Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003 FRÉTTIR 7 3 Al-Qaeda hyggur á frekari árásir HRYÐJUVERK: Bandarískir embættis- menn sögðu í gaer að þeir hefðu upplýsingar um að í bígerð væru flugrán og sjálfsmorðsárásir seinni hluta sumarsins. Þessar upplýsingar fengust bæði með yfirheyrslum yfir félögum í al-Quaeda hryðjuverka- samtökunum sem eru í haldi Banda- ríkjamanna og einnig með hlerunum á skeytasendingum. Það var dagblaðið Washington Post sem skýrði frá þessu og hafði meðal annars eftir embættismönnunum að viðtölin við al-Qaeda-félagana bentu til þess að í undirbúningi væru árásir sviþaðar þeim sem áttu sér stað þann 11. september 2001. Um helg- ina var flugfélögum og öryggisstarfs- mönnum gert viðvart um þetta en ekki er talin ástæða enn sem komið er til að hækka viðvörunarstigið í landinu vegna þessa. STÖÐUGAR SKÆRUÁRÁSIR: Ekkert lát er á skæruárásum andstæðinga bandaríska setuliðsins í frak og hafa fimmtíu bandarískir hermenn fallið síðan Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir þann 1. maí að meiriháttar átökum væri lokið. Hér á myndinni sjáum við bandarískan hermann hlúa að félaga sínum sem særðist i árásinni í miðborg Bagdad í gær. FBI finnur njósnaskjöl í Washington: Grafin í görðum Rannsóknarmenn frá banda- rísku alríkislögreglunni, FBI, hafa grafið upp þúsundir blað- síðna úr leynilegum skjölum á fleiri en 10 stöðum víðs vegar um Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Það var njósnarinn Brian Regan sem hafði grafið skjölin, en hann var nýlega dæmdur fyrir njósnir í Bandaríkjunum. Það er dagblaðið Washington Post sem greinir frá þessu í dag. „Þetta eru ansi mikil- vægar upplýsingar sem gætu gert mikinn skaða,“ hefur dagblaðið eft- ir ónefndum heimildarmanni sín- um um málið. FBI fann skjölin í al- menningsgörðum og öðrum af- skekktum stöðum í Virginia- og Maryland-fylkjum, rétt fyrir utan borgarmörk Washington. Þar á meðal fannst geisladiskur með ítar- legum upplýsingum um • njósna- hnetti Bandaríkjanna og sporbauga þeirra. Samkvæmt blaðinu hafði Regan, sem situr í lífstíðarfangelsi, fjölda kóðaðra skjala í fangaklefa sínum og þar á meðal var kort sem sýndi staðsetningu sumra skjalanna. Regan var dæmdur í mars sl. fyrir tilraun til njósna fyrir írak og Kína og ólöglega söfnun upplýsinga. / \ SPURNINGAR FRÁ LESENDUM Þegar ég hætti að reykja síðast var ég ekki húsum hæfur vegna skapvonsku. Það að hætta að reykja þarfnast vandlegs undir- búnings. Að hætta “á hnefanum” eins og þú gerðir síðast virðist ekki henta þér. Aukaverkanir vegna fráhvarfseinkennanna eru óþægilegar en standa mismunandi lengi, en ekki nema í stuttan tíma hjá flestum. Vegna fyrri reynslu þinnar tel ég nauðsynlegt fyrir þig að nota nikótínlyf til að Vegna fyrri reynslu þinnar tel ég a^ hverfa. Lungun eiga betur með byrja með. Farðu inn nauðsynlegt fyrir þig að nota nikótínlyf a& k|jast v'ð sýkingar. á dv.is og taktu til að byrja með. Farðu inn á dv.is og Eftir 1 reyklaust ár hafa líkurnar reykingaprófið og taktu reykingaprófið og lestu áaðþúfáirhjartasjúkdom minnkað lestu upplýsingarnar upplýsingamar um nikótínlyfin. um helming. um nikótínlyfin. Að---------------------------------------Eftir 5 reyklaus ár er hættan á að lokum skulum við rifja upp jákvæðu breytingarnar fá hjarta-og æðasjúkdóma orðin álíka mikil og sem verða á líkamlegu heilsufari þínu þegar þú hjá þeim sem aldrei hafa reykt. hættir að reykja. Þegar þú ert hættur muntu sjá ' Eftir 10 reyklaus ár hefur hættan á að fá að það var þess virði að hafa hætt! lungnakrabbamein minnkað um helming. Eftir 15 reyklaus ár hefur hættan á að fá lungnakrabbamein orðin álíka mikil og hjá þeim sem aldrei hafa reykt. Guðbjörg Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur. Hvað skeður í líkama þínum eftir að þú hættir að reykja: Eftir 20 reyklausar mínutur hefur blóðþrýstingur og púls lækkað og þlóðrás batnað. Eftir 8 reyklausar klst. hefur kolsýrlingur í blóði minnkað um helming. Eftir 24 reyklausar klst. hefur dregið úr hættu á kransæðustíflu. Eftir 48 reyklausar klst. er kolsýrlingur í blóði horfinn. Lyktar-og bragðskyn er að komast í eðlilegt horf. Eftir 4 reyklausar vikur eru hósti og andþrengsli Nicotinell Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hiálparefni til tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fránvarfseinken til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbur ti til aö hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar hvárfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega i gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráölagt að nota lyfið lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema í samráði við lækni. Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráði við lækm. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.