Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 SKOÐUN 21 Samson og Dalíla SAMSON OG DALÍLA; Varaðu þig, Björgólfur minn, versta Dalílan er í sjónmáli. KJALLARI Guðbergur Bergsson rithöfundur k Allir ættu að þekkja dæmisög- una úr Biblíunni um Samson og Dalílu en hún virðist hafa farið fram hjá eignatengda hópnum sem kennir sig við Samson. Að öðrum kosti hefði forstöðu- maðurinn aldrei tekið upp þetta nafn, vegna hinna hörmu- legu endaloka. Þetta er því furðulegra þegar haft er í huga að formaður hópsins hef- ur lýst því yfír hvað eftir annað að athafnir hans séu byggðar á kjör- orðinu: „Þekktu sjálfan þig!“ Eitt er að kunna kjörorð og halda sig fylgja því, annað að vera óglámskyggn. Samson ætti að þekkja af eigin reynslu að honum stafar ekki að- eins hætta af einhverri Dalílu úti f bæ heldur öðru fremur af þeirri sem býr innra með honum. Sauðmeinlaus Dalíla Margir telja að Samson hafi verið meðvitaður um hættuna og þess vegna slegið hálft högg til að losna við þá Dalílu í Eddusamsteypunni sem hafði komist í sæng með hon- um eftir hjónabandið með Máli og menningu. Sjálfur held ég að sú bókmenntasinnaða Dalíla sem þar var látin fjúka sé sauðmeinlaus. En eftir brottreksturinn komst Samson vel á skrið, ekki er hægt að neita því, og atburðarásin innan at- hafnalífsins hefúr verið eins og seg- ir í Dómarabókinni, þar sem sögu Sámsonar er að finna. í fimmtánda versi stendur: „Síðan fór Samson Eitt er að kunna kjörorð og halda sig fylgja því, annað að vera óglám- skyggn. Samson ætti að þekkja afeigin reynslu að honum steðjar ekki aðeins hætta afein- hverri Dalílu úti í bæ heldur öðru fremur af þeirri sem býrinnra með honum. og veiddi þrjú hundruð refi, tók blys, sneri hölunum saman og batt eitt blys millum hverra tveggja hala. Síðan kveikti hann í blysun- um og sleppti því næst refunum inn á kornakra Filista og brenndi þannig..." - Nákvæmlega það sama hefur Samson okkar verið að gera undanfarna daga í efnahagslífinu. Versta Dalílan í sjónmáli Allt hefur það verið gott og bless- að, bæði hvað varðar refina og olíu- garða hinna íslensku Filistea. Hitt er verra að vegna þess að Samson þekkir alls ekki sjálfan sig, heldur þykist gera það, og hann hefur ekki hæfa ráðgjafa sem vita að Biblían segir satt og það ber að fylgja lær- dómi hennar. Að endingu gæti því farið eins og segir í lok sextánda vers: „Því næst þreif Samson í báðar miðsúlurnar (Landsbankann og íslandsbanka), sem húsið (eignatengslin) hvíldi á ... og mælti: Deyi nú sála mín með Filisteum! Síðan lagðist hann á af öllu afli, svo húsið féll ofan á höfð- ingjana... og þeir dauðu, sem hann drap um leið og bann beið bana, voru fleiri en þeir er hann hafði drepið um ævina." Varaðu þig, Björgólfur minn, versta Dcdían er í sjónmáli en þótt ég viti hvar hún er og hvernig megi bregðast við henni þá segi ég þér það ekki nema fyrir mikla peninga. Nú er allt eignarhald í uppnámi: Fyrst eru bankarnir einkavædd- ir og síðan eru fyrirtækin bankavædd. Ráðherra í felum „Félagsmálaráðherra ber að segja afdráttarlaust til hvaða ráða (slensk stjórnvöld munu gripa ef ítalska verktakafyrirtæk- ið Impregilo lætur ekki af ítrek- uðum brotum gagnvart launa- mönnum við Kárahnjúka. Það hefur ráðherrann ekki gert. [Hannj getur ekki falið sig inni í ráðuneyti meðan ráðist er á fé- lagsleg réttindi launamanna." Össur Skarphéðinsson ó vef Samfylkingarirmar. