Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2003, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003
Einkaneysla eykst hraðar en kaupmáttur:
Heimilin aftur byrjuð
að eyða um efni fram
Nýjar tölur sýna að einkaneysla
eykst mun hraðar en kaupmátt-
ur. Sérfræðingar telja að fólk sé
byrjað að taka út væntingar um
launahækkanir sem ekki sé víst
að innstæða sé fyrir.
Umskipti hafa orðið í neyslu-
mynstri íslenskra heimila. Eftir að
hafa haidið í við sig árin 2001 og 2002
og leyft kaupmætti launanna að
aukast án þess að eyða honum öll-
um í neyslu eru heimilin byrjuð að
eyða um efni fram aftur. Kaupmátt-
ur launa jókst um 3,2% á öðrum árs-
fjórðungi en á sama tíma jókst
einkaneysla um 7,5%. Neyslan jókst
með öðrum orðum tvisvar sinnum
hraðar en kaupmáttur.
Væntingar innleystar
Greiningardeild Kaupþings-Bún-
aðarbanka bendir á að aukin neysla
sé að öllum líkindum fjármögnuð
með lántökum og að líklega megi
lesa út úr þessu að fólk sé byrjað að
innleysa væntingar um launahækk-
anir. Greiningardeild íslandsbanka
tekur í sama streng og segir að aukin
neysla bendi tii þess að „heimilin í
landinu séu í auknum mæli að taka
aukna neyslu sína út á grundvelli
væntinga um bættan efnahag. [...]
Svo virðist sem þrátt fyrir háa
skuldabyrði séu heimilin tilbúin að
auka neyslu sína umfram kaupmátt-
araukningu."
En launahækkanimar gætu látið á
sér standa, að mati Kaupþings-Bún-
aðarbanka sem segir: „Þetta er sér-
staklega athyglisvert í ljósi þess að
þrátt fyrir aukinn hagvöxt virðist
vera tiltölulega lftið svigrúm fyrir
miklar launahækkanir á næstunni
en hlutfall launa í landsftam-
leiðslunni hefur aldrei verið hærra
en nú.“
„Auðsáhrif" fasteignaverðs
En hvaðan koma peningarnir?
Ingólfur Bender hjá greiningardeild
fslandsbanka segir að útlán bank-
anna til einstaklinga hafi ekki aukist
mikið að undanfömu. „Og þá berast
böndin að Ibúðalánasjóði sem hefur
verið að dæla út fé í auknum mæli.
Ég held að það sé að koma fram í
aukinni neyslu. Fólk tekur ián út á
það húsnæði sem það kaupir og
skuldsetur það í auknum mæli.“
Ástæðan fyrir aukinni neyslu kann
því að liggja að hluta til í hækkandi
fasteignaverði, að sögn Ingólfs. Bæði
þýði það aukið svigrúm til veðsetn-
ingar íbúða og eins upplifi fólk sig
ríkara en áður. Snorri Jakobsson hjá
greiningardeild Kaupþings-Búnað-
arbanka tekur undir það; með hækk-
andi húsnæðisverði hafi fólk það á
tilfinningunni að það eigi meira fé;
það gefi ákveðna „auðstilfinningu".
Staðan viðkvæmari en ella
Hvorki Ingólfur né Snorri telja að
hér sé nein hætta á ferðum fyrir hag-
kerfið en þó gæti þessi vöxtur neysl-
unnar - sem kemur bæði Seðla-
bankanum, fjármálaráðuneytinu og
fjármálastofnunum í opna skjöldu -
kallað á viðbrögð. „Þessu fylgir að
það mun vindast fyrr en ella ofan af
slakanum á vinnumarkaði og hag-
kerfinu í heild og við gætum séð
Seðlabankann bregðast við með
hækkun sfyrivaxta fyrr en ella," segir
Ingólfur. „Þótt hagkerfið sé í ágætu
jafnvægi er þetta merki um að það
ber að fara mjög varlega í hagstjórn-
inni á þvf hagvaxtarskeiði sem nú er
að hefjast og að líkur séu á að þensl-
an verði talsverð ef ekkert verður að
gert. Vonandi gera menn eitthvað til
að koma í veg fyrir það og við höfum
bent á að aðhald í opinberum fjár-
málum sé besta leiðin til þess - hún
er betri en mikil vaxtahækkun."
Snorri bendir á að skuldir heimil-
anna séu orðnar mjög háar. Það, að
þær skuli enn hælcka, þýði að hag-
kerfið verði viðkvæmara fyrir ytri
áföllum, t.d. ef húsnæðisverð myndi
lækka skarpt.
Það eru takmörk
Ingólfur minnir á að þótt skuldir
heimilanna séu vissulega óvenjulega
háar í alþjóðlegum samanburði
verði að hafa í huga að hér á landi er
húsnæði almennt í eigu almennings,
ólíkt því sem gerist víða erlendis, og
skuldir almennings að mestu til
komnar vegna húsnæðiskaupa.
„Skuldir sem hlutfall af verðmæti
eigna eru ekki mjög háar; eitthvað
ríflega 40%, sem hringir í sjálfu sér
engum viðvörunarbjöllum." Þrátt
fyrir það setur skuldsetningin vexti
einkaneyslu skorður: „Það þarf
tekjur til að standa undir
vaxtagreiðslum og afborgunum og í
því sambandi fær fólk ekki lán enda-
laust."
