Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Side 4
4 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003
í Grand Vitara 2,0, bsk.
Skr. 6/01, ek. 75 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Suzuki Liana 2WD, 5 d., bsk.
Skr. 2/02, ek. 22 þús.
Verð kr. 1350 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4.
Skr. 7/99, ek. 59 þús.
Verð kr. 1140 þús.
Suzuki Wagon R+ 4x4.
Skr. 5/00, ek. 13 þús.
Verð kr. 890 þús.
Hyundai Santa-Fe 2,4, bsk.
Skr. 2/01, ek. 42 þús.
Verð kr. 1760 þús.
Nissan Primera Comfort, bsk.
Skr. 7/01, ek. 25 þús.
Verð kr. 1370 þús.
M-Benz A-140, bsk.
Skr. 7/02, ek. 35 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Peugeot 406 2,0, 3 d., ssk.
Skr. 11/98, ek. 72 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Alfa Romeo 156, bsk.
Skr. 9/98, ek. 60 þús.
Verð kr. 1180 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---✓///-------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100
Reykjavík er orkuborg
SÓKN: Þórólfur Árnason borgar-
stjóri mun annast kynningu á
Orkuborginni Reykjavík á stór-
um blaðamannafundi í Shake-
speare-leikhúsinu í London í
dag. Um 200 breskir blaðamenn,
ferðaþjónustuaðilar og fulltrúar
úr menningarlífi Lundúnaborgar
verða viðstaddir kynninguna á
Reykjavík undir nýju slagorði -
Pure Energy. Höfuðborgarstofa
og lcelandair í Lundúnum, í
samstarfi við Ferðamálaráð (s-
lands, standa að kynningunni.
Sérstök áhersla verður lögð á
kröftugt menningarlíf og hrein-
leika borgarinnar og nágrennis
með þátttöku Listahátíðar í
Reykjavík, Heilsuborgarverkefnis-
ins og Bláa Lónsins. (slenskir lista-
menn stíga á stokk og kynna fjöl-
breytta menningu borgarinnar.
Vörn gegn inflúensu
HEILBRIGÐI: Bólusetningar gegn
inflúensu eru hafnar og mælist
landlæknir til þess að allir eldri
en 65 ára og þeir sem eru
ónæmisskertir láti bólusetja sig.
Bólusetning er einnig fysilegur
kostur fyrir alla fullorðna einstak-
linga þar sem inflúensan getur
lagst þungt á fólk og sjúkdóms-
lega orðið löngjafnvel með
hættu á lungnabólgu. Inflúensan
á sér langa sögu og heimildir um
faraldra má rekja allt að 400 ár
aftur ítímann. Fyrstu bóluefnin
komu á markað upp úr 1940 og
nú eru seldir tæplega 50 þúsund
skammtar hérlendis árlega. Frek-
ari upplýsingar má finna á vef
Landlæknis, www.landlaeknir.is
og á vef Heilsugæslunnar í
Reykjavík, www.hr.is.
ÓRÁÐSfA: Fjármálaumsýsla forráðamanna Kaupfé-
lags Ámesinga þykir um margt hafa verið ámælis-
erð. Áhöld eru td. um hvort KÁ eigi aö bera ábyrgð
á heimildarlausum skuldbindingum framkvæmda-
stjórans vegna byggingar Hótei Selfoss og einnig
munu margvislegar millifærslúr og fjárhagsútlát
vegna annarra félaga'
>ykja undarlegar.
KÁ hyggst leggja fram nauðasamninga í lok október:
Millifærslur og tugmillj-
óna víxlar án heimildar
Einar Gautur Steingrimsson
hrl., sem hefur umsjón með
Kaupfélagi Árnesinga sem nú er
í greiðslustöðvun, segist gera
ráð fyrir að leggja fram frum-
varp til nauðasamninga KÁ upp
úr miðjum október.
Greiðslustöðvun KÁ gildir til 31.
október nk. og er leitað nauða-
samninga við lánardrottna. Einar
segir flókið að ganga frá lausum
endum og í raun sé heill frumskóg-
ur af óútldjáðum málum sem varða
m.a. ábyrgðir og greiðslur af hálfu
KÁ sem fyrrverandi framkvæmda-
stjóri stóð fyrir til annarra félaga.
Einar segist ekki geta að svo stöddu
upplýst hvernig þeim málum er ná-
kvæmlega háttað en nú er unnið að
frágangi vegna sölu eigna KÁ.
