Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST2003
4
Trilla fannst
LEIT: Björgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á Norður-
landi, ásamtfiskibátum, leituðu í
gærkvöldi að trillu með einum
manni um borð sem saknað var á
Grímseyjarsundi.Trillan fannst
síðan klukkan hálfníu í gærkvöldi,
um sex sjómílur norðvestur af
Gjögurtá, en samkvæmt upplýs-
ingum frá Landsbjörg amaði ekk-
ert að manninum.
Þrír slasaðir
Flosi fékk fjóra mánuði
DUBAI: Dómur var felldur yfir
Flosa Arnórssyni, íslenska sjó-
manninum sem verið hefur í
haldi og síðan farbanni í
Dubai, í gær. Samkvæmt hon-
um var Flosa gert að sitja fjóra
mánuði í fangelsi. Hann hefur
þegar afplánað hluta þess tíma
en á eftir að sitja í fangelsinu í
56 daga. Hann var fluttir í
fangelsið í gærmorgun.
Ekki hefur tekist að ná tali af
Flosa en hann gat sent SMS-
skilaboð til ættingja sinna hér
heima í gærmorgun. Sagði
hann þar frá því að dómur
hefði verið kveðinn upp yfir
sér og kvaðst vera á leiðinni í
fangelsið í Abu Dabi til afplán-
unar. Flosi var dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi fyrir
að vera með óskráða byssu á
flugvellinum í Dubai. Hann var
einnig dæmdur í tveggja mán-
aða fangelsi fyrir að hafa haft
28 skothylki í fórum sínum.
Málið verður tekið fyrir á æðra
dómsstigi 24. ágúst. Þar verður
farið fram á að Flosi fái að af-
plána báða dómana í einu.
Verði gengið að því losnar
Flosi úrfangelsinu þá og getur
komið heim.
SLYS: Umferðarslys varð í Þor-
lákshöfn í gærkvöldi þegar bíll
með þremur mönnum valt.
Sjúkrabíll frá Selfossi var sendur
á vettvang og flutti mennina á
slysadeild Landspítalans til
frekari aðhlynningar. Þeir eru
ekki lífshættulega slasaðir.Til-
drög slyssins eru enn óljós og
er málið nú í rannsókn hjá lög-
reglunni á Selfossi.
Deilurstanda yfir á milli íbúa og sýslumannsins á Ólafsfirði:
Saka sýslumann um yfirgang
Bæjaryfirvöld í Ólafsfirði ræddu
í gær við Ástríði Grímsdóttur
sýslumann um samskipti emb-
ættisins við Vélsleðafélagið og
einstaklinga í bænum. Dóms-
málaráðuneytið hefur látið
kanna embættisfærslu sýslu-
manns og telur hana eðlilega.
Fulltrúi dómsmálaráðuneytisins
hélt fyrir skömmu til Ólafsfjarðar til
fundar við sýslumann og starfs-
menn embættisins. Ástæða þess var
mikill fjöldi kvartana sem borist
höfðu frá fbúum á svæðinu vegna
sýslumannsins. Þær sneru einkum
að útgáfu ýmiss konar leyfa, m.a.
Deilurnar eru því langt
frá þvíað vera leystar
og má jafnvel búast við
að annar fundur verði
haldinn um málið áður
en langt um líður.
vegna skemmtanahalds og mót-
orcrossmóts, auk þess sem verk-
takafyrirtæki á staðnum kvartaði
undan synjun sýslumanns um leyfi
til að kaupa sprengiefni. Verktakinn
hefur nú flutt lögheimili sitt annað.
Engin lög brotin
Fulltrúi dómsmálaráðuneytisins
komst að þeirri niðurstöðu að eng-
ar athugasemdir þyrfti að gera við
framgöngu sýslumanns eða lög-
reglu. Þrátt fyrir það eru ekki allir á
eitt sáttir á Ölafsfirði og hafa mál-
efni sýslumannsins m.a. borist inn
á borð bæjaryfirvalda. Á fundi ráðs-
ins í lok síðasta mánaðar voru mál
Vélsleðafélagsins og mótorkross-
manna rædd. Sýslumaður hafði þá
afturkallað leyfi fyrir æfmgasvæði
þeirra. Voru menn allt annað en
sáttir við það og sökuðu sýslumann
MÓTORKROSS: Deilur hafa staðið á milli bæjaryfirvalda og sýslumannsins á Ólafsfirði, m.a. vegna lokunar mótorkrossbrautar í síðasta mánuði. Þá hafa sumir íbúanna sakað sýslumann
um að hrekja atvinnustarfsemi út úr bænum en fulltrúi dómsmálaráðuneytisins, sem kannaði embættisfærslu sýslumannsins, taldi hana eðlilega.
um vísvitandi tilraun til að að
hrekja mótoríþróttafólk út úr bæn-
um. Sýslumanni var gerð grein fyrir
umræðunni f bréf! og greinilegt var
að ekki voru allir bæjarráðsmenn
ánægðir með framgöngu sýslu-
manns.
