Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003 DVSPORT 29 „Nú byrjar ballið" æfingabúðirnar mikilvægu, æfing- ar, húsnæði, fæði og fleira, er í boði Dallas; félagið vill gera allt fyrir leikmanninn sem það hefúr svo mikla trú á og tryggja að hann verði í sínu besta standi þegar æfingarn- ar byrja. Þessi hugsunarháttur þyk- ir gefa nokkuð skýra mynd af því í hversu miklum metum Jón er hjá þjálfurum félagsins. „En þetta er ekkert sjálfgefið. Ég er einn af 10-12 leikmönnum sem munu koma tii með að berjast um fjórar lausar stöður í leikmanna- hópi liðsins fyrir næsta tímabil. Auðvitað skiptir öllu máli að vera í fullri þjálfun þá og ég er bjartsýnn „Fyrst og fremst er ég spenntur og ákveðinn. Ég er ákveðinn í að koma mér í form og ég mun leggja allt í sölurn- ar til að komast í NBA." að það takist. Þar til í október verð ég mikið í einkaþjálfun, verð mikið hjá sjúkraþjálfara tii að styrkja hnéð auk þess sem ég mun spila sem flesta æfingaleiki með Dallas." - Ertu bjartsýnn áað þér takist að sanna þigíyrir þjálfuruin liðsins? „Ég er bara nokkuð bjartsýnn en fyrst og fremst er ég spenntur og ákveðinn. Ég er ákveðinn í að koma mér í form og ég mun leggja allt í sölurnar til að komast í NBA,“ segir Jón. „Ef þetta klikkar þá kem ég mér að hjá einhverju liði í Evrópu og spila með því í vetur. Og síðan tek- ur þá við sama ferii á næsta ári þar sem ég reyni að sanna mig. Ég er gjaldgengur í NBA og þangað lang- ar mig.“ vignir@dv.is Jón Arnór Stefánsson, körfuknattieiksmaður, hélt um miðjan dag í gær af stað í langt ferðalag til Dallas þar sem hann mun freista þess að komast að hjá NBA-liðinu þar í borg, Dallas Mavericks. Jón Arnór hefur verið staddur hér á landi í vikutíma, aðallega til þess að ná í eigur sínar, eins og hann sagði í samtali við DV Sport í gær. „Ég þurfti að ná í dótið mitt enda mun ég búa þarna úti næstu mán- uðina hið minnsta en vonandi lengur." sagði Jón Arnór og átti þá við ef hann myndi gera samning við Dallas-liðið til næstu ára. „Ég er klár í slaginn og ætla að gera mitt besta til þess að láta drauminn rætast. Hnéð er í góðu lagi og það má segja að nú byrji ballið." Strangar æfingar fram undan „Markmiðið hjá mér núna er bara að koma mér í sem allra best form fyrir æfmgabúðirnar f októ- ber, en það er það sem þetta allt snýst um," segir Jón Arnór en í þeim æfingabúðum, sem standa yfir í mánuð, verða allar helstu stjörnur liðsins, eins og t.d. Dirk Nowitzki, Steve Nash, Micheal Finley og fleiri. AJlur undirbúningur Jóns fyrir A LEIÐ f ALVÖRUNA: Jón Arnór Stef- ánsson segist ætla að leggja allt í söl- urnar til að komast að hjá NBA-liðinu Dallas Mavericks. DV-myndE.ÓI. Veiðihornið Mjög góð netaveiði „Þetta var rosalegt að sjá þá moka upp laxinum, það hafa verið 70-80 laxar í netinu og hvað hafa þetta verið margir laxar upp með allri á? Síðan heyrir maður að Nóatún auglýsir nýjan lax daginn eftir, úr ánni,“ sagði veiðimaður sem var að koma úr Soginu með öngulinn í rassinum, en hann fékk sér bfltúr niður með Ölfusá og þetta var sjónin sem blasti við honum, hellingur af laxi í netum bænda um alla ána. „Við urðum lítið varir í Soginu, einn og einn fiskur, en ekkert meira en það. Enda ekki von að maður fái mikla veiði, þegar bændur girða fyrir ána og taka laxinn sem er á leiðinni upp í laxveiðiárnar. Þetta voru engir smátittir sem voru að koma í netin, sumir af þessum fiskum. Það væri nú skemmtilegra að veiða þessa fiska á stöng en taka þá svona í netin. En vonandi hefur eitthvað gengið um helgina, þegar netin voru uppi á landi en ekki ofan í ánni,“ sagði veiðimaðurinn og var allt annað en kátur með að kaupa sér veiðileyfi og svo væri laxinn að stórum hluta tekinn í netin í Ölfúsánni. G.Bender HOFSA: Mjög góður gangur hefur verið (veiðinni í Hofsá í Vopnafirði og núna eru komn- ir yfir 400 laxar á land. Þessir veiðimenn voru við ána fyrir fáum dögum og veiddu vel. DV-mynd G.Bender Hrútafjarðará og Síká: Fimmtán laxar í síðasta holli „Hollið sem var að hætta veiðum núna veiddi 15 laxa og var sá stærsti 18 pund. Áin hefur gefið 45 laxa,“ sagði Þröstur Elliðason er við spurðum um stöðuna í Hrútafjarðará og Síká. „Það hefúr mikið gengið f ána á síðustu flóðum og svo eru veiðimenn að fá rfgvænar bleikjur, alla leið upp í Ármótahylinn. Næstu holl gætu fengið fína veiði," sagði Þröstur í lokin. Sæmundará í Skagafirði: Næstu veiðimenn gætu veitt vel Það hefur verið lítil laxveiði í Sæmundará í Skagafirði en það gæti verið að batna þessa dagana. Veiðimenn sem voru að koma úr ánni fengu bara urriða og bleikjur, en laxinn var að hellast inn í ána, í þónokkuð stórum torfum. „Næstu veiðimenn gætu veitt vel, Iaxinn var allavega að koma og þetta voru stórar torfur," sagði veiðimaður sem var að hætta veiðum í ánni fýrir fáum dögum. G.Bender Við höfum veiðileyfin handa þér Bjamafjarðará, Blanda, Brynjudalsá, Eldvatn, Eystri Rangá, Ferjukotseyrar, Galtalækur, Grenlækur sv. 3, Hafralónsá, Kráká, Langadalsá, Laugardalsá, Laxá í Aðaldal - Árbót, Múlatorfa og Staðartorfa, Laxá á Ásum, Litlá, Miðfjarðará, Sog -Tannastaðatangi og Þrastarlundur, Svartá, Straumarnir, Tungufljót, Vatnasvæði Lýsu, Vesturbakki Hólsár, Ytri Rangá o.fl. STANGVEIÐIFELAGIÐ Vatnsendabletti 181 203 Kópavogi Sími 557 6100 lax-a@lax-a.is www.lax-a.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.