Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Side 16
76 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 (Jtlönd Heimurinn i hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is Sfmi: 550 5829 Fischer skilinn í fjórða sinn EINKALÍF: Ástamál Joschka Fischers, utanríkisráðherra Þýskalands, eru enn einu sinni í brennidepli eftir að hann skildi nýlega við fjórðu eiginkonu sína og tók saman við unga stúdínu. Það var slúðurblaðið Bild sem fyrst flutti fréttirnar af leynileg- um skilnaði hins 55 ára gamla Fischers og blaðakonunnar Nicolu Leske, sem er 21 ári yngri. Orðrómur komst á kreik eftir að Leske flutti til Frankfurt og að til utanríkisráðherrans sást með nýrri lagskonu á flóamark- aði í Berlín. Nýja kærastan ku vera 28 ára gömul, nemandi í kvikmynda- gerð, og er, ásamt lítilli dóttur sinni, flutt inn til Joschka. Svartsýnni FÆREYJAR: Herálvur Joensen, forstjóri færeyska olíumála- ráðsins, segir að vonir manna um að olía finnist á færeyska landgrunninu séu minni nú en fyrir nokkrum árum. Það sé ástæðan fyrir því að olíufélögin haldi að sér höndum og vilji gera frekari rannsóknir áður en aftur verður tekið til við að bora í hafsbotninn. Bush harðlega gagnrýndur á Allsherjarþingi 5Þ: Hafnar að flýta valdaframsali George W. Bush Bandaríkjafor- seti, sem ávarpaði Allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna í gær, hafnaði alfarið kröfum ým- issa leiðtoga heims um að flýta afhendingu valda í írak í hendur íraka sjálfra en mátti sjálfur þola harða gagnrýni fyrir að sniðganga Sameinuðu þjóðirn- ar þegar hann ákvað að hefja stríðsaðgerðir í írak. í ávarpinu, sem þótti hvorki auð- mjúkt né hrokafullt, hvatti Bush þjóðir heims til þess að axla sam- eiginlega ábyrgð og kostnað við hersetuna og uppbyggingarstarfið í Irak aðeins ári eftir að hann aðvar- aði þessa sömu samkomu 191 þjóða við því að Sameinuðu þjóð- irnar framfylgdu ekki samþykktri ályktun Öryggisráðsins um afvopn- un Saddams. „írakar þurfa núna á hjálp okkar að halda og allar velviljaðar þjóðir heims verða að veita alla mögulega aðstoð," sagði Bush. Hörð gagnrýni Chiracs Þrátt fyrir harðar gagnrýnisradd- ir ýmissa þjóðarleiðtoga heims, eins og Frakklands, Indónesíu, Brasilíu og Suður-Afríku, virðast þeir flestir tilbúnir til þess að styðja það að Sameinuðu þjóðirnar taki þátt í uppbyggingarstarfinu í írak. Jacques Chirac Frakklandsforseti fór sem fyrr fremstur í flokki þeirra sem gagnrýndu framgöngu Banda- ríkajmanna í írak og hvatti hann til þess að stjórn landsins yrði færð í hendur íraka sjálfra sem fyrst en þó innan raunsærra tímamarka. Chirac sagði að innrásin, sem var gerð án stuðnings Sameinuðu þjóðanna, hefði aðeins skapað glundroða og sundrað samtaka- mætti alþjóðasamfélagsins. „Sameinuðu þjóðirnar hafa nú gengið í gegn- um eina alvarlegustu kreppu í sögu samtak- anna," sagði Chirac. „Sameinuðu þjóðirnar hafa nú gengið í gegnum eina alvarlegustu kreppu í sögu samtakanna," sagði Chirac, sem leggur til að írökum verði afhent völdin í tveimur þrep- um á næstu sex til níu mánuðum. Annan kallar eftir samstöðu Þrátt fyrir skiptar skoðanir þjóð- arleiðtoga um hugsanlegt hlutverk Sameinuðu þjóðanna í Irak og hve fljótt írökum verði sjálfúm afhent stjórn landsins, fylktu þeir flestir liði að baki Kofis Annans, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, sem kallaði eftir samstöðu við að byggja upp friðsamlegt lýð- < ræðisríki í írak. Luis Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, er í hópi þeirra sem vilja hraða því að völdin verði færð í hendur írökum sjálfum og sagði að eina leiðin til þess að leysa vand- ann í landinu væri að færa stjórn- ina í hendur SÞ. „Ekki aðeins til þess að tryggja viðunandi öryggi heldur líka til þess að leiða stjórn- málalega þróun :em tryggi það að uppbyggingarstar'Ið skili stöðug- leiíca svo írakar geti sjálfir tekið við stjórn eigin mála sem fyrst," sagði da Silva. Fátækar þjóðir vilja frið Thabo Mbeki, forseti Suður-Afr- iku, sagði að málið snerist ekki bara um framtíð Iraks heldur líka fram- tíð Sameinuðu þjóðanna. „Fátækari þjóðir heims vilja binda enda á ófrið og stríð alls stað- ar í heiminum. Til að það markmið náist þurfum við öl,l bæði ríkir og fátækir, að standa saman og sýna viljann í verki. Það er okkar máttur og þannig náum við árangri," sagði Mbeki. Megawati Sukarnoputri, forseti Indónesíu, sagði að stríðið í írak hefði aðeins skapað meiri vanda heldur en það átti að leysa. SKÁLAÐ Á ALLSHERJARÞINGINU: Leiðtog- ar heimsins skáluðu í kampavini á Allsherj- arþingi SÞ í gaer. