Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 4
4 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003
Kanna farm vöruflutningabíla
UMFERÐAREFTIRLIT: Lögregl-
an í Reykjavík kannaði fyrir
helgi hvort ökumenn sem
færu um Hvalfjarðargöng færu
að settum reglum um flutn-
inga um göngin. Settar voru
reglur um takmarkanir á um-
ferð um göngin í apríl síðast-
liðnum en þær fela meðal ann-
ar í sér að bannað er að flytja
eldfimt gas í tönkum og yfir 50
kg af sprengiefni, auk þess
sem takmarkanir eru á flutn-
ingi á eldsneyti um göngin.
Lögregla stöðvaði að þessu
sinni 18 vörubifreiðir og kann-
aði farm þeirra með tilliti til
reglnanna. Engarathugasemd-
ir voru gerðar að þessu sinni
en búast má við að lögregla
haldi áfram að fylgjast með
hvort farið sé eftir reglunum.
íhuga samt málshöfðun
VIÐSKIPTI: Fulltrúar Aflsog At-
orku - þeir Margeir Pétursson,
Styrmir Þór Bragason og Þor-
steinn Vilhelmsson, hluthafar í
Sjóvá-Almennum - sendu frá
sér yfirlýsingu um helgina þar
sem þeir segja það fagnaðar-
efni að forráðamenn trygg-
ingafélagsins og fslandsbanki
hafi látið kaup hins síðar-
nefnda á bréfum félagsins
ganga til baka. Um er ræða 2%
hlut félagsins. Þremenningarn-
ir segja þennan gjörning þó
ekki duga til að krafa um hugs-
anlega málshöfðun gegn (s-
landsbanka verði tekin af dag-
skrá hluthafafundar Sjóvár-AI-
mennra. Hluthafafundur Sjó-
vár-Almennra er fyrirhugaður á
næstunni en dagsetning hefur
ekki verið ákveðin.
Hrunamannahreppur:
Kæpðup
fypip kynfepfl-
islega ápeitni
Missti vinnuna í kjöl-
far áreitni símadóna
Kona hefur misst starf sitt í kjöl-
far kynferðislegrar áreitni sem
hún varð fyrir sl. vetur. Hún leit-
ar nú réttar síns með aðstoð
stéttarfélags síns.
Forsaga þessa máls er sú að tvær
konur í Hrunamannahreppi kærðu
karlmann á sama stað fýrir kyn-
ferðislega áreitni síðastliðið vor.
Mun maðurinn hafa áreitt þær með
síendurteknum tölvusendingum
og SMS-skilaboðasendingum.
Gripu konurnar þá til þess úrræðis
að leita til embættis lögreglunnar á
Selfossi um aðstoð við að upplýsa
málið. Nálgunarbann var sett á
manninn sem fólst í því að honum
var hvorki heimilt að koma nærri
Vinnustöðum kvennanna né heim-
ilum þeirra.
Gerður var starfslokasamningur
við manninn en í haust var hann
síðan ráðinn til sérverkefna. Önnur
kvennanna gat ekki hugsað sér að
mæta til vinnu meðan hann væri
að sýsla í nágrenninu. Forráða-
menn sveitarfélagsins tilkynntu
henni að ef hún ekki mætti strax til
vinnu yrði önnur kona ráðin í
hennar stað. Konan skýrði sitt mál
en engu að síður var önnur kona
ráðin í starf hennar um síðustu
mánaðamót.
Samkvæmt heimildum DV hefur
umrædd kona leitað til stéttarfélags
síns til að fá leiðréttingu sinna
mála. Forráðamenn sveitarfélags-
ins hafa, samkvæmt upplýsingum
sem blaðið hefur aflað sér, sagt
henni að hún gæti fengið annað
starf en því vill hún ekki una. Mikill
kurr hefur verið á vinnustað kon-
unnar vegna þessa máls.
Forsvarsmenn Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja (BSRB), svo og
Félags opinberra starfsmanna á
Suðurlandi, vildu ekki tjá sig um
málið þegar DV leitaði til þeirra í
morgun.
Manninum var sagt
upp störfum en í haust
var hann síðan ráðinn
til sérverkefna. Önnur
kvennanna gat ekki
hugsað sér að mæta til
vinnu meðan hann væri
að sýsla í nágrenninu.
Sigurður Ingi jóhannssson
oddviti í hrunamannahreppi sagði
við DV í morgun, að þetta m'+al
tengdist endurskipulagningu
viðkomandi stofnunar og flutningi
í nýtt húsnæði. Öllu starfsfólki
hefði verið sagt upp í tengslum við
það, enda bæri að auglýsa wftir
fagfólki. Umsóknir hefðu ekki
reynst fleiri en svo, að unnt hefði
verið að bjóða öllum
starfsmönnunum áframhaldandi
vinnu, þar á meðal umræddri
konu. Hún hefði verið erlendis á
þessum tíma, en þegar hún hefði
komið heim hefði hún upplýst að
hún væri ekki tilbúin til að mæta til
vinnu fyrr en umræddur maður
væri farinn úr sveitarfélaginu.
„Þetta mál hefur aldrei komið
inn á borð hjá okkur sem
starfsmannamál, né verið fjallað
um það sem slíkt,“ sagði Sigurður
Ingi. „Sveitarfélagið hefur allt sitt á
Tvær kærur hafa verið lagðar
fram á hendur ibúa i Hruna-
mannahreppi á Suðurlandi vegna
kynferðislegrar áreitni. Önnur
kæran mun, samkvæmt heimild-
um DV, hafa verið lögð fram af
leikskólakennara á svæðinu en
hin af grunnskólakennara i
Fiúðaskóla.