Fjármunir til annarra félaga
Samkvæmt heimildum DV
runnu verulegar óútskýrðar fjár-
upphæðir frá KÁ til ýmissa félaga,
ýmist í formi ábyrgða sem KÁ varð
að taka á sig eða í formi beinna
greiðslna og úttekta hjá fyrirtækj-
um KÁ. Þar mun m.a. hafa verið um
að ræða greiðslur frá KÁ til Álein-
inga ehf. á Selfossi sem var úr-
skurðað gjaldþrota 12. ágúst. Munu
þær greiðslur að einhverju leyti
hafa runnið í gegnum áburðarsöl-
una ísafold sem var dótturfélag KÁ
en er nú gjaldþrota. Þá mun einnig
hafa verið um að ræða greiðslur úr
sjóðum KÁ til annars dótturfélags,
Ex-ferða, sem líka er gjaldþrota. Þar
mun, samkvæmt heimildum, hafa
verið mikið rugl í gangi. Búvöru-
deild KÁ er enn eitt félagið sem
nefnt er í þessu sambandi, sem og
Vélsmiðja KÁ sem gengið hefur í
gegnum greiðslustöðvun og
nauðasamninga sem voru reyndar
felldir í síðasta mánuði. Er talið að
mörg þessara mála megi ekki síst
rekja til aðhaldsleysis með fjár-
muni sjóða KÁ og rekstur félaga
sem tengdust KÁ.
Hugsanlegt prófmál
Einar Gautur staðfesti að eitt
málið varðaði t.d. víxla Brúar ehf.
upp á 52 milljónir króna sem fram-
kvæmdastjórinn, Ólafur RúnarÁst-
þórsson, skrifaði upp á fyrir hönd
KÁ en án vitundar stjórnar. Brú ehf.
Verulegar óútskýrðar
fjárupphæðir runnu frá
KÁ tilýmissa félaga,
ýmist í formi ábyrgða
sem KÁ varð að taka á
sig eða í formi beinna
greiðslna og úttekta
hjá fyrirtækjum KÁ.
var að 63% í eigu KÁ og var úr-
skurðað gjaldþrota 2. september,
en félagið átti húsnæði Hótel Sel-
foss. Var féð á umræddum víxlum
notað við endurbyggingu á hótel-
inu. Veðskuldir á húsinu voru upp
á nærri 550 milljónir króna en
heildarskuldir Brúar voru rúmur
milljarður króna. Stækkun á hótel-
inu úr 20 herbergjum f 80 var talið
hafa kostað félagið um 850 milljón-
ir króna.
Ekki liggur fyrir í hvaða farveg
þetta mál fer en Einar telur fullvíst
að ef mál verði höfðað vegna þess
þá verði þar um að ræða prófmál.
Það snýst um hvort ábyrgðir sem
framkvæmdastjórinn setti félagð í
án heimildar stjórnar standist. Ef
KÁ tapar slíku máli og þurfi að
borga víxlana þá megi draga þá
ályktun að það sé best fyrir fyrir-
tæki að gefa starfsmönnum ekki
prókúru. Einar segir sárlega vanta
dóm hér á landi í svona máli sem
snúist um hvað hugtakið prókúru-
umboð felur í raun í sér.
Hótelið í fullum gangi
Rekstur Hótel Selfoss er í eigu KÁ
Heildarskuldir KÁ voru að
meðtöldum ábyrgðum um 1,8
milljarðar króna. KÁ var talið
skulda um 320 milljónir króna
umfram áætlað verðmæti
eigna sem verið er að selja.
Það mat veltur þó á því hvaða
verð færst fyrir eignirnar. f ágúst
voru undirritaðir samningar milli
KÁ og Fóðurblöndunnar um kaup
hennar á búrekstrarsviði KÁ. Fóð-
urbíll til dreifmgar á lausu fóðri til
bænda er einnig seldur til FB.
Fóðurblandan tók við rekstrinum
í byrjun ágúst en KÁ hafði rekið
búrekstrarvöruverslanir á Selfossi
og Hvolsvelli um árabil. Þá rekur
og óháður gjaldþroti Brúar ehf. Er
rekstur hótelsins enn í fullum
gangi. Einar segir að veðhafar í hót-
elbyggingunni hafi skuldbundið sig
til að tryggja það að KÁ hafi hús-
næðið á leigu alla vega til 1. desem-
ber undir hótelreksturinn. Síðan
yrði þá væntanlega hægt að semja
um framhaldið. Öllu starfsfólki
Hótel Selfoss og skrifstofu Kaupfé-
lags Árnesinga, KÁ, var þó sagt upp
störfum undir lok ágúst. Uppsagn-
imar náðu til þrjátíu starfsmanna
hótelsins og átta starfsmanna á
skrifstofu kaupfélagsins.
hkr@dv.is
Olíufélagið nú bensínstöðvar
ESSO sem vom áður í rekstri KÁ.
Jafnframt hefur verið reynt að
selja Vélsmiðju KÁ sem rekin var
sem sjálfstætt félag. Ekki liggur
fyrir hver skuldastaða KÁ er á
þessari stundu eftir sölu áður-
nefndra eigna en ljóst að komi til
nauðasamninga munu kröfuhaf-
ar þurfa að afskrifa verulegan
hluta af sínum kröfum.
í fyrra varð tap á rekstri félags-
ins upp á rúmar 255 milljónir
króna. Megnið af tapinu er rakið
til 15 dótturfélaga KÁ sem sum
em nú gjaldþrota en sjálft kaupfé-
lagið tapaði um 11 milljónum
króna. hkr@dv.is
Eignir KÁ seldar til að
grynnka á skuldum