Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2003, Blaðsíða 28
28 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003
DVSport
Keppni í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.ls
Síml: 550 5885 ■ 550 5887 ■ 550 5889
KR fær nýjan Kana
Pétur og Hannes skora
KÖRFUBOLTI: Körfuknatt-
leiksdeild KR hefur samið við
23 ára Bandaríkjamann, Chris
Woods að nafni, en þeir sendu
Greg Gray heim á dögunum
þar sem hann stóð engan veg-
inn undir væntingum. Woods
er195 sm framherji sem er 98
kíló að þyngd. Hann er uppal-
inn í Chicago og lék með
Weber State-háskólanum.
Hann lék í Sviss á síðasta ári
með Lausanne Morges þar
sem hann varð þriðji stiga-
hæsti leikmaður deildarinnar
með 28,7 stig að meðaltali. KR
hafði verið með strákinn í sigt-
inu í nokkurn tíma og stökk á
hann er hann losnaði. Woods
lék æfingaleik með KR gegn
Njarðvík um helgina og stóð
hann sig vel og gerði 27 stig.
KNATTSPYRNA: Landsliðs-
maðurinn Pétur Marteinsson
fékk flugstart hjá sínu nýja fé-
lagi, Hammarby, þegar hann
lék sinn fyrsta leik fyrir félagið
er þeir mættu Halmstad í gær-
kvöld. Hammarby vann leikinn,
1-0, og skoraði Pétur eina
mark leiksins með skalla 10
mínútum fyrir leikslok.
Hammarby er í 3. sæti í deild-
inni eftir leikinn.
Hannes Sigurðsson er í fínu
formi með Viking þessa dag-
ana en hann skoraði í gær jöfn-
unarmark liðsins er það gerði
jafntefli við Sogndal, 2-2.
Markið kom á síðustu sekúnd-
um í uppbótartíma leiksins.
Óskar Örn Hauksson var á bekk
Sogndal en losnaði af honum á
90. mínútu.
Tommyvar bestur
Daninn sterki hjá FH er leikmaður ársins að mati íþróttafréttamanna DV Sports í sumar
Það er óhætt að segja að Danir
hafi verið senuþjófar í íslenska
boltanum í sumar. Sören
Hermansen skoraði grimmt fyr-
ir Þrótt og þeir Allan Borgvardt
og Tommy Nielsen hafa farið
hreint á kostum með FH og eru
að öðrum ólöstuðum mennirnir
á bak við frábært gengi Fim-
leikafélagsins í sumar. Það
kemur því ekki á óvart að þeir
eru efstu mennirnir í einkunna-
gjöf DV Sports í sumar.
Borgvardt var með einkunnina
3,75 að meðaltali í sumar en
rétt fyrir ofan hann var Nielsen
með 3,76 og hann er því leik-
maður ársins í Landsbanka-
deildinni hjá DV Sporti.
„Þetta eru virkilega góðar fréttir,"
sagði Tommy Nielsen þegar hon-
um voru tilkynntar fréttirnar í gær-
kvöld. „Þetta kemur mér frekar á
óvart. Ég átti kannski von á því að
ég væri á meðal fimm efstu en ég
átti ekki von á því að vera efstur."
Tommy er gríðarlega ánægður
með tímabilið hjá sjálfum sér og
FH og hann segir uppskeru FH-
inga hafa verið sanngjarna.
