Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Qupperneq 38
38 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 13. ÁOÚST2003
DV-sport spáir um úrslit ensku úrvalsdeildarinnar 2003-2
Nú eða aldrei
Liverpool
Um félagið
Stofnár: 1892
Heimavöllur: Anfield Road
Áhorfendapláss: 45.362
Verið í efstu deild síðan: 1862
Besti árangur
l.saeti í A-deild (1901,1906,1922,
1923,1947,1964,1966,1973,
1976,1977,1979,1980,1982,
1983,1984,1986,1988,1990).
Dýrasti keyptur leikmaður
EmileHeskey 11 milljónir punda
frá Leicester árið 2000.
Dýrasti seldur leikmaður
Robbie Fowler 11 milljónir punda
til Man. City árið 2001.
Leikmenn komnir
Steve Finnan frá Fulham, Harry
Kewell frá Leeds, Carl Medjani frá
St. Etienne, Antony LeTallec og
Florent Sinama-Pongolle frá Le
Havre.
Leikmenn farnir
Patrik Berger til Portsmouth,
Andrew Nicholas til Swindon, Neil
Mellor lánaður til West Ham,
Stephen McNulty lánaður til
Coventry, Bernard Diomede,
Vegard Heggem og Pegguy
Arphexad var leyft að róa á önnur
mið.
Stjórinn: Gerard Houllier
Fæddur: 3. september 1947
Stýrt síðan: 16. júlí 1998
Aðrir klúbbar: LeTouquet, Arras,
Noeux Les Mines, Lens, PSG.
Titlar: FA-bikarinn 2001, Deildar-
bikarinn 2001 og 2003.
Gerard
Houllier byrj-
aði upphaf-
lega sem
fram-
kvæmda-
stjóri með
Roy Evans.
Það gekk
ekki upp og var Evans fljótlega lát-
inn fjúka. Hann hefur byggt upp
sterkt lið sem vann fræga þrennu
árið 2001 og þykir mjög agaður og
skipulagður stjóri. Stýrði franska
landsliðinu um tíma en sagði af sér
þegar Frakkar komust ekki á HM
1994.
Margir vilja meina að þetta gæti
verið árið þegar hlutirnir fara
að ganga upp hjá Liverpool á
ný. Astæðan fyrir því er einföld
- kaupin á Harry Kewell. Þar sé
kominn leikmaðurinn sem
þurfti á Anfield til að félagið
gæti blandað sér í toppslaginn
við Arsenal og Manchester
United af einhverri alvöru. DV-
sport telur hins vegar að svo
verði ekki.
Aðalástæðan fyrir því að Liver-
pool er spáð fimmta sæti en ekki
ofar liggur í leikaðferð Gerards
Houllier. Hann spilar varnarsinn-
aðan fótbolta, sem virðist reyndar
henta liðinu býsna vel, en það
gengur einfaidlega ekki í knatt-
spyrnunni í dag ef ná skal toppár-
angri. Á síðustu leiktíð spilaði liðið
alltof einhæfan sóknarleik þar sem
allt kapp var lagt á að koma boltan-
um á Micheal Owen, og sfðan var
beðið eftir því að hann skapaði
hlutina úr engu.
Harry Kewell hefur vissulega
burði til að breyta þessu. Með til-
komu hans hefur sóknarleikur
Liverpool öðlast nýjar víddir og
mun Ástralinn knái örugglega verða
til þess að eitthvað létti á pressunni
sem hvflir á herðum Micheals
Owen. í Kewell er kominn annar
leikmaður f liðið sem unnið getur
leiki upp á eigin spýtur.
Síðustu ár hefur Liverpool vantað
þennan afgerandi vængmann.
Kewell verður væntanlega settur á
vinstri kantínn, þó svo að Houllier
hafi verið að spila með hann á þeim
hægri á undirbúningstímabilinu,
með misjöfnum árangri. Dietmar
Hamann verður frá keppni fram í
október vegna meiðsla og því mun
miðjan væntanlega verða skipuð
þeim Steven Gerrard og Danny
Murphy. Líklegastur í stöðuna
hægra megin er Senegalinn El-Hadji
Diouf. Líklegastur tíi að spila við
hlið Michaels Owen í framlínunni er
Emile Heskey, þó svo að Tékkinn
knái, Milan Baros, vilji ólmur sýna
hvað í honum býr.
Vömin, ein sú traustasta í
Englandi síðustu tímabil, hefur
fengið eitt nýtt andlit og mun hinn
sókndjarfi Steve Finnan væntanlega
ýta Jamie Carragher út úr byrjunar-
liðinu. Sami Hyypia og Stephane
Henchos þekkja hvor annan út og
inn en það er spurning hvemig þeir
Líklegt byrjunarlið Liverpool
Lykilmaður:
Harry Kewell
miðjumaður/sóknarmaður
Það efast enginn um að Harry
Kewell er einn besti leikmaður-
inn í Englandi. Hann er einstak-
lega leikinn og útsjónarsamur
og skorar mikið af mörkum, af
vængmanni að vera. Hann gæti
reynst kaup ársins og vilja
margir meina að þarna sé kom-
inn leikmaðurinn sem vantað
hefur í Liverpool-liðið síðustu
ár.
„Með tilkomu Kewells
hefur sóknarleikur
Liverpool öðlast nýjar
víddir og Ástralinn knái
verður örugglega til
þess að eitthvað léttir á
pressunni sem hvílir á
herðum Owens."
venjast því að hafa tvo sóknarbak-
verði sér við hlið - nokkuð annað en
verið hefur undanfamar leiktíðir.
Það er mat DV-sports að það sé
nú eða aldrei fyrir Gerard Houllier
að sýna hvers konar lið hann hefur
byggt upp í Liverpool frá því hann
tók við. I íyrra var sem liðið væri
staðnað og var árangur eftír því -
liðið komst ekki einu sinni í meist-
aradeildina. Það náði frábærum ár-
angri árið 2001 en síðan þá hefur
leiðin legið niður á við. Ef stefnan
breytíst ekki í ár ættí Houllier að
stíga til hliðar og leyfa öðmm stjóra
að koma með nýjar og ferskar hug-
myndir inn í félagið. Hann virðist
hafa náð öllu sem hann getur út úr
leikmannahópi sínum
vignir@dv.is