Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 38
38 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Frábært fyrir Víking sagði þjálfarinn, Gunnar Magnússon, um endurkomu Bjarka Sigurðssonar íVíking Eftir 25 mínútur var leikur Vík- ings og Þórs, í norðurriðli RE/MAX-deildar karla í gær, bú- inn. Saðan var orðin 20-5 og hraðaupphlaupsmörk Víkinga orðin á annan tuginn. Afgangur leiksins var þar með formsatriði fyrir Víkinga, sem unnu að lok- um 37-29 marka sigur, sinn fyrsta í tæpt ár. Bjarki Sigurðs- son átti frábæran leik, skoraði 13 mörk úr 14 skotum og átti að auki 11 stoðsendingar. Hann kom að 24 af þeim 34 mörkum sem liðið skoraði þegar hann var inná. Víkingar byrjuðu leikinn frábær- lega, skoruðu átta hraðaupp- hlaupsmörk á fyrstu 12 mínútun- um og voru komnir í 13-3 um miðj- an hálfleikinn. I hálfleik munaði 13 mörkum (21-8) og þegar maður leiksins, Bjarki Sigurðsson, settist á bekkinn 10 mínútum fyrir leikslok var 14 marka munur (34-20). Þórs- * arar björguðu andlitinu í lokin og Goran Gusic fór þar mikinn en hann skoraði öll níu mörk sín í seinni hálfleiknum. Gunnar Magnússon, þjálfari Vík- ings, var ánægður með leikinn í leikslok. „Við komum virkilega vel stemmdir til þessa leiks, vorum ósáttir við okkar frammistöðu gegn Fram á föstudaginn og vildum sýna það og sanna að það býr miklu meira í okkar liði,‘‘ sagði Gunnar sem gleðst yfir endurkomu Bjarka 'líkt og allir Víkingar. „Hann er ótrú- legur og virðist bara verða betri með hverju árinu. Það er frábært fyrir okkur að hafa hann í liðinu og KA-VALUR 22-26 (12-7) Dómarar: Brynjar Einarsson og Vilbergur F. Sverrisson 4/10 Gæöi leiks: 6/10 Áhorfendur: 521. Maður leiksins: Baldvin Þorsteinsson, Val Gangur leiksins: 0-4,4-4, 7-5, 7-6,9-6,11-6, (12-7), 12-8, 15-10,17-14,17-17,17-20,19-23, 22-26 KA Mörk/ þar af víti ískoi/vfti) Hraðaupphl. Einar Logi Friðjónsson 7 O ; 1)0 Jónatan Magnússon 4 (); 0 Arnór Atlason 4 ') 0 jafnframt frábært fyrir Víkinga að hafa hann í klúbbnum,“ sagði Gunnar að lokum. Auk Bjarka áttu þeir Reynir Þór Reynisson markvörður og Ragnar Hjaltested góðan leik. Ragnar komst á flug eftir tvo erfiða leiki í upphafi tímabils (9/3 í skotum) og „Ég er viss um að við getum strítt öllum lið- um í deildinni." fór hamförum í hraðaupphlaupun- um í leiknum. Bjarki hefur verið fyrirmynd Ragnars en nú spila þeir hlið við hlið á hægri vængnum. „Þegar maður er með góða menn við hliðina á sér er auðvelt að gera góða hluti. Það er algjör draumur fyrir mig að fá Bjarka við hliðina á mér. Hann er algjör draumakarl fyrir hvert lið. Hann notar alla sína reynslu, hjálpar okkur ungu strák- unum og kennir okkur ýmislegt. Það var samt nauðsynlegt fyrir mig að fá góðan leik því það hafði allt gengið á afturfótunum í tveimur fyrstu leikjunum og ég varð að rífa mig upp úr þeirri lægð. Við eigum eftir að spila okkur aðeins betur saman og ég er viss um að við get- um strítt öllum liðum í deildinni," sagði Ragnar sem stefnir á að gera enn betur. Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, þjálfari Þórs, hefur aftur á móti mátt þola mikinn mannamissi. „Við vorum ekki tilbúnir og ég veit ekki hvað mínir menn voru að gera hérna í byrjun. Víkingarnir eru langt á undan okkur í líkamlegu formi, spilaformi og öllu. Ég var að fá síðustu mennina inn í liðið fyrir þrem dögum og við erum bara langt á eftir,“ sagði Sigurpáll en Þór hefur tapað þremur fyrstu leikjum sínum. „Að sjálfsögðu hef ég áhyggjur af þessu en ég er með lít- „Víkingarnir eru langt á undan okkur í líkam- legu formi, spilaformi og öllu." inn hóp og margir af þeim eru ekki orðnir klárir. Það er ekki hægt að mæta Víkingi með mannskapinn ekki í betra standi og hvað þá þegar hugarfarið fylgir ekki. Það er fullt af hlutum sem ég þarf að taka á,“ sagði Sigurpáll að lokum. Páll Viðar Gíslason var besti maður Þórs með sex mörk og 6 stoðsendingar, Gusic vaknaði upp að værum blundi í seinni hálfleik og Árni Þór Sigtryggsson fær hrós fyrir áræðni. ooj.sport@dv.is SENDINGAR BJARKA Bjarki Sigurðsson átti, auk 13 marka sinna, 11 stoðsendingar í leik Víkinga og Þórsara í gær, þar af sex þeirra á hægri hornamann sinn, Ragnar Hjaltested. Þessir nutu stoösendinga Bjarka: Ragnar Hjaltested 6 Benedikt Árni Jónsson 3 Davíð Örn Guönason 1 Þröstur Helgason 1 ooj.sport@dv. VÍKINGUR-ÞÓR 37-29 (21-8) Dómarar: GunnarViðarsson og Stefán Arnaldsson 9/10 Gæði leiks: 7 ?ö Áhorfendur: 150. Maður leiksins: Bjarki Sigurðsson, Víkingi Gangur leiksins: 4-0, 4-1, 7-1,11-3, 16-4,20-5, (21-8), 21-9, 22-9,22-12, 27-14, 34-20, 37-29. Mörk/ þar af víti (skot/vít ■ Hraðaupphl. Bjarki Sigurösson 13/1 .;i4/t)2 Ragnar Hjaltested 10(13) 9 Benedikt Árni Jónsson 4 1 Karl Grönvold 3(4) 1 Þröstur Helgason 3(6 0 Davíð Örn Guðnason • i(2;o Andri Már Númason 1 (2) 0 ÞórirJúlíusson 1 (3)0 Björn Guðmundsson 1 5) 1 Sverrir Hermannsson 0(2) 0 Andri Berg Haraldsson 0 0 Samtals: 37/1 (57/1)14 Fiskuð vfti Ragnar Hjaltested 1 Varin skot/þar af víti fskot á sig/víti) Reynir Þór Reynisson 17/2 55 49% Jón Árni Traustason 1 (12/2) 8% Brottvfsanln 14 mínútur. (Andri Berg rautt spjald fyrir 3 x 2mín á 57. mln) Mörk/ þar af víti (skot/vftO Hraðaupphl. Goran Gusic 9/5 13/6)1 Árni Þór Sigtryggsson 7(15/1)2 Páll Viðar Gíslason 6(8/1) 0 Cedric Akerberg 2(2)0 Þorvaldur Sigurðsson 2(6) 0 Davlð Már Sigursteinsson 2(6) 0 Bergþór Mothens 1 (2! 0 Samtals: 29/5 (52/8) 3 Fiskuð víti Goran Gusic 3 Cedric Akerberg 2 Páll Viöar Gíslason 2 Orri Stefánsson 1 Varin skot/þar af víti fskot á síg/víti) Jónas Stefánsson 14 '.4/i 32% Axel Stefánsson 0(7)0% Brottvfsanin 8 mínútur. RAGNAR Á FLEYGIFERÐ: Ragnar Hjalte- sted, til vinstri, átti góðan leik fýrir Víking gegn Þór í gær og skoraði tíu mörk í leikn- um, átta þeirra gerði hann í fyrri hálfleik, sex eftir stoðsendingar Bjarka Sigurðsson- ar og alls níu af mörkunum komu úr hraðaupphlaupum. DV-jnyndHari Andrius Stelmokas 3 (4! 3 Bjartur Máni Sigurðsson 3 0 Árni Björn Þórarinsson 1 (3)0 Haukur Heiðar Steindórsson 0 2)0 Samtals: 22 (41)3 Gerði ekki ráð fyrir 2 stigum Engin Fiskuð víti sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir22-26 sigur áKAá Akureyri Varin skot/þar af viti ískot á síg/vití) • Stefán Guðnason 11/2 41 % Hans Hreinsson Brottvfsanin 10 mínútur. 