Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Page 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 13.ÁGÚST2003
OTGÁFUFÉLAG: ÚtgáfufélagiðDVehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRrTSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, slmi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan
auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Arvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir
viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Breki tekinn
SJÁVARÚTVEGUR: Landhelg-
isgæslan færði Breka VE til
hafnar á Eskifirði síðastliðinn
sunnudag vegna gruns um
landhelgisbrot. Varðskips-
menn fóru um borð og sáu
að smáfiskaskilja var ekki þar
sem hún átti að vera. Skipið
var því flutt til hafnar þar sem
sýslumaðurinn á Eskifirði tók
við rannsókn málsins.
Borgarráð vill
SINFÓNÍAN: Borgarráð sam-
þykkti í gær að endurskoða
aðild Reykjavíkurborgar að
Sinfóníuhljómsveit Islands á
þeirri forsendu að aðildin
væri orðin úrelt. Reykjavíkur-
borg og Seltjarnarnesbær,
auk ríkisins, eiga aðild að
rekstri hljómsveitarinnar og
greiðir Reykjavíkurborg um
70 milljónir króna til hans á
út úr rekstri
ári. Borgarráð telur eðlilegt
að stjórn hljómsveitarinnar sé
á einni hendi. Borgarfulltrúar
Reykjavíkurlista telja t.d.
óeðlilegt að fulltrúi borgar-
innar eigi aðild að verkefna-
vali hljómsveitarinnar. Borg-
arstjóri mun kynna mennta-
málaráðherra samþykkt ráðs-
ins og óska eftir breytingum
á lögum þar að lútandi.
Óvelkomnir
LÖGREGLA: Þrír menn voru
handteknir á sjötta tímanum
í nótt, grunaðir um að hafa
brotist inn í íbúð í Austur-
bænum. Konan sem þar býr
varð vör við umgang og sá
þá þrjá menn í og við íbúð-
ina. Hún hringdi strax á lög-
regluna sem handtók þá
skömmu síðar. Mennirnir sitja
nú í varðhaldi.
Orkuveita Reykjavíkur samþykkir verðhækkanir vegna
minni sölu á heitu vatni:
EINIR UM HÆKKUN VERÐS: Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi í gær að hækka verð á rafmagni um 1,2% og heitu vatni um
5,8%. Þetta er gert til að mæta tekjutapi vegna minnkandi sölu á heitu vatni en víða um land sjá hitaveitur fram á allt að 10% tekjumissi
vegna hlýindanna sem verið hafa að undanförnu. OR er eina orkufyrirtækið sem samþykkt hefur hækkanir á verðskrá vegna þessa.
Efni blaðsins
Stjórnmálamenn
spurðir um boðsferðir
- frétt bls. 4
Skæð tölvuveira á
ferðinni
- frétt bls. 8
Þrái að verða sjálfstæð
-Fréttbls. 10-11
Múrinn mikli í ísrael
- Heimsljós bls. 12
Sýning Roni Horn
- Menning bls. 18
í tísku að sauma út
-Tilvera bls. 24-25
Bíó og sjónvarp
-Tilvera bls. 34-35
DV Bingó
Nú spilum við allt
spjaldið og ætti
ekki að liða á
löngu áður en
einhverfær bingó.
Verðlaun fyrir bingó á
allt spjaldið eru afar glæsileg,
vikuferð til Portúgals meðTerra
Nova Sól. Athugið að samhliða
einstökum röðum hefur allt
spjaldið verið spilað í sumar
þannig að tölurnar sem dregnar
hafa verið út í bingóleik DV til
þessa gilda á allt spjaldið.
26. talan sem kemur upp er 33.
Þeir sem fá bingó láti vita (síma
550 5000 innan þriggja daga. Ef
fleiri en einn fá bingó verður
dregið úr nöfnum þeirra.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum í gær
að hækka gjaldskrá sína til að
mæta tekjutapi vegna minnk-
andi sölu á heitu vatni. Aðrar
hitaveitur munu ekki fylgja for-
dæmi OR, a.m.k. ekki strax,
þrátt fyrir að margar þeirra sjái
fram á allt að 10% tekjumissi á
árinu.
Orkuveita Reykjavíkur sam-
þykkti á stjórnarfundi í gær hækk-
un gjaldskrár fyrir rafmagn og hita-
veitu til þess að mæta tekjutapi
sem orðið hefur á síðusta ári vegna
hlýinda. Horfur eru því á að Orku-
Notkun heits vatns hef-
ur dregist verulega
saman á síðustu miss-
erum og víða sjá menn
framáaiitað 10%
tekjumissi. Þrátt fyrir
það hafa ekki verið
teknar ákvarðanir um
hækkun gjaldskráa til
að mæta tapinu nema
hjá OR.
veitan verði af allt að 400 milljón-
um króna á árinu vegna minni sölu
,á heitu vatni. Því var samþykkt til
að rafmagn skildi hækkað um 1,2%
og heitt vatn um 5,8% og mun það
skila OR um 70 milljónum króna
það sem eftir er ársins.
