Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Blaðsíða 12
72 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 13.ÁGÚST2003
Múrínn mikli, sem skilur að ísraei og Palestínu, þykir minna á hinn illræmda Berlínarmúr:
ísraelar umlykja
sig ókleifum múr
\ HEIMSUÓS
Oddur Ólafsson
oddur@dv.is
Múrinn sem ísraelar eru að reisa
á milli sín og Palestínumanna er
átta metra hár og ókleifur með
öllu. Ofan á hann verður sett
nokkurra metra há gaddavírs-
girðing og þegar mannvirkið
verður fullgert munu landamær-
in, sem aðskilja (srael og
Paletínu, verða rammlega lokuð
þegar síðarnefnda ríkið fær sjálf-
stæði og forræði um sín mál.
Múrnum mikla, sem gyðingarnir
ætla að umlykja með sjálfa sig, er
líkt við hinn illræmda Berlínar-
múr sem var um árabil tákn um
járntjaldið mikla sem skiidi að
austrið og vestrið, alræðið og
lýðræðið.
Framkvæmdir em hafriar á
nokkmm stöðum og gefa hugmynd
um hvað í vændum er. Við bæinn
Kalkilya á Vesturbakkanum er þetta
átta metra háa mannvirki orðið
nokkurra kílómetra langt og em
varðtumar á því með 300 metra
millibili. Opinberlega er látið í veðri
vaka að ísraelsmúrinn verði 360 km
langur en búist er við að fullgerður
verði hann ekki skemmri en 600
kílómetrar. Til samanburðar má
geta að hringvegurinn um ísland er
um 1100 km og Israel er að flatarmáli
svipað að stærð og samanlagðar
Þingeyjarsýslur.
Það er þegar komið í
Ijós hvílíkt skaðræði
mannvirkið mikla er,
svo sem á milli Jenin og
Tulkaren sem er eitt
frjósamasta svæði
Vesturbakkans en er nú
sundurskorið afmúrn-
um.
Palestínumenn halda því fram að
undirbúningur að múrsmíðinni hafi
staðið yfir í áratugi og að hugmynd-
in að mannvirkinu hafl komið fram
þegar árið 1948 þegar fsrael varð
sjálfstætt ríki. En hvað sem því líður
er múrinn mikli að verða staðreynd
og hann lengist með hveijum degin-
um sem líður.
Sums staðar nær múrinn inn á
hertekin lönd á Vesturbakkanum og
eru engin mótmæli tekin til greina
þegar kvartað er. Víða liggur stein-
steypubáknið yfir þorp og bújarðir
sem ýmist eru eyðilagðar eða skom-
ar sundur og lenda ólífulundir og
áveitur palestínskra bænda iðulega
ísraelsmegin en íbúðarhús þeirra
hinum megin.
Svipað er að segja um skóla og
vinnustaði. Múrinn gerir mörgum
Palestínumanninum ókleift að kom-
ast með eðlilegum hætti á vinnustað
og bömum að sækja skóla.
Múrinn liggur víða yfir ræktarlönd á Vesturbakkanum og sker sundur áveitur bænda.
ámmk mmm rmmmk mmmk íamm& ___ ^