Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2003, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST2003 DVSPORT 39
í.
VERÐUR HANN TIL VANDRÆÐA? Vandræðagemsinn Lee Bowyer er eini leikmaðurinn sem gekk til liðs við Newcastle í sumar. Margir
efast um þá ákvörðum Robsons að fá þennan dreng til félagsins enda mikið verið til vandræða utan vallar undanfarin ár. Reuters
Ungu strákarnir hans Bobby
Robsons komu verulega á óvart
í ensku deildinni á síðustu leik-
tíð þar sem þeir voru lengi vel
með í baráttunni um meistara-
titilinn en gáfu eftir á loka-
sprettinum. Engu að síður náðu
þeir þriðja sæti í deildinni og
leika því í meistaradeildinni í
vetur. DV Sport hefur fulla trú
þessu unga liði og er á því að
þeir verði aftur í toppbarátt-
unni í ár.
Þeir voru ekki margir sem trúðu
því að ungt lið Newcastle myndi
berjast um enska meistaratitilinn á
síðustu leiktíð. Það varð engu að
síður raunin enda er Bobby Robson
afskaplega klókur þjálfari og hann
gerði unga og efnilega knatt-
spyrnumenn að mönnum síðasta
vetur. Jermaine Jenas blómstraði í
miðjuhlutverkinu og Hugo Viana
átti margar eftirminnUegar inn-
komur. Einnig fengu tækifæri efni-
Þar sem ungu
drengirnir eru orðnir
árinu eldri, sem og
reyndari, þá má
fastlega reikna með
Newcastle-liðinu
firnasterku í vetur.
legir strákar eins og Lua Lua og
Ameobi. Svo eru tveir af mikilvæg-
ari mönnum liðsins, þeir Craig
Bellamy og Kieron Dyer, aðeins 24
ára gamlir. Vörnin leiðir svo Jon-
athan Woodgate sem er 23 ára.
Sú blanda Robsons að hafa þessa
ungu drengi með reyndum jöxlum
á borð við Alan Shearer og Gary
Speed gekk fullkomlega upp. Liðið
hefur ekld misst neinn leikmann á
þessari leiktíð og þar sem ungu
drengirnir eru orðnir árinu eldri,
sem og reyndari, þá má fastlega
reikna með Newcastle-liðinu firna-
sterku í vetur.
Liðið spilaði stórskemmtilega
knattspyrnu á síðustu leiktíð þar
sem Robson hafði náð fullkomnu
jafnvægi á íjölbreyttum og hröðum
sóknarleik í bland við öflugan og yf-
irvegaðan varnarleik.
Eina viðbótin við hópinn var
vandræðagemsinn Lee Bowyer
sem kom án greiðslu frá West Ham.
Þar með endurnýjar hann gömul
kynni við Jonathan Woodgate en
þeir léku saman hjá Leeds á sínum
tíma og lentu þar í miklum réttar-
höldum sem enginn hefur væntan-
lega gleymt. Robson hefur hingað
til gengið ágætlega að fást við „eitr-
uð epli“ innan hópsins en þótt
menn á borð við Laurent Robert og
Nolberto Solano hafi oftar en ekki
verið að rífa kjaft í blöðunum yfir
hinu og þessu þá hefur það hvorki
komið niður á spilamennsku þeirra
né liðsins.
Bowyer hefur hlotið mikla og
neikvæða gagnrýni undanfarin ár
en margir hafa um leið gleymt því
að hann er gríðarlega hæfileikarík-
ur spilari sem talinn var einn sá
efnilegasti á Englandi áður en hann
fór að lenda í vandræðum utan
vallar. Því hefur Robson augljóslega
ekki gleymt og hann gerir sér fylli-
lega grein fyrir því að Bowyer er
einungis 26 ára gamall og ef honum
tekst að losna við fortíðina af bak-
inu og einbeitir sér að því að spila
knattspyrnu þá á hann eftir að gera
gott lið betra. henry@dv.is
Líklegt byrjunarlið Newcastle
Lykilmaður:
Alan Shearer
framherji
Shearer er helsti markaskorari
liðsins ásamt því að vera fyrirliði
og leiðtogi. Hann hefur öðlast
nýtt líf í enska boltanum eftir að
hann ákvað að hætta með enska
landsliðinu og lék hann svo vel á
síðustu leiktíð að hart var að
honum gengið að gefa aftur kost
á sér í landsliðið. Hann verður
að vera í sama formi á þessari
leiktíð því að liðið þarf á mörk-
um hans að halda, sem og nær-
veru, enda margir ungir og lítt
reyndir í liðinu.
Um félagið
Stofnár: 1881
Heimavöllur: St. James's Park
Áhorfendapláss: 52.000
Verið (efstu deild síðan: 1993
Besti árangur
1. sæti í A-deild (1905,1907,1909,
1927).
Dýrasti keyptur leikmaður
Alan Shearer, 15 m. punda, frá
Blackburn árið 1996.
Dýrasti seldur leikmaður
Dietmar Hamann, 8 m. punda, til
Liverpool árið 1999.
Leikmenn komnir:
Lee Bowyerfrá West Ham.
Leikmenn farnir:
Joe Kendricktil 1860 Munchen
(laus samningur, John Karelse og
Damon Robson voru leystir undan
samningi).
Stjórinn: Bobby Robson
Fæddur: 18. febrúar 1933
Stýrt sfðan: 2. september 1999.
Aðrir klúbbar: Vancouver
Whitecaps, Fulham, IpswiCh, PSV
Eindhoven, Sporting Lisbon,
Porto, Barcelona.
Titlar: FA-bikarinn 1978 með
Ipswich.
Bobby Rob-
son lét æsku-
draum
rætast í sept-
ember 1999
þegar hann
tók við
Newcastle af
Ruud Gullit.
Robson hafði stutt liðið frá æsku og
það hafði ávallt verið hans draumur
að stýra félaginu áður en hann sett-
ist í helgan stein. Newcastle-liðið
var í mikilli niðursveiflu en með
klókindum hefur Robson tekist að
snúa taflinu við og gera Newcastle
að einu besta liði Englands. Hann
hefur einnig þótt naskur í leik-
mannakaupum og hefur hann ekki
síst verið að horfa til framtíðar fé-
lagsins þegar hann hefur verið að
versla með leikmenn því að ungir
strákar á borð við Jenas, Viana,
Woodgate, Dyer og Bellamy eru all-
ir lykilmenn (liðinu og verða það
um ókomna framtíð.
%
SPÁ DV SPORTS
l.sæti ???????????
2. sæti ???????????
3. sæti ???????????
4. sæti: Newcastle 5. sæti: Liverpool 85 stig 84 stig
6. sæti: Middlesbrough 71 stig
7. sæti: Blackburn 65 stig
8. sæti: Everton 64 stig
9. sæti: Manchester Clty 62 stig
10. sæti:Tottenham 60 stig
11. sæti: Aston Villa 45 stig
12. sæti: Southampton 44 stig
13. sæti: Charlton 41 stig
14. sæti: Birmingham 34 stig
15. sæti: Leeds 30 stig
16. sæti: Portsmouth 25 stig
17. sæti: Fulham 21 stig
18. sæti: Bolton 20 stig
19. sæti: Leicester 11 stig
20. sæti: Wolves 7 stig
Spáin varþannig framkvæmd aö fimm blaðamenn DVSports gáfu hverju liði 1-20 stig.
h