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Hver mun þá keyra bílana? „Vilji borgarbúa til að taka þátt í bíllausa deginum hefurfar- ið vaxandi undanfarin ár og er það til marks um ákveðna vit- undarvakningu. Æ fleiri 'gera sér grein fýrir að ef bílum fjölgar mikið meir í þessari borg verður nánast ekkert pláss fyrir fólk." Katrín Jakobsdóttir á Múrn- um.is. Evrópuverð á matvælum „Útreikningar ítalskra neyt- endasamtaka sýna að verð á grænmeti hefur tvöfaldast og að kaupmáttur fólks hefur rýrnað um allt að 6%. Verst hefur þetta kom- ið niður á fjölskyldufólki, öryrkjum og öldruðum. fllkoma Evrópu- verðs á matvælum hefur því síður en svo glatt ítalska neytendur." Úrfrétt á vefHeimssýnar. Eins leti er annars brauð „( minni bakaríum er þróunin sífellt í átt til meiri vinnslu, stykkjavöru og tilbúinna rétta eða eins og einn bakarinn orðaði það: „Fólk ræður ekki lengur við að skera brauðið og smyrja ofan í sig.“" Frétt um ársfund bakara á Norðuríöndunum á vefSamtaka iðnaðarins. Og flestir telja sér þann kost grænstan að telja að þetta sé allt til hins betra - nema þá helst þeir sem sjá eftir draumi sem var einu sinni kallaður „auðstjórn almennings". Allt gott sem gerist Hinni miklu uppstokkun eigna fylgir margítrekuð staðhæfing bankaeigenda um að þeir vilji „ein- falda eignatengsl" í íslensku at- vinnulffi og þar með koma á meiri samkeppni og tryggja meiri arð- semi í stað þess að menn séu að tefla um „völd og áhrif" með óarð- bærum hætti. Og sem fyrr segir: Menn kinka kolli og raéskja sig með jákvæðum hætti - eins þótt til þessa snúist allar fréttir einmitt um völd og áhrif: Hver fær hve stóran bita af hvaða fyrirtæki? íslendingasögur gerast upp á nýtt, Hrafnkell Freysgoði er aftur kom- inn á Aðalból, þ.e.a.s. Björgólfur inn í Eimskip - eða kannski er hann sjálfur Samson úr Gamla testamentinu. í þessum jákvæðu undirtektum kemur margt saman. I fyrsta lagi hefur það margoft komið fram á undanförnum árum að yngra fólk í fjölmiðlum og hagfræðum hefur brýna lífsþörf fyrir að líta svo á að allt sem gerist á markaði sé til hins betra. í annan stað má ætla að margir vilji forðast að koma sér með óvarkárni í tali upp á kant við þá peningastjóra sem hafa skipt með sér stórfýrirtækjum landsins. í þriðja lagi hafa margir lúmskt gam- A HLUTABRÉFAMARKAÐI: „Hlutabréfamarkaðurinn er bæði haltur og skakkur og elsku litlu fjárfestarnir hljóta að láta sér fátt um hann finnast..." an af því að handhafar „gamalla peninga", það er að segja kol- krabbamenn, fái á baukinn og telja það rétt mátulegt. Einstaka leggjast í bókmenntasögu sér til skemmt- unar: íslendingasögur gerast upp á nýtt, Hrafnkell Freysgoði er aftur kominn á Aðalból, þ.e.a.s. Björgólf- ur inn í Eimskip - eða kannski er hann sjálfur Samson úr Gamla testamentinu sem var sviptur sín- um krafti með svikum en kom aftur og steypti veisluhöll yfir Filistana og urðu margir undir. Eigna handa öllum? Ekki eru samt allir jafnhrifnir og vekur sérstaka athygli hve miklum áhyggjum