„Okkur var spáð fallbaráttu fyrir
tímabilið þannig að við þurftum að
sanna fyrir öllum að við værum
betri en okkur var spáð. Við fórum
með liðinu í æfingaferð til Spánar
„Ég þurfti ekki að
hugsa mig lengi um
þegar mér bauðst að
koma til íslands til þess
að spila fótboita."
og þá fékk ég tilfinningu fyrir styrk-
leikanum í íslensku deildinni. Ég sá
strax þá að við vorum ekkert svo
slakir. Reyndar geri ég mér grein
fyrir því að það þarf ákveðna
heppni til þess að vera í toppbar-
áttu og vissulega vorum'við heppn-
ir. En þegar á heildina er litið fannst
mér við vera með eitt best spilandi
lið landsins og mér fannst við verð-
skulda að vera að minnsta kosti á
meðal fjögurra efstu liðanna. Við
urðum í 2. sæti, sem mér fannst
sanngjarnt, og það var einnig sann-
gjarnt að KR-ingar yrðu meistarar,"
sagði Tommy og bætir við að hon-
um og Allan hafi liðið mjög vel á ís-
landi og það hafí átt sinn þátt í því
að þeir hafi leikið eins vel og raun
bar vitni.
„Ég vissi ekki mikið um hversu
sterk íslenska deildin var áður en ég
kom hingað. Ég vissi af nokkrum ís-
lendingum sem spiluðu í Evrópu
og svo sá ég leik íslendinga og Dana
sem fór nú ekkert sérstaklega vel
fyrir ykkur en ég hafði líka séð
landsleikinn þar sem Danmörk
vann naumt og þar lék fslenska lið-
ið mjög vel þannig að ég átti von á
því að hér væri leikinn ágætis fót-
bolti,“ sagði Tommy sem einnig
fékk hagnýtar upplýsingar um ís-
lenska boltann frá FH-ingnum
Ólafi Kristjánssyni. Ólafur er að-
stoðarþjálfari AGF í Danmörku og
það var fyrir hans tilstilli að Tommy
FÓRU Á KOSTUM: Danirnir Allan Borgvardt og Tommy Nielsen fóru á kostum I Landsbankadeildinni í sumar. Borgvardt sést hér pússa skóna hjá landa sínum eftir að Nielsen hafði
skorað úr vítaspyrnu í leik gegn Val fyrr í sumar. DV-mynd Pjetur
og Allan fóru til FH-inga.
„Ég var ekki að spila mikið með
AGF á þeim tíma sem Ólafur kom
með hugmyndina að ég færi hing-
að. Þegar manni líður eins og mað-
ur fái ekki að spila eins mikið með
sínu liði og maður telur sig kannski
eiga skilið þá grípur maður tæki-
færi eins og þetta opnum örmum
og ég þurfti ekki að hugsa mig lengi
um þegar það bauðst því ég var
ekki ánægður með stöðu mála í
Danmörku. Ég vissi að ég var betri
en svo að ég þyrfti að spila með
varaliði AGF.“
Góðar móttökur
„Strákamir í liðinu hafa verið
mjög almennilegir og tekið vel á
móti okkur. Við höfum eignast
mjög góða vini hérna. Fyrstu 3-4
mánuðina ferðuðumst við mikið
um landið. Hvert tækifæri sem
gafst var vel notað til þess að skoða
landið. Þetta hefur verið frábær
tími héma á fslandi," segir Tommy
og bætir við að það hafi verið mjög
mikilvægt að þeir komu nokkmm
vikum áður en tímabilið hófst.
„Við komum til liðsins fimm vik-
um fyrir mót og vorum með í æf-
ingaferðinni á Spáni. Þar náðum
við að kynnast strákunum og þeir
okkur. Það var mjög mikilvægt og
hafði sitt að segja f árangri okkar."
Tommy langar til þess að gerast
lögreglumaður en segir að það sé
erfitt fyrir menn á hans aldri að
komast inn í lögregluskólann í
Danmörku og svo taki einnig lang-
an tíma að vinna sig upp innan lög-
reglunnar þar í landi. Því hafi hann
íhugað að fara í lögregluskólann
hér á landi en það sé á ís þessa dag-
ana - hann hefur áhyggjur af því að
vankunnátta hans í íslensku geti
reynst honum erflð hindmn. Engu
að síður hefur hann hug á því að
vera áfram á íslandi og vill ólmur
gera nýjan samning við FH-inga.
