Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 37 Ingvar hissa á Frömurum Sigurpáll og Björgvin heitir KNATTSPYRNA: Ingvari Óla- syni hefur verið ekki boðinn nýr samningur hjá Frömurum og hann segist undrast það. „Það hefur komið mér frekar á óvart. Ég átti fastlega von á því að Framarar byðu mér nýjan samning enda er ég búinn að spila hjá félaginu í fjögur ár og ég tel mig alltaf hafa skilað mínu. Ég hef verið að heyra það frá fólki úti í bæ að ég sé hættur en það er ekki satt. Ég var reyndar búinn að ákveða að hvort sem mér yrði boðinn nýr samningur eða ekki ætlaði ég að skoða mín mál en það er Ijóst að ég ætla mér að spila í efstu deild næsta sumar," sagði varnarjaxlinn IngvarÓla- son. Trúr Þrótti KNATTSPYRNA: Leikmaður ársins hjá Þrótturum, Halldór Hilmisson, sagði í samtali við DV Sport í gær að hann yrði áfram í herbúðum Þróttara en hann var með ákvæði í sínum samningi sem hefði getað gert honum kleift að fara frá félag- inu. Halldór er ánægður með störfÁsgeirs Elíassonarog vill spila áfram undir hans stjórn. GOLF: Fjórir íslenskir kylfingar taka þessa dagana þátt í úr- tökumóti fyrir Evrópsku móta- röðina á Five Lakes-vellinum sem er rétt fyrir utan London. Þeir eru Birgir Leifur Hafþórs- son, Sigurpáll Geir Sveinsson, Björgvin Sigurbergsson og Ólafur Már Sigurðsson. Fyrsti hringur á mótinu var leikinn í gær. Sigurpáll Geir og Björgvin voru í fantaformi og komu í hús á 70 höggum eða tveim höggum á eftir efsta manni. Þeir eru fyrir vikið í 3.-5. sæti. Ekki gekk alveg eins vel hjá Birgi Leifi og Ólafi Má en þeir komu í hús á þrem höggum yf- ir pari eða á 75 höggum en þrátt fyrir það eiga þeir enn góða von á mótinu. GETUR BETUR: Birgir Leifur lék ágætlega í gær. Fyrsta mark Jóa Kalla Birmingham og Fulham féllu úrleikí deildarbikarnum 18 leikir fóru fram í enska deild- arbikarnum í gærkvöld. Tvö úr- valsdeildarlið máttu bíta í það súra epli að falla úr leik fyrir minni spámönnum og íslend- ingalið komu einnig við sögu. Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði fyrsta mark sitt fyrir Úlf- ana þegar þeir lögðu Darl- ington, 2-0. Dave Jones, stjóri Wolves, gerði sex breytingar á liðinu sem tapaði 5-0 fyrir Chelsea um helgina. Það var átta og hálfur tími liðinn frá því Wolves skoraði sfðast þegar Alex Rae skoraði fyrir þá. Jóhannes Karl bætti svo við marki með hnitmið- uðu skoti eftir sendingu Lees Naylors. Jóhannes fór af velli á 81. mínútu. Ivar Ingimarsson var loks- ins í leikmannahópi Úlfanna en komst ekki lengra en á bekkinn að þessu sinni. Lið Lárusar Orra Sigurðssonar, WBA, komst áfram eftir hörkuleik gegn Hartlepool, 2-1. Lárus Orri er meiddur og lék því ekki með að þessu sinni. Brynjar Björn Gunnarsson og fé- lagar í Notthingham Forest lentu í kröppum dansi gegn Tranmere. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og varð því að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar höfðu leikmenn Forest betur, 4-1. Brynjar Björn sat á bekknum allan leikinn. Gamla liðið hans Brynjars, Stoke City, er aftur á móti úr leik í keppninni, tapaði fyrir Gill- ingham á Brittania-vellinum, 2-0. Blackpool stal senunni Óvæntustu úrslit kvöldsins voru þó tvímælalaust í leik Blackpool og Birmingham. 2. deildarlið Black- pool gerði sér þar lítið fyrir og sigr- aði úrvalsdeildarliðið, 1-0. Það er gamla Liverpool-hetjan, Steve McMahon, sem sfyrir liði Black- pool. Óvænt úrslit urðu einnig í leik Wigan og Fulham þar sem topplið 1. deildarinnar vann sanngjarnan sigur á úrvalsdeildarliði Fulham, 1-0. Chris Coleman, stjóri Fulham, vildi ekki kenna því um að hann hefði stillt upp hálfgerðu varaliði í leiknum. „Það er ekki hægt að taka neitt já- kvætt úr þessum leik. Við fengum það sem við áttum skilið sem var nákvæmlega ekki neitt. Við áttum að hafa næga reynslu og sterka leik- menn til þess að klára þennan leik.