Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 18
18 MENNINC MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Menning Leikhús ■ Bókmenntir • Myndlist • Tónlist ■ Dans Umsjón: Siija Aðalsteinsdóttir Netfang: silja@dv.is Síml: 550 5807 Vertu með í Borgarleikhúsið LEIKLIST: [ kvöld kl. 19.30 opn- ar Borgarleikhúsið allar dyr upp á gátt og býður gestum og gangandi til kynningarkvölds á Stóra sviðinu þar sem leiksýn- ingar vetrarins verða í brennidepli. Einnig má búast við óvæntum innkomum þekktra persóna úr leikhúsbók- menntunum! Allir eru vel- komnir-frítt inn! Heima er bezt TÍMARIT: Heima er bezt hefur komið út í liðlega hálfa öld og einkum fengist í áskrift en nú hefur verið ákveðið að selja það líka í lausasölu í helstu bókaverslunum landsins. Með- al efnis í nýjasta heftinu er við- tal við Stínu Gísladóttur, sókn- arprest í Holti í Önundarfirði, og frásöguþáttur af Ingvari Erasmusi Einarssyni skipstjóra eftir Einar Vilhjálms- son. Einnig birtist þar smásagan „Litla prinsessan" eftir Starkað Barkarson sem hlaut fyrstu verðlaun í smá- sagnakeppni MENOR og Heima er bezt. Lifandi grasrót Sjálfstæðir leikhópar stefna á 75 leiksýningar á leikárinu Sjálfstæðu leikhóparnir fengu byr undir báða vængi fpegar fslensku leiklistarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn síðastliðið vor. Enda hafa þeir margeflst og hyggjast frumsýna um það bil fjörutíu uppsetningar á nýbyrjuðu leikári. Með eldri uppsetningum verða alls 75 sýningar á fjölunum á vegum þeirra í vetur. í Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa eru um 70 hópar en þeir starfa ekki allir reglulega. Hlutur þeirra í íslensku sviðslistaumhverfi hefur stækk- að undanfarin ár og þetta árið em á listanum sýningar ffá 37 hópum. Forsvarsmenn Banda- lagsins fagna auknum skilnmgi opinberra aðila á mikilvægi starfseminnar, menntamálaráðherra, leiklistarráðs og borgaryfirvalda og líka stóm leikhúsanna sem bjóða til samstarfs eða em þeim innan handar á annan hátt. Verðlaunasýningar Gn'munnar verða sumar sýndar áfram, þar á meðal bamasýning ársins, Völuspá í Möguleikhúsinu, Sellófon, sem hiaut áhorfendaverðlaunin og er nú sýnd í Iðnó, og leiksýning ársins, Kvetch. Rómeó og Júlía Vest- urports verður frumsýnd í London í vikunni en í haust hafa verið fáeinar aukasýningar í Borgar- leikhúsinu. Innlend og fjölþjóðleg list Þegar rennt er yfir langan lista leikverka verð- ur tvennt fljódega áberandi: Hve mörg verk em íslensk og hve margar sýningar em ædaðar bömum. Mink leikhúsið ffumsýndi í liðinni viku Vin minn heimsendi efdr Kristínu Ómarsdóttur í Hafnarfjarðarleikhúsinu við góðan fögnuð. Meðal annarra sýninga sem þegar hafa verið frumsýndar má nefna Eldinn efdr Ólöfu Sverris- dóttur, Ráðalausa menn efdr Siguringa Sigur- jónsson og Tenórinn eftir Guðmund Ólafsson sem var ffumsýndur á Ólafsfirði í sumar en verð- ur endurfrumsýndur í Iðnó í byrjun október. í október frumsýnir líka Kvenfélagið Garpur Riddara hringborðsins - með veskið að vopni í Listasafni Reykjavíkur undir stjóm Þórhildar Þorleifsdóttur. Síðar á árinu verður ný leikgerð á Meistaranum og Margarítu sýnd í samstarfi Hafnarfjarðarleikhússins og Vesmrports. Fram undan er Iíka nýtt