Aðrar hitaveitur munu ekki
hækka verð strax
Stjómendur Orkuveitunnar
segja hækkunina á rafmagnsverði
til komna vegna hærra heildsölu-
verðs á rafmagni frá Landsvirkjun.
Sú breyting tók gildi 1. ágúst og til
að mæta henni var verðið á raf-
magni hjá OR hækkað um 1,2%.
Þrátt fyrir hærra heildsöluverð á
rafmagni munu aðrar orkuveitur,
s.s. Orkuveita Húsavíkur, ekki
hækka verðskrá sína til neytenda.
Hækkun OR á heitu vatni má hins
vegar rekja til minni notkunar á
heitu vatni sem er að mestu til
komin vegna góðs veðurfars. Þess
vegna var ákvörðun um að hækka
gjaldskrá á heitu vatni um 5,8% en
hitaveitugjaldið hækkaði sfðast
fyrir rúmum sex vikum, þá um
3,4%.
Sjálfstæðismenn í stjórn Orku-
veitunnar hafna þeim skýringum
að hlýindi valdi hækkunarþörfinni.
Á fundinun í gær létu þeir bóka að
óvarlegar fjárfestingar OR, upp á
6-7 miljarða króna, séu þegar farn-
ar að veikja fjárhag fyrirtækisins
vemlega. Þeir leggja því til að eitt-
hvað af eignum félagsins, s.s. höf-
uðstöðvar og dótturfyrirtæki, verði
seld og hagnaðurinn notaður til að
greiða niður skuldir í stað þess að
hækka gjaldskrá.
Fæstar hitaveitur landsins hafa
aftur á móti fylgt þessu fordæmi
Hækkun á gjaldskrá Orkuveitu
Reykjavíkur fyrir hita og raf-
magn, sem rakin er til hlýinda
að undanförnu, hefur vakið
deilur. Verðmælingar Hagstof-
unnar leiða í Ijós að síðustu ár
hafa hiti og rafmagn hækkað
minna en almennt verðlag.
Eins og meðfylgjandi tafla sýnir
hækkuðu hiti og rafmagn mun
minna en almennt verðlag frá júlí
1998 til júlí 2003. Á þessum fimm
árum hækkaði almennt verðlag
um 23,3% en hiti um 13,2% og raf-
magn um 11,4%.
Undanfarið ár hefur þróunin
hins vegar verið á allt annan veg:
Almennt verðlag hefur hækkað
Orkuveitu Reykjavíkur og sem
dæmi hafa ekki verið teknar
ákvarðanir um hækkun gjaldskrár
hjá Hitaveitu Rangæinga, Hita-
veitu Dalvíkur og Hitaveitu Sel-
tjarnarness. öllum ber þó saman
um að notkun heits vatns hafi
dregist verulega saman á síðustu
misserum og víða óttast menn að
magn um 5,6%.
Sem kunnugt er hækkaði Orku-
veita Reykjavíkur gjaldskrá hita-
veitu um 5,8% og gjaldskrá fyrir
rafmagn um ríflega 1%. Ekki er
tekið tillit til þessara hækkana í
töflunni. Raunar er óvíst hvort
næsta hækkun á undan, sem varð
fyrir hálfum öðrum mánuði, sé
tekjumissir vegna þessa verði allt
að 10%. Þrátt fyrir það hafa ekki
verið teknar ákvarðarnir um hækk-
un gjalds til að mæta tekjutapinu.
Hækkun Orkuveitu Reykjavíkur á
heitu vatni vegna minni sölu er því
einsdæmi meðal orkufyrirtækj-
anna hér landi.
agust@dv.is
inni í nýjustu tölum Hagstofunnar
sem gefnar vom út fyrri hluta júlf.
Ljóst er að hækkun hita og raf-
magns hefur undanfarin misseri
smám saman nálgast það heldur
að vera jafnmikil og hækkun á al-
mennu verðlagi. Nákvæm mæling
á því fæst þó ekki fyrr en í næsta
mánuði, þegar Hagstofan birtir
vísitölur fýrir ágúst.
HÆKKUN Á HITA, RAFMAGNI OG VÍSITÖLU NEYSLUVERÐS
Hækkun frá þvlíjúll áriö
2002 2001 2000 1999 1998
Vfsitala neysluverðs 1,6% 5,8% 13,2% 19,5% 23,3%
Rafmagn 5,6% 5,7% 10,9% 10,8% 11,4%
Hiti 5,5% 4,0% 8,3% 10,6% 13,2%
Hver tala I töflunni sýnir hækkunina frá júli tiltekiö ár til júli á þessu ári.
Heimild: Hagstofa Islands.
Hiti og rafmagn hafa hækk-
að minna en verðbólga
- þangað tilsíðustu mánuði að þróunin hefursnúist við.
um 1,6% en hiti um 5,5% og raf-