Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 16
16 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLl2003
Tilvera
Fólk ■ Heimilið • Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5813-550 5810
Vel þekktir heims- og heimamenn
JASS: Alþjóðleg djasshátíð verð-
ur á Akureyri dagana 5.-9. ágúst.
Hún ber nafnið Django Jazz
Festival 2003 og er tileinkuð hin-
um snjalla djassgítarleikara og
tónskáldi, Django Reinhardt. Þar
koma fram margir vel þekktir
heims- og heimamenn, svo sem
Robin Nolan, Kevin Nolan og
Simon Planting, sem skipa Robin
Nolan-tríóið, og Ástralarnir Geor-
ge Washingmachine og lan
Date, Poul Weden, gítarleikari frá
Ósló, og Randý Greer, söngvari
frá Barcelona sem hefur slegið í
gegn á Django Jazz-hátíðunum
2001 og 2002. Síðast en ekki síst
skal telja íslensku hljómsveitirnar
Tríó BjörnsThoroddsens, Djas-
stríóið Hrafnaspark og Django
Big Band Akureyrar.
gun@dvJs
KVIKMYNDIR HELGIN 11.-13.JÚLI
Sæti Fyrír viku Titill Innkoma, helgin Innkoma alls Fjöldi biósaia
1. - SPY KIDS 3-D: GAME OVER 33.417 33.417 3344
2. 2 PIRATES OF THE CARIBBEAN: 23.136 176.838 3416
3. 1 BAD BOYS2 22.051 88.503 3202
4. - LARA CROFT 2: THE CRADLE OF.... 21.783 21.783 3222
5. HH SEABISCUIT 20.854 20.854 1987
6. 3 THE LEAGUE OF EXTRAORDIM... 5.070 52.927 2532
7. 3 TERMINATOR 3: RISE OF THE MA.. 5.063 137.459 2660
8. 6 FINDING NEMO 4.391 5.809 2319
9. 5 JOHNNY ENGLISH 4.327 18.435 2236
10. 7 LEGALLY BLONDE 2: RED, WHITE.. 2.707 82.171 2120
11. 10 28 DAYS LATER 2.341 37.304 915
12. 8 HOWTODEAL 2.308 11.469 2319
13. 9 CHARLIE'S ANGELS: FULL THROT... 1.460 93.073 1270
14. 15 WHALE RIDER 1.085 9.577 491
15. 12 THE ITALIAN JOB 1.001 94.030 529
16. 16 SWIMMING POOL 919.103 3.756 206
17. 14 BRUCE ALMIGHTY 718 237.531 553
18 13 THE HULK 518 129.538 560
19 18 THE MATRIX: RELOADED 511 276.231 168
20. 11 SINBAT: LEGEND OF THE SEVEN ... 390 25260 865
ALLAR UPPHÆOIRIÞÚSUNDUM BANDARlKJADOLLARA
Það munar
um alltjafn-
vel að standa
Spy Kids 3 fór á flug
ÖUum að óvörum skaust þriðja
myndin um Sky Kids 3-D Game Over
beint í fyrsta sæti á lista yfir vinsæl-
ustu myndirnar í Bandaríkjunum
um helgina. En myndin tók inn
rúmar þrjátíu og þrjár milljónir doll-
ar sem er mun meira en fýrri mynd-
irnar gerðu og ekki slæmt fyrir mynd
sem talið var víst að mundi floppa.
Mestu vonbrigði helgarinnar eru
önnur myndin um Löru Croft, The
Cradel of Life, með Angelinu Jolie í
aðalhlutverki en myndin hafnaði í
fjórða sæti. Jnnkoma hennar er
helmingi minni en á fyrstu mynd-
inni. Myndin í fimmta sæti er einnig
ný og heitir Seabicuit og er með
þeim Jeff Bridges, Tobye Maguier og
Chris Copper og er byggð á sannri
sögu.
Ekki er annað að sjá en kvik-
myndahúsagestir kunni vel að meta
sjóræningjamyndina Pirates of the
Carrabian: The Curse of the Black
Pearl með þeim Johnny Depp, Or-
lando Bloom og Keira Knightley því
FJÖLSKYLDAN í SPY KIDS 3: Antonio Band-
eras, Carla Gugino, Alexa Vega og Daryl
Sabara.
að myndin lækkar sig aðeins um eitt
sæti í númer tvö þrátt fyrir nýjar
myndir á markaði og að þetta sé
þriðja vikan sem myndin er í sýn-
ingu.
Daredevil sterkur inn
Enginn hreyflng er á
tveimur efstu myndunum á
myndbandalistanum frá því
í síðustu viku, Leonardo
diCaprio situr sem fastast í
tveim efstu sætunum með
myndirnar Catch Me if You
Can og Gangs of New York
þriðju vikuna í röð. Ben Af-
fleck kemur þó sterkur inn
með myndina Daredevil og
fer hún beint í þriðja sæti.
Daredevil segir frá Matt
Murdock sem blindast
OFURHUGINN: Ben Affleckfer með hlutverk blinda
vegna geislavirks úrgangs ofurhugans Matts Murdocks í myndinni Daredevil.
en öðlast um leið
ofurmannlega
barbagahæfni og
helgar líf sitt bar-
áttunni við bófa og
illmenni. Jennifer
Garner fer með
hlutverk Elektru í
Daredevil og Colin
Farrell leikur
Bullseye.