Hann segist finna að hann eigi
„Ég verð íþað minnsta
eitt ár í viðbót á íslandi.
Ég vil vera hjá FH og ég
held að þeir vilji hafa
mig áfram."
nokkur ár inni í viðbót.
„Ég hef fundið löngunina til þess
að leika knattspyrna héma á ís-
landi í sumar. Ég tel mig þar af leið-
andi eiga nokkur góð ár eftir í bolt-
anum og ég myndi sjá eftir því ef ég
léki ekki knattspyrnu 2-3 ár í við-
bót. Ég hef verið að ræða við FH-
inga upp á síðkastið og ég verð í
það minnsta eitt ár í viðbót á fs-
landi. Við höfum ekki skfifað undir
neina samninga enn þá en höfum
verið að ræða málin. Eg vil vera hjá
FH og ég held að þeir vilji hafa mig
áfram þannig að við hljótum að
komast að samkomulagi," sagði
þessi viðkunnanlega Dani að lok-
um. Hann heldur af landi brott
næsta mánudag en verður mættur
aftur fyrir lokahóf KSÍ. Ef hann nær
svo samningum við FH kemur
hann aftur til íslands í mars á næsta
ári.
henry@dv.is
MIKILVÆGUR FH-LIÐINU
Tommy Nielsen er FH-liðinu
mikilvægur, sem sést best á því að
liðið fékk aðeins 1 stig úr þeim sjö
leikjum sem liðið spilaði án hans á
þessu tímabili.
FH með Nielsen sumarið 2003:*
Leikir 21
Sigrar 13
Jafntefli 3
Töp 5
Mörk skoruð 44
Mörk fengin á sig 25
Markahlutfall +19
Stig 42
Stigahlutfall 67%
FH án Nielsen sumarið 2003:*
Leikir 7
Sigrar 0
Jafntefli 1
Töp 6
Mörk skoruð 7
Mörkfengin á sig 22
Markahlutfall -15
Stig 1
Stigahlutfall S%
* Allir leikir í deild, bikar og
deildarbikar eru hér taldir með.
BESTU MENNIRNIR
Blaðamenn gáfu öllum leikmönn-
um í leikjunum 90 (Landsbanka-
deild karla í sumar einkunn á bilinu
1 til 6. Sá með hæstu meðalein-
kunnina fær útnefninguna leik-
maður ársins 2003 hjá DV-Sporti.
Besta meðaleinkunn sumarsins:
1. Tommy Nielsen, FH 3,76
2. Allan Borgvardt, FH 3,75
3. Sinisa Kekic, Grindavík 3,63
4. Veigar Páll Gunnarsson, KR 3,62
5. Birkir Kristinsson, ÍBV 3,61
6. Gunnar Sigurðsson, Fram 3,61
7. Halldór Hilmisson, Þrótti 3,44
7. Kristján Finnbogason, KR 3,44
9. Kristján Örn Sigurðsson, KR 3,43
10. Gunnlaugur Jónsson, [A 3,43
11. Guðni Rúnar Helgas., Val 3,41
12. Ármann Smári Björnss., Val 3,41
13. Fjalar Þorgeirsson, Þrótti 3,39
14. Ásgeir G. Ásgeirsson, FH 3,39
15. Ólafur Þór Gunnarsson, Val 3,38
16. Kjartan Sturluson, Fylki 3,35
17. Reynir Leósson, lA 3,31
18. Eysteinn Lárusson, Þrótti 3,28
19. Daði Lárusson, FH 3,28
20. Dean Martin, KA 3,25
20. Heimir Guðjónsson, FH 3,25
20. Atli Jóhannsson, ÍBV 3,25
Skiptlng elnkunna Tommy Nielsen:
5 3 leikir
4 7 leikir
3 7 leikir
Maður leiksins 1 leikur
Tölfræöl: ooj.sport@dv.is