Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003 SKOÐUN 15 Tvíhliða lausn óhagstæð íslandi KJALLARt Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur Fyrir nokkru kom út skýrsla norsku utanríkisstofnunarinnar og Albjóðamálastofnunar Há- skóla Islands um tengsl fslands og Noregs við Evrópusamband- ið. í stuttu máli eru niðurstöður skýrsluhöfunda þær að þrjár leiðir séu færar; núverandi EES- samningur, full aðild að ESB eða tvíhliða samningur að fyrir- mynd samnings Sviss við ESB, sem gerður var eftir að Sviss felldi EES-samninginn í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Skýrsluhöf- undar hafna hins vegar lausn á borð við fríverslunarsamning- inn frá 1972 en sá samningur nær einungis til vöruviðskipta og nær því ekki yfir samskipti ríkjanna eins og þau eru nú. Skýrslan er fyrir margra hluta sakir áhugaverð og vel unnin en skýrsluhöfundum verður þó veru- lega á í messunni þegar þeir telja að tvíhliða lausn sé fær. Ekki aðeins hefur sendiherra Evrópusam- bandsins gagnvart íslandi og Nor- egi látið hafa eftir sér að ESB hafi engan áhuga á slíkum samningi heldur yrði hann alltaf óhagstæðari fyrir okkur íslendinga en núverandi EES-samningur. Raunar eru blikur á lofti um að EES-samningurinn nái orðið með fullnægjandi hætti yfir samskipti íslands og Noregs við Evrópusam- bandið og því er auðvitað mikil- vægt að leita leiða til að finna lausnir við hæfl. Það gæti þó reynst örðugt í ljósi þess að Evrópusam- bandið hefur hingað til ekki viljað ljá máls á efnislegri uppfærslu samningsins. En tvíhliða samning- ur væri þó enn verri lausn. Siglt eftir stjörnum Fyrir nokkru fengu norsk stjórn- völd Rannsóknamiðstöð um Evr- ópumálefni í Brussel til að kanna stöðu Noregs í evrópskri samvinnu. Niðurstöðurnar er að finna í skýrslu sem ber heitið Siglt eftir stjörnum. Sjáif nafngiftin lýsir vel afstöðu skýrsluhöfunda sem telja að staða Noregs - og þar með vænt- anlega íslands líka - sé lík sjófar- anda sem hafi aðeins stjörnurnar til að reikna út hentugustu siglinga- leiðina en ekki þau tæki og tól sem mannkynið hefur fundið upp til hægðarauka í áranna rás. í skýrslunni kemur fram að EES- samningurinn virki vel að því leyti að veita Noregi aðild að innri mark- aði ESB og þar með að mikilvæg- asta útflutningsmarkaði landsins. Á RÁÐSTEFNU ASf 2002: AS( hefur ásamt fjölmörgum aðilum ályktað um Evrópumálin. En þar kemur enn fremur fram að þar sem vægi EES-samningsins hafi'minnkað til muna, samhliða því sem samstarf ESB hefur þróast, hafl staða Noregs veikst í evrópsku samstarfi og skýrsluhöfundar velta upp nokkrum kostum til úrbóta. Meðal annars skoða þeir þann möguleika að sækja um fulla aðild að ESB eða að taka upp tvíhliða við- ræður um umfangsmikinn friversl- unarsamning líkt og gildir milli Sviss og ESB. Svissneska lausnin Tvíhliða samningur Sviss og ESB nær aðeins til afmarkaðra við- skiptasviða og er mun takmarkaðri heldur en gildir innan EES. Samn- ingurinn nær til rannsókna, opin- berra innkaupa, tæknilegra við- skiptahindrana, landbúnaðar, flug- umferðar, vegaflutninga og frjáls flæðis fólks yfir landamæri. Á þessum sviðum er lögð áhersla á að virða sjálfsákvörðunarrétt Sviss, en eftirlit með samningnum er á hendi tvíhliða nefnda á hverju málefnasviði fyrir sig sem þurfa að komast að samhljóða niðurstöðu um öll ágreiningsmál. í reynd virk- ar samningurinn þannig að Sviss samþykkir afrit af löggjöf ESB. Þar með þarf Sviss í raun að lúta regl- um og stofnunum ESB. Það veldur einnig spennu að ef einhver þáttur samstarfsins telst ekki uppfylltur í samræmi við forsendur hans að þá fellur hann allur úr gildi. „Raunar eru blikur á lofti um að EES-samn- ingurinn nái orðið með fullnægjandi hætti yfir samskipti íslands og Noregs við Evrópusambandið og því er auðvitað mikilvægt að leita leiða til að finna lausnir við hæfi." Höfundar skýrslunnar Siglt eftir stjörnum komast að þeirri niður- stöðu að tvíhliða fríverslunarsamn- ingur muni ekki henta hagsmunum Norðmanna í samskiptum við ESB. í því sambandi er til að mynda bent á að í samningnum við Sviss gildir ekki gagnkvæm viðurkenning í við- skiptum