Þá var boðað til fundar í gær þar
sem bæjaryfirvöld og sýslumaður
hittust. Þar voru samskipti embætt-
isins og bæjaryfirvalda rædd og
sýslumaður gerði m.a. grein fyrir af-
stöðu sinni til áðurnefndrar mótor-
krossbrautar og af hverju talin var
þörf á að loka henni. Önnur máf
voru einnig rædd sem fundarmenn
neita að tjá sig um að svo stöddu.
Lfldegt þykir að þar hafi málefni
verktakafyrirtækis verið á ferðinni
en mikil ólga hefur verið í bænum
eftir að sýslumaður synjaði verk-
taka um leyfi til kaupa á sprengi-
efni. Fyrir vikið flutti verktakinn
lögheimifi sitt úr bænum. Líst
mörgum íbúanna illa á þá þróun og
segja sýslumanninn vera að hrekja
alla atvinnustarfsemi úr bænum.
Fólk innan bæjarstjórnar Ólafs-
fjarðar, sem DV ræddi við vegna
málsins, sagði fundinn í gær hafa
verið nauðsynlegan þótt hann hefði
skilað litlum árangri. Deilurnar eru
því langt frá því að vera leystar og
má jafnvel búast við að annar fund-
ur verði haldinn um málið áður en
langt um líður. agust@dv.is
Formaður Heimdallar um 52% hækkun
beinna skatta frá 7990:
Launþegahreyfingin
ætti að spyrna við fótum
Eins og DV greindi frá í gær hafa
nettó tekju- og eignarskattar
hækkað úr 15% í 23% sem hlut-
fall af öllum skattskyldum tekj-
um frá 1990, samkvæmt nýbirt-
um álagningarskrám fyrir
tekjuárið 2002. Fyrir mismun-
inn mætti hækka persónuaf-
slátt um 18.500 krónur á mán-
uði eða lækka skattprósentuna
um 6%.
„Þetta kemur manni ekki mikið á
óvart þar sem þetta á sér sínar eðli-
legu skýringar; skatthlutföllin hafa
lækkað, hagkerfið stækkað og tekj-
Heimdallur hefur löng-
um barist fyrir lækkun
skatta og árlega haldið
upp á „skattadaginn".
ur ríkisins aukist við það, en á þess-
um langa uppgangstíma hefur hið
opinbera slakað á í sparnaði og
fitnað eins og púkinn á fjósbitan-
um,“ segir Magnús Þór Gylfason,
formaður Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavfk, um
þessa þróun. Heimdallur hefúr
löngum barist fyrir lækkun skatta
og árlega haldið upp á „skattadag-
inn“, sem markar þau tímamót að
tekjur landsmanna það sem af er
árinu duga fyrir skattgreiðslum árs-
ins.
Magnús Þór leggur til að laun-
þegahreyfingin leggist nú á árarnar
með þeim sem berjast gegn auk-
inni skattbyrði. „Það sem væri
ánægjulegt að sjá væri að laun-
þegahreyfingin tæki málið upp og
berðist fyrir því að snúið yrði af
þessari braut. Þó ekki með þeim
hætti að reyna að færa skattbyrðina
frá einum hópi til annars. Það
gagnast lítið til lengri tíma litið.
AÐILAR VINNUMARKAÐARINS: Forystumenn ASf, vinnuveitenda og ríkisstjórnarinnar hitt-
ust í Stjórnarráðinu í september 2001. Næsta verkefni verður líklega að tvinna skattalækk-
unarhugmyndir ríkisstjórnarinnar saman við komandi kjarasamninga.
Stærsta verkefnið sem við stöndum
frammi fyrir núna er að draga úr út-
gjöldum hins opinbera, ríkisins og
ekki síður sveitarfélaganna."
í umfjöllun vefrits fjármálaráðu-
neytisins um skattbyrði, sem um-
fjöllun DV í gær byggðist á, er þró-
unin rakin til mikillar kaupmáttar-
aukningar og upptöku fjár-
magnstekjuskatts. Til viðbótar hef-
ur ráðuneytið nú svarað því til að
frá 1990 hafi skattbyrðin meðvitað
verið færð frá óbeinum sköttum
yfir í beina skatta. Aukin byrði
beinna skatta segi því ekki alla sög-
una og heildarskattbyrði hafi aukist
minna.
olafur@dv.is
I
I
4