Þættirnir um
Friends koma líka
sterkir inn á list-
ann því eins og sjá
má eru þeir í sæt-
um sextán, sautján
og átján með nýj-
ustu þáttaröðina
sem komin er út á
myndb andaleigur.
upp og setjast
- segir Soffía Stefánsdóttir sem lýsir eftir gönguvinum
Soffía Stefánsdóttir leikfimi-
kennari er ung í anda og iétt í
hreyfingum þótt aldurinn sé
tekinn að hækka í tölum. Hún
þakkar það ekki síst leikfimi og
útivist sem hún hefur iðkað
gegnum árin.
Soffía hefur ekki einasta áhuga á
eigin heilsu og líkamsrækt heldur
einnig annarra og nú beinist atorka
hennar meðal annars að því að finna
fólk sem hún kallar „gönguvini". Lát-
um hana sjálfa um útskýringuna:
„Gönguvinir eru sjálfboðaiiðar, til-
búnir að fara heim til fólks sem
kemst ekki út öðruvísi en með að-
stoð og ganga með því úti - þó ekki
sé nema út á stétt - eða, ef fólk getur
alls ekki farið út, þá að gera einhverj-
ar æfingar með því heirna." Soffía vill
meina að ekki þurfi menntaða
íþróttakennara eða sjúkraþjálfara til
að fá fólk til að hreyfa sig lítillega,
jafnvel innanhúss. „Það munar um
allt, jafnvel að standa upp og setjast,"
segir hún.
Ég gifti mig og fór út í
barneignir, flutti upp á
Akranes og bjó erlendis
um tíma.
Soffía segir að á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum sé þörf fólks til að
hreyfa sig mætt að einhverju leyti en
í heimahúsum sé margt fólk alger-
lega afskipt hvað þetta varðar.
„Gönguvini" segir hún þekktan
félagsskap á Norðurlöndum og úti-
lokar ekki að slfkt starf hafi verið
reynt áður hér á landi.
Innleiddi íþróttir aldraðra
Soffía hóf reglubundna leikfimi
fyrir eldra fólk á íslandi. Það var árið
1972. Hún byrjaði í Norðurbrún 1
einu sinni í viku og hélt því áfram til
sjötugs 1994, mest í sjálfboðavinnu.
Nú er leikfimi fyrir eldri borgara
hafin á sextán félagsmiðstöðvum hér
í borginni tvisvar í viku svo hennar
frumkvöðulsstarf hefur skilað góð-
um árangri. Hún kveðst hafa byrjað
feril sinn sem íþróttakennari við
Kennaraskólann og hjá Jóni Þor-
steinssyni, einnig hafi hún kennt í
Miðbæjarskólanum. En svo hætti
hún kennslunni um skeið. „Ég gifti
mig og fór út í barneignir, flutti upp á
Akranes og bjó erlendis um tírna,"
segir hún brosandi og við nánari
eftirgrennslan kemur í ljós að maður
hennar er Páll Gíslason læknir sem,
líkt og hún, hefur helgað sig málefn-
um aldraðra á seinni árum.
Tæki, dansar og leikir
Nú er í bígerð námskeið fyrir leið-
beinendur í íþróttum aldraðra í
Laugardalshöll 25. og 26. ágúst. Það
er ætlað almenningi. Reyndar byrjar
það 24. ágúst á því að fólk kynnir sér
stafgöngu í Laugardalnum en sú
grein er að ryðja sér til rúms hér á
landi eins og í grannlöndunum.
Félag áhugafólks um fþróttir
aldraðra stendur fyrir námskeiðinu
og er Soffía beðin að lýsa því aðeins
nánar: „Námsefnið er bæði verklegt
og fræðilegt og áhersla sérstaklega
lögð á æfingar með leiktækjum,
dönsum og léttum leikjum. Hingað
koma tvær danskar konur, Vibeke
Pilmark og Kirstini Langagergaard.
Þær hafa komið áður til landsins og
eru okkur að góðu kunnar. Þær
kynna meðal annars leikfimi fyrir
fólk sem er bundið hjólastól og getur
einungis gert æfingar sitjandi. Nám-
skeiðið er opið öllum sem hafa
áhuga á almennri líkamsþjálfun og
því að bæta heilsu eldra fólks. Það
hentar vel starfsfólki í öldrunarþjón-
ustu á ýmsum sviðum og við vonum
að til okkar komi einhverjir sem
væru tilbúnir að gerast sjálfboðaliðar
og „gönguvinir“.“
Stígar og bekkir til bóta
Soffi'a lýsir ánægju sinni með
göngustígana sem víða hafa verið
lagðir í þéttbýli og segir líka mikla
bót að bekkjum sem komið hefur
verið fyrir á ýmsum stöðum og hægt
er að tylla sér á. „Nú er af sú tíð að
hvergi sé hægt að fá sér sæti nema
við strætisvagnastöðvar," segir hún
og telur bæði stígana og bekkina
auka mjög möguleika fólks til
útivistar. Hún áréttar í lokin að
hreyfing sé mikil forvörn fyrir alla.
„Rannsóknir sýna að líkamsþjálfun
léttir geð fólks þannig að hún bætir
líka andlega heilsu,“ segir hún og
kveðst ekki í vafa um að reglubundin
hreyfing spari stórar fjárhæðir f
sjúkrahúsvist, auk þess að gera lífið
skemmtilegra.
gun@dv.is
LEIKFIMIKENNARINN: Soffía er ekki í vafa um