Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003 DVSPORT 3 1
„Læknirinn bjargaði ferlinum"
NBA-leikmenn skipta um félag
KNATTSPYRNA: Ruud van Ni-
stelrooy tileinkaði lækni sínum,
Richard Steadman, markið sem
hann skoraði gegn Club Amer-
ica á sunnudag í æfingamótinu
í Bandaríkjunum sem
Manchester tekur þátt í. Hinn
bandaríski Steadman var meðal
áhorfenda á leiknum og sagði
Nostelrooy að það hefði verið
sérstakt að spila fyrir framan
hann. „Ég get aldrei þakkað
honum nægilega," sagði Hol-
lendingurinn, en Steadman var
sá sem framkvæmdi aðgerðina
á hné Nistelrooys árið 2000 eftir
að kappinn hafði slitið kross-
bönd. „Það er honum að þakka
að ég er að spila fyrir Manchest-
er og hann vann ótrúlegt starf
fyrir mig. Hann bjargaði mínum
ferli," bætti Nistelrooy við.
KÖRFUKNATTLEIKUR: Tveir
leikmenn í NBA-deildinni skiptu
um félag í gær. Elden Campbell
gekk til liðs við Detroit Pistons
og gerði tveggja ára samning,
en Campbell var samningslaus
eftir að hafa leikið með Seattle
Supersonics og New Orleans
Hornets á síðasta ári og skorað
þá 6,1 stig að meðaltali í leik.
Þá samdi leikstjórnandinn
Darrel Armstrong við New Or-
leans en rétt eins og Campbell
var hann samningslaus. Arm-
strong gerði tveggja ára samn-
ing við liðið, en hann hefur leik-
ið með Orlando Magic síðustu
leiktíðir. Á sínum níu ára ferli í
NBA hefur Armstrong skorað
11,7 stig og gefið 5,1 stoðsend-
ingu að meðaltali í leik.
I fangelsi
KNATTSPYRNA: Dómstóll í
Þýskalandi dæmdi í gær Þjóð-
verjann Daniel Kohl í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir þátt sinn í
líkamsárás á franska lögreglu-
manninn Daniel Nivel, en hún
átti sér stað eftir leik Þjóðverja
og Júgóslava á HM í Frakka-
landi árið 1998. Nivel var í dái í
margar vikur og hlaut varanleg-
an heilaskaða í árásinni.
Bryant út
KÖRFUBOLTI: VinceCarter
hefur samþykkt að taka stöðu
Kobe Bryant sem hefur dregið
sig úr landsliðshópi Bandaríkj-
anna fyrir úrtökumót fyrir
Ólympíuleikana í Aþenu sem fer
fram í lok ágúst. Hann meiddist
nýlega á öxl og gekkst undir
skurðaðgerð á hné. Hann mun
þó vera með í Aþenu komist
liðið í gegnum undankeppnina.
„Borgvardt er
í ððrum klassa"
„Þetta var mjög ljúfur sigur hér
í dag," sagði Sverrir Garðarsson,
vamarmaður FH, í samtali við DV
Sport eftir leikinn í gærkvöld.
„Við byrjuðum ekkert hrikalega
vel og fengum á okkur mark úr
víti sem var að mínu mati aldrei
vítaspyrna. En við erum seigir og
hættum aldrei," sagði Sverrir en
það var einmitt hann sem fékk á
sig vítaspyrnuna sem Valur skor-
aði úr.
„Hann fór klárlega í höndina á
mér en ég skil ekki hvernig ég átti
að gera eitthvað við því,“ sagði
Sverrir og átti við að um algjört
óviljaverk hefði verið að ræða.
„Nú er stefnan hjá okkur að halda
okkur í efri hlutanum. Við emm
komnir með 18 stig og stefnum á
að halda áfram á sömu braut."
Borgvardt frábær
Eins og svo oft áður spiluðu
leikmenn FH mun betur í síðari
hálfleik og að þessu sinni komu
öll mörk liðsins á síðari 45 mínút-
unum.