“ henry@dv.is LANGFLOTTASTUR: Jermaine Defoe, leikmaður West Ham, var stjarna gærkvöldsins i enska deildarbikarnum þegar hann skoraði þrennu. Reuters. Úrslit í enska deildarbikarnum: { Scunthorpe-Burnley 2-3 McLean, Beagrie - Chadwick, Blake, Moore. Blackpool-Birmingham 1-0 Scott Taylor. Bristol C.-Watford 1-0 Lee Miller. Cardiff-West Ham 2-3 Robert Earnshaw 2 - Jermaine Defoe 3 (1 víti). Hartlepool-WBA 1-2 Robinson - Clement, Hulse. Leicester-Crewe 1-0 Paul Dickov, víti. Notts County-lpswich 2-1 Baldry, Stallard - Counago. Portsmouth-Northampton 5-2 Sherwood 2, Roberts 2,Taylor - Hargreaves, Dudfield. Rotherham-Colchester Sedgwick. Sheff. Utd-QPR - Martin Rowlands 2. Stoke-Gillingham Saunders, King. Tranmere-Nott. Forest Forest vann 4-1 eftir vítakeppni. Wolves-Darlington 2-0 Alex Rae, Jóhannes Karl Guðjónsson. Wycombe-Aston Villa 0-5 Juan Pablo Angel 3, Peter Whittingham, Darius Vassell, víti. Charlton-Luton 4-4 Parker, Lisbie, Di Canio, Jensen - Foley, Bayliss, McSheffrey, Coyne. Charlton vann i vítakeppni, 8-7. C. Palace-Doncaster 2-1 Andrew Johnson 2 víti - Blundell. Sunderland-Huddersfield 2-4 Kyle 2 - Carss, Stead, Holdsworth, Booth. Wigan-Fulham 1-0 Nathan Ellington. 1-0 0-2 0-2 0-0 Veiðihornið VEIÐISVÆÐI VIKUNNAR Vikulega er kynnt og boöiö nýtt veiöisvæði meö miklum afslætti. TILBOÐ VIKUNNAR Verslanir og heildsalar bjóða vikulega ný tilboö á takmörkuöu magni af úrvalsvörum. Aðeins minni laxveiði en / fyrra, en lokatölurnar streyma úr veiðiánum Lokatölurnar streyma úr veiði- ánum þessa dagana. Það er verið að loka þeim og klakveiði að hefjast þar sem hún er stunduð. Veiði er samt ekki lokið í öllum veiðiám. Menn eru enn þá að berja ár eins og Laxá í Dölum og þar gengur veiðiskapurinn ágætlega. Reyndar hefur kólnað og laxinn verður tregari að taka agn veiði- mannafyrir vikið. Langá á Mýrum er sigurvegar- inn þetta sumarið, síðan kemur Þverá f Borgarfirði, Laxá í Kjós, Ytri- og Eystri-Rangá. Langá á Mýrum var lokað um helgina og þarveiddust2290 laxar þetta sum- arið. Efvið kíkjum á heildarveiðina er aðeins minni veiði yfir heildina en fyrir ári, Norðurlandið kemur illa út, smálaxinn klikkar, en í hinum hlutum landsins er allt í lagi, þó svo að smálaxinn hefði mátt koma f meira magni. Líklega hafa veiðst um og yfir 30 þúsund laxar á stöng og líklega hefur um 5 þúsund löxum verið Það var aðeins minni veiði yfir heildina en fyrir ári síðan. sleppt aftur í veiðiárnar. Netaveið- in var víst í fínu lagi á Ölfusársvæð- inu og því fagna veiðimenn ekkert sérstaklega. Bleikjuveiðin byrjaði vel en end- aði illa. Stóra bleikjan kom snemma og veiddist vel, en smærri bleikjan lét lítið sjá sig. Erfitt er að segja til um fjöldann en hann hefur skipt þúsundum. „Við vorum að veiða lax í Víði- dalsá í Húnavatnssýslu og fiskur- inn var tregur. Allt í einu tók þó fiskur hjá okkur og við byrjuðum að þreyta hann. Þetta var 8-9 pundalax," sagði veiðimaður sem vissi ekkert hvað hann var að veiða íVíðidalsánni fyrr í sumar. „Þegar við vorum komnir með fiskinn upp að árbakkanum sáum við að þetta var 8-9 punda bleikja, en alls ekki lax og eins ogviðhéld- um í fyrstu,“ sagði veiðimaðurinn sem var að veiða lax en landaði bleikju. G.Bender ...: Það var engin ástæða að leggja sig í sumar eins og þessi ungi veiðimaður gerði, veiðin var ágæt, þrátt fýrir vatnslitlar veiðiár. DV-mynd Þröstur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.