Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 8
8 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 Sá sjötti í mánuðinum Rólegt hjá lögreglunni Talsverðar reykskemmdir UMFERÐARÓHAPP: Harður árekstur varð á Arnarnesvegi við Fífuhvammsveg, á mörkum Kópavogs og Garðabæjar, skömmu fyrir klukkan tvö í gærdag. Áreksturinn varð með þeim hætti að annar bíllinn ætlaði að beygja til vinstri nið- ur í Kópavog, en ekki eru sér- stök beygjuljós á þessum gatnamótum sem ruglaröku- menn oft í ríminu. Haft er eftir lögreglunni í Hafnarfirði að þetta sé í sjötta skiptið sem árekstur verður á þessum stað það sem af er mánuðinum. Tveir voru í hvorum bíl fyrir sig og voru þrír þeirra fluttir á slysadeild Landspítala - há- skólasjúkrahúss í Fossvogi til skoðunar. Meiðsli þeirra munu þó ekki hafa verið alvarleg. RÓLEGHEIT: Helgin gekkfrem- ur rólega fyrir sig hjá lögregl- unni í Reykjavík en fáir munu hafa verið á ferli í miðborginni. Lögreglan hafði sérstakt eftirlit á ákveðnum stöðum í Breið- holti vegna atburða sem þar hafa átt sér stað síðustu vikur og virðist sem þetta aukna eft- irlit hafi skilað sínu þar sem fátt markvert gerðist. Lögreglan í Kópavogi þurfti þó að sinna nokkrum útköllum þar sem kvartað var yfir há- vaða frá ölvuðu fólki en annars var helgin að mestu róleg. Þá var tilkynnt um bruna í bifreið á Akureyri sem grunur leikur á að kveikt hafi verið í. Auk þess var tilkynnt um innbrot í hús- næði Leikfélags Akureyrar. SLÖKKVISTARF: Eldur kom upp í húsi við Ingólfsstræti á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags og hafði slökkvilið mikinn viðbúnað í kringum svæðið. Fjöldi slökkviliðsbíla var sendur á vettvang og var nærliggjandi svæði lokað í ör- yggisskyni. Mikinn reyk lagði frá húsinu en töluverðan tíma tók að finna eldinn. Hann fannst þó að lok- um undir gólfbita og lauk slökkvistarfi þegar klukkan var farin að ganga fimm. Töluverðar skemmdir urðu í húsinu vegna reyks en lög- regla hefur málið nú til rann- sóknar. Nær 400 dauðsföll á ári vegna reykinga íslensk skýrsla sýnirmun hærrikostnað samfélagsins en erlendar rannsóknir Um 350 til 400 manns látast á ári hverju á (slandi vegna beinna og óbeinna reykinga sem er meira en vegna neyslu ólöglegra fíkniefna, áfengis- neyslu, umferðarslysa, morða, sjálfsmorða og alnæmis. Kostnaðurinn vegna beinna og óbeinna reykinga hérlendis er met- inn um 20 milljarðar króna þegar búið er að draga frá tekjur ríkisins vegna reykinga. Heildarniðurstöð- urnar í íslensku skýrslunni sýna hlutfallslega mun hærri kostnað en tölur frá Sviss og fjórfalt hærri en í þýskum rannsóknum. Þetta kemur fram í skýrslu sem Þóra Helgadóttir hjá Hagfræðistofnun Háskóla ís- lands vann fyrir Tóbaksvarnar- nefnd. Hver reykingamaður eyðir um 9,6 dögum á ári íreykingar á vinnu- tíma. íslensk fyrirtæki og stofnanir borga starfsmönnum sínum um 4 milljarða króna í kaup árlega fyrir reyk- ingapásur. Óáþreifaniegur kostnaður Athygli vekur að óáþreifanlegur kostnaður er metinn mjög hár í þessum tölum, eða rúmlega 7,8 milljarðar lcróna af heildarupp- hæðinni. Þar er verið að tala um kostnað vegna sársauka og þján- inga í kjölfar reykinga. Er þar vísað til samanburðar við svissneskar, þýskar og bandarískar rannsóknir. í íslensku skýrslunni er óáþreifanlegi kostnaðurinn sá sami og í umreikn- uðu svissnesku rannsókninni en óáþreifanlegur kostnaður er ekki tekinn með í bandarísku og þýsku rannsókninni. Ólíkar niðurstöður Heildarkostnaður vegna reyk- inga hérlendis er sagður 19,8 til 20,8 milljarðar króna þar sem yfir- færðar svissneskar rannsóknir eru með tæpa 14,8 milljarða, banda- rískar rannsóknir með tæpa 12,2 milljarða og þýskar rannsóknir sýna rúmlega 5,4 milljarða króna kostnað vegna reykinga. milljarða króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.