Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Page 13
MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 13 Heita að berjast áfram Laura til bjargar orðsporinu PALESTÍNA; Palestínumenn minntust þess í gaer að þrjú ár eru liðin síðan þeir hófu upp- reisn sína gegn hernámi Isra- els og fyrir stofnun eigin ríkis. Við það tækifæri hétu þeir að berjast áfram þar til sigur ynn- ist á ísraelska hernámsliðinu. „Við erum hingað komnirtil að sýna staðfestu okkar í að halda uppreisninni áfram þartil við öðlumst frelsi," sagði Mah- moud Aloul, landstjóri í Nablus á Vesturbakkanum, þar sem þúsundir komu saman. Palestínumenn segja að upp- reisnin hafi byrjað eftir að Ariel Sharon, sem þá var leið- togi stjórnarandstöðunnar í fsrael, heimsótti einhvern helgasta stað múslíma í Jer- úsalem 28. september 2000. ÍMYND: Bandaríska forsetafrú- in Laura Bush kom til Parísar í gær, í fyrsta áfanga fimm daga ferðar sinnar til Evrópu þar sem hún ætlar að reyna hvað hún getur til að bæta ímynd Bandaríkjanna í álfunni. Deilan um (raksstríð hefur mjög skað- að ímynd Bandaríkjanna á undanförnum mánuðum. „Það er landi okkar til mikilla hagsbóta ef okkur tekst að sýna fólki um allan heim hvernig við erum í raun og veru og hver lífsgildi okkar raunverulega eru," sagði Laura Bush áður en hún lagði upp í langferðina. Þetta er þriðja ferð forsetafrú- arinnar einnar síns liðs til út- landa frá því hún flutti í Hvíta húsið. OCDE Vinkona meints morðingja Önnu Lindh afhendir gögn Sænska lögreglan hefur nú undir höndum mikilvæg gögn sem tilheyra hinum 24 ára Mijailo Mijailovicsem grunaður er um morðið á Önnu Lindh ut- anríkisráðherra. Það var vin- kona hins grunaða sem afhenti lögreglu gögnin. Sænska Aftonbladet segir að konan sé lykilvitni í rannsókn lög- reglunnar þar sem hún hafi vit- neskju um hvað Mijailovic hafði fyrir stafni fyrstu dagana eftir morðið á utanríkisráðherranum. Aftonbladet hefur heimildir fyrir því að meintur morðingi hafi búið hjá konunni í íbúð hennar suður af Stokkhólmi. Lögreglan yfirheyrði NÝGÖGN: Sænsku lögreglunni hafa borist ný gögn í rannsókninni á morðinu á önnu Lindh utanríkisráðherra. konuna á laugardag. Lögreglan er svo viss um að hafa fangað morð- ingjann að hún hefur í raun hætt allri vinnu með aðrar upplýsingar, að sögn Dagens Nyheter. Hinn grunaði var ekki yfirheyrður um helgina. Vikurnar fyrir morðið barst Önnu Lindh fjöldi sendinga sem túlka má sem hótunarbréf. í einni þeirra var henni líkt við Stalín, ein- ræðisherra í Sovétríkjunum. Embættismenn utanríkisráðu- neytisins fóru margsinnis fram á það á meðan á kosningabaráttunni fyrir evru-atkvæðagreiðsluna stóð að Lindh fengi vemd. Sænska ör- yggislögreglan SAPO taldi aftur á móti að ekki væri þörf á slfku. Kennsla hefst í FIA skólanum 1 □. Oktober. Veró með námsgögnum: 99.000 kr. Vinsamlegast greiöiö staöfestingargjaldið 25.000 kr. um leið og innritun á sér staö. Leggið inn á reikning 515-14-605933 undir PPI-FIA, nafni og heimilsfangi, annars telst skráning ekki gild. Skráning í síma 577 5555 jonina@planetpulse.is Smáauglýsingar ertu að kaupa eða selja? 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.