Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 13.ÁGÚST2003 FRÉTTIR 77
Harðlínumaður ekki með
NORÐUR-KÓREA: Bandarísk
stjórnvöld tilkynntu í gær að
háttsettur embættismaður,
John Bolton, sem Norður-
Kóreumenn hafa kallað„úr-
þvætti" fyrir að gagnrýna leið-
toga þeirra, tæki ekki þátt í
viðræðum um kjarnorkudeilu
landanna í Peking síðar í mán-
uðinum.
Richard Armitage, aðstoð-
arutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði hins vegar að
margir vestra deildu skoðun-
um Boltons á Norður-Kóreu.
Utanríkisráðuneyti Norður-
Kóreu sagði í morgun að eina
leiðin til að leysa kjarnorku-
deiluna væri sú að gerður yrði
samningur við Bandaríkin þar
sem ríkin hétu því að ráðast
ekki hvort á annað.
Sakaruppgjöf afturkölluð
ARGENTÍNA: Neðri deild
argentínska þingsins ógilti í
gær sakaruppgjöf til handa
liðsforingjum í hernum sem
pyntuðu og myrtu vinstrisinna
í svokölluðu „sóðastríði"
stjórnvalda gegn andstæðing-
um sínum á árunum 1976 til
1983. Samþykktin kann að
leiða til þess að réttað verði yf-
ir þeim sem frömdu mannrétt-
indabrot.
Lögspekingar segja að at-
kvæðagreiðslan í gær hafi að
mestu verið táknræn en mikil-
væg fyrir það að auka enn á
þann þrýsting sem Nestor
Kirchner forseti hefur beitt
hæstarétt landsins um að
kveða upp endanlegan úr-
skurð um lögin um sakarupp-
gjöf mannréttindabrjótanna.
Herforingjastjórnin lét á sín-
um tíma handtaka Kirchner
þegar hann var námsmaður.
Kirchner er fyrsti forseti
Argentínu sem hefur lýst sig
andvígan sakaruppgjöfinni og
hann hefur þegar ógilt tilskip-
un sem kom í veg fýrir að liðs-
foringjar sem sakaðir hafa ver-
ið um mannréttindabrot yrðu
framseldir.
Kelly taldi litla
ógn stafa af írak
Breski vopnasérfræðingurinn
David Kelly taldi að umheimin-
um stafaði lítil ógn af vopna-
búri íraka og sakaði stjórnvöld
um að gera of mikið úr hætt-
unni til að réttlæta stríðið gegn
Saddam Hussein.
Þetta kom fram í máli Andrews
Gilligans, fréttamanns breska ríkis-
útvarpsins, BBC, þegar hann kom
fyrir sérstaka nefnd sem rannsakar
sjálfsmorð Kellys.
Vopnasérfræðingurinn svipti sig
lífí í síðasta mánuði eftir að hann
hafði verið nafngreindur sem
heimildarmaður fyrir frétt BBC um
að skýrsla bresku stjómarinnar um
írak hefði verið ýkt, að áeggjan
Alastairs Campbells, fjölmiðlafull-
trúa Tonys Biairs forsætisráðherra.
Gilligan sagði rannsóknarnefnd-
inni að Kelly hefði tjáð honum að
flestir leyniþjónustusérfræðingar
hefðu verið óánægðir með vopna-
skýrsluna.
Blair og stjórn hans hafa mjög átt
undir högg að sækja frá því frétt
Gilligans um vopnaskýrsluna var
flutt í maílok.
Gilligan sagði að Kelly hefði sam-
þykkt það sem haft var beint eftir
honum í fréttinni án þess þó að
hann væri nafngreindur.
Yfirheyrslur rannsóknamefndar-
innar hafa einnig leitt í ljós að yfir-
maður Gilligans gagnrýndi vinnu-
brögð hans við fréttaöflunina.
Foringi Lýðveldisvarðar
Saddams handtekinn í gær
Steve Russell, yfirmaður banda-
ríska hersins í Tikrit, sagði í
morgun að fyrrum foringi Lýð-
veldisvarðar Saddams Husseins
hefði verið handtekinn ásamt
tólf öðrum grunuðum stuðn-
ingsmönnum Saddams í um-
fangsmiklum leitaraðgerðum í
nágrenni Tikrit í gær.
Foringinn, sem sagður er náið
skyldmenni Saddams, var ekki
nefndur á nafn en að sögn Russells
var hann handtekinn í einu af þeim
tuttugu húsum, sem leitað var í
suður af Tikrit í gærmorgun, en um
200 hermenn munu hafa tekið þátt
í aðgerðunum.
Ekkert lát var á skæruárásum á
ÁGÆGJUM: Bandarískur hermaður sem
tók þátt í leitaraðgerðunum í gær.
bandarískar hersveitir f gær en þá
féll einn Bandaríkjamaður og tveir
særðust þegar þrjár samstilltar
sprengjur sprungu meðan
bandarísk hersveit var á eftirlitsferð
í nágrenni bæjarins Ramadi, í svo-
kölluðum Súnnftaþríhyrningi, rétt
vestur af höfuðborginni Bagdad.
Þar með hafa 58 Bandaríkja-
menn fallið síðan því var lýst yfir
þann 1. maí að meiri háttar átökum
væri lokið í írak.
Að sögn talsmanns bandaríska
hersins í Bagdad verða bandarískar
hersveitir enn þá fyrir að minnsta
kosti tólf árásum á dag en í fyrradag
féll einn Bandaríkjamaður í
sprengjuárás í bænum Baquba
norðaustur af Bagdad.
Officelsuperstore
: . ■-,
Borðaiu með
bókunum!
Skiptfbóka-
markaðurinn
er f Skeifunni
Komdu með gömlu bækumar og settu þær upp í nýjar bækur...
eða eitthvað annað sem þig vantar fyrir skólann í ár!
Allt í skólatöskuna...
Allir fá innleqgsnótu hjá Office 1 og gildir innleggsnótan til úttektar á hverju sem er í versluninni.
Office 1 áskilur sér rétt til að hafna móttáku bóka sem eru úreltar, ónothæfar eða til í of miklu magni.
Allt í fartölvutöskuna...