Og fólk fær heldur ekki launa-
hækkanir endalaust. Sem fyrr segir
telur Kaupþing-Búnaðarbankinn
ekki forsendur fyrir miklum launa-
hækkunum. „Laun hafa hækkað
umfram hagvöxt og framleiðni í
nokkum tíma og sú þróun fær ekki
INNFLUTNINGUR EYKST
Janúar - júlf 2002 og 2003 Aukning frá fyrra ári
Fólksbílar 71,4%
önnur flutningstæki til einkanota 32,8%
Varanlegar neysluvörur, t.d. heimilistæki 20,7%
Hálfvaranlegar neysluvörur, t.d. fatnaður 12,4%
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 9
+
VIÐSNÚNINGUR: Efri myndin sýnir að
einkaneyslan vex nú aftur hraðar en
kaupmáttur; sú neðri að skuldir
heimilanna fara sifellt vaxandi. Gröfin eru
frá Kaupþingi-Búnaðarbanka.
staðist til lengdar," segir Snorri. Og
benda má á, að sé fólk að fjármagna
neysluna í dag með lántökum skerð-
ist kaupmáttur þess í framtíðinni
sem nemur vöxtunum af lánunum.
Fái fólk ekki þær tekjur sem það
bjóst við og er búið að skuldsetja sig
fyrir getur það haft bakslag í för með
sér, að sögn Snorra, en áhrifin kæmu
líklega ekki fram fyrr en eftir nokkur
ár og lítið hægt að spá fyrir um þau:
„Við emm bara að benda á að fólk er
að eyða um efni fram og líklega
vegna væntinga um hærri laun sem
ekki em endilega forsendur fyrir. En
það stefnir ekki í neinn voða.
Hagvöxtur fer líklega vaxandi og þá
verður svigrúm til einhverra hækk-
ana." oiafur@dv.is
Árangur ÍE gegn heilablóðfalli
í Nature genetics
fslensk erfðagreining birtir vís-
indagrein í októberhefti vísindarit-
inu Nature genetics um fyrsta
meingen sem tengt hefur verið al-
gengri gerð heilablóðfalls.
Setraðir innan PDE4D erfðavísis-
ins tengjast bæði aukinni og
minnkaðri áhættu. Niðurstöðurnar
em gmnnur að þróun nýrra lyfja og
greiningarprófa. f vefútgáfú hins
virta vísindatímarits Nature genet-
ics er grein eftir Sólveigu Grétars-
dóttir og rannsóknarhóp hennar
hjá fslenskri erfðagreiningu þar
sem lýst er í fyrsta sinn einangmn á
meingeni sem tengist algengustu
gerð heilablóðfalls. Greinin ber
heitið „The Phosohodiesterase 4D
gene confers risk to ischemic
stroke."
Rannsóknin var unnin í samstarfi
við lækna og vísindamenn hjá
Landspítala - háskólasjúkrahúsi og
Hjartavernd og fólst í ítarlegri arf-
gerðagreiningu á erfðaefni um 1800
þátttakenda í rannsókninni, bæði
sjúklinga og ættingja þeirra. Niður-
stöðurnar sýna að breytileiki í
PDE4D-erfðavísinum tengist heila-
blóðfalli af völdum blóðtappa. Inn-
an þessa erfðavísis vom skilgreind-
ar setraðir, eða röð ákveðinna
erfðamarka, sem tengast bæði auk-
inni og minnkaðri áhættu á sjúk-
dómnum. Rannsóknir á tjáningu og
virkni erfðavísisins hafa einnig bent
til þess að hann gegni hlutverki viðÝ
fjölgun og fikmn sléttra vöðva-
fmmna í æðakölkun sem vitað er að
er eitt af því sem veldur heilablóð-
falli. Lyf sem hindraði virkni
PDE4D-prótfnsins eða ákveðinnar
gerðar þess gæti því hugsanlega
hindrað æðakölkun og minnkað
hættuna á heilablóðfalli. Lyfjaefna-
fræðideild fslenskrar erfðagreining-
ar í Chicago og Seattle starfar að
framhaldsrannsóknum á lyfja-
mörkum úr erfðafræðirannsóknum
fyrirtækisins á fslandi auk ýmissa
þjónusturannsókna fyrir lyfja- og
líftæknigeirann. gg@dv.is
Sjónvarpsdeilclin hjó Ormsson: Kjartan,
Þið þelckið fólkió okkar í sión
varpsdeildinni !
Meira en 100 ára samanlögð starfsreynsla þeirra
Tryggir kaupendum réttar upplýsingar, faglega ráðgjöf,
öryggi eftir sölu og þjónustu á ábyrgðartímabilinu!
21 ’ sJÍHvarP’Black Matrix Myndlampi
Nlcam Stereo, Scart tengi
a 6 framan,
5C afspilun
sstsassa
LOEWE, kr. 179.900
i OFWF 5772 Calida 29", 100 Hz. Super Black Une
SuperVHlstengijíUtétafárar, 2?2É. ffiÚndImynl)
Loewe Planus 32", 100 Hz Super Black Une myndlampi
SZBSto
2 x 40W, PIP (Mynd i mynd), Skápur ekki innitalin í verði.
Gæóin, úrvalió og veróió er samkeppnisfært og varan er til!
BRÆÐURNIR
ORMSSON
RdDIONAIIST
LAGMULA 8 • SIMI 530 2800 FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI 461 5000