Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Síða 10
70 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR24. SEPTEMBER2003
.
■
TÓNLIST OG VEITINGAR f HÚOMSKÁLAGARÐINUM:
Hugmyrtd ívars Arnar Guðmundssonar arkitekts,. unn-
in fyrir miðborgarstjóm að frumkvæði Bolta Kristíns-
sonar kaupmanns. Um er að ræða veitingaskála
fferiístá ntyndinni og „opnanlegan" tónlistarskála
inárHtjomskáianum. Engin ákvörðun hefur veriö tek-
in um ftamkvæmdir, en rætt hefur veriö um að þær
gætjr orðið á vegum (þrótta- og tómstundaráös.
-■V
I
I
:
Hugmyndir og fyrirhugaðar framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur:
Kynning stendur nú yfir á fjöl-
mörgum fyrirhuguðum fram-
kvæmdum í miðborg Reykja-
víkur og hugmyndum að
breyttu skipulagi þar. Mark-
miðið er að blása lífi í miðborg-
ina.
Aflvaki hf. er hlutafélag í eigu
Reykjavíkurborgar sem vinnur að
eflingu og viðgangi atvinnulífs í
borginni. Fyrirtækið stendur þessa
dagana fyrir kynningu að Banka-
stræti 5 á ýmsum framkvæmdum í
miðborginni. Ýmist er um að ræða
hugmyndir eða framkvæmdir sem
þegar hafa verið ákveðnar, en það
er sammerkt með þeim að tilgang-
urinn er að efla miðborgina; þétta
byggðina, fjölga íbúum og fyrir-
tækjum og treysta þannig grund-
völl mannlífs sem sumum hefur
ekki þótt nægilega blómlegt.
Höfðatorg
Framkvæmdir við nýtt atvinnu-
húsnæði fyrir 1.500 til 2.000 starfs-
menn hefjast við Borgartún - á
milli Höfðatúns og Skúlatúns - í
febrúar. Stefnt er að því að það
verði fullbúið haustið 2007. Aðal-
einkenni þess eru sextán hæða
turn og torg, Höfðatorg, sem
markast af fjögurra hæða atvinnu-
húsnæði á þrjá vegu. Torgið verður
stærra en Ingólfstorg en ívið minna
en Austurvöllur. Við torgið vestan-
vert verður lágreist bygging þar
sem gert er ráð fyrir veitingastað,
kaffihúsi og heilsuræktarstöð.
Þannig gæti það orðið lífleg mið-
stöð þeirra sem vinna á svæðinu.
„Torgið býður upp á gott mann-
líf, þar verður skjól fyrir norðanátt
og sólin skfn inn á það. Það mun
því veita fólki sem þarna vinnur og
býr í nágrenninu möguleika á að
hittast,1' segir Páll Daníel Sigurðs-
son hjá verktakafyrirtækinu Eykt
og bætir við að stefnt sé að því að
skreyta torgið með listmunum.
„Nostalgía er ágæt í
bland en hún má ekki
standa í vegi fyrir því
að borgir taki út eðli-
legan þroska
Spurður um eftirspurn eftir
þessum 24 þúsund fermetrum
skrifstofuhúsnæðis segir Páll að ef
hún verði ekki fyrir hendi í þeim
uppgangi sem spáð er í efnahags-
lífinu næstu ár þá nái það bara
ekki lengra. Með framkvæmdinni
verðið boði upp á betri kost en þá
sem nú standa til boða á sambæri-
legu verði.
Ný göngugata
„Þetta byrjaði sem stúdía á því
hvort Hótel Borg gæti stækkað við
sig,“ segir Páll Hjaltason arkitekt
um allróttæka hugmynd sem felst í
því að snúa Hressingarskálanum
við Austurstræti þannig að opnast
inn í nýja göngugötu í átt að Skóla-
brú. Hugmyndin hefur verið þró-
uð í umboði lóðareigenda Hressó
og Hótel Borgar.
Til þess að hugmyndin geti orð-
ið að veruleika þyrfti að samþykkja
nýtt skipulag fýrir svæðið. Það er
viðkvæmt, enda ýmsar sögufrægar
byggingar þarna. Lækjargata 3 er
að sögn Páls fyrsta húsið í Reykja-
vík sem var reist sem hornhús og
þarna er líka gamla yfirréttarhús-
ið. Húsið sem til skamms tíma var
inngangurinn að skemmtistaðn-
um Astró var á sínum tíma vand-
aðasta hús Reykjavíkur og þar setti
Jörundur hundadagakonungur
upp bækistöð sína þegar hann tók
land.
SKUGGAHVERFI: Gert er ráð fyrir að 250 íbúðir verði í nýja Skuggahverfinu. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í september á næsta ári.
Borgin breytist