Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 13.ÁGÚST2003 TILVERA 35
Sýnd kl. 6,8 og 10. B.i. 10. ára__________Sýnd kl.6,8 og 10.10 B.i. 16.ára
ÁSTRlKUR OG KLEOPATRA MEÐ (SL.TALI: Sýnd kl. 6.
HULK: Sýnd kl.8 og 10.30.
GULLMOLAR
HOLLYWOOD ENDiNG: Sýnd kl. lO.B.i. 12ára.
RESPIRO: Sýnd kl.8. B.i. 12 ára.
NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6. Sýnd m. enskum texta. English subtitles.
SAMBMO
KRINGLAN
ALFABAKKI
s ■ , flSTRIKUIU*
KLEOPATRA
Hloii (jalvö^ku Gtuilvurjdr, A-.inku
(><j SU'imikur eru msettir aftui til
leiks i frabíerri mynd fyrir alla
fjölskyldunii.
Sýnd kl. 3.45 og 5.50.
Sýnd kl.5,8 og 10. B.i.10ára. Sýnd kl. 8 og 10.10. B,i. 16 ára. BASIC: Sýnd kl. 6 og 8 B.i. 16.ára.
| ÁSTRfKUR OG KLEOPATRA MEÐ ÍSL.TALI: Sýnd kl. 5.50. WRONG TURN: Sýndkl.Sog 10. B.i.16. WHAT A GIRL WANTS: Sýnd kl. 4.
1 WHAT A GIRL WANTS: Sýnd kl.5.50 og 8. HULK: Sýnd kl.3.30,6 og 8.30. B.i. 12 ára. MATRIX RELOADED: Sýnd kl.10. B.1.12 ára.
KRINGLAN tS 588 0800
ÁLFABAKKI tS 587 8900
FJÖLMIÐLAVAKTIN
Ágúst Bogason
agust@dv.is
Verðugar
70 mínútur
Merkilegt hvað Skjár einn
getur haldið áfram að sýna
sömu þættina aftur og aftur.
Margar af þeim þáttaröðum
sem nú eru sýndar á þessari
annars ágætu stöð er verið að
sýna í annað, ef ekki þriðja
skiptið, og það er miður fyrir
sjónvarpsfíida. Hins vegar
ber að taka ofan fyrir því
framtaki að endursýna
nokkra vel valda þætti þegar
hefðbundinni dagskrá er lok-
ið á kvöldin, undir heitinu
Nátthrafnar. Þá er einmitt
rétti tíminn til þess að sýna
þætti sem hafa áður verið á
dagskrá stöðvarinnar en það
er hreint og beint óþolandi
þegar gamlar þáttaraðir rata
inn í hefðbundNa dagskrá og
eru sýndar á besta tíma. Von-
andi skánar þetta með
haustinu.
Kvöldþættir eru áhugavert
fyrirbæri. Ég fylgist öðru
hvoru með tveimur slíkum
en það er annars vegar Jay
Leno á Skjá einum og hins
vegar 70 mínútur á Popptíví.
Það er ekki auðvelt að halda
uppi þætti sem er á dagskrá
oft í viku og yfirleitt verða
slíkir þættir fljótt lúnir. Strák-
arnir í 70 mínútum eru aftur
á móti langt frá því að vera
lúnir og eiga hrós skilið fyrir
að geta dag eftir dag skemmt
áhorfendum með uppátækj-
um sínum. Ég hlakka bara til
að sjá þá Sveppa og Auðun á
nýjum vettvangi en þeir
munu víst, ásamt fleiri
grínistum, vera með leikinn
sjónvarpsþátt f bígerð sem
verður svo sýndur í vetur.
5TJÖRNUGJÖF DV
Nói albínói
Terminator 3 ★ ★★
HULK ★ ★★
Charlie's Angels: Full Throttle ★ ★
Jet Lag ★ ★
Matrix Reloaded ★ ★
Legally Blonde 2 ★i
Lizzie McGuire Movie ★ iL
Með Bruce hjálp
KVIKMYNOAQAGNRYNI
Hilmar Karlsson
hkarl@dv.is
l Bruce Almighty leikur Jim
Carrey sjónvarpsfréttamanninn
Bruce Nolan sem er ekki ánægður
með líf sitt. Finnst vera gengið
fram hjá sér í vinnunni, telur unn-
ustu sína ekki sjá sig í réttu ljósi og
finnst í raun allir á móti sér. Hann
lítur þó ekki í eigin barm heldur
kennir öðrum um ófarir sínar og
kvartar við Guð þegar við engan
annan er að sakast. Um þverbak
keyrir þegar hann fréttir í beinni
útsendingu að gengið hafi verið
fram hjá honum við val á nýjum
fréttaþul við sjónvarpsstöðina.
Lætur hann alla samstarfsmenn
sína fá það óþvegið í útsending-
unni og er rekinn. Hvernig komið
er fyrir honum er að sjálfsögðu
ekki honum að kenna, að hans
mati, heldur kennir hann Guði um
allt saman.