3(U/W 23% VALl ,R ■■ Mörk/ þar af víti (skot /víti) Hraðaupphl. Baldvin Þorsteinsson 6/1 4 Heimir örn Árnason 5 (8) 1 Hjalti Pálmason 5/1(1! ' 0 Hjalti Gylfason 4(7) 1 Sigurður Eggertsson 4 0 Freyr Brynjarsson 1 (I) 1 Markús Máni Michaelsson 1/1 0 Ásbjörn Stefánsson 0 l! 0 Samtals: 26/3 (48/5) 7 Fiskuð víti Markús Máni Michaelsson 1 RagnarÆglsson 1 Baldvin Þorsteinsson 1 Heimirörn Árnason 1 Hjalti Pálmason 1 jf Varin skot/þar af víti (*kot 4 sig/v(ti) RolandValurEradze 15 41% Brottvfsanln 8 mlnútur. Valsmenn gerðu góða ferð norður til Akureyrar í gærkvöld og unnu KA-menn sannfærandi, 26-22, í RE/MAX deildinni í handbolta. Leikur- inn var kaflaskiptur með ein- dæmum en það voru gestirnir frá Hlíðarenda sem enduðu betur og nældu sér í öll stigin. Valsmenn byrjuðu leikinn mun betur og skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins, þar af 2 úr hraða- upphlaupum. KA-menn náðu að skora sitt fyrsta mark í leiknum eftir átta mínútur og það sem eftir lifði hálfleiks réðu þeir gangi mála á vellinum. KA-menn sýndu sínar bestu hliðar og fóru með verð- skuldaða 5 marka forystu í hálf- leik, 12-7. Seinni hálfleikurinn var svipaður hinum fyrri nema nú snerist dæmið gjörsamlega við. KA-menn byrjuðu betur en eftir 10 mínútna leik tóku Valsmenn alla stjórn á vellinum og skoruðu hvert markið af öðru. Heimamenn áttu svipaðan kafla um miðjan seinni hálfleik- inn og gestirnir áttu um miðjan þann fyrri, þ.e.a.s. tókst ekki að skora í 10 mínútur. KA-menn breyttu í maður á mann síðustu 5 mínúturnar og náðu að minnka muninn niður í 2 mörk, 22-24, þegar 2 mínútur voru til leiksloka, „KA-liðið er feikna- sterkt. Ég gerði ekki ráð fyrir þessum stigum og lít á þau sem bónus." en Valsmenn skoruðu síðustu 2 mörk leiksins og innbyrtu mikil- vægan útisigur. Gömlu KA-leikmennirnir í Val, þeir Baldvin Þorsteinsson og Heimir Árnason, kunnu vel við sig norðan heiða og spiluðu vel á köflum. Roland var traustur í markinu, varði 15 skot, og Sigurð- ur Eggertsson sýndi lipra takta, sérstaklega í seinni hálfeiknum. Hjá heimamönnum stóð Stefán Guðnason sig frábærlega í mark- inu, en þó sérstaklega í fyrri hálf- leiknum þegar vörnin virkaði fyrir framan hann. Einar Logi sýndi oft og tíðum skemmtilega takta í sókninni en lykilmennirnir, þeir Arnór Atlasón og Stelmokas, voru langt frá sínu besta. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður í leikslok. „Það er rosalega gaman að spila hérna í KA-húsinu, frábær stemning. Við erum með marga unga leikmenn og þetta hefur áhrif á þá og þvf var leikur minna manna svona kaflaskiptur, menn yfirspenntust og fóru að „slútta" sóknum of snemma. Mfnir menn komu til baka í seinni hálfleik og yfirspiluðu KA líkt og þeir höfðu gert í fyrri hálfleik. Hins vegar er KA-liðið feiknasterkt og ég gerði ekki ráð fyrir þessum stigum. Ég lít á þau sem bónusstig." KA-menn byrjuðu illa en komu til baka um miðjan fyrri hálfleik „Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við misstum gjörsamlega hausinn, skynsemina og kjarkinn. og spiluðu glimrandi vel. Hins vegar gekk ekkert hjá þeim í seinni hálfleiknum. „Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við misstum gjörsamlega hausinn, skynsemina og kjarkinn. Eins og þetta stefndi í góðan sigur hjá okkur, vorum með þá í fastataki, en þegar við hættum að sækja á þá og ætluð- um að halda okkar stöðu misstum við tökin á leiknum," sagði Jóna- tan Magnússon, fyrirliði KA. akureyri@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.