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Ásgarðsvegur 7, eignarhl. gerðarþola, Húsavík, þingl. eig. Lára Sigþrúður Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Húsa- smiðjan hf., þriðjudaginn 30. septem- ber 2003 kL 10.00. Ásgata 23, íb. 01-0101, Raufarhöfn, þingl. eig. fsabella Björk Bjarkadóttir, Reynir Þorsteinsson og Hilmir Agnars- son, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 11.00. Ásgata 8, Raufarhöfn, þingl. eig. Krist- ján Þ Snædal, gerðarbeiðendur íbúða- lánasjóður og Lífeyrissjóðir Banka- stræti 7, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 11.30. Bakkagata 8, Kópaskeri, þingl. eig. Guðbjörg Kristjánsdóttir, gerðarbeið- andi Vátryggingafélag fslands hf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 10.00. Helluhraun 5, Skútustaðahreppi, þingl. eig. Þórunn Snæbjörnsdóttir, gerðarbeiðendur Byko hf. og fbúða- lánasjóður, þriðjudaginn 30. septem- ber 2003 kl. 14.00. Héðinsbraut 9, efri hæð, Húsavík, þingl. eig. Vigfús Þór Leifsson og Sig- rún Elín Brynjarsdóttir, gerðarbeið- endur íbúðalánasjóður og Slippfélag- ið í Reykjavík hf., þriðjudaginn 30. september 2003 kl. 10.30. Hjarðarhóll 4, Húsavík, eignarhl. gerðarþola, þingl. eig. Randver Sig- urðsson, gerðarbeiðandi Lögmanns- stofa Ingu Þallar ehf., þriðjudaginn 30. september 2003 kl. 11.00. Langanesvegur 25, Þórshöfn, þingl. eig. Þórhalla Aðalbjörg Hjaltadóttir og fvar Þór Jónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag íslands hf., fimmtu- daginn 2. október 2003 kl. 14.30. Refahús og eins ha lóð úr landi Hafra- lækjar í Aðaldal, þingl. eig. Þórhallur Ásgrímsson, gerðarbeiðendur Aðal- dælahreppur og Innheimtustofnun sveitarfélaga, þriðjudaginn 30. sept- ember 2003 kl. 15.00. Skógar H, Húsavíkurbæ (áður Reykja- hreppi), þingl. eig. Þorgrímur J. Sig- urðsson og Jarðasjóður ríkisins, gerð- arbeiðendur íbúðalánasjóður og Lánasjóður landbúnaðarins, þriðju- daginn 30. september 2003 kl. 16.00. Skútustaðaskóli (Lykilhótel Mývatni) ás. rekstrartækjum, þingl. eig. Lykil- hótel hf., gerðarbeiðendur Byggða- stofnun, Fjársýsla ríkisins, Norðlenskt framtak ehf. og Skútustaðahreppur, þriðjudaginn 30. september 2003 ld. 13.00. Sunnuvegur 8, eignarhluti gerðarþola, Þórshöfn, þingl. eig. Björgvin Axel Gunnarsson, gerðarbeiðandi Kredit- kort hf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14.00. SýSLUMAðURINN Á HÚSAVÍK Chirac segir Arafat einan geta tryggt varanlegan frið Bush Bandaríkjaforseti notaði í gær tækifærið á Allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna til þess að fordæma leiðtoga Palestínumanna og sagði þá ala á hatri í garð Israelsmanna til þess að halda völdunum fyr- ir sjálfa sig. „Vandi Palestfnumanna er gamla hatrið sem leiðtogar þeirra ala á til þess að halda völdum og það nota þeir til þess að eyðileggja góðar fyrirætlanir annarra sem vilja vel,“ sagði Bush. Þrátt fyrir að nefna Yasser Ara- fat, leiðtoga Palestínumanna, ekki á nafn var auðheyrt að Bush beindi gagnrýni sinni fyrst og fremst að honum en áður hafði hann gagnrýnt Arafat fyrir það að grafa undan friðarferlinu sem byggt er á alþjóðlega vegvísinum til friðar og sakað hann um að hafa bolað Mahmoud Abbas, fyrrum forsætisráðherra, frá völdum. Á föstudaginn kallaði hann Ara- fat svo „misheppnaðan leiðtoga". Jacques Chirac Frakklandsfor- seti var á öðru máli og sagði að JACQUES CHIRAC FRAKKLANDSFORSETl: Chirac Frakklandsforseti segir að ekki sé hægt að ganga framhjá Arafat sem réttkjörnum forseta Palestinu. ekki væri hægt að ganga fram hjá Yasser Arafat sem réttkjörnum forseta Palestínu. Hann sagðist einnig líta svo á að vonlaust væri að hugsa sér árang- ur af friðarviðrænum nema Arafat kæmi að þeim og hann í raun sá eini sem gæti tryggt varanlegan frið með áhrifamætti sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.