„Kallinn (Ólafur Jóhannesson,
þjálfari FH) var alveg brjálaður í
hálfleik og var ekki ánægður með
okkur. En hann átti alveg rétt á
því. Maður þarf að fá spark í rass-
inn ef maður ætlar að halda
áfram á fullu og við sýndum mik-
inn karakter enn og aftur.
- Það getur heldur ekki verið
slæmt að hafa mann eins og
Borgvardt frammi?
„Hann er bara frábær. Það sjá
það allir að hann er í allt öðrum
klassa en aðrir leikmenn á vellin-
um. Þetta er alveg ótrúlegur leik-
maður og f dag kláraði hann þetta
fyrir okkur. Hann er mikill
happafengur fyrir FH,“ sagði
Sverrir um Danann snjalla.
vignir@dvJs
GOÐAR RÆÐUR OLAFS
FH-ingar fá greinilega góðar hálf-
leiksræður frá Ólafi Jóhannessyni
þjálfara því að þeir eru mjög sterkir
á fyrsta hálftima seinni hálfleiks. Á
sama tíma og FH-ingar eru með sjö
mörk í plús á þessum kafla í leikn-
um hefur ekkert hinna liðanna náð
að skora meira en marki fleira en
mótherjarnir. Þess má geta að
markatala FH-liðsins á öðrum mín-
útum leiksins er 9-15, mótherjum
þeirra í vil.
Besta markahlutfall liðanna á
46. til 75. mín
FH +7(11-4)
Valur +1 (8-7)
Grindavík +1 (7-6)
ÍA +1 (6-5)
IBV 0(7-7)
KR 0(4-4)
Fylkir -1 (2-3)
KA -2 (4-6)
Fram -3 (2-5)
Þróttur -4(6-10) ooj.sport@dv.is
URSLITAMORK A VAL
Valsmenn fengu í gær á sig sigur-
markífimmtasinn ísumar, þarafí
þriðja sinn í síðustu fjórum leikjum.
Valsmenn hafa tapað alls sex leikj-
um með einu marki, þar af þeim
þremur síðustu.
Flest sigurmörk fengin á sig:
Valur 5
KA 4
Fylkir 3
Fram 3
FH 2
Þróttur 1
KR 1
ÍBV 1
IA MMM
(BV 1
Sigurmörk skoruð á Val í sumar:
2. júnl, Sören Hermansen, Þrótti (1-0)
16. júní, Veigar P. Gunnarsson, KR (2-1)
6. júll, Ingvar Ólason, Fram (2-1)
24. júlí, Ingi Sigurðsson, (BV (2-1)
28. júlf, Allan Borgvardt, FH (3-2)
ooj.sport@dv.is
„Erum bara í bull-
andi fallbaráttu"
Ég er auðvitað mjög ánægður
með að hafa sigur í þessum svaka-
Iega leik. Ég veit ekkert um hvort
við höfum átt sigurinn skilinn en
er einhvern tíma spurt að því? Það
sem skiptir máli er að skora fleiri
mörk,“ sagði Ólafur Jóhannesson,
þjálfari FH í leikslok.
„Ég var verri í hálfleik f þessum
leik en oft áður. Það liggur ósköp
ljóst fyrir hvað það er sem við
þurfum að gera en mér fannst við
ekki vera að gera hlutina eins og
við ætluðum að gera þá í fyrri
hálfleik. Við vorum hræddir og
þorðum ekki að halda boltanum
en það breyttist í síðari hálfleik.
- Hvert er markmiðið hjá FH úr
því sem komið er?
„Við settum okkur ákveðið tak-
mark fyrir mót sem kemur f ljós
hvað er þegar sumarið er búið,"
sagði Ólafur og glotti. „Það vom
ekki margir sem höfðu trú á okkur
fyrir mót, það var hraunað yfir
okkur í fjölmiðlum og sagt að við
gætum ekki neitt. Við höfum okkar
takmark og ég skal láta ykkur vita
hvað það er þegar mótinu er lok-
ið,“ sagði Ólafur að lokum, hæsta-
ánægður með að hafa afsannað
flestar spár fyrir sumarið, þar sem
FH-ingum var spáð löku gengi.
