Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Page 11
----- ----mmm------------amtm-----------Æmmm_________mmm ' mm Ætam
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 11
TURN OG TORG VIÐ BORGARTÚN: Verktakafyrirtækið Eykt byrjar á byggingu þessa feikn-
armikla atvinnuhúsnæðis við Borgartún í febrúar á næsta ári. Á myndinni er horft upp
Höfðatún, en götusvipur hennar mun taka hvað mestum stakkaskiptum. Aðaleinkenni
mannvirkisins eru 16 hæða turn og torg inn á milli bygginganna, Höfðatorg, sem nálgast
Austurvöll að stærð. Gert er ráð fyrir kaffihúsi, veitingastað og líkamsræktarstöð á svæð-
inu. Sjálft torgið hefur ekki enn verið hannað.
„Það er mikil saga þarna og frið-
uð hús," segir Páll. „Skipulagshug-
myndir hafa hingað til ekki verið
með þeim hætti að fólk hafi fundið
flöt á að taka þetta í gegn. En ég tel
að með þessari hugmynd mætti
gefa miðbænum meiri vaxtar-
möguleika inn á við og í rauninni
er mikið nær að gera þetta svæði
að göngusvæði en Austurstrætið."
Hljómskálagarður og
Sundhöll
Fleiri spennandi tillögur eru á
hugmyndastigi. fvar Örn Guð-
mundsson arkitekt hefur þróað
tvær þeirra fyrir Aflvaka, en frum-
kvæðið kom frá miðborgarstjórn
og Bolla Kristinssyni kaupmanni
fyrir um tveimur árum.
Annars vegar er um að ræða nýtt
útisvæði við Sundhöll Reykjavíkur
við Barónsstíg með fjölda heitra
potta og tveimur 25 metra sund-
brautum á útipalli og heilsurækt-
arstöð á neðri hæð.
Hins vegar eru hugmyndir um
tvær nýbyggingar í Hljómskáfa-
garðinum, aðra til útitónleikahalds
og hina fyrir veitingaþjónustu.
Veitingaskálinn yrði um 100 fer-
metrar og rúmaði um 30 viðskipta-
vini, en auk þess yrði pallur byggð-
ur út í Tjörnina þar sem allt að 40
manns til viðbótar gætu notið veit-
inga úti við. í öðru lagi yrði byggð-
ur 50 fermetra tónleikapallur ná-
lægt Hljómskálanum.
Allt gengur þetta út á að bjóða
miðborgarbúum upp á fullnægj-
andi þjónustu. „Það búa um 14
þúsund manns á svæði 101 sem
vantar aðstöðu í samræmi við þarf-
ir okkar og óskir í dag," segir ívar
Örn.
Nostalgían víki
En það stendur líka til að fjölga
íbúum miðborgarinnar og í því
sambandi hefur fyrirhugað 5 hæða
íbúða- og atvinnuhúsnæði þar sem
Austurbæjarbíó stendur verið
nokkuð umdeilt. ívar örn segir að
málið sé á hugmyndastigi en Aust-
urbæjarbíó sé barn síns tíma. Hús-
ið geti vart keppt við önnur kvik-
myndahús og margvísleg aðstaða
sé nú fyrir hendi til tónleikahalds
af öllu tagi. „Nostalgía" sé ágæt í
bland en hún megi ekki standa í
vegi fyrir því að borgir taki út eðli-
legan þroska: „Þeir staðir sem ekki
aðstoða miðborgina í þeim þroska
verða kannski að víkja fyrir nýjum
stöðum sem henta betur."
Ekkert stendur hins vegar í veg-
inum fyrir nýju Skuggahverfi, enda
framkvæmdir þegar hafnar. Gert er
ráð fýrir að íbúðir þar verði alls
250, allt frá 50 fermetrum upp í ríf-
lega 200. Þær fyrstu verða afhentar
eftir eitt ár. oiafur@dv.is
NÝ GÖNGUGATA í MIÐBÆNUM - FYRIR OG EFTIR: Hugmynd Páls Hjaltasonar arkitekts,
sprottin upp úr vangaveltum eigenda Hótel Borgar um hugsanlega stækkun hótelsins.
Hún felur í sér að Hressingarskálanum verði snúið og þannig opnuð ný göngugata, sam-
hliða Lækjargötu, inn af Austurstræti. Málið er á hugmyndastigi og ýmsar sögufraegar
byggingar sem huga þarf að. Á myndunum sést tillagan í samanburði við núverandi
skipulag.
Hver vinnur ferð til London
eða Kaupmannahafnar?
Faröu inn á dv.is og staöfestu þátttöku þína, með
því að smella á þar til gerðan reit og fylgja síðan
fyrirmælunum! Meðal annars þarf að rekja í stuttu
máli, hvernig til tókst í átakinut
... nú þarf að hafa hraðar
hendur. Staðfestu þátttöku
í leiknum okkar fyrir
TERRA
NOVA
Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hiálparefni til ad hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar
tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fránvarfseinkennum þegar reykingun ‘ “ - ...............................
til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki m ’
lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum. s.s. svima, höfuðverk, i
slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótlnlyf nema í samráði við lækni. Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað’börnúm yngri
en 15 ára nema í samraði við lækm. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
wmmammammm