahers í írak segja að hersveitir þeirra hafi í morgun handtekið manninn, sem talinn er vera nánasti líf- vörður Saddams Husseins, fyrr- um íraksforseta. Að sögn Jeff Fitzgibbons, tals- manns Bandaríkjahers á Bagdad- svæðinu, voru nokkrir grunaðir fylgismenn Saddams Husseins handteknir í leitaraðgerðum sem hófust í bítið í morgun í Tikrit, fæðingarborg Saddams, norður af Bagdad og leikur grunur á að einn þeirra sé helsti foringi lífvarða- sveita Saddams, sá sami og talið er að hafi sloppið naumlega þegar leitað var á þremur sveitabýlum á svæðinu á sunnudaginn. „Það virðist sem okkur hafi tekist að koma þeim að óvörum því það kom ekki til skotbardaga þegar þeir vom handteknir," sagði Fitzgibbons. Örugglega sá rétti Liðsforinginn Steve Russell, sem stjórnaði aðgerðunum, sagði í mórgun að hann væri viss um að þeir hefðu náð rétta manninum. „Hann er örugglega sá sem við höf- um verið að leita að og hann er náinn samstarfsmaður Saddams," sagði Russell en vildi þó ekkert staðfesta. Að sögn sjónarvotta vom að minnsta kosti tveir aðrir nánir stuðningsmenn Saddams í hópi hinna handteknu. Aðgerðirnar í morgun vom liður í skipulagðri leit að Saddam Huss- eins og fylgismönnum hans, en leitin að honum hefur verið hert til muna að undanförnu eftir að synirnir, Uday og Qusay, vom felld- ir í skotbardaga í bænum Mosul í síðustu viku. Að sögn talsmanna Bandaríkja- hers er hringurinn nú farinn að þrengjast vemlega um Saddam en talið er að hann hafi sloppið naum- lega á sunnudaginn þegar árás var gerð á íbúðarhús í Mansur-hverfi í Bagdad eftir að vísbendingar bár- ust um að hann hefði verið þar í felum. „Það virðistsem okkur hafi tekist að koma þeim að óvörum því það kom ekki til skotbardaga þegar þeir voru handteknir," sagðiJeff Fitzgibbons, talsmaður Bandaríkjahers, í morgun. Fimm íraskir borgara létu lífið í aðgerðunum eftir að komið hafði til mótmæla á vettvangi og bandarísku hermennirnir hafið skothríð á bíla sem áttu leið fram hjá húsinu. Fimmtíu fallnir Fyrir aðgerðirnar í morgun var tala failinna Bandaríkjamanna í átökunum í írak, frá því að Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir þann 1. maí að meiriháttar átökum væri lokið, komin í fimmtíu en í gær féll sá fimmtugasti auk þess sem þrír aðrir særðust alvarlega þegar hand- sprengjuárás var gerð á bandaríska eftirlitssveit sem var á ferð í bílalest um miðborg Bagdad. Árásarmennirnir létu til skarar skríða þegar einn herbíllinn nam staðar undir brú í al-Rashid-hverfi til þess að taka vatnsbirgðir og iétu þeir sprengjuna falla niður í bílinn af brúnni. Stöðugar skæruárásir Fall Saddams-bræða virðist lítil áhrif ætla að hafa á baráttu and- stæðinga bandaríska setuliðsins í írak sem halda uppi stöðugum skæruárásum og ef eitthvað er hefur hún frekar færst í aukana. Bandarískar hersveitir verða að meðaltali fyrir tíu til tólf árásum daglega og tæplega þriðjungur þeirra fimmtíu, sem fallnir eru frá stríðlokum, hafa fallið í skæru- árásum síðustu tíu daga. Fram til þessa hafa Bandaríkja- menn kennt stuðningsmönnum Saddams um árásirnar en í gær sagði Ricardo Sanchez, yfirmaður bandaríska heraflans í írak, að landið væri orðið seguU fyrir er- lenda hryðjuverkamenn, sem streymdu til landsins til þess að berjast heilögu stríði gegn Banda- ríkamönnum. Þar er Sanchez eflaust að vitna í áður óþekkt samtök íslamskra stríðsmanna, sem nýlega sendu frá sér yfirlýsingu á myndbandi, sem send var út á arabískri sjónvarps- stöð, en þar lýsa samtökin sem kalla sig Salafist Jihad, yfir heilögu stríði gegn Bush Bandaríkjaforseta. Upptakan sýnir grímuklædda stríðsmenn samtakanna veifa byssum sínum og segir einn þeirra: „Bandaríkjamenn, þið hafið sagt stríðsmönnum guðs stríð á hendur. Þið heiðingjarnir munuð hvorki öðlast öryggi né sálarfrið á meðan þið berjist gegn íslam. Birgðir af Viagra Samkvæmt fréttum bandaríska tímaritsins Newsweek fundust dollarar og íraskir dinaraseðlar að andvirði hundrað milljónir dollara í húsinu þar sem synir Saddams voru felldir í síðustu viku. Einnig hefðu fundist birgðir af Viagra- pillum, tugir flaskna af ilmvatni, heilu kassarnir af karmannsnær- buxum auk fjölda rándýrra silki- skyrta og binda. Þá segir einnig í frétt blaðsins að fundist hafi einn einstakur smokkur og tvö kven- mannsveski í fórum bræðranna. Ariel Sharon hittir Bush í dag: Sádi-Arabar ekki ánægðir með leynimakk Bandaríkjamanna um 11. september: Beittur þrýstingi Fréttaskýrendur telja að Ariel Sharon hafi aldrei verið undir jafnmiklum þrýstingi frá Bandaríkjamönnum og nú. Forsætisráðherrann hittir Bush Bandaríkjaforseta í dag og er talið líklegt að Bush muni beita hann talsverðum þrýstingi vegna bygg- ingar öryggisgirðingar á Vestur- bakkanum. fsraelskt dagblað sagði í gær að jafnvel væri verið að íhuga að hætta við byggingu girðingarinnar á mjög umdeildum stað langt inni á land- svæði Palestínumanna þó að tals- menn ríkisstjórnarinnar hafi ekki staðfest það. UMDEILD: Öryggisgirðingin sem (sraelar byggja nú á Vesturbakkanum er orðin mikið bitbein í deilu Palestínu og ísraels. Vilja sjá alla skýrsluna Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu hittir Bush Bandaríkjaforseta í dag og biður væntanlega um að leynilegir hlutar skýrslu um aðdraganda hryðjuverkanna 11. september verði gerðir op- inberir. Ráðherrann, Saud al-Faisal, bað um fundinn, en ráðamenn í Sádi-Arabíu hafa ekki verið ánægðir með að hlutar skýrslunn- ar sem fjalla um mögulegan stuðning Sádi-Araba við hryðju- verkamennina hafi ekki verið gerðir opinberir. Með því að FUNDAR í DAG: Bush Bandaríkjaforseti hittir utanrikisráðherra Sádi-Arabíu. halda þeim leynilegum geta yfir- völd í Sádi-Arabíu ekki svarað ásökunum sem birst hafa á hend- ur þeim í fjölmiðlum í kjölfarið. Bob Graham, þingmaður demókrata og einn þeirra sem hyggjast bjóða sig fram til forseta gegn Bush, sendi forsetanum jafnframt bréf um málið og bað um að blaðsíðumar 28 yrðu gerð- ar opinberar. „Þannig geta Sádi- Arabar svarað fyrir sig og almenn- ingur áttað sig á því hverjir séu raunverulegir vinir og óvinir Bandaríkjanna," sagði Graham.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.