nema á þeim sviðum þar sem Sviss hefur í raun samþykkt að taka yfir allar lagagerðir ESB. Sviss tekur hins vegar engan þátt í undir- búningi þeirra lagagerða. Aukið fullveldisafsal Út frá pólitísku sjónarmiði felur tvíhliða samningur í sér enn meira fullveldisafsal en aðildin að EES þar sem ólíklegt verður að teljast að ís- land fengi að njóta svipaðra rétt- inda á innri markaði ESB og við nú- verandi fyrirkomulag í EES án þess að yfirtaka reglugerðir Evrópusam- bandsins sem falla undir innri markaðinn. Eftirlit með innleið- ingu lagagerða myndi þá færast frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), sem ís- land hefur beina aðild að, og til Framkvæmdastjórnar ESB og þar með til stofnana sem Island hefúr ekki aðild að. Jafnframt myndi úr- skurðarvald færast frá EFTA-dóm- stólnum til Evrópudómstólsins. Fríverslunarsamningur Sviss og ESB er til vitnis um að einungis þau ríki sem samþykkja að taka yfir lagagerðir ESB á viðkomandi sviði fá viðunandi markaðsaðgang. Óraunhæfur kostur Tvíhliða samningur milli íslands og ESB er því ekki raunhæfur kost- ur. Slíkur samningur myndi í öllum tilvikum leiða til verri viðskipta- kjara, erflðari aðgengis að innri markaðnum og afnámi þeirrar hlutdeildar sem fsland þó hefur í dag í undirbúningi lagagerða ESB. Óheft, eða í það minnsta haftalítil, aðkoma að innri markaði Evrópu- sambandsins telst til grundvallar- hagsmuna fslendinga enda fer þangað mikill meirihluti íslenskra afurða. í tengslum við umfjöllunina um aukinn kostnað af EES vegna stækkunar má nefna að hlutfalls- legur kostnaður Sviss af rekstri frí- verslunarsamningsins er enn frem- ur engu minni en kostnaður fs- lands af rekstri EES-samningsins. í samanburði telst aðgangurinn að innri markaðnum með EES aug- ljóslega betri kostur. Alþýðusamband íslands er með- al fjölmargra aðila sem hafa ályktað um Evrópumálin. Á ráðstefnu sem ASÍ hélt í september 2002 kom fram sú skoðun að með EES-samningn- um hafi íslendingar öðlast marg- vísleg félagsleg réttindi og aðgang að verkefnum og sjóðum sem tengjast menntun, rannsóknum, félags- og vinnumarkaðsmálum, neytendamálum, umhverflsmálum og menningu. Þessir þættir skipta ekki síður máli en hagstæðir við- skiptasamningar. Borgari - borgarstjóri „Þórólfur Árnason borgari nýt- ur eins og við hin þess réttar að skoðast saklaus af meintum lög- brotum, þar til sekt hans er »— sönnuð með lögfullum hætti. Bogarstjórinn í Reykjavík getur (Q hins vegar ekki talist njóta nauð- Esynlegs trúnaðar til að gegna starfi sínu ef hann lætur ósvarað e Jón Steinar Gunnlaugsson. spurningum almennings um meinta aðild sina að lögbrotum, sem í þokkabót eru sögð að ein- hverju marki hafa beinst að Reykjavíkurborg. Það er því ekki við það unandi, að borgarstjór- inn neiti að svara en haldi samt áfram að gegna starfi sínu. Þetta þarf hann að skilja." Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor við lagadeild HR, í Morgunblaðinu Leiksýningar „Alþingi er sem kunnugt er ekki að störfum um þessar mundir og verður formlega ekki kallað saman til funda fyrr en í byrjun október. Möguleikar stjórnarandstöðunnar til hefð- bundinna leiksýninga í formi ut- andagskrárumræðna eða fyrir- spurna til ráðherra er því ekki fyrir hendi sem stendur, og hef- ur því verið gripið til þess ráðs að óska eftir fundum f hverri fastanefnd þingsins á fætur annarri." Vefþjóðviljinn á AndrikiJs Leggi ríkið niður „Þegar ég sat á þingi sem varaþingmaður bað ég þing- heim kurteislega um að leggja niður ÁTVR, en þeir svæfðu það mál í nefnd þegar ég var farinn af þingi. Nú má nefna að til dæmis yngra fólkið í Samfylking- unni er fylgjandi breytingum í frjálsræðisátt (því máli. Það er rétt að hafa í huga að ÁTVR var sett á fót á sama tíma og við- tækjaverslun ríkisins, sem var einokunarverslun með útvarps- tæki. Ég held að fólk, að minnsta kosti af yngri kynslóðinni, sé nú sammála um að það sé engin sérstök ástæða til að eingöngu opinberir starfsmenn eigi að höndla með áfengi." G uðlaugur Þór Þóröarson, borgarfulltrúi og alþinglsmaður, í viðtali á FrelsiJs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.