verk eftir Þorvald Þorsteins- son sem hann semur sérstaklega fyrir Amar Jónsson á 40 ára leikafmæli þess ástsæla leikara. Ég er amma mín er vinnuheití á nýju verki Brynju Benediktsdóttur og Súsönnu Svavars- dóttur fyrir Skemmtihúsið og Steinn Steinarr er vinnuheití á nýju verki Elfars Loga Hannessonar í Kómedíuleikhúsinu á ísafirði. Strengjaleikhús- ið frumsýnir í mars 3 Maríur eftír Sigurbjörgu Þrastardóttur í samstarfi við Borgarleikhúsið. Sjálfstæðu leikhúsin eru grasrótin í íslensku sviðs- listaumhverfi og sinna furðustórum hluta íslenskra leikhúsáhorfenda. Nokkrir hópar em í öflugu eríendu samstarfi, til dæmis sýnir Lab Loki tvær „fjöllista-" eða „millilandasýningar" á næstu vikum þar sem unnið er með listamönnum í Danmörku og Wa- les. Þessar sýningar heita Aurora Borealis og Hvenær er kven/maður frjáls? Tvö leikhús sóttu styrki til Evrópu, Thalamus með sýninguna In Transit og Hlutafélag sf. með sýningu sem heitir CommonNonsense, báðar verða sýndar í Borg- arleikhúsinu. Þar em nokkur glæsileg samstarfs- verkefni inni á leikárinu, Hættuleg kynni Dans- leikhúss með ekka og Rauðu skórnir, auk ofan- nefndra. Svöluleikhúsið sýnir dansverkið Ef ég væri fugl eftír Auði Bjamadóttur með vorinu, en síðasta dansverk Auðar var hin frábæra Salka Valka á Listahátíð 2002. íslenskt fyrir börn Meðal hópa sem sýna ný bamaleikrit em Augnablik með tónlistarævintýrið Það sem vest- anvindurinn sá eftir Áma Harðarson tónskáld og kórstjóra, Draumasmiðjan með Ég heití Sigga, Leikbrúðuland með Pápi veit hvað hann syngur, Á senunni með Æv- intýrið um Auga- stein eftír Felix Bergsson og Stopp leikhópurinn með Landnámu eftir Valgeir Skagfjörð. Möguleikhúsið verður með mikla dagskrá í vetur enda vinsælast allra leikhúsa fyrir utan Þjóðleikhús og Borgarleikhús. Að venju heldur það eldri sýning- um gangandi því alltaf koma ný böm til að sjá þær, en á föstudaginn frumsýnir það nýtt verk eftír Torkild Lindebjerg, Tvo menn og kassa. Höfundur leik- stýrir. Seinna á leikárinu frumsýnir Möguleik- húsið tvö ný íslensk verk, Hatt og Fatt í nýjum ævintýrum eftír Ólaf Hauk Símonarson og Landið Vifru eftír Þórarin Eldjám. Strengjáleikhúsið sýnir óperuna Dokaðu við eftír Messíönu Tómasdóttur og Kjartan Ólafsson í samvinnu við Islensku óperuna í nóvember. Og Sögusvuntan sýnir farandsýninguna Ævintýri á jólanótt, byggða á sögu Leos Tolstojs, um jólin. SUMIR HAFA SEXAPPÍL Arndís Hrönn Egilsdóttir leitar á Ólafíu Hrönn Jónsdóttur í Vini mínum heimsendi hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu. DV-myndE.ÓI. leika í Ými, Veika kynið, nýtt verk frá Bjama Hauki og félögum í 3 Sagas Entertainment og Macbeth Shakespeares sem Vesturport ætlar að frumsýna um áramót. Þá rokgengur Erling í Loftkastalanum og fyrir norðan og Grease slær öll met í Borgarleikhúsinu. Sjálfstæðu leikhúsin em grasrótin í íslensku sviðslistaumhverfi og sinna furðustórum hluta íslenskra leikhúsáhorfenda. Þau fara í skólana og út á vinnustaðina, búa til leikhús þar sem engum datt í hug að hægt væri að sýna leikrit. Samtök þeirra em virk og virt í samtökum evr- ópskra leikhúsa. Ný heimasíða Bandalags sjálfstæðra leikhúsa heftír verið opnuð á slóðinni www.leikhopar.is. Þar