Bruce er nefnilega
alveg sama um alla
aðra; notar mátt sinn
eingöngu í eigin þágu
og gerir lítið úr bænum
annarra.
Það kemur að því að Guð fær
nóg af vælinu f Nolan og birtist
honum í líki Morgans Freemans
og spyr hvort hann vilji ekki leysa
sig af í viku meðan hann fer í frí.
Þegar Nolan uppgötvar að ekki er
verið að spila með hann og hon-
um verður ljóst að hann þarf að-
eins að hugsa til að hlutirnir gerist
eiga óvinir hans ekki von á góðu.
Bruce er nefnilega alveg sama um
alla aðra; notar mátt sinn ein-
göngu í eigin þágu og gerir lítið úr
bænum annarra.
Með Jim Carrey nánast í mynd
allan tímann hefði Bruce Almighty
átt að vera fyndnari en hún er.
Gallinn er ekki aðeins sá að Carrey
nær sér aldrei almennilega á strik
og hefur oft verið fyndnari. Sagan
er slík endaleysa að það verður að
treysta á gamanhæfileika Carreys.
Þar sem honum mistekst að bæta
húmorinn sem fyrir er í Iausskrif-
uðu handriti þá er litið eftir.
Bruce Almighty er því best þeg-
ar Carrey fær verðugan módeik.
ÉG HEF KRAFTINN: Jim Carrey í hlutverki Bruce Nolans sem hefur náð sambandi við Guð.
Til að mynda eru atriðin með
Morgan Freeman það besta við
kvikmyndina. Þar er húmorinn á
lægri nótum heldur en þegar
Carrey er einn og eru viðræður
þeirra um Iífið og tilveruna
skemmtilegar. Einnig má nefna
atriðið þegar Carrey, með mætti
Smárabíó/Regnboginn/Laugarásbíó
Bruce Almighty
★★
Guðs, spillir fyrir þeim sem fékk
fréttaþularstarfið. Það atriði er
virkilega fyndið ekki síst vegna
leiks Stevens Carrells í hlutverki
fréttaþularins.
Bruce Almighty er sem sagt
köflótt grínmynd. Of mikið er gert
úr sambandi hans og sambýliskonu
hans Grace (Jennifer Aniston) sem
hægir um of á myndinni, sérstak-
lega miðað við hraðann í atriðum
sem tengjast fréttamannsstarfmu.
Myndin á sem sagt sína hæðir og
lægðir og varla hægt að tala um
hana sem góða heild. Inn á milli má
sjá hvernig hægt hefði verið að út-
færa sumt betur, sérstaklega það
sem viðkemur eigingirni Bmce þeg-
ar kemur að guðlegum mætti. Leik-
stjórinn, Tom Shadyac, sem tvisvar
áður hefir leikstýrt Carrey, treystir
um of á stjörnuna sína sem stendur
svo ekki fyrir sfnu.
Leikstjóri: Tom Shadyac. Handrit Steve Kor-
en, Mark O'Keefe og Steve Oedekerk.
Kvlkmyndataka: Dean Semler. Tónllst John
Debney. Aðalleikaran Jim Carrey, Morgan
Freeman og Jennifer Aniston.
Lífíð .eftit
vinnu
Seyðisfjörður: HSvard Svendsrud,
harmóníkuleikari frá Noregi, leik-
ur á tónleikum í Bláu kirkjunni í
kvöld, kl. 20.30. Hávard er meðal
færustu harmóníkuleikara Noregs
og hefur unnið ýmsar keppnir
þar í landi. Aðgangseyrir í Bláu
kirkjuna er 1000 kr. á mann en
frítt fyrir börn, 16 ára og yngri.
Tónleikarnir eru liður I Norskum
dögum sem hefjast í dag á Seyð-
isfirði.
Sigurjónssafn: Sumarsýningin í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
nefnist Andlitsmyndir og afstrak-
sjónir. Þar eru 13 andlitsmyndir
eftir Sigurjón frá ólíkum tímabil-
um í list hans og jafnmörg af-
straktverk. Sýningin er opin milli
klukkan 14og 17 og kaffistofan
er opin á safntíma.
Laugarbakki: Sýning á teikning-
um hins vinsæla teiknara, Hall-
dórs Péturssonar, sem unnar eru
upp úr Grettis sögu, er haldin á
Hótel Eddu að Laugarbakka í
Miðfirði. Um er að ræða myndir
sem Halldórvann árið 1976Í
tengslum við fyrirhugaða útgáfu
á sögunni sem fallið varfrá.
Teikningarnar, sem eru 14talsins,
hafa því aldrei í heild sinni birst
almenningi fyrr en nú. Sýning-
unni lýkur þann 17. þ.m.
Keflavflc Sýning er á nýjum olíu-
verkum Sossu Björnsdóttur í
Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-
húsum, Duusgötu 2, og er opin
alla daga kl. 12.30-19.. Hún
stendurtil 31. ágúst.