Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Page 16
16 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST2003
tr
Hetmytím f há&t$kum
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson
Netfang: gube@dv.is
Sími: 550 5829
hjálpar
Þjakaðir bíða
LÍBERÍA: Örvæntingarfullir íbú-
ar Afríkuríkisins Líberíu gerðu
sér í morgun vonir um að mat-
væli og lyf, sem mikil þörf erá,
myndu áður en langt um líður
berast til höfuðborgarinnar
Monróvíu.
Friðargæsluliðarfrá ríkjum í
Vestur-Afríku eru í óða önn að
búa sig undir að taka við stjórn
hafnarinnar úr hendi uppreisn-
armanna.
Helstu samtök uppreisnar-
manna í landinu tilkynntu í
gær, daginn eftir að Charles
Taylor fórseti hélt í útlegð til
Nígeríu, að þau myndu fara
með sveitir sínar burt úr höf-
uðborginni. Að minnsta kosti
tvö þúsund manns hafa látið
lífið (átökunum í Monróvíu
undanfarnar vikur og mánuði.
Nóg komið
DANMÖRK: Mikil sorg ríkir á
Norrebro í Kaupmannahöfn
eftir að tveir unglingspiltar úr
röðum innflytjenda myrtu
ungan ítalskan ferðamann á
dögunum. Hópurfeðra í hverf-
inu segir að nú sé nóg komið
af ofbeldisverkum ungling-
anna og ætla að stöðva þau.
Líklegt er að eftirlitsferðir um
hverfið verði aftur hafnar.
Afleiðingar sjálfsmorðsárásanna í gær:
ísraelar slá friðar-
ferlinu á frest
Bandarísk stjórnvöld for-
dæmdu í gær tvær sjálfs-
morðsárásir Palestínumanna,
sem þau óttast að geti haft
alvarlegar afleiðingar á við-
kvæmt vopnahléið fyrir botni
Miðjarðarhafs eftir að ísraelar
ákváðu í gær að slá á frest
friðarferlinu sem byggist á
Vegvísinum til friðar.
Tvær vopnaðar hreyfingar Pal-
estínumanna hafa þegar lýst
ábyrgð á sjálfsmorðsárásunum í
gær, sem urðu tveimur ísraelskum
borgurum að bana og segja þær
hafa verið hefnd og viðvörun til
fsraelsmanna vegna morðárása
þeirra í síðustu viku.
Hin róttæka al-Aqsa-herdeild,
sem er tengd Fatah-hreyfíngu Yass-
ers Arafats, lýsti ábyrgð á fyrri
árásinni sem gerð var á verslunar-
miðstöð í Rosh Haayin í nágrenni
Tel Aviv, en þar féll einn ísraelskur
borgari auk þess sem að minnsta
kosti tíu særðust, þar af einn lífs-
hættulega.
Að sögn ísraelsku lögregunnar
var einn Palestínumaður hand-
tekinn eftir árásina, grunaður um
að hafa ekið sjálfsmorðsliðanum á
staðinn, en þegar hafa verið borin
kennsl á sjálfsmorðsliðann sem
unglinginn Khamis Jarwan úr
Nablus-flóttamannabúðunum.
Að sögn Saebs Erakats, ráðherra í
heimastjórn Paiestínumanna, hef-
ur Arafat þegar fordæmt árásina.
Fyrsta vopnahlésbrot Hamas
Izzedine al Qassam, vopnaður
armur Hamas-hreyftngarinnar lýsti
ábyrgð á seinni árásinni, sem gerð
var á strætisvagnabiðstöð í nágrenni
Ariel-landtökubyggðarinnar á
Vesturbakkanum, en þar lést einnig
einn ísraelskur borgari, átján ára
piltur, auk þess sem tveir særðust.
Þar hafa einnig verið borin kennsl á
sjálfsmorðsliðann sem Islam Qtishat
en hann var einnig á unglingsaldri
og frá Nablus eins og hinn.
Þetta er í fyrsta skipti sem vopn-
aður armur Hamas-samtakanna
brýtur tímabundið vopnahléssam-
komulag, sem samþykkt var þann
29. júní sl., en á heimasíðu sam-
takanna kemur fram að árásin sé
hefnd fyrir dráp fsraelsmanna á
tveimur Hamas-foringjum í Nablus
á föstudaginn.
Hvorug hreyftngin hefur lýst því
yfir að vopnahléinu hafi verið aflýst
og því frekar litið á sjálfsmorðs-
árásirnar sem hefnd fyrir dráp
fsraelsmanna í síðustu viku.
Hvorug hreyfingin
hefur lýst því yfir að
vopnahléinu hafi verið
aflýst og því frekar litið
á árásirnar sem hefnd
fyrir dráp ísraelsmanna
i síðustu viku.
Einnig er talið að árásirnar séu
ákveðin skilaboð til palestínskra
stjórnvalda, sem nú eru undir
auknum þrýstingi frá ísraelsmönn-
um um að afvopna öfgahreyfmgar
eins og Izzedine al Qassam,
íslömsku Jihad-hreyfmguna og al-
Aqsa-herdeildina, sem allar hafa
staðið fyrir fjölda árása á ísraelska
borgara á síðustu mánuðum.
