Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Orn Valdimarsson AÐALRTTSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýslngar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR ÐEILDIR: 550 5749 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar auglys- ingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Akureyrl: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Missti vinnuna vegna áreitni símadóna - frétt bls. 4 lceland-versianakeðjan í fjársvikarannsókn - frétt bls. 6 Sígildur Skagasigur í bikarsiagnum við FH - DV Sport bls. 24-25 Björn Ingi torfærumeistari - DVSportbls. 31 Gemsinn persónulegur vinur unglinganna - Tilvera bls. 44-45 Vonasttil þess að hitta Nessie Lloyd Scott, 41 árs Breti sem nýlega sigraðist á alvarlegu hvít- blæði, hefur ákveðið að taka þátt í Loch Ness-maraþoninu í skosku hálöndunum. Scott ætlar þó ekki að hlaupa með þeim 1300 hlaupurum sem skráð hafa sig í hlaupið heldur mun hann skokka sextán kíló- metra leið eftir botni vatnsins í kafarabúningi. Scott, sem er þriggja barna fað- ir, er þekktur fyrtr ýmis uppátæki í góðgerðarskyni og setti hann fyrr á árinu met í London-maraþon- inu á lélegasta tíma sögunnar. Með uppátæki sínu stefnir Scott að því að safna að minnsta kosti milljón pundum til hjálpar börnum sem þjást af hvítblæði og vonast til þess að hitta skrímslið Nessie á leiðinni. Kalkþörungaverksmiðju frestað FRESTAÐ: (slenska kalkþör- ungafélagið, sem er einka- hlutafélag í eigu Atvinnuþró- unarfélags Vestfjarða, hefur frestað ákvörðun um að reisa kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal. Ríkisútvarpið á fsa- firði greindi frá þessu fyrir helgi. Hefur þetta bakslag valdið mikilli óánægju íVest- urbyggð og hefur Jón BG Jónsson, forseti bæjarstjórnar m.a. lýst óánægju með þátt- tökuleysi þingmanna Norð- vesturkjördæmis í málinu. Sem kunnugt er hefur at- vinnuástand á Bítdudal verið bágborið og voru miklar von- ir bundnar við verksmiðjuna. Þess var vænst, að hægt yrði að taka ákvörðun um að byggja verksmiðjuna í haust í samvinnu við íslenska fjár- festa og írska fyrirtækið Celt- ic Sea Minerals. (rarnir hafa nú kippt að sér hendinni og telja að markaðsaðstæður í Bandaríkjunum hafi mjög breyst til hins verra síðasta misserið. Helsti markaður fyr ir kalkþörungamjöl er í Bandaríkjunum og er það einkum nýtt í alifuglafóður. Gögnin komin RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI: Efna- hagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóra hefur nú fengið nægilega mikið af gögnum frá Samkeppn- isstofnun til að unnt sé að meta meint samkeppnisbrot olíufélag- anna. Jón H. Snorrason, yfirmað- ur efnahagsbrotadeildar, segir í samtali við Mbl. að ákvörðun um hugsanlega lögreglurannsókn liggi þó ekki fyrir. Bæjarstjóm samþykkti að útrýmingu villikatta yrði hætt um sinn Kattastríð hefur verið á fsafirði að undanförnu vegna viðleitni bæjaryfirvalda til að útrýma villiköttum í bænum. Var katta- málið m.a. tekið á dagskrá bæj- arstjórnarfundar í síðustu viku og lýst yfir eins konar vopna- hléi. Málið hófst í ágúst er tilkynnt var að Valur Richter meindýraeyðir færi í átak í eyðingu villikatta á fsa- firði samkvæmt tilmælum heil- brigðiseftirlitsins. í flestum tilvik- um voru kettirnir fangaðir í búr en aðra sem ekki náðist til með þeim hætti skaut Valur einfaldlega, en hann er þekktur skotveiðimaður. Fljótlega fór að bera