Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 4= Félag um rafskautaverksmiðju VHDSKIPTl: Fyrirtækið R&D Car- bon Ltd. hefur stofnað hlutafé- lagið Kapla hf., Þróunarfélag rafskautaverksmiðju á Katanesi, en viðræður hafa staðið yfir frá því í vor milli Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Lands- virkjunar um byggingu slíkrar verksmiðju. Verkfræðistofan Hönnun hf. hefur verið ráðin til að vinna að gerð umhverfis- mats en gert er ráð fyrir að í lok næsta árs liggi umhverfismat og starfsleyfi vegna verksmiðj- unnar fyrir. í kjölfarið verður tekin ákvörðun um framhaldið. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan muni framleiða um 340 þúsund tonn af rafskautum í lokaðri hringrás, veita 140 manns at- vinnu og það kosti um 17 millj- arða króna að reisa hana. Tónlist.com opnar í New York TÓNLIST: Tónlistar- og kynningarvefurinn www.tonlist.com var opnaður formlega við hátíðlega athöfn í New Yorká laugardags- kvöldið. Vefnum er ætl- að að kynna íslenska tónlist um allan heim en þar er að finna gríð- arlegt magn af íslenskri tónlist sem hægt er að kaupa og hlaða niður í tölvu til einkanota. Opn- unvefsinsfórframá skemmtistaðnum Joes Pub en meðal þeirra sem þar voru viðstaddir voru HalldórÁsgrímsson ut- anríkisráðherra, jass- píanistinn Sunna Gunn- laugs og Einar Örn, auk þess sem hljómsveitin Mínus fór upp á svið og flutti nokkur vel valin lög. Miklarvonireru bundnar við vefinn en að sögn aðstandenda hans hefur þetta gengið vonum framar það sem af er. Starfshópur um skipulag vegna slysa skilar skýrslu sinni: Samræma þarf þjálfun björgunar- fólks Auka þarf kunnáttu almenn- ings í skyndihjálp og samræma þarf þjálfun þeirra aðila sem sjá um aðhlynningu á slysstað. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu starfshóps um skipulag vegna slysa en dóms- málaráðherra skipaði hópinn eftir skýrslu Rannsóknarnefnd- ar umferðarslysa um banaslys í umferðinni árið 2000. í skýrslunni kemur fram að við- brögð við slysum eru ekki alltaf eins og til er ætlast. Því er þörf á að bæta skipulag á þjálfun þeirra aðila sem að björgunarstörfum koma, þ.e. lögreglu, björgunarsveita og fólks í heilbrigðisgeiranum. Þá þarf að skipuleggja betur verkaskiptingu, samskipti, samhæfingu og boðleið- ir við björgunaraðgerðir. Meðal þess sem bent er á í skýrsl- unni er að þegar slys ber að hönd- um geti rétt viðbrögð þeirra sem fyrstir koma á vettvang skipt gríðar- lega miklu máli. Einnig kemur fram veruleg vankunnátta í viðbrögðum almennings þegar slys verður og því er lagt til að Skyndihjálparráð og Rauði krossinn taki þátt í þjóð- arátaki til þess að færa skyndihjálp- arnámskeið inn í grunnskóla lands- ins. Þá er einnig lagt til að skyndi- hjálp verði kennd á vinnustöðum og að samræma þurfi fyrstu hjálpar kunnáttu hjá löggæslufólki, slökkviliðsmönnum og björgunar- sveitum. Samkvæmt skýrslunni er um helmingur banaslysa hér á landi umferðarslys, á bilinu 5-10% eru sjó- og flugslys en um 40% banaslysa má rekja til annarra þátta, s.s. slysa við vinnu eða á heimili. Lagt er til í skýrslunni að komið verði á fót sérstakri Rann- sóknarnefnd slysa sem rannsaki önnur slys en þau sem eiga sér stað við samgöngur eða vinnu. SKÝRSLA: Viðbrögð við slysum eru ekki alltaf eins og til er ætlast. Því er þörf á að bæta skipulag á þjálfun þeirra aðila sem að björgunar- störfum koma Svindlarar reyna að ná kreditkortanúmerum fólks á Netinu Varað við vefblekkingum Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra sendi nýverið frá sér tilkynningu þar sem varað er við svindlurum á Netinu sem hafa síðustu misseri verið iðnir við að blekkja fólk til þess að láta af hendi greiðslukorta- númer sín og meðfylgjandi PIN- númer. Blekkingarnar hafa farið þannig fram að fólk sem að öllum likind- um hefur átt í viðskiptum við vef- inn E-Bay.com hefur fengið sendan tölvupóst sem virðist eiga uppruna sinn hjá fyrirtækinu. í bréfinu segir að villa hafí komið upp í skrám vefsins og því þurfi viðtakandi póstsins að gefa upp ýmsar per- sónuupplýsingar upp á nýtt, þar á meðal kreditkortanúmer. Lögregla segir blekkingarnar vera einstaklega vel skipulagðar en meðal annars hefur verið settur upp vefur sem líkist vefsvæði E- Bay-fyrirtækisins mjög mikið. Þar er pósturinn sem margir hafa á síð- ustu vikum fengið í raun og veru upprunninn en ekki hjá hinu eigin- Iega E-Bay-fyrirtæki. Erfitt getur verið fyrir fólk að átta sig á þessu og því sér lögregla ástæðu til þess að vara almenning við. Grunur liggur á að þeir sem að blekkingunum standa hafí á einhvern hátt komist yfír netföng þeirra sem átt hafa í viðskiptum við E-Bay og þannig hafið blekkingarnar hafist. í tilkynningu frá ríkislögreglu- stjóra er það jafnframt tekið fram að ekki sé vitað til þess að neinn hér á landi hafi látið blekkjast af þess- um póstsendingum eða tjón hafi orðið af þeirra völdum. Þeim sem hugsanlega hafi látið uppi ein- hverjar upplýsingar um kreditkort sín er aftur á móti ráðlagt að hafa þegar samband við viðkomandi kreditkortafyrirtæki og tilkynna um málið. Á hverju ári ná svikarar sem þessir að blekkja fjölda fólks víðs vegar um heiminn og talið er að fjármunirnir sem sviknir eru út með þessum eða svipuðum hætti nemi milljörðum á ári hverju. agust@dv.is NETIÐ: Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra varar almenning við svindlurum á Netinu en ekki er vitað til þess að neinn hafi látið blekkjast hér á landi. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.