Gáfum ódýr mörk
„Þetta em mikil vonbrigði.
Seinni hálfleikurinn var náttúrlega
jafn en ég hélt þegar við vorum
komnir í 2-1 að við myndum klára
leikinn, en svona er þetta bara
stundum," sagði Þorlákur
Árnason, þjálfari Vals, eftir leikinn.
„Þessi úrslit gera okkur auðvitað
mjög erfitt fyrir og við emm ein-
faldlega í bullandi fallbaráttu.
Þetta verður bara mjög erfitt það
sem eftir er. Við höfum verið að
skora lítið en náum að skora tvö í
dag og það á að nægja til að fara
með sigur af hólmi. En í staðinn
fáum við þrjú ódýr mörk á okkur,
Þetta er bara eitthvað sem við
þurfum að vinna í,“ sagði Þorlákur
við DV Sport. vignir@dv.is
K A K L A H
LANDSBANKADEILD
Staðan:
Fylkir 11 6 2 3 16-9 20
KR 11 6 2 3 15-13 20
Grindavík 11 6 1 4 17-17 19
Þróttur 11 6 0 5 19-16 18
FH 12 5 3 4 20-19 18
IBV 11 5 1 5 18-16 16
KA 11 4 2 5 18-17 14
lA 11 3 5 3 14-13 14
Valur 12 4 0 8 16-22 12
Fram 11 2 2 7 14-25 8
Markahæstu leikmenn:
BjörgólfurTakefusa, Þrótti 9
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, (BV 9
SteinarTenden, KA 7
Allan Borgvardt, FH 6
Jóhann Hreiðarsson, Val 6
Sören Hermansen, Þrótti 6
Hreinn Hringsson, KA 5
Veigar Páll Gunnarsson, KR 5
Guðjón Heiðar Sveinsson, (A 4
Jónas Grani Garðarsson, FH 4
Slnisa Kekic, Grlndavik 4
Haukur Ingi Guðnason, Fylki 4
Kristján Brooks, Fram 4 V
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR 3
Tommy Nielsen, FH 3
Sigurbjörn Hreiðarsson, Val 3
Björn Viðar Asbjörnsson, Fylki 3
Óli Stefán Flóventsson, Grindav. 3
Hálfdán Gíslason, Val 3
Næstu leikin
Fylkir-lBV
(A-KR
íkvöld kl. 19.15
annað kvöld kl. 19.15
KA-Þróttur Fim. 31. júlí kl. 19.15
1 K N A T T S P V R N A !
l. DEILD KVENNA
A-rlölll: HKA/íkingur-Þróttur/Haukar 2 0-1
Staðan:
Breiðabl. 2 8 8 0 0 50-8 24 j§
RKV 9 6 i 2 35-20 19
Fjölnir 8 6 0 2 23-14 18
HK/Vík. 10 4 1 5 21-13 13
IR 9 3 0 6 27-25 9
Þrót/Hau 2 9 2 0 7 10-40 6
HSH 9 1 0 8 11-57 3
Markahæstu leikmenn:
Bryndls Jóhannesdóttir, ÍR 14
Ágústa Jóna Fjeiðdal, Reyni S. 12
Vilfríður F. Sæþórsdóttir, Breiðabl. 11
Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, Fjölni 7
Lára Hafliðadóttlr, HK 7
Ásthildur Margrét Hjaltadóttir, (R 7
Eyrún Oddsdóttir, Breiðabliki 2 6
Kristrún Lilja Daðadóttir, Breiðabl. 6
Hrefna M. Guðmundsd., Reyni S. 6
BOLTINN HANDSAMAÐUR: Sverrir Garðarsson, varnarmaður FH, og Daði Lárusson, markvörður FH, hafa hér allt á hreinu og náði
Sverrir I þessu tilviki að skýla boltanum I hendur Daða áður en Thomas Maale náði til knattarins. DV-mynd Hari