Maðurinn er sagður hafa áreitt
konumar með síendurteknum
hringingum og SMS-skilaboða-
sendingum þannig að þeim var
nóg um og lögðu þær loks fram
kæru hjá embætti lögreglunnar á
Selfossi. Nálgunarbann hefur ver-
ið sett á manninn þannig að hon-
um er að svo stöddu hvorki heim-
ilt aö koma nálægt leikskólanum
né grunnskólanum á Flúðum.
ibúar Hrunamannahrepps, sem
DV náöi taii af í gær og í morg-
un, vildu ekki tjá sig um málið
að svo stöddu en þeir sögðu mál-
ið vera á mjög viökvæmu stigi.
íbúar Hrunamannahrepps eru ríf-
lega 700 talsins. -áb
hreinu lögformlega, það hefur
gengið frá öllu sem því ber. Þetta er
einkamál sem kemur
sveitarfélaginu ekki við.“
JSS
Frétt Dv um málið í vor.
Hætta stafar af minni loftþrýst-
ingi í dekkjum flutningabíla
Vegagerðin hefur verið að setja
vöruflutningabílstjórum reglur
sem margir vöruflutningabíl-
stjórar telja vera stórhættuleg-
ar þeim sem og allri annarri um-
ferð.
Þannig leyfír Vegagerðin að
þrýstingur fari úr 110 pundum nið-
ur í 85, eða lækki um 20%, á bflum
sem eru með yfir 40 tonna flutning.
Með þessu lagi endast dekkin ekki
eins vel, oftar springur á þeim
vegna þess að hliðar dekkjanna
eyðast mun hraðar. í haust varð
banaslys á Borgarfjarðarbrú er
vöruflutningabfll stakkst á Hvítá,
og er talið að sprungið hafi á bfln-
um, m.a. vegna þess að loftþrýst-
ingur var lægri en framleiðendur
telja eðlilegt. Rannsóknarnefnd
umferðarslysa rannsakar nú sér-
staklega þennan þátt.
Vöruflutningabílstjóri
segir að dekkjafram-
leiðendur taki ekki
ábyrgð á dekkjunum
þegar loftþrýstingurinn
sé sá sem Vegagerðin
fari fram á, þ.e. úr 170
pundum niður í 85
pund, eða um 20%.
Einn vöruflutningabflstjóranna
segir að dekkjaframleiðendur taki
ekki ábyrgð á dekkjunum þegar
loftþrýstingurinn sé sá sem Veg-
gerðin fari fram á, þ.e. úr 110 pund-
um niður í 85 pund, eða um 20%.
Bflarnir verða mun leiðinlegri í
akstri, ekki eins rásfastir og fram-
leiðendur þeirra lofa kaupendum
og þeir eru smíðaðir fyrir. Koma
þurfi í veg fyrir fleiri slys af þessum
ástæðum eins og á Borgarfjarðar-
brúnni fýrr í haust, en rannsóknin á
því banaslysi beinist m.a. að því
hvort loftþrýstingur og slit dekkj-
anna á vöruflutningabflnum geti
hafa verið bflnum skeinuhættur.
Nýir flutningabílar eru með það
stóra vél og það vel útbúnir að þeir
taka jafn hratt af stað á ljósum og
fólksbfll en ef stöðva þarf skyndi-
lega, eða nauðhemla, er hemlunar-
vegalengd sú sama og á eldri bfl
sem var lengur af stað í viðbragð-
inu. Segir vöruflutningabflstjórinn
hættu á að yngri bflstjórar hafi ekki
tilfinningu fýrir þessu þætti. Flutn-
ingabflstjórinn segir að krafist sé
þess að allir vagnar séu á tvöföld-
um hjólum hérlendis, sem ekki
þekkist erlendis og að helst séu all-
ir á loftfjöðrun, annars fái vagninn
ekki að flytja aukalega 5 tonn. Það
hljómi eins og dulbúin aðferð við
að koma gömlum flutningabflum
af markaðinum og af vegunum.
Ekki slysahætta
Jón Rögnvaldsson vegamála-
stjóri segir að í reglugerð um stærð
og þyngd ökutækja frá árinu 1998
sé ákvæði um ákveðið hámark á
loftþrýstingi í bfldekkjum en síðan
sé leyfður meiri þungi með því skil-
yrði að bifreiðin fari ekki yfir ákveð-
in öxulþunga.
RANNSOKN A LOFTÞRYSTINGI: Meðal þess sem rannsakað er vegna banaslyssins á Borgarfjarðarbrúnni er hvort loftþrýstingur í
hjólbörðum hafi átt þátt í því.
„Öxulþungatakmarkanir • eru
fyrst og fremst settar á vorin og þá
hefúr verið gerður við þá samingur
að þeir megi vera með meiri flutn-
ing ef loftþrýstingur er lægri f
dekkjunum. Menn þurfa auk þess
að aka með sérstakri varúð á þeim
árstíma. Þetta ákvæði um loftþrýst-
inginn er hins vegar ekki í gildi á
þessum árstíma," segir vegamála-
stjóri.
- Sumir segja að það sé að bjóða
hættunni heim að vera með lægri
loftþrýsting í dekkjum flutninga-
bfla. Er það rétt?
„Það þarf auðvitað að vera innan
skynsamlegra og tæknilegra marka.
Vöruflutningabflstjórar geta ekki
farið með loftþrýstinginn of langt
niður í dekkjunum. Of mikill loft-
þrýstingur getur að sama skapi ver-
ið óæskilegur, ekki síst í hálku. En
við teljum ekki að af þessu stafi
slysahætta." gg&dv.is