verður hægt að nálgast allar upplýsingar um hópana. Vinsælar sýningar Meðal erlendra verka hjá sjálfstæðu leikhóp- unum er hið margboðaða Eldað með Elvis, sem verður sýnt í Loftkastalanum og á Akureyri, 100% hitt sem Helga Braga Jónsdóttir ætlar að Þykkir og munúðarfullir sellótónar TÓNLISTARGAGNRÝNI Jónas Sen Kammermúsíkklúbburinn hófstarfsár sitt með tónleikum í Bústaðakirkju á sunnudagskvöldið þar sem Eþos-kvartettinn flutti verk eftir Moz- art, Dvorák og Jón Ásgeirsson. Eþos sam- anstendur af fiðluleikurunum Auði Hafsteins- dóttur og Grétu Guðnadóttur, Guðmundi Krist- mundssyni víóluleikara og Bryndísi Höllu Gylfa- dóttur sellóleikara. Fyrst léku þau strengjakvartett nr. 2 eftir Jón og hefði verið gaman að vita hvenær hann samdi hann en ekkert stóð um það í tónleikaskránni. Hins vegar má þar lesa að verkið sé „leikur með ýmis þau atriði sem einkenna íslensk þjóðlög án þess að þjóðlög séu beinlínis notuð". Kannski þess vegna var tónlistin sérlega aðgengileg auk þess sem hún var snyrtilega raddsett og í augljósu formi. Maður varð ekki var við að tónskáld- EÞOS-KVAmtl llNN: Tæknilega öruggur, skýr og I góðu styrkleikajafnvægi. DV-myndE.ÓI. inu lægi neitt sérstakt á hjarta en tónlistin var ekki leiðinleg og Eþos-kvartettinn spilaði hana af léttleika og faglegri smekkvísi. Næstur var strengjakvintett í c-moll KV 406 eftir Mozart, og bættist Þómnn Ósk Marinós- dóttir vióluleikari þá í hópinn. Þess má geta að kvintettinn var upphaflega fyrir átta blásara en umritaður síðar af tónskáldinu. Hann er afar fagur, dramatískari en margt annað eftir Mozart, og var hann einstaklega vel spil- aður af fimmmenn- ingunum. Að vísu var hægi þátturinn, sem ber yfirskriftina And- ante (“með göngu- hraða“), heldur óró- legur; gott ef hann slagaði ekki upp í að vera allegretto sem er fremur hratt. Hægir kaflar í verkum Moz- arts þurfa að vera gæddir nokkurs kon- ar himneskri hugarró til að njóta sín sem skyldi og hana var ekki að finna í þessari túlkun. Annað var prýðilegt, tæknilega var leikurinn ömggur, skýr og í góðu styrkleikajafnvægi og allt það fallegasta skilaði sér í hröðu köflunum. En best af öllu var síðasta atriði tónleik- anna, kvintett fyrir tvær fiðlur, víólu, selló og píanó eftir Dvorák. Þar brá Þómnn Ósk sér í hlutverk flettara fyrir píanóleikarann, sem var Mona Sandström, úr Trio Nordica. Að vísu var hægi þátturinn, sem ber yfirskriftina Andante („með gönguhraða"), heldur órólegur; gott efhann slagaði ekki upp í að vera allegretto sem er fremur hratt. Þessi kvintett Dvoráks er eitt helsta verk hans, fullt af grípandi laglínum og þmngið náttúrustemningu sem er undirstrikuð með þjóðlegum danstakti. I meðfömm fimm- menninganna var verkið algerlega dásam- legt; Mona er frábær píanóleikari, með af- burðatækni og sérlega mjúkan áslátt sem naut sín til fulls í rómantískri tónlistinni. Þykkir og munúðarfullir sellótónar Bryndísar Höllu vom sömuleiðis ótrúlega magn- þmngnir og hinir hljóðfæraleikararnir vom líka með allt sitt á hreinu. I stutm máli var þetta unaðslegur Dvorák og má því segja að þessir glæsilegu tónleikar hafi verið góð byrj- un á starfsári Kammermúsíkklúbbsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.