leiðarahöfundur Morg- unblaðsins lýsir af því sem gerst hefur. Hann grípur meira að segja, af gömlum vana sjálfsagt, til þess að líkja ótíðindum við það sem ger- ist í Rússlandi: Rétt eins og ríkisaf- skiptum hér á landi var líkt við sov- étkerfi þar eystra er nú uppsöfnun mikilla eigna á fárra hendur á ís- landi líkt við það að „óligarkar" hirtu helstu auðlindir Rússa í ein- hverju vafasamasta einkavæðing- arferli sögunnar. Kannski er hægt að rekja saman gremju Morgunblaðsins og gróin tengsl þess blaðs við þá sem nú hafa leikið af sér í Matadomum. Og þó mun annað skipta meiru í þessu efni. En það er eftirsjá eftir „hugsjón- um þeirra manna sem í árdaga börðust fyrir því að hlutabréfa- markaður yrði að vemleika hér til þess að tryggja auðstjóm almenn- ings," eins og segir í einum leiðara. Hér er átt við það að Morgunblaðið gekk reyndar lengi fram fyrir skjöldu í almennri hlutabréfavæð- ingu og tilgangurinn var að koma á einhverju sem kalla skyldi al- þýðukapítalisma og kæmi bæði í staðinn fyrir víðtæk ríkisafskipti og öflugan samvinnugeira. Helst hver maður skyldi gerast hlutafjáreig- andi og gera þá eign að stærri og virkari parti af lífi sínu en nokkur sparisjóðsbók gæti orðið. Þetta átti að breyta miklu: Nú skyldi sá draumur Sjálfstæðis- flokksins rætast að stétt stæði með stétt í sameiginlegri umhyggju allra fyrir hagnaði fyrirtækja. Eða eins og segir í einu hugsjónaritinu ( „Eign handa öllum"): Ef almenningur á hlut í fyrirtækjum þá „standa tvær stéttir ekki lengur andspænis hver annarri, gráar fyrir jámum, og eyða miklum hluta af afrakstri fram- leiðslunnar í verkfallsátökum held- ur vinna menn saman að verð- mætasköpun sem er öllum í hag." Að hverju skal spurt? Svo var komið á hlutabréfamark- aði með stórmiklum niðurgreiðsl- um af hálfu ríkisins (skattaívilnun- um til þeirra sem keyptu bréf) og alþýðukapítalisminn virtist eiga blómaskeið fyrir höndum. En hann var að vísu ekki annað en hillingar: smákarlar í fjárfestingum ráða aldrei neinu. Það sem svo breytist nú á síðustu missemm við leyni- fúndatafl um stóreignir er helst það að allt hjal um dreifða eignaraðild og þar með samábyrgð almennings á fýrirtækjum landsins verður fá- ránlegt með mjög skýmm og opin- skáum hætti. Hlutabréfamarkaður- inn er bæði haltur og skakkur og elsku litlu fjárfestarnir hljóta að láta sér fátt um hann finnast, enda vita þeir ekki hverju þeir eiga von á næst í Matadornum mikla: Kannski er best að forða sér strax úr leik. Það er vissulega rétt hjá leiðara- höfundi Morgunblaðsins að menn eiga að spyrja áleitinna spurninga um þróun síðustu missera eins og þessarar hér: „Hefur sameining fyr- irtækja og endurskipulagning í við- skiptalífi skilað raunvemlegum ár- angri?" Eins gott að einhverjir af þeim þúsundum sem stúdera við- skipti þori að fást við svo viðkæmt lykilmál. Og menn mættu reikna það líka í leiðinni hve mikið það kostaði í opinbemm niðurgreiðsl- um (skattafslætti) að koma á þeirri tilraun til „alþýðukapítalisma" sem skyldi þróast á opnum hlutabréfa- markaði og sýnist nú á leið inn í skuggaveröld annarra guða sem bmgðust á nýliðinni öld. Alþýðukapítalisminn sem hvarf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.