Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 18
34 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 ÓHOLLT: „Ef við borðum feitan mat, hvítt hveiti, hvítan sykur (uppistaðan í skyndibita) og drekkum mikið gos er uppskeran er offita, kransaeðavandamál, sykursýki tvö eða eitthvað þaðan af verra. Við getum aldrei svikið neinn annan með því sem við borðum," segir Guðjón meðal annars í greininni. Hvers vegna að borða? Ein ástæða þess að megrunarkúrar virka ekkil líkamiogsál Guðjón Bergmann w|s>iy|r yoga@gbergmann.is Innst inni veistu nokkurn veg- inn hvað er hollt mataræði og hvað er óholit. Hugsaðu! Þú veist að þegar þú ferð út í sjoppu og færð þér súkkulaði og gos að þú ert að láta eftir þér óhollustu. Þú veist að það hefur ekkert að gera með þá nær- ingu sem líkami þinn þarf á að halda. Þú veist betur, en af hverju framkvæmir þú ekki alltaf í sam- ræmi við þá vitneskju? Að borða eftir lista Flest erum við of upptekin af því að spyrja í sífellu: Hvað á ég að jg borða? Spurningin er alltaf hvað, hvað, hvað? Við förum til einka- þjálfara, næringarráðgjafa og leit- um í bækur eftir listum yfir hvað við megum og hvað við megum ekki borða. Megrunarkúrar ganga út á þessa aðferðafræði. Hversu margir megrunarkúrar virka? Við vitum öll svarið við því. Flestir end- ast mislengi við það að borða eftir lista. Það býr ekki til nýjan lífsstíl, það gerir okkur háð listanum og þeim aðilum sem búa til listana. Þegar við „föllum" síðan í gamla farið eða „svíkjumst“ undan ljúg- um við því að okkur að við séum Gott mataræði er okk- ar einkamál. Við ætt- um ekki að nota það til að hreykja okkur á því hvað við borðum miklu hollari mat en allir aðrir. ekki að svíkja okkur sjálf heldur þann aðila sem bjó til listann. Við erum farin að svíkja einhvern ann- an með því sem við borðum. Hvernig getur það gengið? Aldrei að borða fyrir aðra Mataræði snýst aldrei um neinn annan en þann sem borðar mat- inn. Hér gildir einfalt lögmál sán- ingar og uppskeru. Við uppskerum í samræmi við þann mat sem við borðum. Ef við borðum feitan mat, hvítt hveiti, hvítan sykur (uppistað- an í skyndibita) og drekkum mikið gos er uppskeran ofFita, kransæða- vandamál, sykursýki tvö eða eitt- hvað þaðan af verra. Við getum aldrei svikið neinn annan með því sem við borðum. Þess vegna skiptir ekki máli hvað öðrum finnst um okkar mataræði. Það kemur engum öðrum við. Gott mataræði er okkar einkamál. Við ættum ekki að nota það til að hreykja okkur á því hvað við borðum mikiu hollari mat en allir aðrir. Samkvæmt lögmáli sán- ingar og uppskeru sést munurinn einfaldlega á því hvernig við eld- umst, hvað við höfum mikla orku frá degi til dags og hversu heilsu- hraust við raunverulega erum. Tilfinningalegt ofát Þá komum við að aðalspurning- unni. Hvers vegna borðum við? Hvers vegna förum við stundum inn í ískáp eða út í sjoppu þegar við erum nýbúin að borða? Hvað er það sem rekur okkur áfram? Yfir- leitt búa einhver særindi að baki slíkri hegðun eða bara skamm- tímahugsun. Ef við höfum orðið fyrir tilfinn- ingalegu áfalli einhvers staðar á lífsleiðinni reynum við oft að deyfa okkur með ofáti í staðinn fýrir að horfast í augu við vandamálið. Eina lausnin er að takast á við það sem Efvið höfum orðið fyr- ir tilfinningalegu áfalli einhvers staðar á lífs- leiðinni reynum við oft að deyfa okkur með ofáti í staðinn fyrir að horfast í augu við vandamálið. Eina lausnin er að takast á við það sem hefur sært okkur. hefur sært okkur. Takast á við reið- ina, sorgina, óttann eða pirringinn og breyta síðan um hegðun. Allir megrunarkúrar eru dæmdir til að mistakast ef þessi tilfmningalega viðhorfsbreyting er ekki fram- kvæmd samhliða vinnunni sem henni fýlgir. Við breytum ekki um hegðun nema að við upprætum or- sökina fyrir hegðuninni. Þeir sem þjást af skammtíma- hugsun þurfa að sjá langtímafleið- ingar þess sem þeir gera. Óhollt mataræði í dag þýðir skert orka á morgun eða eftir nokkur ár. Við þurfum að læra að taka langtímaaf- leiðingar fram yfir stundarfróun. Borða í samræmi við lífsstíl Annað sem við verðum að hafa í huga er að sum okkar voru alin upp á heimilum þar sem feður okkar og mæður unnu líkamlega vinnu. A slíkum heimilum er mikið borðað. Sjómenn og bændur þurfa mikla orku enda er vinnan allt annað en auðveld. Flestir sem starfa í nútíma samfélagi vinna hins vegar ekki erf- iðisvinnu en borða enn þá í sam- ræmi við það sem þeim var kennt í uppvextinum. Viturleg þróun er að breyta um mataræði samhliða því að við breytum um lífsstfl. Eftir því sem við eldumst og minnkum hreyfinguna hægist á brennslu lík- amans og hið óumflýjanlega gerist, við fitnum. Skoðaðu því umhverfi þitt, lífsstflinn, og sjáðu hvort þú borðar í samræmi við hreyfíngu. Ef ekki, gerðu þá eitthvað í málinu!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.