á því að búr- um var stolið og voru kattavinir sagðir þar að verki. Þá kvartaði Höskuldur Guðmundsson, húseig- andi í Öldunni við Fjarðarstræti, yfir því til lögreglu að Valur hefði í einni veiðiferðinni skotið f gegnum kjallarahurð hjá sér. Hafði Valur skotið kött á færi við húsið. Köttur- inn lá en kúlan hélt áfram í gegnum geymsluhurð og endaði í teppastranga sem var innan við dyrnar. Fann lögreglan kúluna í stranganum. í framhaldinu kærði (SAFJÖRÐUR: Villikettir bæjarins geta nú andað léttar, í bili að minnsta kosti, eftir að baej- arstjórn samþykkti að kattadrápi meindýraeyðis yrði hætt um sinn. Matthildur Helgadóttir, sem búsett er í hinum enda Öldunnar, Hösk- uld Guðmundsson til lögreglu vegna mikils kattagers sem hann var sagður halda hlífiskildi yfir í kjallara hússins. Mál þetta hefur undið upp á sig og barst inn á fund bæjarstjórnar í sfðustu viku. Þar krafðist Magnús Reynir Guðmundsson bæjarfulltrúi (F) þess að herferð bæjaryfirvalda gegn villiköttum yrði stöðvuð nú þegar. Var kattamálið tekið á dag- skrá undir liðnum önnur mál og lagði Magnús þá fram svohljóðandi tillögu: í flestum tilvikum voru kettirnir fangaðir í búr en aðra sem ekki náðist til með þeim hætti skaut Valur einfald- lega, en hann erþekkt- ur skotveiðimaður. „Vegna þeirrar umræðu sem orð- ið hefur um dráp á köttum í ísa- fjarðarbæ að undanförnu og þeirra atburða, sem upplýst er að orðið hafi í tengslum við drápin, sam- þykkir bæjarstjórn að nú þegar verði þessum drápum hætt. Jafn- framt verði hið fyrsta samþykkt reglugerð um kattahald í ísafjarðar- bæ og í framhaldi af því verði ákveðið hvort ástæða sé til að halda áfram drápi á villiköttum í bæjarfé- laginu." Birna Lárusdóttir, forseti bæjar- stjómar (D), lagði þá fram aðra til- lögu: „Drög að samþykkt um kattahald verðalögð fyrirbæjarráð nk. mánu- dag. í ljósi þess vísar bæjarstjórn ályktun Magnúsar Reynis Guð- mundssonar til bæjarráðs til með- ferðar og samþykkir að aðgerðum við útrýmingu villikatta verði hætt um sinn.“ Var tillaga Birnu samþykkt 8-0. Er þar með búið að koma á vopna- hléi og geta villikettir bæjarins því sleikt sár sín óáreittir - allavega á meðan bæjaryfirvöld gefa ekki út nýja stríðsyfirlýsingu. hkr@dv.is Þyrla kölluð út vegna mannlauss báts Mikill viðbúnaður var við Hellu- vatn við Rauðhóla í gærkvöld vegna báts sem sást á reki. Forsaga málsins er sú að maður hafði samband við lögreglu um áttaleytið í gærkvöld og tilkynnti að hann hefði séð mannlausan bát á reki á Helluvatni við Rauðhóla. Hann taldi sig jafnframt hafa séð þrjá menn um borð í bátnum fyrr um daginn. Talið er líklegt að bát- urinn hafi verið illa festur. Lögreglumenn fóru þegar á vett- vang og var kallað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar auk björgun- arsveita og kafara Slökkviliðs höf- uðborgarsvæðsins. Þyrlan fór á loft klukkan 20.43 og sveimaði yfir leitarsvæðinu í um það bil klukkustund. Sú leit bar ekki ár- angur. Björgunarsveitir og kafarar leituðu einnig án árangurs. Ekkert en þar hafði verið tilkynnt um mannlausan bát á reki. DV-myndEggert markvert fanst. ið út á vatnið. Umræddur bátur mun reglan í Reykjavík mun í dag kanna Að sögn lögreglu er talið lfldegt að ekki hafa verið á Helluvatni áður málsatvik enn frekar. amdisQdvJs báturinn hafi verið illa festur og rek- heldur geymdur annars staðar. Lög-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.