Mahmoud Abbas, forsætisráð-
herra Palestínu, hefur þegar vísað
þeirri kröfu ísraelmanna á bug og
sagt að það myndi aðeins Ieiða til
meiri háttar borgarstyrjaldar.
Dore Gold, helsti ráðgjafi Ariels
Sharons, forsætisráðherra fsraels,
segir aftur að móti að afvopnun
palestínskra hryðjuverkasamtaka,
eins og gert sé ráð fyrir í
Vegvísinum til friðar, sé algjört
skilyrði fyrir áframhaldandi friðar-
ferli. „Það verða engar mála-
miðlanir gerðar. Ekkert vopnahlé.
Aðeins skilyrðislaus afvopnun,"
sagði Gold og bætti því við að
ekkert í Vegvísinum segði að
ísraelsmenn gætu ekki haldið
áfram að elta uppi og handtaka
hryðjuverkamenn á Vestur-
bakkanum og á C-aza-svæðinu. Það
sé nauðsynlegt meðan palestínsk
stjórnvöld geri ekkert til þess að
stöðva hryðjuverkin.
Árásirnar fordæmdar
Forsætisráðherrar fsraels og
Palestínu, þeir Ariel Sharon og
Mahmoud Abbas, hafa báðir for-
dæmt árásirnar í gær og sagði
Sharon að þrátt fyrir allt væri það
einlægur vilji sinn að friðarferlið
næði fram að ganga.
„Friður í Guðs nafni er það sem
við viljum,“ sagði Sharon þegar
hann ávarpaði hóp námsmanna frá
Bandaríkjunum í Jerúsalem í gær
en bætti því við að meðan hryðju-
verkamennirnir yrðu ekki afvopn-
aðir væri engin von til þess að
halda friðarferlinu áfram.
ísraelsk stjórnvöld frestuðu því
eftir árásirnar í gær að láta lausa 76
palestínska fanga, eins og lofað
hafði verið, en þeir munu hafa
verið komnir út í rútur og biðu þess
að verða fluttir til heimastjórnar-
svæðanna þegar þeim var skipað
aftur inn í fangelsið.
Beðið er með spenningi eftir
frekari viðbrögðum ísraelsmanna
við árásunum og hugsanlegu fram-
haldi friðarferlisins en boðað hefur
verið til áframhaldandi fundahalda
í dag.
SÆRÐIR FLUTTIR Á BROTT: Tveir ísraelskir
borgarar féllu í tveimur sjálfsmorðárásum
palestínskra öfgasamtaka í gær.
Reyndi að smygla flug-
skeyti til Bandaríkjanna
Bandarísk yfirvöld handtóku í
gær þrjá menn sem stóðu að
samsæri um að smygla rúss-
nesku flugskeyti til Bandaríkj-
anna. Flugskeytið hefði verið
hægt að nota til að granda far-
þegaþotu.
Einn þremenninganna, breskur
ríkisborgari af indversku bergi
brotinn, var handtekinn í New
Jersey þar sem hann reyndi að
smygla flugskeytinu inn í landið.
Hinir mennirnir tveir voru hand-
samaðir í New York þar sem þeir
voru að senda peninga milli landa.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
komst á snoðir um breska vopna-
salann sem var að leita að kaup-
endum að rússnesku SA-18 flug-
skeyti sem skotið er af öxlinni. Yf-
irvöld ákváðu að leiða manninn í
gildru og gerðu menn út af örkinni
sem þóttust vera stuðningsmenn
hryðjuverkasamtakanna al-Qa-
eda. Lögreglumennimir sögðu
vopnasalanum að þeir hefðu hug á
að gera árás á Bandaríkin.
Dulbúið sem lækningatæki
Vopnasalinn var beðinn um að
útvega eitt flugskeyti til að sýna
það og sanna að hann gæti staðið
við stóm orðin. Hann hafði þá
samband við glæpamenn í Rúss-
landi sem útveguðu flugskeytið.
Vopnið var síðan sent til Banda-
ríkjanna og sagði á farmskýrslu að
um lækningatæki væri að ræða.
Bretinn var handtekinn eftir að
hann hafði sótt flugskeytið í toll-
inn.
Athygli yfirvalda á vopnasalan-
um vaknaði fyrst fyrir fimm mán-
uðum í Pétursborg í Rússlandi.
Löggæsluyfirvöld og leyniþjónust-
ur f Bretíandi, Bandaríkjunum og
Rússlandi unnu saman að málinu.
Talsmaður rússnesku Ieyniþjón-
ustunnar sagði í morgun að þetta
væri fyrsta aðgerð sinnar tegundar
frá því kalda stríðinu lauk.
HALD LAGT Á SÖNNUNARGÖGN: Bandarískir löggæslumenn flytja skjalaskápa og
kassa úr húsi (New York. Innrás lögreglunnar er talin tengjast samsæri um að smygla
rússnesku flugskeyti til Bandaríkjanna. Upp komst um samsærið og eru þrfr í haldi.